Morgunblaðið - 10.09.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
37
Fáskrúðsfjörður:
Nýtt dvalarheimili fyrir
aldraða tekið í notkun
Fáskrúðsfirði.
NÝTT dvalarheimili fyrir aldr-
aða á Fáskrúðsfirði var formlega
tekið í notkun laugardaginn 29.
ágúst sl. Heimilið hefur hlotið
nafnið Uppsalir og er í eigu
Búða- og Fáskrúðsfjarðar-
hreppa.
Bygging hússins hófst í septem-
ber 1981. Arkitekt er Helgi
Hjálmarsson. Teiknistofan Óðin-
storgi sá um alla teiknivinnu.
Byggingameistari hússins er Þor-
steinn Bjarnason. Þeir sem sáu um
aðra byggingaþætti hússins eru
Lars Gunnarsson múrari, Guð-
mundur Hallgrímsson rafvirki,
Rúnar Hallsson sá um pípulagnir,
Guðni Elísson sá um loftræsti-
stokka og Kristján Daðason sá um
málningu.
í kaffísamsæti sem haldið var í
tilefni opnunarinnar sáu konur í
Samtökum um öldrunarmál um
veitingar, en þær hafa mjög látið
til sín taka við byggingu þessa húss.
Hafa þær afhent allt að eina milljón
auk margháttaðrar vinnu sem öll
hefur verið gefín. Formaður sam-
takanna er Guðrún Einarsdóttir.
í samsætinu rakti Guðmundur
Þorsteinsson oddviti byggingasögu
hússins og þakkaði fyrir margvís-
legar gjafír sem borist hafa bæði
við vígsluna og eins á meðan á
byggingu stóð. Ingibjörg Magnús-
dóttir frá heilbrigðisráðuneytinu
færði heimilismönnum kveðjur heil-
brigðisráðherra, Guðmundar
Bjamasonar. Einnig flutti fyrrver-
andi sveitarstjóri, Sigurður Gunn-
arsson, erindi um byggingasögu
hússins.
í húsinu sem er á tveimur hæðum
eru íbúðir fyrir 13 manns, vistlegur
borðsalur og eldhús og sameiginleg
setustofa með sjónvarpi. í kjallara
hússins er vatnsnuddpottur og að-
staða fyrir snyrtingu og sjúkraþjálf-
Hjónin Dagbjört Sveinsdóttir og Þórarinn Bjarnason en þau eru
elstu íbúar Fáskrúðsfjarðar og dvelja i Uppsölum.
Morgunblaðið/AIbert Kemp
Uppsalir, nýtt dvalarheimili fyrir aldraða á Fáskrúðsfirði.
Ósk Bragadóttir forstöðukona.
un. Forstöðumaður hússins er Ósk
Bragadóttir. í samtali við Þórarin
Bjamason elsta íbúa Fáskrúðsijarð-
ar en hann er 92 ára og Dagbjörtu
Sveinsdóttur konu hans sem er 90
ára kom fram mikil ánægja með
að vera flutt í svona glæsilegt hús.
Þórarinn og Dagbjört eru búin að
eiga heima á Fáskrúðsfírði frá 1926
og era afkomendur þeirra orðnir
47, þau hjón era vel em þrátt fyrir
háan aldur.
— Albert
Afmæli
í DAG, 10. september, er 65 ára
Jón Gunnarsson jámbindinga-
maður, Suðurgötu 19, Hafnar-
fírði. Eiginkona hans er
Sigurrós Kristjánsdóttir. Hann
er að heiman.
SÚCÞURRKUNAR-
MÓTORAR
Athugið:
Eigum fyrirliggjandi nokkra
einfasa rafmótora á mjög
hagstæöu verði.
Greiösluskilmálar.
Takmarkaö magn.
■lön jimim j!
HÖrÐABAKKA 9 REYKJAVÍK
SIMI: 685656 og 84530
VIÐ BJÓÐUM UPP Á EINSTAKA FERÐ TIL ÍSRAELS OG EGYPTALANDS, ÞAR SEM M.A.
