Morgunblaðið - 28.03.1987, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MARZ 1987
51
með iðgöldum atvinnurekenda
(ákveðið hlutfall greiddra launa)
og með framlögum ríkissjóðs.
Slíkri breytingu veðri hinsvegar
ekki komið á nema í samráði aðila
vinnumarkaðarins. Það geti tekið
nokkum tíma. Þessvegna hafí ve-
rið óhjákvæmilegt að stíga þau
mikilvægu skref áleiðins að loka-
marki, sem felist í þeim frum-
vörpum, sem hlutu lagagildi nú
rétt fyrir þinglausnir.
Góðar undirtektir - með
eilitlum semingi
Frumvörpum heilbrigðisráð-
herra um fæðingarorlof var vel
tekið á Alþingi. Þau fengu og
skjóta afgreiðslu, enda fast fylgt
eftir. Þingmenn stjómarandstöðu
tíndu að vísu sitt hvað til, sem
haga mætti á annan veg. í það
heila tekið vóru undirtektir þó já-
kvæðar. Stjómarandstaðan studdi
frumvörp heilbrigðisráðherra, þó
að gætt hafí nokkurs semings.
Þannig talaði Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir (Kl.-Rvk.) um
frumvörp ráðherrans sem
„áfangasigur í þessum mikilvægu
málum...“.
Helgi Seljan (Abl.-Al.) sagði:
„Það ber vissulega að fagna þessu
framvarpi, þó að síðla sé á ferð...“.
Magnús H. Magnússon (A.-Sl.):
„Ég fagna því að þessi frumvörp
skuli fram komin. Vissulega hefðu
þau þurft að koma fyrr fram og
taka gildi fyrr en ráð er fyrir gert“.
Haraldur Ólafsson (F.-Rvk.)
kvað hinsvegar fast að orði og
sagði: „Þetta er mikið mál, þetta
er réttlætismái og þetta er mál
sem við eigum að samþykkja".
Og sú varð raunin. Ragnhildur
Helgadóttir, heilbrigðisráðherra,
og raunar allir réttsýnir menn,
geta fagnað góðum málalyktum.
William Hurt í
Guð gaf mér eyra
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Guð gaf mér eyra (Children of
a Lesser God). Sýnd í Háskóla-
bíói. Stjömugjöf:
Bandarísk. Leikstjóri: Randa
Haines. Handrit: Hesper Ander-
son og Mark Medoff eftir leikriti
Medoffs. Framleiðendur: Burt
Sugarman og Patrick Palmer.
Kvikmjmdataka: John Seale. Tón-
list: Michael Concertino. Helstu
hlutverk: William Hurt, Marlee
Matlin, Piper Laurie og Philip
Bosco.
Kannski væntir maður of mik-
ils af sumum myndum. Maður
gerir sér háar hugmyndir um þær
fyrirfram, en þegar til kemur
standa þær ekki undir væntingun-
um. Það getur allt eins verið
manni sjálfum að kenna. Guð gaf
mér eyra (Children of a Lesser
God) er einmitt ein af þessum
myndum sem maður hefði ein-
hvem veginn búist við meira af.
Það er eins og maður hafí séð
flest í henni áður og þótt leikstjór-
anum, Randa Haines, takist oft
vel upp í því að fílma leikrit Mark
Medoffs frá 1980 er ekkert í
mynd hennar, sem sýnd er í Há-
skólabíói, sem snertir mann
sérstaklega djúpt eða kemur á
óvart. Hún rennur áfram eftir
leiðum sem maður hefði getað
sagt sér sjálfur að væru líklegast-
ar.
Myndin er í alla staði mjög vel
gerð eins og við mátti búast og
leikur þeirra William Hurt í hlut-
verki kennara í heymleysingja-
skóla og Marlee Matlin í hlutverki
erfíðasta nemandans og elskunn-
ar hans er til fyrirmyndar. En það
er allt svo auðséð. Hurt er fíjáls-
lyndasti og besti kennarinn í heimi
og gerir hvert smákraftaverkið á
fætur öðra á nemendunum sínum
með nýstárlegum aðferðum. Það
vill enginn breyta neinu í heym-
leysingjaskólanum nema hann.
