Morgunblaðið - 28.03.1987, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MARZ 1987
Bandaríkin:
George Shultz
fagnar stefnu Mik-
hails Gorbachev
„Glasnost“ gefur tilefni til bjartsýni
Washinglon, Reuter.
GEORGE Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, telur að
stefnubreytingar í tíð Mikhails
S. Gorbachev gefi tilefni til bjart-
Mikil þorsk-
gengd við
SV-Grænland
Kaupmannahðfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
MIKIL þorskgengd er nú á Dana-
banka úti fyrir Fredriksháb í
Suðvestur-Grænlandi, að sögn
Grænlenska útvarpsins.
Þetta hefur haft í för með sér,
að grænlenska landstjómin hefur
orðið að samþykkja tilslakanir á
reglunum um, að aðeins 10% af
þorski megi vera í karfaafla
Einn af togurum landstjómarinn-
ar, Maniitsok, fékk nýlega 1000
tonna afla. Þar af voru 950 tonn
þorskur.
Þrátt fyrir þessar tilslakanir er
ekki ætlunin að leyfa, að farið verði
fram úr 5800 tonna heildarþorsk-
kvótanum við vesturströndina.
sýni um bætt ástand mannrétt-
indamála í Sovétrikjunum.
Shultz lét þessi orð falla í gær
er efnt var til hátíðarsamkomu til
heiðurs sovésku skáldkonunni Irinu
Ratushinskaya í Washington. Sagði
ráðherrann að bandarískir ráða-
menn fögnuðu þeirri stefnu Gorbac-
hevs að heimila opinskáa umræðu
(Glasnost). Hins vegar sagði Shultz
að enn væri ekki ljóst hvort leið-
toginn hygðist afnema lög sem
heimiluðu fangelsun manna af
pólitískum- eða trúarlegum ástæð-
um. „Enn sem komið er getum við
aðeins vonað að það verði gert,“
sagði Shultz. Sagði hann þúsundir
samviskufanga enn sitja í fangelsi
í Sovétríkjunum.
Irinu Ratushinkaya, sem er 33
ára að aldri, var sleppt í október á
síðasta ári eftir að hafa afplánað
fjögurra ára útlegðardóm í vinnu-
búðum. í gær voru henni afhent
„frelsisverðlaun" bandarískrar
stofnunar sem kennir sig við trú-
frelsi og réttlæti. George Shultz
sagði viðeigandi að hún hefði unnið
til verðlaunanna þetta árið. „Frelsið
mun að lokum sigra, vegna fram-
göngu Irinu Ratushinskaya og
hennar líkra,“ sagði bandaríski ut-
anríkisráðherrann.
Lánstraust ríkja heims:
Lánadrottnar hafa hvað
Rostropovich
fær viður-
kenningu
Vestur-Þjóðveijar veittu hinum
heimsþekkta sellóleikara og
hljómsveitarstjóra Mstislav
Rostropovich, sem leikið hefur
hér á landi, sérstaka heiðurs-
viðurkenningu í gær.
Rostropovich fæddist í Sov-
étríkjunum, en er búsettur i
Bandaríkjunum. Hann brosti
breitt þegar Gunther van Well,
sendiherra Vestur-Þýskalands
í Washington, afhenti tónlistar-
manninum orðuna.
Reuter
mest traust á Japönum
Island í 36. sæti
New York, AP.
BANDARÍKJAMENN sem löng-
um hafa notið mests trausts
lánastofnana hafa orðið að víkja
fyrir Japönum. Bandaríkjamenn
eru nú í fjórða sæti en íslending-
ar í hinu 36. að því er skýrt var
frá í bandaríska timaritinu Instit-
utional Investor í gær.
Vestur-Þjóðverjar eru í öðru sæti
listans en á hæla þeirra koma Sviss-
lendingar. 100 alþjóðlegar banka-
stofnanir tóku þátt í könnun
tímaritsins á lánstrausti 109 ríkja.
Japanir fengu 96 stig af 100 mögu-
legum en Vestur-Þjóðveijar og
Svisslendingar 94,2. Af öðrum
ríkjum sem njóta lánstraust má
nefna Bretland, Kanada, Frakk-
land, Austurríki og Noreg. Neðst á
listanum eru Nicaragua, sem hlaut
rúm fimm stig og Norður-Kórea,
sem fékk aðeins 4,6 stig. Til fróð-
leiks má geta þess að Líbanir hlutu
9 stig og Eþíópar 9,3.
Sem fyrr sagði eru íslendingar í
36. sæti með 51,7 stig og er það
tæpu hálfu stigi minna en lands-
menn fengu í síðustu könnun
blaðsins í september á síðasta ári.
