Morgunblaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 53
bundins náms léku um okkur
nemendur. Skiptar skoðanir eru um
af hvaða toga þær merku breyting-
ar voru spunnar. Eiríkur sem
ungmennafélagi og skólamaður átti
á síðari árum um þetta fastmótaða
skoðun og ræddi oft um hver nauð-
syn væri að gera grein fyrir, ekki
síst eftir að saga Reykjavíkurskóla
kom út, en því miður entist honum
eigi aldur til þess.
Við skólafélagar kynntumst
Eiríki fyrst náið á ferð okkar sem
fímmtubekkingar um Norðurland
1931 og er hann lék aðalhlutverkið
í Herranótt 1932. Hann bar þann
skólaleik uppi af meðfæddum leik-
hæfíleikum.
Ekki minnist ég þess, að hafa
séð Eirík stíga í ræðustól á skólaár-
unum.
Þegar hann kom í Menntaskól-
ann í Reykjavík, hafði verið gefín
út skátabókin „Ég lofa... sem
hann hafði þýtt úr dönsku. Okkur
skólafélögum hans fannst mikið til
þess koma, er við litum í glugga
bókaverslunar.
í lok júní 1932 útskrifaðist Eirík-
ur stúdent með hárri fyrstu ein-
kunn. Hópurinn sem útskrifaðist
var fámennur. Aðeins vorum við
25. Kreppa var skollin á. Enda
minntist rektor hennar í sinni frá-
bæru skilnaðarræðu til okkar
nýstúdenta. „Manndómur" heitir
raeðan. Þar mæltist honum svo:
„Það verður naumast sagt að ver-
öldin bíði ykkar með breiddan
faðminn, þegar þið nú hverfíð héð-
an. Það er ekki glæsilegt að horfa
fram á háskólanám á slíkum tímum,
sem nú eru. Hið næsta er tvísýnið
um afkomu námsáranna fyrir vel-
flestum ykkar. Og ef lengra er litið
er óvissan um það að fá notið sín
að námi loknu. A allar hliðar blasir
við torleiði og erfíðleikar." Er hann
um stund hafði dvalið við þekkingu
og vísindi, sköpun morðvopna og
valdbeitingu til að drepa og kúga,
skort á valdi yfír valdi, mæltist
honum svo: „Farið því og leitið
ykkur þekkingar. Eflið manndóm
ykkar, að þið fylgið því jafnan sem
sannast reynist, hvað sem ykkar
eigin hagsmunum, óskum og ástríð-
um líður."
Eiríkur hélt frá stúdentsútskrift
með góðar einkunnir og vináttu
okkar samstúdentanna, en ég hygg
að brýningar rektors: „... leitið
ykkur þekkingar" og „Eflið mann-
dóm ykkar..., hafí ekki síst orðið
Eiríki eggjun á lífsleiðinni og ræðu-
snilld rektors í ávörpum til nemenda
fordæmi, er hann síðar meir þurfti
að ná athygli nemenda sinna.
Þekkingar leitaði Eiríkur í Kenn-
araskóla, guðfræðideild Háskóla
Islands og háskóla í Sviss.
Manndóm sýndi hann við
kennslustörf við frumstæða aðstöðu
í Núpsskóla og síðar er hann gerð-
ist skólasijóri þess skóla. í hans
skólastjóratíð hófst framkvæmd við
nýbyggingar. Oft var fjárhagur
naumur, því framlög voru tíðum
smá í Qárlögum Alþingis. Var á
tíðum svo, að fram hjá Núpsskóla
var gengið og frekar veitt ríflega
til íjósbyggingar annars héraðs-
skóla. Kallaði Eiríkur þau fjárlög
„Qóslög". Einnig var fé til starf-
rækslu naumt og lagði hann því á
sig aukin kennslustörf, — og marg-
sinnis hljóp hans ágæta eiginkona,
Kristín Jónsdóttir, undir bagga með
því að taka að sér störf starfsstúlku
eða ráðskonu. Hann var sýnilega
tíðum örþreyttur. Er hann hætti
störfum á Núpi og gerðist prestur
og þjóðgarðsvörður á Þingvöllum
fór íjármálaeftirlit skóla, sem Aðal-
steinn Eiríksson stýrði, yfír kostn-
aðarreikninga framkvæmda og
starfrækslu yfir nokkurt árabil.
Kom þá í ljós að Eiríkur átti inni
háa fjárupphæð hjá ríkissjóði.