Skólastjórinn segir: „Hér reynir
enginn að breyta heiminum," og
maður veit að Hurt á einmitt eft-
ir að gera það. Hann hittir
heymarlausa stúlku (Matlin) í
skólanum sem finnst að sér hafi
verið hafnað af samfélaginu, er
einangruð og inní sér. Hann á
eftir að bijóta leið að henni og
gera henni fært að takast á við
lífið og eftir nokkuð harðan til-
fínningalegan árekstur sættast
þau aftur og lifa líklega hamingju-
söm til æviloka. Það er a.m.k.
aldrei neitt sem bendir til annars.
Hurt er á svolítið hálum ís í
hlutverki kennarans James
William Hurt og Marlee Matlin í hlutverkum sfnum f myndinni
Guð gaf mér eyra í Háskólabíói.
Leeds af því hann leikur Herra
Fullkominn og fer næstum í taug-
amar á manni. Hann er stundum
svo meðvitaður í túlkun sinni á
góðmenninu að mann langar til
að klappa á öxlina á honum og
segja honum að slappa af. Og það
er ekki nóg með að hann tali fyr-
ir sig heldur talar hann líka fyrir
Matlin af því hann þýðir jafnóðum
allt sem hún segir við hann með
höndunum. Öðravísi vissi maður
aldrei hvað hún væri að segja.
Matlin er senuþjófurinn í hlut-
verki Söra. Guð gaf mér eyra er
hennar fyrsta mynd og hún sýnir
ofsafenginn og tryllingslegan leik
framan af en verður rólegri og
yfírvegaðri eftir því sem á líður.
Samleikur þeirra Matlin og Hurt
er eins innilegur og frekast getur
orðið.
Umhverfí sögunnar er óskap-
lega fallegt í myndatöku John
Seale og gefur myndinni viðeig-
andi dranga í byijun með haust-
litum og dimmu. í myndinni er
reynt að sýna okkur inn í heim
hinna heymarlausu þótt engin
sérstök áhersla sé lögð á það:
Áherslan er öll á samband Hurt
og Matlin og hvemig hún slítur
sig frá h'onum til að öðlast sjálf-
stæði og snýr aftur þegar henni
finnst hún vera tilbúin. Allt er
þetta smekklega gert en maður
stendur upp og hugsar: var þetta
allt og sumt?
PSION ORGANISERII erhnitmiðuð, skemmtilegoggagnlegfermingargjöfsem nýtisteiganda sínum í námi, starfi
ogleik tilmargraára. Þessiótrúlega fjöihæfasmátölva, semerástærð við seðlaveski, tengistviðtölvurogprentaraaf
flestum gerðum. Hún er forritanleg á auðveldan hátt, með innbyggða gagnaskrá, reiknitölvu, dagbók, dagatal, sérstaka
minniskubba og margtfleira. Þannig vex PSION ORGANISERII með eiganda sínum og verðurhonum ómetanleg...
T.d. reiknitölva, stundaskrá, vekjaraklukkaogminnisbókfyrirheimalærdóm;skrá
yfir firði á vesturlandi, ártöl í frönsku byltingunni og ættkvísl burkna; ensk orðabók,
stærðfræðiforrit og hægt að forrita til að finna prímtölur, reikna gröf og fleira...
T.d. dagbók og minniskerfi, gagnagrunnur (jafnvel fyrir gulu síðurnarl), við-
skiptamannaskrá, pantanamóttaka, reikningagerð, birgðabókhald, lagertaln-
ingarogfleira...
T.d. forrit fyrir getraunir, leiki og til að finna lottótölur; skrá yfir gullfiska, frímerki,
símanúmer, videospólurogheimilisföng;geymsla á uppskriftum, Ijóðum og fleira...
PSION ORGANISERII-ENGIN VENJULEG SMASMIÐI
Verðfrákr. jE&x
Hverfisgötu 33, sími: 20560
Akureyri: Tölvutæki - Bókval
Kaupvangsstræti 4, sími: 26100
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
9
9
9