Morgunblaðið - 17.01.1987, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987
63
Getraunir:
Teningi
varpað í
beinni
útsendingu
ÞAÐ verða aðeins þrír leikir sem
eru á íslenska getraunaseðlinum
spilaðir á Englandi i dag. Vegna
þessa hefur verið ákveðið að ten-
ingi verði varpað í beinni útsend-
ingu ísjónvarpinu kl. 17.10 ídag.
Bjarni Felixson, íþróttafrétta-
maður sjónvarps, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi að
hann mundi sýna leik Manchester
City og Liverpool í beinni útsend-
ingu. Upphaflega var gert ráð fyrir
að leikur Newcastle og Tottenham
yrði sýndur.
Teningi verður varpað til að fá
tákn níu leikja á getraunaseðlinum
og fer það fram í beinni útsendingu
í íþróttaþættinum kl.17.10. Ten-
ingurinn sem notaður verður hefur
12 fleti. Fimm fletir hafa táknið 1,
fjórir fletir hafa táknið X og þrír
fletir hafa táknið 2.
Navratilova
Morgunblaðið/Þorkell
• Handknattleiksdeild Vfkings fákk 300 þúsund króna styrk úr Styrktarjóði íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Á myndinni eru meistara-
flokksmenn, liðsstjóri og formaður handknattleiksdeildar Vfkings eftir styrkveitinguna sem fór fram f Höfða f gær. Við sama tækifæri var
Guðmundur Guðmundsson handknattleiksmaður útnefndur íþróttamaður Reykjavfkur 1986.
Guðmundur Guðmundsson
íþróttamaður Reykjavíkur
Víkingur fékk styrk úr Styrktarsjóði íþrótta- og tómstundaráðs
valin hjá AP
MARTINA Navratilova var kjörin
fþróttakona ársins hjá AP frétta-
stofunni og Larry Bird fþrótta-
maður ársins 1986.
„Það er alltaf skemmtilegt að
hljóta þennan titil," sagði Navrat-
ilova er henni var tilkynnt um
útnefninguna. Þetta var í annað
sinn á fjórum árum sem hún hlýtur
þessa nafnbót hjá AP.
Pat Bradley kylfingur varð í öðru
sæti, Jackie Joyner hlaupakona í
þriðja sæti, norska hlaupakonan,
Grete Waitz, í fjórða og Debi
Thomas skautakona í fimmta.
„ÉG vil þakka þann mikla heiður
sem mér og fslenskum hand-
knattleik er sýndur hér og einnig
vil ég nota tækifærið og þakka
félögum mínum í Vfkingi fyrir
þeirra þátt í þessum heiðri. Þjálf-
urum mínum, Bogdan og Arna
Indriðasyni, þakka ég einnig fyrir
þeirra framlag," sagði Guðmund-
ur Guðmundsson fyrirliði Vfkinga
í handknattleik f hófi í Höfða í gær
eftir að Davfð Oddsson borgar-
stjóri hafði skýrt frá þvf að
Guðmundur væri íþróttamaður
Reykjavfkur árið 1986.
Guðmundur er vel að þessum
titli komin. Hann hefur leikið með
meistaraflokki Víkings frá því hann
var 18 ára gamall, árið 1979, og
ári seinna lék hann sinn fyrsta
landsleik. Guðmundur hefur á
bessum árum fimm sinnum orðið
Islandsmeistari í handknattleik,
fjórum sinnum bikarmeistari og
fjórum sinnum Reykjavíkurmeist-
ari.
Það sýnir öðru fremur það
traust sem Víkingar bera til hans
að haustið 1982 var hann valinn
fyrirliði liðsins þá aðeins 21 árs
gamall. Þetta fyrsta ár hans sem
fyrirliði vann Víkingur þrennuna
eftirsóttu. Þeir urðu fslandsmeist-
arar, bikarmeistarar og Reykjavík-
urmeistarar.
Guðmundur tók í gær við bikar,
sem Austurbakki gaf, sem fylgir
titlinum og að auki eignarbikar.
Einnig fékk hann 25.000 krónur frá
Austurbakka og sömu fjárhæð frá
íþróttaráði Reykjavíkur.
Víkingar fengu styrk
Víkingarfengu einnig styrk í gær
frá íþrótta- og tómstundaráði
Reykjavíkur að upphæð 300.000
krónur vegna íslands- og bikar-
meistaratititils í meistaraflokki
karla 1986 og vegna frábærs ár-
angurs í Evrópukeppni meistara-
liða.
Davíð Oddson sagði við þetta
tækifæri að þessi athöfn minnti
hann dálítið á er þjóðarleiðtogar
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
funduðu í Höfða. „Þá var Víkinga-
sveitin fyrir utan en núna er hún
hér inni,“ sagði borgarstjóri.
