Morgunblaðið - 28.03.1987, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MARZ 1987
Sauðárkrókskirkja:
Margt um að vera í
upphafi sæluvikunnar
MAJRGT er um að vera hjá Sauð-
árkrókskirkju í upphafi sseluviku
svo sem venja er til. Sunnudaginn
29. mars verður bamamessa kl.
11.00 og almenn guðsþjónusta
kl. 14.00. Einnig verða hin árlegu
kirkjukvöld Sauðárkrókskirkju
mánudags- og þriðjudagskvöld
kl. 20.30.
í messunni á sunnudag verður
kynning á starfsemi Gideon-félags-
ins og þá mun Bjami Guðleifsson
frá Möðruvöllum predika. Kl. 15.00
á sunnudag verður samkoma fyrir
eldri bæjarbúa í safnaðarheimilinu.
Þar mun Lionsklúbbur Sauðárkróks
annast dagskrá og veitingar.
Hin árlegu kirkjukvöld verða
Verður tónlistar-
bandalagið lagt niður?
Á AÐALFUNDI Tónlistarbanda-
lags íslands, sem haldinn verður
í Reykjavík næstkomandi sunnu-
dag, verður fjallað um hvort
leggja beri bandalagið niður eða
hvort halda skuii starfseminni
áfram. Er þetta boðað í fundar-
boði til fulltrúaráðsmanna í
tónlistarbandalaginu en það var
stofnað fyrir tveimur árum.
Með stofnun Tónlistarbandalags
íslands var fyrirhugað að sameina
hagsmuni ýmissa félaga og sam-
taka er vinna að tónlistarmálum og
(R
INNLENT
vinna að framgangi þeirra mála er
samtökin óskuðu eftir hveiju sinni.
Stjóm bandalagsins hefur unnið að
ýmsum málum en svo virðist sem
áhugi á starfseminni hafí dofnað.
Hefur enginn aðili bandalagsins
óskað eftir því við stjómina að tek-
in verði ákveðin mál til umfjöllunar.
Undanfarin misseri hefur stjómin
kannað möguleika á útgáfu tónlist-
artímarits og verður nánar greint
frá þeim hugmyndum á aðalfundin-
um. Þar fara einnig fram venjuleg
aðalfundarstörf verði það ekki ofan
á að starfsemi bandalagsins skuli
hætt. Óskað er eftir því að fulltrúa-
ráðsmenn sendi varamenn í sinn
stað sjái þeir sér ekki fært að sitja
fundinn. Hann á að hefjast klukkan
16.54 sunnudaginn 29. mars og
verður haldinn í veitingahúsinu
Gauki á Stöng.
síðan mánudags- og þriðjudags-
kvöld og hefjast þau kl. 20.30.
Kirkjukór Sauðárkróks syngur bæði
kvöldin við undirleik Rögnvaldar
Valbergssonar. Ómar Ragnarsson
fréttamaður flytur erindi á mánu-
dagskvöldið sem hann nefnir
„Syngið Drottni nýjan söng“. Einn-
ig leikur Timothy Beilby tónlistar-
kennari einleik á fíðlu. Á þriðju-
dagskvöldið verður ræðumaður sr.
Birgir Snæbjömsson, prófastur
Eyfírðinga. Einnig mun Geysis-
kvartettinn frá Akureyri syngja við
undirleik Jakobs Tryggvasonar. Frá
kl. 20.00 báða dagana leikur organ-
isti kirkjunnar þekkt verk á orgelið.
Allir eru velkomnir og er aðgangur
ókeypis.
Hjálmar Jónsson
Aug'lýsingadeild Rík-
isútvarpsins flytur
„Bandaríska aðferð-
in“ í Laugarásbíói
LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýn- aðferðinni“ þar sem Dennis
ingar á myndinni „Bandarísku Hopper, Michael Poolard og
____________ Eugene Lipinski fara með aðal-
AUGLÝSINGADEILD Rikisút-
varpsins flytur í dag, 28. mars,
í ný húsakynni í útvarpshúsinu í
Efstaleiti 1 í Reykjavík.
Auglýsingadeild rásar 1 og rásar
2 auk auglýsingadeildar sjónvarps-
ins verða sem ein heild í nýja
útvarpshúsinu. Auglýsingadeildim-
ar hafa verið á þremur stöðum,
Skúlagötu 4, Efstaleiti 1 og Lauga-
vegi 168.
