Morgunblaðið - 28.03.1987, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MARZ 1987
47
Minning:
Björn Sigurfinns-
son, Hurðabaki
Fæddur 29. mars 1933
Dáinn 22. mars 1987
Bjöm Sigurfínnsson, bóndi,
Hurðarbaki á Ásum, Austur-Húna-
vatnssýslu, andaðist í Landspítalan-
um 22. marz sl.
Hann fæddist á Komsá í Vatns-
dal 29. marz 1933 og var því aðeins
53ja ára að aldri er hann lést. Nokk-
urra vikna gamall fluttu foreldrar
hans, Sigurfínnur Jakobsson og
Björg Erlendsdóttir, að Hurðarbaki
á Ásum, en þá jörð fengu þau til
ábúðar að hluta á vordögum 1933,
en eignuðust hana síðar. Þar ólst
Bjöm upp ásamt systkinum sínum
þeim Sigurlaugu, Guðrúnu, Óskari
og Jakob, en hann andaðist 1966.
Bömin á Hurðarbaki fóm fljótt að
vinna að bústörfum með foreldrum
sínum og seinna er þau voru eldri
unnu þau við ýmis bústörf heima
og á ýmsum bæjum í sveitinni og
var Bjöm m.a. um tíma í Steins-
nesi hjá séra Þorsteini.
Árið 1958 keyptu þeir bræður
Bjöm og Óskar jörðina Meðalheim
á Ásum og höfðu þar félagsbú um
tíma, en síðar tók Óskar bróðir
hans við búi þar, en Bjöm hóf bú-
skap á Hurðarbaki. Þá vora Björg
og Sigurfínnur flutt til Reykjavíkur
og hafa búið þar síðan 1965, en
Sigurfínnur andaðist 21. febrúar sl.
þá 95 ára að aldri. Hann var jarð-
settur á Blönduósi 7. marz sl. Það
er því skammt stórra högga á milli
í fjölskyldunni frá Hurðarbaki er
Bjöm er nú fallinn í valinn aðeins
mánuði seinna en faðir hans.
Bjöm Sigurfínnsson kvæntist 22.
júní 1963 Önnu Pálsdóttir, frá
Blönduósi og eignuðust þau 5 böm.
Þau era Hafsteinn, fæddur 1962,
Sigurpáll, fæddur 1964, Eyþór,
fæddur 1965, Jakob, fæddur 1968,
og Ragnheiður, fædd 1970.
Fyrir fáum áram minnkuðu Bjöm
og Ánna bústofninn og hann fór
að vinna á Blönduósi og lengst af
þeim tíma vann hjá Blönduóshreppi
við ýmis störf, enda var hann mjög
laginn maður, smiður góður bæði á
tré og jám. Vélar og tæki léku í
höndum hans og var því eftirsóttur
maður til margvíslegra starfa.
Einnig var hann skytta góð og var
refaskytta sveitarinnar um fjölda
ára. Hann var hjálpsamur maður
og viljugur, sem allra vanda vildi
leysa, og margt gerði hann fyrir
okkur hjónin í sambandi við sumar-
bústað okkar og Guðrúnar systur
hans, sem er í landi Hurðarbaks.
AUtaf var hann reiðubúinn hvemig
sem á stóð hjá honum sjálfum, fyr-
ir það þökkum við.
Ég minnist hans með söknuði og
færi aðstandendum hans samúð
mína, bið Önnu, bömin, bamaböm,
tengdaböm, móður hans, systkini
og aðra aðstandendur í sorgum
sínum að geyma hjá sér minninguna
um góðan dreng og vellátinn, megi
það verða þeim hjálp í þeirra miklu
sorg.
Guð blessi minningu Bjöms Sig-
urfínnssonar.
Kristinn Breiðfjörð
Okkur systkinin langar til að
minnast pabba okkar í örfáum orð-
um. Pabbi fæddist að Komsá í
Vatnsdal 29.3. 1933. Sama ár flutt-
ist hann ásamt foreldrum sínum og
systkinum að Hurðarbaki á Ásum
og ólst þar upp.