íþróttir helgarinnar:
Stórleikur á
gervigrasinu
- Watford mætir úrvals-
liði KR, Vals og Fram
LEIKUR Watford gegn úrvalsliði
KR, Vals og Fram, sem hefst á
Gervigrasinu í Laugardal klukkan
13 f dag er helsti (þróttaviöburður
helgarinnar, en auk þess verður
margt um að vera annarsstaðar.
Knattspyrna
íslandsmótið í knattspyrnu inn-
anhúss byrjar í Höllinni klukkan 9
í dag, en um helgina verður leikið
í 2. og 3. deild karla og keppt verð-
ur í tveimur riðlum 4. deildar.
Karfa
Tveir leikir verða í úrvalsdeild-
inni á morgun. Fram og Valur leika
í Hagaskóla og UMFN og Haukar
í Njarðvík, en báðir leikirnir hefjast
klukkan 20.
í 1. deild karla leika UMFG og
UMFT í Grindavík í dag og ÍR og
UMFT í Seljaskóla á morgun og
byrja þessir leikir klukkan 14. Þá
leika KR og ÍS í 1. deild kvenna
og hefst sá leikur í Hagaskóla
klukkan 14 í dag.
Blak
Tveir leikir verða ó morgun í 1.
deild karla. Víkingur og HSK hefja
leik í Hagaskóla klukkan 13.30, en
leikur HK og Þróttar hefst í Digra-
nesi klukkan 20. í 1. deild kvenna
hefst viðureign Víkings og HK í
Hagaskóla klukkan 14.45.
Badminton
Opna meistaramót KR í badmin-
ton fer fram í íþróttahúsi KR við
Frostaskjól og hefst klukkan 13.50
í dag. Allir bestu badmintonmenn
landsins verða á meðal keppenda
og verður keppt í karla- og kvenna-
flokkum.
Lýstá
Bylgjunni
HERMANN Gunnarsson ætlar að
lýsa leik Watford og úrvals leik-
manna úr KR, Val og Fram sem
fram fer á gervigrasvellinum í
Laugardal í dag klukkan 13.
Lýsing Hermanns hefst klukkan
13.45 og mun hann lýsa öllum
seinni hálfleiknum og er ákveðinn
í að skapa góða stemmningu.
Islandsferð Watford
vekur mikla athygli
Flestum leikjum á Englandi hefur verið frestað
Frá Bob Hennessy, fróttaritara Morgunbl
ÞRÍR leikir fara fram í 1. deild
ensku knattspyrnunnar í dag og
einn á morgun, en hinum hefur
verið frestað vegna veðurs. Vfða
er allt á kafi í snjó og því hefur
íslandsferð Watford vakið mikla
athygli. Finnst mönnum undar-
legt að hér skuli varla vera hægt
að fara á milli húsa, en á íslandi
sé blfða á sama tfma og ekkert
mál að leika knattspyrnu.
Flestum knattspyrnuleikjum á
Englandi og Skotlandi, sem vera
áttu í dag, hefur verið frestað.
Hitaleiðslur eru í völlum Man-
chester City, Everton og Arsenal,
en þessi lið eiga heimaleiki og fara
þeir fram. City fær Liverpool í
heimsókn, Everton tekur á móti
Sheffield Wednesday og á morgun
in8 á Englandi.
leika Arsenal og Coventry, en þeim
leik verður sjónvarpað beint á Eng-
landi. 50 sjálfboðaliðar hreinsuðu
völl Newcastle í gær og leika
heimamenn gegn Tottenham í
dag.
Tveir leikir í 2. deild
í 2. deild verða aðeins tveir leik-
ir, Blackburn gegn Grimsby og
Bradford gegn Millwall. Einn leikur
verður í 3. deild, 3 leikir í 4. deild,
Rangers og Hamilton í skosku úr-
valsdeildinni og sitthvor leikurinn
í 1. og 2. deild í Skotlandi.
Leik Liverpool og Luton í bikar-
keppninni, sem vera átti á Anfield
á miðvikudaginn, var frestað vegna
þess að Luton hugsaði sér of seint
til hreyfings og þegar leggja átti
af stað með flugvél, var orðið
ófært. Anfield er eins og að sumar-
lagi og voru forráðamenn Liver-
pool æfir út í Luton fyrir að hafa
ekki lagt fyrr af stað.
Aldridge til Ítalíu í stað
Rush?
En menn eru engu að síður létt-
lyndir í Liverpool og stuðnings-
menn meistaranna hafa skyndi-
lega fundið lausnina tii að lan Rush
verði áfram. Hún sé sú að senda
John Aldridge til Ítalíu í staðinn
fyrir Rush, því þarlendir geti örugg-
lega ekki greint þessa keimlíku
leikmenn í sundur!