Morgunblaðið - 10.09.1987, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
Hyskið
Tónleikar á
Hótel Borg
í kvöld, fimmtudagskvöld,
halda hljómsveitirnar Hyskið,
Soghlettir og Bieiku bastarnir
tónleika á Hótel Borg.
Sogblettir og Bleiku bastamir
hafa víða spilað á höfuðborgar-
svæðinu sem og utan þess í sumar,
en Hyskið er að halda sína fyrstu
tónleika í nokkra mánuði. Tónleik-
amir verða á Hótel Borg, eins og
áður sagði, og heQast kl. 22.
Fréttabréf úr Borgarf irði eystra:
Öllu fé lógað
vegua riðunnar
Borgarfirði eystra.
SÓLARGANGUR styttist nú óð-
um og rökkurstundum fjölgar.
Það er hæpið að liðið sumar fái
mjög góð eftirmæli hér Austan-
lands. Að vísu byrjaði það vel og
var maí-mánuður sólríkur með
stillum og hlýindum. En síðan
má segja, að mánuðirnir hafi
verið fremur sólarlitlir, með
kalsa og næðingum, eins og jafn-
an þegar austlægar áttir eru
þrálátar.
Afli sjómanna hefur verið sæmi-
legur, að sjálfsögðu misjafn, en
þegar á heildina er litið hafa fæstir
sótt mikið gull í greipar Ægis í
sumar. Má því meðal annars kenna
takmörkuðum afla, endurteknum
veiðibönnum og landleguhöftum.
Annars hefur atvinna hér verið næg
f sumar við ftystihúsið og saltfisk-
verkun og auk þess hafa bflar flutt
hingað físk til vinnslu frá Reyðar-
firði.
í sumar hefur heyskapur hér
verið sama og enginn, vegna þess
að í haust mun öllu fé verða lógað
hér í sveitinni vegna riðunnar sem
hér hefur heijað undanfarin ár sem
hinn versti vágestur. Undantekning
er þó með bæina í Njarðvík, en þar
hefiir riðan ekki gert vart við sig,
og má það telja undarlegt, þar sem
svæðin eru sýkt beggja megin við
hana. Sótthreinsa verður öll gripa-
hús sem eru í góðu ástandi en jafna
hin gömlu og úr sér gengnu við
jörðu. Næstu tvö árin verður Borg-
arfjörður fjárlaus, áður en nýr stofn
verður keyptur þangað. Ósagt skal
látið hvort bændur hafa þá bein í
nefí til slíkra kaupa, eða snúa sér
að einhveiju öðru. Framtíðin verður
að leiða það í ljós.
Mikill ferðamannastraumur hef-
ur verið hér í sumar og margir
hafa lagt leið sína í Húsavík og
Loðmundarfjörð, en bæði þessi
byggðarlög eru nú í eyði og virðist
einmitt það hafa sérstakt aðdráttar-
afl fyrir ferðalanga.
Eins og áður hefur verið greint
frá var ráðist í það fyrir ári að
endurbæta gömlu kirkjuna í
Klyppsstað í Loðmundarfirði. Stóðu
fyrir því sýslunefnd og sýslumaður
Norðmýlinga, einstaklingar og
síðast en ekki síst smiðurinn og
útskurðarmeistarinn Halldór Sig-
urðsson í Miðhúsum, sem stjómaði
framkvæmdunum með huga og
hönd, svo að nú lifa verkin meistar-
Einnig var samþykkt að hér eftir
skyldi messað í Klyppsstaðarkirkju
einu sinni á sumri og fór fyrsta
guðsþjónustan fram í fyrrasumar
að viðstöddu fjölmenni af Héraði
og úr fjörðum. Aftur var svo mess-
að þann 26. júlí sl. og vildi þá svo
vel til að á sama tíma var settur
biskup hr. Sigurður Guðmundsson
að vísitera Múlaprófastdæmi og var
hann ásamt fylgdarliði sínu við-
staddur guðsþjónustuna. Sóknar-
prestur Borgfirðinga prédikaði en
biskup, prófastur og séra Magnús
Guðjónsson biskupsritari þjónuðu
fyrir altari.
Að messu lokinni tóku fleiri til
máls, þar á meðal Ármann Hall-
dórsson fyrrverandi kennari og
fræðimaður, sem flutti fróðlegt og
skemmtilegt erindi um gamla Loð-
firðinga ofl. Kirkjan var fuil fram
að dyrum og komust færri inn en
kosið hefðu.
Hér um slóðir er nú óvenjulega
mikið af hreindýrum. Borgfirðingar
fengu heimild til að skjóta 54 dýr
og nú er búið að fella 33 dýr og
enn er nokkuð eftir af veiðitíman-
um, svo líklegt er að kvótinn fyllist.
Senn fer Grunnskóli Borgarfjarð-
ar að byija. Við erum víst í hópi
þeirra „óheppnu" sem ekki fá kenn-
ara með réttindi, frekar en áður.
En við höfum verið heppnir með
kennara og ekki víst að allt hefði
verið fengið með „löggiltum rétt-
indamönnum".
Framkvæmdir á vegum hrepps-
ins hafa nú ekki verið miklar, nema
hvað nú er verið að setja upp girð-
ingu umhverfis þorpslandið. Þykir
sumum, að slíkt hefði mátt gera
fyrr. — Sverrir.
Tvíbökur
tvíbakaðar - nýbakaðar
nákvæmlega
eíns og tvíbökur
eíga að vera.
Norræna myndlistarbandalagið:
Hvatt til aukinna
skipta á sjónvarps-
þáttum um myndlist
NORRÆNA myndlistarbanda-
lagið hélt aðalfund sinn á Sel-
fossi dagana 5.-6. september sl.
8®
í framhaldi af aðalfundinum var
síðan haldin ráðstefna um mynd-
list í fjölmiðlum dagana 7.-8.
september. Daninn Gunnar Bay
var kjörinn formaður bandalags-
ins en fráfarandi formaður er
Thorstein Rittun frá Noregi.
Auk aðildarlandanna Danmerk-
ur, Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og
Samalands sóttu fundinn fulltrúar
frá Færeyjum, Álandi og Græn-
landi. Færeyingar fengu nú aðild
að Norræna myndlistarbandalaginu
með fyrirvara vegna aukins kostn-
aðar og fjárhagsstöðu bandalags-
ins.
Norræna myndlistarbandalagið
hélt svo að loknum aðalfundinum
ráðstefnu um myndlist í fjölmiðlum
og var Qallað um fjölmiðla í víðum
skilningi, en umræðan og athyglin
beindist þó einkum að mjmdlist í
sjónvarpi og miðlum gegnum mynd-
bönd.
Niðurstaða ráðstefnunnar var sú
að Norræna myndlistarbandalagið
telur áríðandi að auka gerð þátta
og heimildarmynda á verkum norr-
ænna myndlistarmanna, þar sem
áhugi almennings fer stöðugt vax-
andi á myndlist. Allar norræna
sjónvarpsstöðvar eru hvattar til að
auka skipti á dagskrárþáttum sem
§alla um myndlist og auka og
lengja bæði unna þætti og fréttaút-
sendingar sínar um myndlist.
Einnig hvetur Norræna myndlistar-
bandalagið ráðamenn til að auka
fjárframlög og bæta aðstöðu til
gerða myndbanda um myndlistar-
menn, til dreifingar á Norðurlönd-
um, s.s. til sjónvarpsstöðva og
bókasafna.