Morgunblaðið - 07.05.1987, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 07.05.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1987 39 Stjörmi- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Kæri Gunnlaugur. Ég er fædd 19. 03. 1942 kl. 1.25 e.h. í Rvík og hef áhuga á að vita um hæfileika mína og veikleika. Með fyrirfram þökk. P.s. Mér finnst at- hyglisvert hve fáir Fiskar skrifa þér. Það er trú mín að við Fiskamir höfum dá- litla minnimáttarkennd af því að vera fæddir í þessu merki!! Svar: Þú hefur Sól/Miðhimin og Merkúr í Fiskum, Tungl í Hrút, Venus í Vatnsbera, Mars í Tvíbura og Ljón Rísandi. Styrkur Styrkur þinn er tvímæla- laust fólginn í miklum næmleika, skilningsríki og víðsýni. Þú hefur ákaflega stórt ég, ef svo má að orði komast, í þeirri merkingu að þú tekur tilit til um- hverfisins og annarra þegar þú hugleiðir stöðu þína. Veikleiki Því fylgir að veikleiki þinn verður of mikil áhrifagimi og ósjálfstæði og hugsan- lega það að fóma þér fyrir aðra. Ég og hinir erum eitt segir Fiskurinn og því er sjálfsagt að hjálpa öðrum. Að sjálfsögðu er þetta góður eiginleiki svo framarlega sem þú lætur aðra ekki mis- nota þig! Eldfimi Eina aðra hættu er að fínna í korti þínu, í samspili Fisks og Hrúts. Það er eldur og vatn, eða fljótfæmi og við- kvæmni. Þú þarft að varast að láta særa þig út af smá- munum og rjúka síðan upp. Hætt er við, ef þú brynjar þig ekki, að þú verðir einn kraumandi og ólgandi til- finningapottur. Þú þarft t.d. að gæta tauga þinna, hugsa vel um það hvað þú borðar og hvaða fólk þú umgengst. Þú þarft hreinlega að úti- loka þá sem hafa slæm áhrif á þig. Andlegir hœfileikar Ég tel að stærstu hæfileikar þínir liggi á andlegum svið- um, að þú sért fyrst og fremst fædd á þessa jörð til að þroska sjálfa þig andlega og til að hjálpa öðmm. Eg vil því eindregið ráðleggja þér að leggja markvisst stund á andleg fræði,' að hugleiða, lesa andlegar bækur og vinna með fólki sem hefur svipuð áhugamál. Listir Margt í korti þínu bendir einnig til listrænna og skap- andi hæfileika. Þú ættir a.m.k. að hafa tónlist og leikhús meðal áhugamála þinna, þ.e. hlusta á tónlist og sækja sýningar. Dans getur einnig verið gefandi. Hreyfing Mars í Tvíbura og Tungl í Hrút táknar að þú þarft að vera á hreyfingu í daglegu lífi, að þú ert eirðarlaus og þarft fjölbreytileika í störf þín. Ljón Rísandi táknar að þú ert hlýleg og opin í fram- komu, jafnvel þó Plútó rísandi tákni að þú getir verið dul um persónulega hagi. Draumlyndið Það er sjálfsagt rétt sem þú segir um Fiskinn í lok bréfs þíns, en jafnframt held ég að ástæða þess að fáir Fiskar skrifi sé sú hversu draumlyndir þeir eru. Fisk- urinn hugsar oft um málin en gleymir að framkvæma. Hálft lífið fer fram í innri heimi drauma. GARPUR ..........................—..........fHHnurrnnmi ■■ ■■ - ■ ■ -■ . . GRETTIR SMÁFÓLK Andvarp Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Áhugasamur bridsdálkales- andi gaukaði nýlega að dálka- höfundi tæplega 40 ára gömlu spili, sem hann hafði klippt út úr dagblaði i kringum 1960 og geymt í veski sínu síðan. „Ætli það þoli ekki endurbirtingu," sagði hann, og á það skal fús- lega fallist: Norður gefur; AV á hættu. Norður ♦ - ¥ 532 ♦ G875 ♦ K109876 Vestur ♦ 10832 ¥- ♦ 1096432 ♦ 542 Austur ♦ ÁKD ¥ KG974 ♦ ÁKD ♦ DG Suður ♦ G97654 ¥ ÁD1086 ♦ - ♦ Á3 Spilið kom upp á alþjóðlegu móti í ísrael. Sagnir gengu á einu borði: Vestur Norður Austur Suður Vestur Norður Austur Suður — 3 lauf Dobl Pass 3 tfglar Pass 4 hjörtu Dobl Pass Pass Pass Fjögurra hjartna sögnin er sjálfsagt umdeilanleg, en alls ekki út í hött. Suður hóf vömina með því að spila út laufás og meira laufi upp á kóng makkers. Lauftían kom í þriðjja slag, austur tromp- aði lágt, og suður yfirtrompaði. Og spilaði spaða. Norður stakk og spilaði laufi, trompað og yfirtrompað. Þessi svikamylla gekk síðan áfram, þar til tromp- in höfðu öll gufað upp og suður tók loks þijá síðustu slagina á fifspaða!!! Vömin fékk sem sagt ALLA SLAGINAH Sagnhafi hefði getað fengið einn eða tvo slagi með því að henda háspilunum sínum i spaða eða tígli niður í lauf, en hver getur láð honum að halda í há- karlana. Umsjón Margeir Pétursson Á sovézka meistaramótinu í ár kom þessi staða upp 5 skák stórmeistaranna Valery Salov, sem hafði hvítt og átti leik, og Artur Jusupov. Svartur lék síðast 25. - Kg8 f7? 26. Rxc7! Rf8 (26. - Hxc7 hefði verið svarað með 27. Hh7+ — Bg7 28. Hxg7+ — Kxg7 29. Rxe6+). 27. R5xe6 — Rxe6 28. Rxd5 og Jusupov gafst upp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.