Morgunblaðið - 07.05.1987, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 07.05.1987, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1987 3 Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Unnið vid að ganga frá undirstöðum undir fyrsta brúarstöpulinn. Ölfusárósar: Búið að steypa undir fyrsta brúarstöpulinn Selfossi. Framkvæmdum við brúna yfir Ölfusárósa miðar vel. Búið er að steypa undirstöðu undir fyrsta brúarstöpulinn og verið að und- irbúa gerð undirstöðu undir þann næsta. Undirstöður brúarstólpanna eru undir vatni en áður en þeim er kom- ið fyrir er slegið upp stálþili og vatninu síðan dælt úr holunni. Nokkum tíma tók að ná tökum á því að þétta stálþilið, en menn eru nú komnir á lagið með það, eins og einn starfsmanna orðaði það. Byijað er að slá upp fyrir fyrsta brúarstólpanum og jafnhliða er unnið við að koma undirstöðum fyrir undir þann næsta. Alls vihna 15 menn við brúargerðina en bætt verður við mönnum eftir því sem á verkið líður og reiknað með að þeir verði um 30 þegar kemur að því að koma brúarhöfunum fyrir. Sig. Jóns. Nýtt skipulag sölubúða við Lælqartorg og Austurstræti. Lækjartorg: Tuminn fluttur og nýtt skipu- lag sölubúða sem takur gildi 12. júní. Leyfi fyrir sölubúðir sem þar eru nú falla úr gildi og verður að sækja um þau á ný, samkvæmt nýju tiUögunni. Gert er ráð fyrir sextán sölutj- öldum í Austarstræti og stæðum fyrir tvö söluborð beggja vegna pylsuvagnsins sem ætlaður er staður við Útvegsbankahúsið í Austurstræti. Tvö söluborð verða við inngang bankans. Á miðju torginu verður stæði fyrir ellefu söluborð, gegnt tveimur söluvögn- um við Lækjargötu. Þá var samþykkt að fela Borgarskipulagi að finna nýja staðsetningu fyrir „turninn", sem er staðsettur á Lækjartorgi. Dagný Helgadóttir og Guðni Pálsson arkitektar unnu skipu- lagstillöguna. BORGARRÁÐ hefur samþykkt nýtt skipulag sölubúða við Lækjartorg og Austurstræti Sovétríkin: Samið um fisksölu SAMNINGAR hafa tekizt við Sovétríkin um sölu á 10.000 til 11.000 lestum af frystum fiski á þessu ári. Það er rúmlega helm- ingi minna en í fyrra. Skipting milli fisktegunda verður með svipuðum hætti og undanfarin ár. Um verulega verðhækkun mun vera að ræða í dollurum. Austurstræti 22 Laugavegi 66 — Glæsibae Simi frá skiptiborði 45800.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.