Slíkur var manndómur hans, að
láta eigi framkvæmdir hætta við
nýbyggingar eða skólastarfíð slæv-
ast, heldur taka á sig fjárskuld-
bindingar eða leggja fram eigið fé.
Manndóm sýndi hann engu minni
við kennslustörf, stjóm skóla og
prestsþjónustu. Rækt hans við þau
starfssvið var engin meðalmennska.
Þar var hann ofurmenni, sem lét
lítið yfír sér.
Fákunnandi mönnum um ís-
lenska skólasögu og þróun skóla-
mála var falið að semja nýja
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987
■53
skólaskipun. Þeir gleymdu hinum
merku héraðsskólum og lýðmennt-
un þeirra. Því er komið sem komið
er fyrir hinum stórmerku héraðs-
skólum, sem áttu í frumgerð tengsl
við danska lýðháskóla. Eiríki sem
fleirum sveið hversu komið er fyrir
héraðsskólum og hafði oft orð á að
þeir lægju óbættir hjá garði. Sögu
þeirra mundi hann hafa viljað skrá
eða stuðla að samningu hennar.
Eftir að hafa heimsótt á sl. sumri
lýðháskólann í Askov í Danmörku
gagntók sú löngun hann að rann-
saka og síðar skrá áhrif dönsku
lýðskólanna á íslenskt menning-
arlíf. Hugðist í þeim tilgangi halda
aftur til Danmerkur. Hver, sem var
staddur í sal Norræna hússins í
Reykjavík í fyrravetur, er Eiríkur
flutti erindi um Grundtvig, hlaut
að hrífast með honum en hryggjast
um leið, er hann greindi örlög hér-
aðsskólanna.
Einn stór þáttur í ævistarfí Eiríks
voru störf hans að málefnum UMFÍ.
Ungur drengur nam hann hugsjón-
ir ungmennafélaganna hjá skóla-
stjóra og kennurum bamaskólans á
Eyrarbakka. Frá ötulu en litlu ung-
mennafélagi hófst hann til sam-
bandsstjóra og ritstjóra Steinfaxa,
— og það sem mikilsverðast varð,
honum tókst með góðum félögum
að endurvekja landsmót UMFÍ, sem
Iegið höfðu niðri frá 1914 til 1940,
— og fylgja eftir vakningu þeirra,
svo að þau eru orðin merkur liður
í menningarkeðju þjóðarinnar.
Nú er landsmótsár og æska ung-
mennafélaganna býr sig undir að
leysa sæmdarvænlega verkefni sín
á Húsavík. Áhrifa Eiríks mun þar
gæta, þó rödd hans sé þögnuð.
Þessi kynngimagnaða rödd, studd
víðsýnum huga, töfrum tjáningar
agaðs máls og eldmóði hins stolta
ungmennafélaga.
Þökk sé Eiríki nær sex áratuga
vinátta. Það omar huga að Iíta til
baka og hafa átt með honum sam-
starf á mörgum sviðum í svo langan
tíma.
Hinni mætu eiginkonu hans,
Kristínu Jónsdóttur, sem á stóran
þátt í, að þjóðin fékk notið starfa
séra Eiríks J. Eiríkssonar að svo
margvíslegum menningarstörfum,
skal tjáð þökk og virðing.
Samúð er henni og bömum þeirra
séra Eiríks vottuð frá okkur vinum,
skólafélögum og samheijum hins
látna eiginmanns og föður.
Þorsteinn Einarsson
Mér barst andlátsfregn til fjar-
lægs lands. Séra Eiríkur var dáinn.
Maður hafði aldrei leitt hugann að
því að til þess kæmi þó að hann
væri kominn nokkuð við aldur.
Hann var maður lífsins, gróandans
og framtíðarinnar.
Eiríkur J. Eiríksson var engum
líkur. Hann var einstakur maður
og öllum ógleymanlegur sem
þekktu.
í uppvexti mínum þekkti ég hann
aðeins af afspum. En það fór þegar
miklum sögum af prestinum og
skólastjóranum á Núpi. Hann var
þá þegar orðinn landskunnur maður
svo að geta má nærri að af honum
hafí farið orðspor í næsta fírði.
En svo kom sú tíð að ég kynnt-
ist séra Eiríki heldur betur. Þá var
þegar stofnað til vináttu sem hélzt
alla tíð og aldrei bar neinn skugga
á.
Það bar svo við að leiðir okkar
séra Eiríks lágu mjög saman í mál-
um sem vörðuðu húsakost og
aðbúnað héraðsskólans á Núpi, sem
hann vann af alefli við að bæta.
