Morgunblaðið - 10.09.1987, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
49
Stuttar buxur og aðrar styttrí:
Velkominn úr f elum,
herra f ormaður
eftírÁsgeir
Hannes Eiriksson
Samband ungra sjálfstæðis-
manna hefur gefið út tímaritið
Stefni í nærri fjörutíu ár og nýtur
blaðið virðingar út fyrir heldur fá-
mennar raðir Heimdellinga um
landið. Fyrir tíu árum skrifaði Þor-
steinn Pálsson núverandi formaður
Sjálfstæðisflokksins og forsætis-
ráðherra þjóðarinnar lærða grein
um áhyggjuefni sín í ritið og kall-
aði: Frjálshyggja eða stuttbuxna-
pólitík? Nafn greinarinnar bendir
til að óvissan hafi nagað formann-
inn er hann settist niður til að
skrifa en honum hverfur smám
saman efinn þegar líður á ritsmíð-
ina. Á einum stað undir lokin er
formanni þó greinilega þungt fyrir
hjartarótum og hann segir:
Stuttbuxur í
stjórnmálastarfi
„Einstaklingarnir verða smám
saman háðir stuttbuxnastjórnmála-
mönnum enda byggja þeir vald sitt
á opinberri fyrirgreiðslu." Þetta er
hverju orði sannara hjá formannin-
um. En hann lætur ekki staðar
numið við að afhjúpa stuttbuxna-
menn svo gersamlega og kemst því
að laukréttri niðurstöðu í næstu
setningu og segir: „Frejsi borgar-
anna er hætta búin af þessum
sökum."
Hér er formanninum nokkuð
brugðið og eftir svo alvarlega við-
vörun bendir hann næst á sjálfan
stóra sannleikann í lýðræði heims-
ins og segir: „Borgararnir ráða
því, hverjir veljast til stjórnmálafor-
ystu, hvort það eru vinstri menn,
stuttbuxnamenn eða frjálshyggju-
menn." Hér nálgast formaðurinn
hámarkið. Nú þarf lesandinn ekki
að velkjast lengur í vafa um hve
grimm örlög lýðveldinu eru búin ef
menn halda ekki vöku sinni og opna
augun. Og áfram segir formaður-
inn:
„Þær miklu umræður sem fram
hafa farið upp á síðkastið um opin-
ber umsvif, ættu að opna augu
manna fyrir nauðsyn þess að leggja
meiri áherzlu á grundvallarsjónar-
mið frjálshyggju en stuttbuxur í
stjórnmálastarfi." Hér eggjar for-
maðurinn þjóð sína lögeggjan og
er engu við það að bæta að sinni.
Enda er nú komið að lokaorðum i
þessari nauðsynlegu hugvekju og
formaðurinn klykkir út með frekar
lævísri ábendingu og segir: „Menn
geta haft það fyrir atvinnu að
hlaupa um á stuttbuxum. En þegar
þeir gefa sig að stjórnmálum verður
meira að koma til." Punktur.
Súrt í brók
Svo mörg voru þau orð hjá
ríkjandi formanni Sjálfstæðis-
flokksins og forsætisráðherra
þjóðarinnar. Þau eru öll í tíma töluð
og engu þeirra ofaukið núna tíu
árum seinna. Málflutningur í þess-
um gæðaflokki skilur vissulega
sauðina frá höfrunum. Stálpaða frá
táningum og síðbuxur frá stutt-
buxum. Enda hefur þessi gamli
greinarhöfundur Stefnis nú hlotið
meiri mannvirðingar en margur
eldri maður og mikla sæmd að auki.
En þó er eins og vonirnar sem
formaður Sjálfstæðisflokksins batt
við lausnir frjálshyggjunnar hafi
dvínað með árunum þrátt fyrir fög-
ur fyrirheit. Eða formaðurinn hafi
talað sér þvert um geð þegar hann
varaði þjóðina alvarlega við hætt-
unni af stuttum buxum. Allt að einu
þá verður ekki séð í dag að formað-
urinn hafi lifað sjálfur eftir orðinu
í efni textans í Stefni fyrir tíu árum.
