Morgunblaðið - 28.03.1987, Page 18

Morgunblaðið - 28.03.1987, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MARZ 1987 Dagar í Óman: A fimmtán árum hefur súltaninn leitt þjóðina út úr grárri forneskju Súltaninn Quaboos Bin Said Quaboos Bin Said, súltan í Oman ræktar rósir og hefur unun af klassiskri tónlist, hann er mikill lestrarhestur og hefur einkum gaman af því að lesa um stjórnmál. Hann hefur áhuga á sögu; almennt sagður menningarlega þenkjandi. Hann er virtur og elskaður af þegnum sinum, og ekki að ósekju. Á þeim sextán árum, sem eru liðin frá því hann tók við völdum í Óman af föður sinum, hefur hann lyft grettis- taki á öllum sviðum þjóðlífsins og það sem mikilvægast er, hann hefur fengið landa sína til að taka á og það með sannri gleði. Óman hafði því sem næst týnzt í áratugi þegar Quaboos Bin Said komst til valda. Faðir hans var íhaldssamur og þröngsýnn, sagð- ur eiginhagsmunaseggur. Olía hafði fundizt í landinu nokkrum árum áður og þáverandi súltan hafði að sönnu látið hefja vinnslu hennar. En ijármagninu virðist hann síðan hafa safnað í sínar hendur og ef til vill fáeinna ann- arra. Þegar sonurinn sté í valda- stól þann 23.júlí 1970, var það hans fyrsta verk að ávarpa þegna sína og hvetja þá til starfa. Hann lét sjálfur ekki sitja við orðin tóm. Hann lét áfram vinna olíu af kappi, en hagnaði var ráðstafað beint út í þjóðlífíð. Muskat, höfuðborgin, var þá bara þyrping hrófatildra. Hann lét skipuleggja nýja borg, í íslömsk- um stfl. Undirbúin var lagning vega um landið; malarvegir höfðu verið í grennd við þéttbýliskjama og þar með upp talið. Hann fýrir- skipaði, að skólar yrðu byggðir um landið þvert og endilangt og skólaskylda frá 6-16 ára aldurs var lögboðin. I máli súltansins á þessum fyrstu árum kemur greini- lega fram metnaður hans einmitt í sambandi við uppfræðslu. Hann blygðaðist sín fyrir, að Óman var á flestum sviðum statt aftur í grárri fomeskju. Og hann var staðráðinn í að bót yrði ráðin á því. Skipulögð var heilbrigðis- þjónusta og heilsugæzlustöðvar reistar. Til þessara verka þurfti súltan- inn að kveðja til mikinn fjölda útlendinga, eins og gefur að skilja. Ómanir voru, að miklum meiri- hluta gersamlega vanbúnir að taka á sig þessi verk. Súltaninn sóttist eftir að fá Breta til starfa og raunar vildi hann umfram ann- að fá góða og hæfa menn almennt, hvaðan sem þeir voru. Einnig tóku að flykkjast til lands- ins á þessum árum Austur- landabúar, Pakistanir, Indveijar ístopulum tómstundum ræktar súltáninn rósir og hlustar á tónlist og Filippseyingar. Það fólk er enn dijúgur hluti íbúa, en er aðallega í erfíðisvinnu, á hótelum og í hvers konar þjónustustörfum. Gestur í Óman nú fær naum- ast trúað því, að öll þessi upp- bygging hafí gerzt á hálfum öðrum áratug. Eins og ég hef getið um í annarri grein frá Öman, eru allir að vinna. Af kappi og af svo mikilli gleði, að það er lærdómsríkt að fylgjast með því. Súltaninn hefur sagt, að innan tíu ára eigi Ómanir að hafa náð því marki að geta gengið í öll störf og þá vill hann að útlendingar séu famir úr landinu. Ekki allir í einu og samtímis, heldur taki óman- skir karlar og konur smátt og smátt við störfunum þeirra, eftir því sem efni og ástæður leyfa. Víst má fullyrða, að olían hefur gert súltaninum auðveldara um vik. En hinu má heldur ekki gleyma að hann hefur nýtt þennan auð til að byggja upp merkilegt nútímaþjóðfélag, og hann hefur fullan hug á að efla aðrar atvinnu- greinar, eins og sjávarútveg og landbúnað til að Ómanir þurfí ekki að vera háðir olíunni um of. Áður en ég kom til landsins hafði ég gluggað í opinber plögg um stjómun og framleiðslu. Það var dálítið erfítt að taka hátíðlega allar frásagnimar um, hveiju hefði verið komið í verk fyrir til- stuðlan Quaboos súltans. Eg leyfði mér að ætla að, að haldið væri uppi skipulagðri súltandýrk- un. En maður hlýtur að komast á aðra skoðun. Eftir að hafa verið í landinu og farið um, séð allar þær athafnir og aðgerðir sem þar fara fram er óhjákvæmilegt annað en verða hrifínn, og er þá ekki djúpt í árinni tekið. Sjálfstæð utanríkis- stefna hefur vakið athygli Ómanir fylgja býsna sjálf- stæðri utanríkisstefnu. Þeir em að sjálfsögðu fulltrúar í Araba- bandalaginu og líta á það sem eðlilega skyldu sína að standa með Aröbum. Óman vinnur í auknum mæli með öðmm ríkjum, sem eiga land að Persaflóa og það á ennfremur aðild að Samtökum islamskra ríkja. En varðandi sam- skiptin við aðrar Arabaþjóðir er fróðlegt að rifja upp, að Ómanir lýstu yfír stuðningi við