Þá kynntist ég skólastjóm, sem ég
minnist alltaf þegar ég heyri góðrar
menntastofnunar getið. Mennt var
sá máttur sem bar skóla séra Eiríks
uppi. Hann kom öilum til nokkurs
þroska. Það fór slíkt orð af Núps-
skóla að hann var alltaf fullsetinn
og raunar langt umfram það lengst
af. Séra Eiríkur gat ekki neitað
ungmenni, sem sótti um skólavist.
Það er með miklum ólíkindum
hvað hægt var að taka á móti mörg-
um nemendum. Því að þótt hjarta
séra Eiríks væri stórt vom vistar-
rýmin af mjög skomum skammti
og frumbýlisháttur í flestum efnum.
En séra Eiríkur fómaði öllu til svo
að allt mætti ganga. Hann fórnaði
sjálfum sér, fjölskyldu og heimili.
Állt var lagt í sölumar til að gera
vel við skólann. Allt var með slíkum
ólíkindum að enginn trúir nema sá
sem til þekkti.
Séra Eiríkur var óumdeilanlegur
æskulýðsleiðtogi. Og hlutverk
æskulýðsleiðtogans náði langt út
fyrir veggi skólans. Það náði til
landsins alls. Hann var í áratugi
foringi ungmennafélagshreyfíngar-
innar í landinu. Á þeim vettvangi
vann hann líka ómetanlegt starf.
Það var hugsjónastarf eins og allt
sem séra Eiríkur snéri sér að.
Þegar séra Eiríkur verður prestur
og þjóðgarðsvörður á Þingvöllum
verða mikil þáttaskil í lífi hans svo
sem eðlilegt var. En það verður
samt engin breyting á honum sjálf-
um. Hann er sami hugsjónamaður-
inn, sama fómfysin og óeigingimin
mótuðu allt hans far. Umhyggja
hans fyrir þjóðgarðinum var mikil
og hugmyndir hans um hlutverk
hans og þróun voru gagnmerkar.
Helgi Þingvalla var hans hjartans
mál. Alþingi skyldi flytja á sinn
foma stað heldur fyrr en síðar.
Þingvellir vom samofnir örlögum
þjóðarinnar og þannig heilagt þjóð-
artákn.
Þegar séra Eiríkur lætur af störf-
um á Þingvöllum fyrir aldurs sakir
og flytur til Selfoss sezt hann ekki
í helgan stein. Hann tekur til að
skipuleggja bókasafn sitt, sem ekki
var lítið starf. Hér var um að ræða
stærsta bókasafn landsins í ein-
staklingseign. Alla tíð hafði séra
Eiríkur verið að koma upp og auka
safn sitt og ekki horft í að veija
dijúgum hluta embættislauna sinna
til verðmætra bókakaupa. í þessu
efni sem öðm var séra Eiríkur sjálf-
um sér líkur. Hann auðgaði ekki
sjálfan sig. Hann gaf gagnfræða-
skólanum á Selfossi safnið. Allt
skyldi gert til almenningsheilla.
Séra Eiríkur var mikill persónu-
leiki. Fóm þar saman vitsmunir,
menntun og skaphöfn. Hann flutti
mál sitt af eldmóði hugsjónamanns-
ins. Sem prestur og prófastur var
hann mikill predikari. Ræður hans
munu lengi í minnum hafðar. Lýs-
ingar hans á Lögbergi á helgi
Þingvalla verða öllum ógleymanleg-
ar fyrir meitlaða hugsun, málfar
og eldmóð.
Séra Eiríkur var alvömnnar mað-
ur. En jafnframt sá hann hið
skoplega við tilvemna og gat verið
fullur gáska. Á góðri stund gátu
vísdómsorð og gamanyrði flogið
sem skæðadrífa um völl.
Séra Eiríkur var líka gæfumaður
í einkalífi sínu. Hann átti einstak-
lega vel gerða konu og mörg
mannvænleg böm. Kristín Jóns-
dóttir frá Gemlufalli var hans betri
helmingur, og er þá ekki lítið sagt.
Á síðastliðnu sumri bjó séra
Eiríkur í fræðimannsíbúðinni í húsi
Jóns Sigurðssonar í Kaupmanna-
höfn. Hann naut þess að geta þar
stundað fræðistörf sem honum vom
hugleikin. Þar hitti ég hann í síðasta
sinn. Hann var samur við sig. Hann
jós af nægtabmnni vitsmuna og
þekkingar um menn og menntir
með heill lands og lýðs að leiðar-
ljósi svo sem hans var venja. Það
var gagn og gaman að blanda geði
við slíkan mann.