Nýtt tölvukerfí hefur verið tekið
í notkun fyrir auglýsingadeildimar
á rás 1 og rás 2 og verður þá öll
auglýsingadeildin tölvuvædd.
Auglýsingadeildin er opin frá kl.
8.00 til 18.00 alla virka daga og
ffá kl. 8.00 til 12.00 laugardaga.
hlutverkin. Leikstjóri myndar-
innar er Maurice Phillips.
í frétt frá kvikmyndahúsinu seg-
ir að enn standi forsetakosningar
fyrir dymm í Bandaríkjunum og
nú bregður svo við að kona nokk-
ur, frú Willa Westinghouse, hefur
gefíð kost á sér og em góðar Iíkur
á að hún verði frambjóðandi flokks
síns.
En eins og gengur em ekki allir
ánægðir með það, meðal þeirra em
nokkrir fyrmm hermenn sem höfðu
barist í Vietnam. Þessir menn hafa
þá sérstöðu að þeir em sérfræðing-
ar á sviði sálfræðilegs hemaðar.
Kári Kolbeinsson og Jóhann Steinar Helgason.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Ingiriður Harðardóttir við eitt verka sinna.
Seyðfirðingar drekka sólarkaffi. Á myndinni má m.a. sjá Kristjönu Bergsdóttur félagsmálafulltrúa
fyrir miðju.
Sólardaerur Seyðfirðinsra
Seyðisfirði.
í LOK febrúar héldu Seyðfirð-
ingar upp á sólarkomu, en þá
Björn Ómar Guðmundsson og Stefán Sveinn
Ólafsson. Hluti veggmyndar Rakelar í baksýn.
sést sólin í ölium bænum eftir
nokkurra mánaða fjarveru eða
frá því um miðjan nóvember.
Af þessu tilefni var haldin
nokkurs konar fjölskyldusam-
koma í Félagsheimilinu Herðu-
breið, með ýmsum uppákom-
um.
Bömin í skólanum höfðu fengið
það verkefni hjá myndmennta-
kennaranum nokkru áður að
teikna mynd út frá hugtakinu
„sést til sólar“ og voru myndimar
til sýnis í félagsheimilinu í nokkra
daga. Síðan var valin besta mynd-
in og bömin máluðu hana á
stærsta vegginn í félagsheimilinu
og þar var hún til sýnis þennan
dag. Það tók krakkana um viku
að mála myndina á vegginn undir
leiðsögn Kristjönu Bergsdóttur
félagsmálafulltrúa og Oddnýjar
Stefánsdóttur myndmenntakenn-
ara. Myndin sem varð fyrir valinu
er eftir Rakel Baldursdóttur 12
ára. Myndlistarkonan Ingiríður
Harðardóttir hélt þama málverka-
sýningu, en hún er borinn og
bamfæddur Seyðfirðingur og hef-
ur lokið prófí frá Myndlista- og
handíðaskóla íslands. Þetta var
hennar fyrsta einkasýning og
vakti hún mikla og verðskuldaða
athygli. Nokkur heimilisiðnaður
er stundaður hér á Seyðisfirði og
á sumrin er rekinn hér útimarkað-
ur, þar sem kvenfélagskonur hafa
þessa vöm til sölu fyrir ferða-
menn. En þennan dag var sett
upp sýning í Herðubreið á þessum
heimilisiðnaði og vom þama sýnd-
ir margir fallegir munir sem vöktu
athygli gesta. Jóhann Svein-
bjömsson bæjargjaldkeri flutti
minni kvenna og leshópur kvenna
las upp smásögu eftir Iðunni
Steinsdóttur. Jón Bjömsson kenn-
ari söng nokkur lög við undirleik
Guðjóns Matthíassonar harmon-
ikkuleikara. Meðal annars fmm-
fluttu þeir „ Seyðisfjarðarvalsinn",
sem Guðjón samdi sérstaklega í
tilefni dagsins, við texta Valgeirs
Sigurðssonar kennara. Að lokum
fengu allir sér sólarkaffí og ijóma-
pönnukökur.
Skipulagning þessarar sam-
komu var í höndum Kristjönu
Bergsdóttur félagsmálafulltrúa.
— Garðar Rúnar