friðar- fmmkvæði Sadats Egyptalands- forseta á sínum tíma og síðan Camp David samkomulagið. Að vísu gerðu þeir fyrirvara á og kröfðust þess að réttur Palestínu- manna yrði tryggður, en í öllum meginatriðum studdu þeir Sadat heilshugar. Súltaninn skeytti engu mótmælum annarra Ara- baríkja og engar refsiaðgerðir af þeirra hálfu komu nokkum tíma til tals. Spyiji maður Ómani, hver sé afstaða þeirra til ísraels segja þeir yfirleitt að þeir séu vitaskuld á móti ísraelsríki. Vegna þess að með stofnun þess hafí Israelar hrakið þjóðina, sem einnig bjó í landinu á brott og skapað þar með vandamál, sem ekki verði séð fyrir endann á. Samt eru við- brögðin viðspumingum um Israel, afar ólík í Óman ellegar til dæmis í Sýrlandi eða Jórdaníu. Þeir benda á, að ísrael sé langt í burtu. Það séu önnur mál, sem skipti þá meira. Stríðið við Persaflóa nú síðustu ár, kuldaleg samskipti við Suður Jemen.Þessi mál snerti .eurra daglega líf. „Við getum ekki bylt okkur andvaka um næt- ur vegna þess að ísraelsríki er til. Það er í rauninni ekki á okkar áhugasviði og hagsmunir okkar em hvergi i hættu, þótt ísrael sé þama. Það er ekki hægt að leiða hjá sér, að Palestínumenn eiga ekki land, en við emm ekki þeir, sem leysum það mál. Aftur á móti hefur stríðið milli írans og íraks áhrif á daglegt líf okkar. Við emm fyrir mynni Hormutz- sunds. Við hugsum um samskiptin við Suður Jemen, vegna átakanna sem vom milli þessara ríkja. Þessi mál em virkileiki. Ekki ísraelsríki sem slfkt.“ Súltaninn hefur enda lagt áherzlu á, að hann vilji að Óman hafí vinsamleg samskipti við allar þjóðir. Þó svo að Ómanir séu mjög andsnúnir kommúnisma, hefur Sovétmönnum nýlega verið leyft að opna sendiráð í Múskat. Til bráðabirgða þó og með hörðum skilmálum. Menn segja mér, að þetta sé þáttur í stefnu stjómar- innar að vingast við allar þjóðir. Hins vegar mátti merkja, að Bandaríkjamenn höfðu þungar áhyggjur af þessu. En eftir öllum sólarmerkjum að dæma verður það súltaninn, sem ræður ferðinni þar sem annars staðar. Súltaninn ferðast um 4 mánuði á ári. Quaboos súltan tók fljótlega upp þann sið, eftir að hann komst til valda að ferðast um landið, samfleytt í fjóra mánuði á ári hveiju. Hann fer um ríkið þvert og endilangt og fylgist með að framkvæmdir sem hafa verið áformaðar séu á réttri leið. Hann býr í tjaldi á þessum ferðalögum, fer um í þyrlu eða bílum, eftir því sem honum þykir henta. Menn segja mér, að hann geti brugðist mjög harkalega við, ef hann verð- ur þess vís, að fyrirmælum hans hefur ekki verið fylgt. Eftir lýs- ingum á athafnasemi súltansins hefði það eiginlega ekki komið á óvart, þótt maður hefði keyrt fram á hann á malbikunarvélinni ein- hvers staðar úti á landinu. Á þessum ferðum vill súltaninn ekki sízt hitta menn að máli og alþýða manna þyrpist á hans fund, tjáir honum vandamál sín, stór og smá og þar sem hann er sagð- ur minnugur og greiðasamur með afbrigðum, reynir hann að láta leysa hvers manns vanda. Hann hefur mikinn áhuga á að Óman sé hreint land. Ég hef áður vikið að því, hversu ótrúlega hrein borg Múskat er. Sama máli gegn- ir, þegar keyrt er um landið. Þar er varla nokkurs staðar rusl eða drasl. Þó má sjá með nokkurra kílómetra millibili svarta rusla- poka. Hreinsunarlið svæðisins hefur verið að störfum og innan tíðar kemur bíll og hirðir pokana. Annríki hans eykst og rósaræktin situr á hakanum Quaboos Bin Said er sagður vingjamlegur í framkomu, virðu- legur og gæddur afburða gáfum. Hann er fæddur í borginni Salalah í suðurhlutanum, þann 18.nóv- ember 1940. Móðir hans var ættuð frá Salalah og þar á hann sér bústað og dvelur oft vikum saman, einkum á monsúntíman- um, þegar fjöllin í kring grænka upp á tinda. Menn hafa spurt, hvað myndi verða nú, ef Quaboos súltan félli skyndilega frá. Þá hugsun vilja menn helzt ekki hugsa til enda. „Megi hann lifa í hundrað ár og eignast marga syni“ segja þegnar hans og fínnst hann vera haldreip- ið og fasti púnkturinn. í því liggur kannski einmitt veiki púnkturinn. Að Quaboos súltan hefur verið einráður og ekki hirt um að ala upp einhveija þá sem gætu tekið við. Og því er nú verr og miður; enn sem komið er á hann ekki syni. TextiiJóhanna Kristjónsdóttir T&I C I SÍUNGUR FERÐAMANNASTAÐUR SEM ÓDÝRT ER AÐ FERÐAST TIL VEGNA MARGHÁTTAÐRA AF- SLÁTTA SEM FERÐASKRIFSTOFAN SAGA BÝÐUR; rn\lA J U L 1. 2. 4. SÖGUAFSLAlTUR, 1000 - 2500 KR. BARNAAFSLÁTTUR, 9000 - 12000 KR afsiAttur fyrir söguhnokka, AFSlATTUR FYRIR ELDRI BORGARA 2500 KR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.