Morgunblaðið - 10.09.1987, Síða 54
vaei aaaMaTiag .01 huoaqutmmn ,oiö •'UOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
+ Eiginkona mín, móðir, stjúpmóðir og amma okkar, ELÍN JÖRGENSEN, Bogahlfð 18, veröur jarðsett frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. september kl. 13.30. Guðmundur Bergþórsson, börn, stjúpbörn og barnabörn.
+ Hjartkær dóttir, systir og mágkona, ELSA STEINUNN SIGURGEIRSDÓTTIR, Hofsvallagötu 18, Reykjavfk, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 11. september kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Vilhelmína S. Tómasdóttir, Thelma Sigurgeirsdóttir, Gunnar Guðmundsson, Sigurgeir V. Sigurgeirsson, Elfn V. Guðmundsdóttir, Halldór M. Sigurgeirsson, Elfsabet Þórólfsdóttir, Hilmar Þór Björnsson, Sigurveig Magnúsdóttir.
+ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA JÓHANNESDÓTTIR, Suðurgötu 30, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 11. september kl. 14.30. Sólveig Ástvaldsdóttir, Heiðar Viggósson, Jóhannes Ástvaldsson, Ásta G. Thorarensen, Ásta Ástvaldsdóttir, Gunnar Guðmannsson, Dóra Ástvaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Frænka mín, VALGERÐUR PÁLSDÓTTIR, Reynimel 42, lést 22. ágúst. Útförin fór fram í kyrrþey að hennar eigin ósk. Magnúsfna Jónsdóttir.
+ Eiginmaður minn, faöir, tengdafaðir og afi, AÐALSTE1NN STEFÁNSSON bifreiðastjóri, Langholtsvegi 73, sem lóst 2. septmeber sl. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. september kl. 15.00. Kristjana Steinunn Guðjónsdóttir, Björn Aðalsteinsson, Guðjón Aðalsteinsson, Dagbjört Aðalsteinsdóttir, Stefán Aðalsteinsson, tengdabörn og barnabörn.
+ Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdasonur, ANDREASLAPAS flugvirki, Fálkagötu 6, var jarðsunginn frá Agia Santa Barbara Kainaki-kirkjunni í Nicosíu á Kýpur laugardaginn 5. september sl. Jóhanna Jóhannsdóttir, Jóhann Christos Lapas, Marfa Lapas, Alexander Lapas, Jóhann Magnússon, Margrét Sigurðardóttir.
+ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaöir og afi, ÁSGEIR GUÐMUNDSSON frá Þorfinnsstöðum, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 11. septem- ber kl. 13.30. Þóra Guðmundsdóttir, Eirfkur Ásgeirsson, Guðný Þorvaldsdóttir, börn og barnabörn.
Lokað vegnar jarðarfarar INGVARS ARNARSONAR, í dag, fimmtudaginn 10. september. ARKO — teiknistofa, Laugavegi41.
• •
Þórður O. Jóhanns-
son - Minning
Fæddur 19. apríl 1914
Dáinn 31. ágúst 1987
Látinn er í Hveragerði Þórður
Ögmundur Jóhannsson, fyrrverandi
kennari. Þórður var fæddur að
Sogni í Ölfusi, 19. apríl 1914, sonur
hjónanna Jóhanns Bergsteinssonar,
er ættaður mun hafa verið úr þeirri
byggð, sem nú nefnist Garðabær,
og Guðrúnar Ögmundsdóttur, en
hún var Ölfusingur að ætt og upp-
runa. Fjölskyldan fluttist til
Hveragerðis 1934, og var þar með-
al frumbyggja staðarins.
Þórður fór til náms í Flensborg-
arskólann í Hafnarfirði og lauk þar
gagnfræðaprófi 1933. Hann hóf
sfðan nám við Kennaraskólann og
lauk þar prófi 1935. Kennslu stund-
aði Þórður í mörg ár, lengst í
Hveragerði. Hann fékkst raunar við
ýmis önnur störf, m.a. bifreiðaakst-
Fæddur 31. ágúst 1957
Dáinn 23. júlí 1987
Slysin gera sjaldnast boð á undan
sér, minn besti vinur er látinn. Þeg-
ur. Var hann þó fatlaður frá
unglingsaldri, vegna slyss, er hann
varð fyrir á vertíð í Þorlákshöfn.