Árið 1957 fór hann sem vetrar-
maður að Meðalheimi á Ásum og
ári síðar hóf hann sjálfur þar bú-
skap ásamt bróður sínum Óskari.
Árið 1962 tók hann saman við
móður okkar, Önnu Pálsdóttur og
bjuggu þau í Meðalheimi til ársins
1966 er þau fluttu að Hurðarbaki.
Þar bjuggu þau til ársins 1982 en
fluttu þá til Blönduóss. Hóf hann
þá störf hjá Blönduóshreppi og
starfaði þar allt þar til hann varð
að láta af störfum vegna veikinda
sinna og var lagður inn á Landspít-
alann í Reykjavík til rannsókna.
Þar lést hann svo sunnudaginn 22.
mars 53ja ára að aldri.
Pabbi var um marga hluti fróð-
ur, mest þó um vélar og margvís-
legan tækjabúnað, enda var oft til
hans leitað með bilaðar vélar, hey-
vinnuvélar og margt fleira því hann
var bæði hjálpsamur og greiðvikinn,
og fátt það til sem hann gat ekki
gert við.
Einnig var hann góður smiður
bæði á tré og járn. Og allt sem
hann gerði, gerði hann vel og vand-
aði svo mjög að óaðfinnanlegt var.
Pabbi smíðaði mikið að skeifum og
vora þær eftirsóttar. Hann smíðaði
líka margt annað svo sem vagna,
kerrar og allskonar verkfæri, margt
eftir eigin hugviti þm' margt fann
hann upp sjálfur. Okkur er lika
minnisstætt hve vænt honum þótti
um dýr. Sérstaklega þótti honum
vænt um hrossin sín og undi sér
oft lengi hjá þeim, talaði blíðlega
til þeirra og lét vel að þeim. Þannig
var það líka með æmar.
Pabbi átti líka alltaf tíma fyrir
okkur, og sagði okkur frá mörgu
skemmtilegu og fróðlegu, leiðbeindi
okkur og hjálpaði. Og alltaf gátum
við leitað til hans ef eitthvað bját-
aði á. En nú er hann horfínn héðan
úr jarðnesku lífi, en í hjörtum okk-
ar stendur eftir sorgin, djúpur
söknuður og falleg minning um
yndislegan og ástríkan föður. Við
þökkum honum alla þá ást hans og
kærleika sem hann veitti okkur af
sínu ótakmarkaða örlæti á samleið
okkar. Megi Guð almáttugur blessa
minningu pabba okkar um ókomna
framtíð.
Hafsteinn, Sigurpáll, Eyþór,
Jakob og Ragnheiður.
Herstöðva-
andstæðing-
ar með fund
SAMTÖK herstöðvaandstæðinga
efna til baráttufundar á Hótel
Borg sunnudaginn 29. mars kl.
15.00.
í fréttatilkynningu segir m.a. að
tilefni fundarins sé að 30. mars
næstkomandi verða 38 ár liðin frá
því að ísland var gert að aðila að
hemaðarbandalaginu NATO. Með
inngöngunni í NATO hafí verið
horfið frá þeirri hlutleysisstefíiu
sem þjóðin markaði sér er hún fékk
fullveldi árið 1918 og hafi aðildin
að NATO og vera hersins hér haft
það í för með sér að erfítt hafí
reynst fyrir landið að koma fram á
alþjóðavettvangi sem málsvari frið-
ar og afvopnunar.
Á fundinum mun Bubbi Mort-
hens, Guðrún Hólmgeirsdóttir og
Hjörleifur Valsson flytja tónlist,
Aðalsteinn Bergdal leikari verður
með upplestur og söng, ávörp flytja
Bima Gunnlaugsdóttir og Vigfús
Geirdal. Þorvaldur Öm Ámason
stjómar fjöldasöng. Fundarstjóri
verður Jón Múli Amason.
FRISTUND
Þrumandi góð afþreying
Frístund er stútfull af krossgátum,
myndagátum, þrautum,
leikjum, léttum |
gátum og skopi. '
Alltaf nýtt og áður
óbirt.