VERÐUR FERÐAST UM SÖGUSLÓÐIR BIBLÍUNNAR.
MIÐVIKUDAGUR, 2B. OKTOBER.
Flogið (rá Keflavlk til
Heathrow flugvallar. Þar blöur
langferðablll til að flytja
hópinn til Gatwick flugvallar
og þaðan verður flogið til
Tel Aviv.
FIMMTUDAGUR, 29. 0KT0BER.
Skipulögð skoðunarferð um
Tel Aviv.
FÖSTUDAGUR. 30. OKTOBER.
Farið af stað frá Tel Aviv og
keyrt sem leiö liggur til
norðurs meðfram strönd
Miöjarðarhafsins og komið
til Sesareu, borgar sem
Herodes konungur lét reisa
til heiöurs keisaranum,
en varð slóar krossfaraborg.
Komið til Karmel fjalls og
þaöan til Haifa, sem er
helsta hafnarborgin I Israel ,
mjög falleg og nýtfskuleg.
Þá er ekið til Meggidó og
Taborfjalls. Þessa nótt
veröur gist á gistihúsi á
samyrkjubúi.
LAUGARDAGUR. 31. 0KT0BER.
Heildagsskoðunarferð til
Gólanhæöa og Galfleuvatns.
Farin veröur bátsferö yfir
vatniö. Gist á samyrkjubúl.
SUNNUDAGUR, 1. NÓVEMBER.
Fariö tll Nasareth og
Boöunarkirkjan skoðuö, sem
byggö er yfir helli Jósefs
og Marlu. Þaöan verður haldiö
áfram til Are og Rosh Hanikra
Gist á samyrkjubúi.
ŒC
MÁNUDAGUR. 2. NÓVEMBER.
Ekiö sem leið liggur til
suðurs eftir Jordandalnum,
meðfram ánni Jordan til
Jerikó sem er eins og vin
I eyöimörkinni og talin vera
ein elsta borg I heimi. Komiö
EGYPTALAN
Lfl
til Betanlu og fleiri staöa.
Gist í Jerúsalem.
ÞRIÐJUDAGUR, 3. NÓVEMBER.
Deginum eytt viö að skoða
Jerúsalem og Olívufjallió.
MIÐVIKUDAGUR. 4. NÓVEMBER.
Frjáls dagur i Jerúsalem.
FIMMTUDAGUR. 5. NÓVEMBER.
Farió til Betlehem og
grafhýsi Rakelar, til
Zlónsfjalls og Musterisfjalls.
Gist I Jerúsalem.
FÖSTUDAGUR, 6. NÓVEMBER.
Frjáls dagur I Jerúsalem.
LAUGARDAGUR, 7. NÓVEMBER.
Áfram veröur haldiö I
suðurátt til Dauöahafsins,
Massada og Qumran.
SUNNUDAGUR. 8. NÓVEMBER.
Ekið til Kalró.
MÁNUDAGUR, 9. NÓVEMBER.
Skoöunarferð um Kairó.
MIÐVIKUDAGUR, 11. NÓVEMBER.
Farið til baka til israel.
ÞRIÐJUDAGUR. 10. NÓVEMBER.
Skoöaðir veröa Pýramidarnir
og Memphis, hin forna höfuðborg
neöra Egyptalands, þar sem hinn
frægi Alabasturs—Sfinx, sem
Ramedis II lét reisa, stendur.
FIMMTUDAGUR, 12. NÓV. - 18. NÓV.
Eilat. Þessa daga veröur boðiö
upp á sól og baöstrandarlíf
viö Rauöahafiö.
MIÐVIKUDAGUR. 18. NÓV.
Haldiö af staö til London
Kl. 22:30, en þar veröur gist
f tvær nætur. Komió veröur til
Keflavlkur föstudaginn
20. nóvember.
Ath. aö hálft fæöi er innifaliö
í veröinu.
Ferdaskrifstofan
laiandi
Vesturgötu 5. Reykjavík sími 622420