Morgunblaðið - 07.05.1987, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1987
Blúsinnkemurað innan
Ljósmynd/Árni Matthíasson
í Músíktilraunum Tónabæjar
og Bylgjunnar vakti ungur
drengur, Guðmundur Péturs-
son, mikla athygli fyrir hljóð-
færaleik þegar hann tróð upp
með hljómsveit sinni, Bláa
bílskúrsbandinu. Sú frammi-
staða olli þvf að honum var
boðið sérstaklega að spila með
þeim Þorleifi Guðjónssyni
bassaleikara og Halldóri Lárus-
syni trommuleikara úr MX-21.
í kjölfar þess bauð Bubbi Mort-
ens honum síðan að koma með
sér í ríkissjónvarpið á kosninga-
nóttina og þar sýndi hann
ótrúlega tUburði í beinni út-
sendingu. Útsendara rokksíð-
unnar þótti þvi við hæfi að ræða
aðeins tónlist við Guðmund.
Nú verður Bláa bílskúrs-
bandið að spila á Borginni i
kvöld. Hvað á að spila? Meiri
blús?
Það verður sennilega meiri blús
en áður og svo sennilega eitthvað
af gömlum rokklögum.
Semjið þið lítið sjálfir?
Nei, nei, við erum alltaf að
semja.
Er það þá blús eða er það
rokk?
Það er vanalega rokk þegar
maður er að semja, en við spilum
oft blús, það er misjafnt, það fer
meira eftir djamminu.
En af hverju blús?
Bara það er svo mikill fílingur
í að spila blús.
Hlustar þú mikið á blús?
Já.
Hvort hlustar þú meira á
svartan blús eða hvítan?
Eg geri ekki mikið upp á milli
en þó hlusta ég mest á góðan
svartan blús, en ég hlusta líka á
hvítan blús. Johnny Winter til
dæmis.
Er einhver sérstakur svartur
blúsleikari sem þú hefur mest
dálæti á?
Þeir eru þrír sem ég hef mest
dálæti á, þeir Elmore James,
MuddjrWaters og Albert King.
En hvað með þessa hvítu? Þú
nefndir Johnny Winter, sem
segja má að sé nær svörtum
blús en hvítum, en hvað með til
dæmis Stevie Ray Vaughan?
Ég hlusta á Stevie Ray en ekki
mikið en ég hlustá á Blues Break-
ers. Ég hef líka gaman af East
West með Paul Butterfield.
Því hefur verið haldið fram
að hvitir menn geti ekki spilað
blús. Ertu sammála því?
Nei þeir geta alveg eins spilað
blús, en þeir geta ekki allir sungið
hann.
Þér finnst þetta þá ekki vera
spurning um litarhátt?
Nei nei, en blúsinn er frá svört-
um mönnum kominn og þeir hafa
þetta því meira í sér.
En hvemig er með félagana,
hlusta þeir á blús líka?
Já þeir hlusta líka á blús en
aðallega á rokk.
En hvað er blúsinn?
Blúsinn kemur að innan, hann
er tilfinning. Blús er tónlist sem
kemur frá og túlkar tilfínningar
og sársauka blökkumanna í
Bandaríkjunum. Blústónlist geng-
ur mikið út á það að hafa tilfinn-
ingu fyrir tónlistinni. Og eins og
B.B. King sagði: „Blues is when
you’ve lost your woman".
Síðan
skein
sól
Ljósmynd/Ámi Matthíasson
Fimmtudaginn fyrir fyrsta maí
hélt hljómsveitin Síðan skein sól
sína fyrstu tónleika í Hlaðvarpa-
kjallaranum.
Ekki gátu hljómsveitarmenn
kvaratað yfir áhugaleysi því kjall-
arinn var þéttsetinn og vel það.
Hlaðvarpakjallarinn er enda að
verða einn besti tónleikastaður í
Reykjavík og þótt víðar væri.
Nokkuð þurfti að bíða eftir
sveitinni, því Jakob var fastur í
skafli úti í bæ. Hann komst þó á
staðinn að lokum og hljómsveitin
gat hafið leikinn.
Tónlistin var nokkuð poppað
rokk og allt öðruvísi en nokkur
hljómsveit innlend er að fást við
og ekki er gott að benda á er-
lenda hljómsveit heldur. Sveitin
var þétt og áberandi vel spilandi
og gaman var að heyra hvað þeir
náðu vel saman. Einna heillegasta
mynd hafði lagið sem væntanlegt
er á vímuefnaplötunni boðuðu en
önnur lög gengu líka þokkalega
upp. Mættu þó vera sterkari.
Líf í tuskunum
Það er óhætt að segja að mikið líf hafí færst í tólistariðkun með
vorinu. í kjallara Hlaðvarpans hafa verið haldnir hveijir stórtónleikam-
ir á fætur öðrum og á borginni hefur einnig verið mikið að gera.
I kvöld em tónleika á Borginni þar sem Gipsy og Bláa bískúrs-
bandið troða upp og á laugardaginn verða tónleikar í Hlaðvarpakjallar-
anum með helstu nýrokksveitum höfuðborgarinnar, Sogblettum, Daisy
Hill Puppy Farm og hljómsveitin (dúóið) Handriðið kemur fram í
fyrsta sinn en hún er reist á grunni Sjálfsfróunar.
raðauglýsingar
■
raðauglýsingar
raöauglýsingar
Matreiðslumenn
Aðalfundur
Aðalfundur Félags matreiðslumanna verður
haldinn miðvikudaginn 13. maí kl. 15.00 á
Óðinsgötu 7, Reykjavík.
Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál.
Stjórn Félags matreiðslumanna.
Aðalfundur FR deildar 4
í kvöld kl. 19.30 á Hótel Loftleiðum.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Óskilamunir
Laugardaginn 16. maí nk. kl. 14.00 verður
haldið uppboð á reiðhjólum og öðrum óskila-
munum í nýju lögreglustöðinni í Hafnarfirði
við Flatahraun.
Munirnir verða til sýnis í lögreglustöðinni
dagana 7.-14. maí nk.
iP ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir
hönd byggingadeildar óskar eftir tilboðum í
fullnaðarfrágang á efstu hæð Álfabakka 12
í Mjódd, þ.e. innréttingar o.fl.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudag-
inn 19. maí nk. kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN FSEYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Tilboð
Tilboð óskast í neðangreindar bifreiðir
skemmdar eftir umferðaróhöpp.
Toyota Corolla Twin Cam árgerð 1986
Toyota Crown diesal árgerð 1982
Toyota Corolla St. árgerð 1977
MMC Lancer ExE árgerð 1987
MMC Galant 1600St. árgerð1982
MMC Lanceer árgerð 1981
MMCTredia árgerð1983
Mazda 323 árgerð1985
Daihatsu Charade árgerð 1979
Datsun 120 Y árgerð 1977
Suzuki bitabox árgerð 1981
Nissan Sunny sendibíll árgerð 1985
Sunbeam Alpína árgerð 1971
Bifreiðirnar verða til sýnis fimmtudaginn 7.
maí frá kl. 12.30-17.00 á Hamarshöfða 2,
sími 685332.
Tilboðum sé skilað eigi síðar en föstudaginn
8. maí kl. 12.00 á skrifstofu vora, Aðal-
stræti 6.
f/E, THYGGINGAMIÐSTÖÐIN P
AÐALSTRÆTI 6 - 101 REYKJAVÍK - SlMI 26466
sími 26466.