íslendingar eru einu sæti neðar en
Tékkóslóvakía en einu ofar en Ind-
land.
Svíþjóð:
Lyf sem veld-
ur fósturláti
SaMiarov þiffgur boð til Astralíu
Sydney. Reuter.
SOVÉSKI nóbelsverðlaunahaf-
inn Andrei Sakharov hefur þegið
heimboð til Ástralíu, að þvi er
ástralska mannréttinda- og jafn-
réttisnefndin tilkynnti í gær.
Formaður nefndarinnar, Marcus
Einfeld, sagði, að hann hefði hitt
Sakharov að máli á heimili hans í
Moskvu fyrir tveimur vikum og
Sakharov mundi sækja um leyfí til
fararinnar í september.
Einfeld sagði, að Sakharov hygð-
ist dveljast a.m.k. fjóra daga í
Ástralíu og mundi þá m.a. sækja
fyrst þing mannréttindasamtaka
landsins. Þetta verður fyrsta ferð
Sakharovs til útlanda, eftir hann
losnaði úr útlegðinni í Gorkí fyrr á
þessu ári.
MASTER
LEÐURSÓFASETT
— MÝ SENDIMG
FJÖLBREYTT ÚRVAL - GOTT VERÐ
Smiöjuvegi 6, Kópavogi simar 45670 — 44544.
Stokkhólmi, AP.
ÁRANGURSRÍKAR tilraunir hafa farið fram á Karolinska sjúkra-
húsinu í Stokkhólmi með Iyf, sem kallar fram fósturlát. Líkur
eru á, að lyf þetta verði sett á markaðinn í pilluformi innan fimm
ára. Var þetta haft eftir Marc Bygdeman, prófessor, sem er lækn-
ir á Karolinska sjúkrahúsinu.
Bygdeman sagði, að þetta lyf
yrði unnt að nota í stað þess að
framkvæma fóstureyðingu hjá
konum með skurðaðgerð. Lyfið
hefði verið reynt í þijú ár á 600
vanfærum konum í Svíþjóð, Kína,
Indlandi, Ungveijalandi og fleiri
löndum og hefði þetta verið gert
í samvinnu við Alþjóða heilbrigðis-
stofnunina.
Konunum var gefið lyfíð í þijá
daga einhvem tímann á fyrstu
Grænland:
þremur vikunum, eftir að þær
hættu að hafa á klæðum. Var það
gert bæði með því að þær tóku
það inn í pilluformi eða því var
sprautað í þær. „Meðferðin bár
árangur í 95% tilfellanna," sagði
Bygdeman.
Bygdeman tók það fram, að
hliðarverkanir hefðu verið þær
sömu og venjulega, þegar fóstur-
lát ætti sér stað, t. d. talsverðar
blæðingar.
Norðmenn smíða
tvo togara fyrir
Grænlendinga
Samningnrinn harðlega gagnrýndur
meðal stjórnenda danskra skipasmiðja
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
GRÆNLENSKA landstjórnin hefur samið við norsku skipa-
smiðjuna Skip og bátbyggeri, sem er fyrir norðan Álasund,
um smíði tveggja 1400 tonna togara. Umsamið verð er
93.250.000 danskar krónur (rúml. 531 mil(j. ísl. kr.) fyrir
hvorn þeirra. Á að afhenda hinn fyrri 30. október nk., en
hinn síðari 28. febrúar á næsta ári.
Danskir stjómmálamenn og
stjómendur skipasmiðja hafa haft
sig mikið í frammi til að fá við-
skipti þessi til Danmerkur, en
málið strandaði á því, að ekki
vara talið fært að veita Grænlend-
ingum hlutdeild í danska „skip-
asmíðapakkanum" svonefíida. Þar
er um að ræða niðurgreiðslur, sem
danska ríkið greiðir skipasmiðjun-
um. En þar sem Grænlendingar
fá danska fjárhagsaðstoð, sem
þeir geta notað til togarasmíðinn-
ar, töldu stjómmálamennimir sig
ekki geta fallist á frekari ívilnanir
þeim til handa.
Stjómendur danska skipa-
smiðja hafa harðlega gagnrýnt
þessa afgreiðslu á málinu og
benda þeir á, að það sé mjög erf-
itt að keppa við norskar skipa-
smiðjur, sem njóta yfír 20%
vaxtaniðurgreiðslna frá ríkinu.
Samtímis var þó tilkynnt, að
norska fyrirtækið Jan Mayen og
Co hefði pantað rækjutogara hjá
dönsku Danyard-skipasmiðjunum,
sem eru hluti af J. Lauritzen-
samsteypunni. Togarinn verður
smíðaður í Álaborg og afhentur í
maí á næsta ári.