Þórður var maður þeirrar gerðar,
að hann naut jafnan trausts sam-
ferðamanna. Honum voru því falin
hin margvíslegustu störf. Hann átti
um skeið sæti í hreppsnefnd Hvera-
gerðishrepps og sýslunefnd Ámes-
sýslu. Hreppstjóri var hann í mörg
ár. Þá var Þórður formaður sóknar-
nefndar Kotstrandarsóknar um
árabil, og í stjóm ungmennafélags
og verkalýðsfélags. Bókavörður var
hann í Hveragerði um áratuga
skeið.
Þórður kvæntist 1959 Þórunni
Á. Bjömsdóttur, kennara, og eign-
uðust þau hjón þijár dætur.
Þórður var maður víðlesinn og
fróður, og vann að söfnun og skrán-
ingu á ýmsu efni, einkum því, er
varðaði sögu byggðar og búskapar-
ar mér barst sú harmafregn að
Rabbi væri dáinn, brast stór streng-
ur í hjarta mínu. Það er svo erfitt
að trúa þessu, og fyrir mig kemur
enginn í hans stað.
hátta í Ölfusi, en þar hafa, sem
víðar, orðið miklar breytingar hina
síðustu áratugi. — Þórður var hóf-
samur maður og traustur, og með
honum var gott að starfa. Hann var
drengur góður.
G.J.
Ég man alltaf eftir okkar fyrstu
kynnum, þá vomm við fimmtán
ára. Við höfðum nýlega fengið próf
á skellinöðmr og eignast þær, höfð-
um áhuga á mótorhjólum, bflum og
flugvélum; en þó var áhuginn mest-
ur fyrir flugvélum.
Þar af leiðandi áttum við sameig-
inleg áhugamál, sem tengdu okkur
sterkum vináttuböndum.
Við vomm ákveðnir í því að láta
þessar hugsjónir rætast á næstu
ámm. Árin liðu, og árið 1978 fór
Rabbi til flugvirkjanáms í Tulsa í
Oklahoma í Bandaríkjunum.
Hann var þar í eitt og hálft ár,
og vann síðan í Miami í Flórída í
hálft ár eftir námið.
Árið 1980 kom hann heim til
íslands, og vann næstu árin bæði
til sjós og lands fyrir utan eitt ár
sem hann dvaldi í Noregi, þar sem
faðir hans býr.
Á þessum ámm var erfitt að fá
starf sem flugvirki, en hann var
alltaf bjartsýnn, og leit þess vegna
alltaf björtum augum á framtíðina.
í janúar 1987 bauðst honum starf
sem flugvirki hjá Skýli 25 á
Reykjavíkurflugvelli, og var það
hápunkturinn í lífi hans. Draumur-
inn var orðinn að vemleika, og nú
var tekið til starfa. En 23. júlí var
klippt svo skyndilega á lífsþráðinn
og Rabbi vinur minn er horfinn
yfir móðuna miklu.
Sólargeislinn í lífi hans var dóttir-
in Jóhanna Svala.
Ég votta móður hans og dóttur
mína innilegustu samúð.
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Danni
+
PÁLLHAFSTAÐ
fv. skrifstofustjóri Orkustofnunar,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 14. september
kl. 15.00.
Ragnheiður Baldursdóttir,
Steinunn P. Hafstað,
Baldur Hafstað,
Valgerður P. Hafstað.
Ármann Gunnarsson,
Finna B. Steinsson,
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR INGVAR GRÍMSSON,
Smáratúni 14,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju föstudaginn 11. september
kl. 13.30.
Grímur Sigurðsson, Ásta Kristinsdóttir,
Ágústa Þ. Sigurðardóttir, Sigurður Guðmundsson,
Siguröur S. Sigurðsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Ólafur Sigurðsson, Gróa K. Bjarnadóttir
og börnin.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för bróður okkar,
HELGA KETILSSONAR,
Heimahöfða 9,
Selfossi.
Sórstakar þakkir færum við starfsfólki á Elli- og hjúkrunarheimil-
inu Sólvangi fyrir frábæra umönnun honum veittá í veikindum
hans.
Systkini hins látna.
Lokað
verður í dag til kl. 12.00 vegna jarðarfarar
INGVARS ARNARSONAR.
Skóverslun Þórðar Péturssonar,
Kirkjustræti 8,
Laugavegi 95,
Pedí, Kringlunni.
Lokað
í dag vegna jarðarfarar
INGVARS ARNARSONAR.
Fíber,
Laugavegi 41.
Rafn Ragnarsson
flugvirki - Minning
Höföar til
-fólksíöllum
starfsgreinum!