Það er mikill sjónarsviptir að
séra Eiríki. En slíks manns er gott
að minnast.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
Það er blessun þessa heims, að
í hann fæðast stöku sinnum menn,
sem er áskapað að þoka honum til
betri vegar. I upphafi þessarar viku,
þegar fréttin af láti séra Eiríks J.
Eiríkssonar barst, varð að horfast
í augu við, að einnig þeirra ævi
rennur á enda.
Aðeins ein vika var þá liðin síðan
við sátum saman dtjúga kvöldstund
á heimili hans ásamt fjölskyldum
okkar, sem því miður var sjaldnar
en við hétum hvor öðmm.
Eftir 35 ára kynni og sífellt vax-
andi vináttu er mér enn undmnar-
efni, hvemig miklir andstæðir
skapgerðarþættir; kímni og alvara,
glaðværð og tregi, umhyggja og
stríðni, ákafí og íhygli, hæglæti og
hrifnæmi, gátu búið innra með hon-
um í slíkri sátt og samlyndi, en
birzt áheyrendum hans, mörgum
eða fáum eftir atvikum, með
ógleymanlegum hætti. Gilti þá einu,
hvort ræðan var alvarlegs eðlis eða
kostuleg gamanmál.
Slík vom heilindi hans, að hann
gat aldrei annað en gefíð sig allan
í málflutning sinn, hvort sem það
var predikun, kennslustund eða
tækifærisræða. Hin síðari ár, eftir
að aldurinn færðist yfír, setti oft
að mér beyg um, að hann væri í
þann veginn að gefa meira en sig
allan.
Séra Eiríkur á Núpi, séra Eiríkur
á Þingvöllum, — það em fáir sem
hafa mótað svo tvo staði á starfs-
ferli sínum, að þeir em jöfnum
höndum kenndir við þá báða. í huga
mínum hefur hann orðið mér ímynd
að minnsta kosti fjögurra fágætra
mannkosta.
Séra Eiríkur verður mér ímynd
prests, sem býr yfír svo sterkri eig-
in trúarsannfæringu, að hann
fínnur aldrei hjá sér hvöt til að leita
uppi hið neikvæða og illa til vamað-
ar, en treystir því einlægt, að
boðskapur hans komist til skila með
því að höfða til hins jákvæða og
góða í fari einstaklinga og sam-
félags.
Séra Eiríkur verður mér ímynd
skólaleiðtoga eftir vem mína við
nám og kennslu á Núpi, en hér er
ekki kostur á að gera því skil, eins
og vert væri.
Séra Eiríkur verður mér ímynd
vinar eftir að hafa fylgst með
tengslum og gagnkvæmri um-
hyggju hans og föður míns um
hálfrar aldar skeið, sem jafnframt
batt fjölskyldur okkar vináttubönd-
um.
Séra Eiríkur verður mér ímynd
manns, sem ég kvaddi alítaf að
loknum samvistum sælli og
mennskari en ég kom. Séra Eiríkur
átti því láni að fagna að eiga konu,
sem í engu gefur honum eftir um
mannkosti; þau voru samhent og
ekki gefín fyrir að gera sér smá-
muni að farartálma. Hann var
metinn að verðleikum sem jákvæð
heild sinna andstæðu skapgerðar-
þátta og lítil alvara lögð í að leysa
hana sundur í staka þætti, jákvæða
eða neikvæða. Sjálfur dáði hann
konu sína sem kjölfestu í lífí sínu.
Bamahópurinn ólst upp við heimil-
isanda, sem byggði á sama viðhorfí
og skólastjómin og jafnan var fram-
fylgt með umburðarlyndi: Hæfíleika
á að nýta. Árangurinn staðfestir
réttmæti þessa lífsviðhorfs foreldr-
anna.
Hugur fjölskyldu minnar er hjá
ykkur þessa döpra daga. Hafí séra
Eiríkur þökk fyrir öll okkar kynni.
Þór Hagalín
Fyrir tveim misseram eða svo
héldu framfaraviljug samtök mál-
þing hér á Selfossi í þeirri von að
hraða þróun fjölmiðlunar í hérað-
inu. Upphófst þar hið mesta
ramakvein um að við Sunnlendingar
væram ævinlega seinastir til á
landsmælikvarða og virtist enn ætla
svo að verða, í þessu máli sem öðr-
um. Var fundurinn orðinn skelfílega
leiðinlegur. Síra Eiríki þótti nóg um
harmagrátinn og kvað sér hljóðs.
