Morgunblaðið - 28.03.1987, Qupperneq 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MARZ 1987
fclk í
fréttum
Morgunblaðið/Einar Falur
Margrét (t.v.) og Asdis, með verðlaunaverk sin i baksýn, eru
komnar á fulla ferð við næstu verkefni og eru á þessari mynd
að mála mynd eftir uppstillingn.
Gullverðlaun
fyrir
grafíkverk
Verðiaunapeningur þessi kom
i hlut Myndlistaskólans og
fengu Ásdis og Margrét sams-
konar pening.
Myndlistaskólinn í Reykjavík
hefur starfað um tæplega
40 ára skeið. Frá árinu 1950 hef-
ur hann starfað sem sjálfseignar-
stofnun og fengið styrki til
starfsemi sinnar frá ríki og
Reykjavíkurborg. Kennslan fer
fram í formi námskeiða og er inn-
ritað á haustönn og vorönn.
Starfræktar eru bama-, unglinga-
og fullorðinsdeildir. Nú eru 420
nemendur þar við nám. Skóla-
stjóri er Valgerður Bergsdóttir og
kennarar eru 22 talsins.
í fyrra bárust skólanum boð, í
gegn um alþjóðadeild myndlistar-
manna, sem starfar í tengslum
við UNESCO, menningarmála-
stofnun Sameinuðu þjóðanna, um
að taka þátt í sýningu og sam-
keppni í Póllandi, svonefndum
grafíktvíæringi í Torun. Er þessi
sýning og samkeppni haldin á
tveggja ára fresti eins og nafnið
ber með sér og hefur það að
markmiði að auka veg grafíklist-
arinnar meðal bama og unglinga.
í þetta sinn bárust til sýningar-
innar 8463 verk frá 534 listaskól-
um og stofnunum í 32 löndum.
Veitt vom 3 gullverðlaun og 3
viðurkenningar bömum í aldurs-
hópunum 5-9 ára, 10-13 ára og
14-16 ára. Auk þess voru nokkr-
um skólum og stofnunum veitt
verðlaun. Myndlistarskólinn í
Reykjavík og tveir af nemendum
hans, þær Asdís Pétursdóttir 14
ára og Margrét Tryggvadóttir 13
ára, hlutu gullverðlaun að þessu
sinni og verður það að teljast frá-
bær árangur.
Ásdís Pétursdóttir stundar nám
í Valhúsaskóla á Seltjamamesi
og sagði hún við blaðamann
Morgunblaðsins, að hún og vin-
kona hennar hefðu tekið það upp
hjá sjálfum sér að innrita sig í
Myndlistarskólann haustið 1985.
Væm þær því búnar að vera á 4
námskeiðum sem hvert og eitt
stæði yfir í 14 vikur. Hún sagði
að sér þætti námið mjög skemmti-
legt, sérstaklega leir- og grafík-
vinna, en ekki hygðist hún gera
listsköpun að ævistarfí heldur
myndi slíkt áfram vera áhugamál.
Margrét Tryggvadóttir sagðist
vera í Digranesskóla í Kópavogi.
Hún hefði byijað myndlistamám
6 ára gömul og hefði fengist við
slíkt alltaf öðm hvom síðan. Sér
fíndist mest gaman að vinna með
leir og liti og væri hún ákveðin í
að halda áfram myndlistamámi.
Valgerður Bergsdóttir, skóla-
stjóri, kvaðst vissulega vera
ánægð með þessa viðurkenningu
sem skólinn og nemendur hans
hefðu fengið. Unglingamir hefðu
verið að fást við grafík þegar
boðið um að senda myndir til
Tomn hefði borist og hefðu allir
nemendumir sent myndir, sem
unnar hefðu verið undir hand-
leiðslu Margrétar Friðbergsdóttur
kennara.
11-13 ára nemendur voru önnum kafnir við við vinnu sina undir handleiðslu Ingunnar Stefáns-
dóttur, er hljóp í skarðið fyrir Margréti Friðbergsdóttur, kennara, sem stödd var erlendis þegar
blaðamann og Ijósmyndara bar að garði.
Sara flýgur í fyrsta sinn
ein, 22 dögum eftir
fyrstu kennslustundina.
Fjölskyldan
fljúgandi
Breska konungsfjölskyldan er
þekkt fyrir áhuga sinn á
flugi. Hingað til hafa karlmenn-
imir í fjölskyldunni flogið vélun-
um og konumar verið farþegar
og áhorfendur, en Sara, hertog-
ynja af York hefur breytt mynd-
inni. Hún ákvað að læra að fljúga,
flaug ein aðeins 22 dögum eftir
fyrstu kennslustundina og eftir
46 klukkustundir í loftinu var hún
útskrifuð. Á meðan á náminu stóð,
hópuðust fréttamenn á flugvöllinn
þegar hún var um það bil að lenda
vélinni og biðu spenntir eftir að
eitthvað gerðist. Þetta fór í tau-
gamar á Söm, en hún varð að
láta sem ekkert væri. Hún sagði
sjálf við fréttamenn að hún hefði
vitað að það væri erfítt að læra
að fljúga, en að það væri svona
geysilega skemmtilegt, hefði hins
vegar komið sér á óvart.
Hinir flugmennimir í fjölskyl-
dunni, þeir Philip drottningarmað-
ur, tengdafaðir Söm, Karl
ríkisarfi, mágur hennar og eigin-
maðurinn Andrew, hertogi af
York, hafa boðið Söm velkomna
í sinn hóp og lýst því yfír þeir séu
sérdeilis stoltir af henni.
Karl, ríkisarfi, flýgur mikið og
þótt fjölskyldan megi öryggisins
ekki ferðast öU saman, hefur
hann þó fengið að fljúga vél með
sinni heittelskuðu í skíðafrí til
Sviss.
COSPER
— Þetta er kveikjari í lagi, finnst þér ekki?