Nema síður væri.
Gömul dæmisaga segir okkur frá
refnum sem náði ekki að hremma
ber í tré á sínum tíma. Þegar honum
varð sú niðurstaða ljós huggaði
hann sig við að líklega væru berin
ekki eins góð og af var látið. Þau
væru súr. Kannski fannst formann-
inum sjálfum súrt í brók á sfnum
tíma og falið harm sinn í fataskápn-
um.
Stuttbuxur verða
stóriðja
Stuttar buxur eru engin nýlunda
í stjórnmálum íslendinga og sér-
staklega ekki þar sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur komið við sögu.
Sá flokkur hefur löngum treyst á
stuttar buxur til að halda velli í
þjóðfélaginu og jafnan verið reiðu-
búinn til að greiða götu hinna fáu
stóru og útvöldu á kostnað hinna
mörgu smáu og nafnlausu. Hann
hefur raunar gert fyrirgreiðsluna
Ásgeir Hannes Eiríksson
„En stuttar buxur eru
ekki einkamál Sjálf-
stæðisf lokksins í bráð
og lengd. Þær hafa
miklu frekar verið sam-
eiginlegt stöðutákn hjá
leiðtogum stjórnar-
flokkanna þriggja í
áratugi."
að orkufrekri stóriðju á íslandi. Hér
verða þó ekki tínd til einstök dæmi
að þessu sinni en lesendum látið
eftir að rifja upp sjálfir helstu verk-
in sem lofa meistarann.
En stuttar buxur eru ekki einka-
mál Sjálfstæðisflokksins í bráð og
lengd. Þær hafa miklu frekar verið
sameiginlegt stöðutákn hjá leið-
togum stjórnarflokkanna þriggja í
áratugi. Þannig hafði til dæmis
fyrrverandi formaður Framsóknar-
flokksins sérstaka kraftaverka-
menn í förum á milli hinna fáu stóru
í flokki sínum. Kratar eru heldur
engir eftirbátar þegar buxnasídd
ber á góma og hefur enginn annar
hópur manna náð að hreiðra betur
um sig innan í kerf inu hér á landi.
En hafi einhver hinna fáu stóru
í Sjálfstæðisflokknum efast um
buxnastærð formannsins getur sá
hinn sami tekið aftur gleði sína nú
þegar. Formaðurinn mun ekki láta
sinn hlut eftir iiggja ef að líkum
lætur og verkin munu áfram lofa
meistarann. Núverandi fjármála-
ráðherra upplýsti nefnilega f
blaðaviðtali að litlar 560 milljónir
króna i aukafjárveitingum hefðu
skotið upp kollinum frá síðustu dög-
um formanns Sjálfstæðisflokksins
í fjármálaráðuneytinu. Dansinn
umhverfis Útvegsbankann sannar
svo betur en orð fá lýst að hinir fáu
en stóru íhaldsmenn við ríkissjóð
eiga áfram Hauk f horni í formanni
sínum. Hann hefur ekkert að fela
lengur. Svona má rekja slóðina þar
sem formaðurinn striplast um
landið.
Fram úr felum
Það er stöðugt ánægjuefni þegar
leiðtogar þjóða koma til dyranna
eins og þeir eru klæddir hverju
sinni. Þá skiptir ekki lengur máli
hvort skrúðinn er nokkuð merki-
legri en nýju fötin keisarans í
ævintýrinu forðum daga. Það er
hugurinn á bak við fatavalið sem
ræður ferðinni. Og hugur fylgi máli.
Þess vegna er full ástæða til að
taka ofan með þeim fjölmörgu sem
nú bjóða formann Sjálfstæðis-
flokksins velkominn á fætur.
Klæddan og kominn á ról. En létt-
klæddan þó:
— Velkominn úr felum, herra
formaður!
Höfundur er veraJunarmaður og
varaþingmaður Borgaraflokksins
íReykjavík.