Eigi væri rétt að áfellast oss Sunn-
lendinga svo, til þess stæðu ekki
rök. Við hefðum oft bragðið við
skjótt, stundum fyrstir, eins og
t.a.m. á Alþingi héma um árið,
þegar við tókum við kristni, héma
á Þingvöllum.
Eftir þetta var fundurinn mjög
skemmtilegur. Þar kom reyndar
ekki aðeins til röksemdin, og vissu-
lega nefndi hann til fleira en ég
nú gat um, heldur einnig það rafur-
magn sem af þessum manni jafnan
stafaði þegar hann tók til máls, sú
útgeislun sem gjörði tilheyrendum
gjörsamlega ómögulegt að dotta.
Samhengið í sögu vorri var geng-
ið síra Eiríki í merg og bein. Engum
hef ég kynnst sem ferðaðist jafn
erfiðislaust um aldimar ellefu og
hann gerði hversdagslega. Jafnan
er ég hitti hann var það spenningur
minn hvort ég myndi mæta Jóni
Arasyni, Gissuri jarli eða ísleifi
biskupi. En hvem sem ég hitti hjá
honum þá var hláturinn vís og upp-
lyftingin, ég var alltaf miklu drýgri
við moksturinn á eftir. Við töldum
til frændsemi, af Bakkanum báðir,
mikið sé ég eftir að hafa ekki
kynnst honum fyrr. Ég þakka hon-
um gleðistundimar og samstarfíð
við Fjölbrautaskóla Suðurlands sl.
4 ár.
Ástvinum síra Eiríks tjái ég djúpa
samúð skólafólksins, mína eigin og
fjölskyldu minnar.
Þór Vigfússon
Minning:
Guðmundur Jóhannes-
son frá Siglufirði
Hann „afí“ minn, Guðmundur
Jóhannesson frá Siglufírði, er dá-
inn.
Hann sem alltaf var svo yndis-
lega góður við mig, sat með mig á
hnjánum á sér og sagði mér sögur.
Hann bjó í næsta húsi við mig á
Siglufirði og einhverra hluta vegna
hændist ég strax að honum sem
bam.
Þar sem okkur leið svona vel
saman gerðum við með okkur sam-
komulag. Hann skyldi breytast úr
Guðmundi og í „afa“ minn.
Upp frá því vissu foreldrar mínir
hvar mig var að fínna þegar ég
hvarf tímunum saman. Svo núna
átti ég tvö heimili. Eitt hjá mömmu
og pabba og systrum mínum tveim-
ur og hitt hjá honum „afa“ mínum
í kyrrðinni. Afí hafði alltaf ttma
fyrir mig. Stundum sat ég á tröpp-
unum hans og beið eftir honum
þegar hann var í vinnunni. Aldrei
leiddist mér að bíða. Þegar ég sá
mannvera með hatt og nestisbox
lengst úti hjá húsinu hans Ólafs
læknis, vissi ég að nú yrði gaman,
hann „afí“ væri að koma heim.
„Afí“ stökk inn til sín með nestis-
boxið og kyssti hana Ólu, konuna
sína, (þá varð ég afbrýðisöm, bara
að ég væri eina konan í lífínu hans
afa hugsaði ég þá). Síðan röltum
við „afí“ okkur út f skúr. Þar vora
„kettlingamir okkar" eins og við
kölluðum þá, þó svo að við ættum
ekkert í þeim. Og alltaf vora að
fæðast nýir og nýir kettlingar og
nóg að gera hjá okkur afa.
Svo leið tíminn og ég stækkaði
og flutti frá Siglufírði en áfram
héldum við „afí“ sambandi. Alltaf
kallaði ég hann „afa“ minn þó oft
hafí það valdið misskilningi innan
fjölskyldu minnar því mínir raun-
veralegu afar dóu þegar ég var
bam. En ég var staðráðin í að kalla
hann afa, því hann var „afí“ minn.
Oft langaði mig norður og var
ég þá ávallt velkomin á heimili
þeirra hjóna. Þar ríkti virðing, kyrrð
og jafnvægi. Tókum við þijú þá í
spil og rifjuðum upp gamlar minn-
ingar.
Ég þakka „afa“ minum þessar
dýrmætu stundir sem við áttum
saman og votta fjölskyldu hans
mína dýpstu samúð.
Hanna Birna
Blómabúðin
Hótel Sögu
sími 12013
Blóm og
skreytingar
gjafavörur
heimsendingar-
*, þjónusta