Morgunblaðið - 24.09.1987, Síða 1
88 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
215. tbl. 75. árg.
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Tundurduflin sem Bandaríkjamenn segjast hafa fundið um borð í íranska skipinu sem gerð var árás á
fyrr í vikunni. Khamenei, forseti írans hefur sagt myndir af duflunum falsaðar.
Sviss:
Alusuisse afskrif-
ar tap síðustu ára
ZQrich, Reuter.
SVISSNESKA álfyrirtækið Alu-
suisse, sem rekið hefur verið með
tapi undanfarin ár, vann í gær
lagalegt deilumál sem heimilaði
fyrirtækinu að afskrifa tap
síðustu ára upp á hundruð millj-
óna Bandaríkjadala.
Talsmenn fyrirtækisins segjast
hafa dregið saman seglin í kjölfar
lækkandi heimsmarkaðsverðs á áli.
Þeir segjast nú geta greitt hluthöf-
um í fyrirtækinu arð og leyft þeim
þannig að njóta batnandi stöðu fyr-
irtækisins. Aðgerðimar, sem nú
vom heimilaðar, felast í því að nafn-
verð hlutabréfa er lækkað um
helming. Hlutafélagaeftirlit sviss-
neska ríkisins hafði gert athuga-
semd við þessar áætlanir fyrirtæk-
isins á þeim forsendum að ekki
væri tillit tekið til hluthafa án at-
kvæðisréttar. Dómstóll í Sviss
úrskurðaði í gær að fyrirtækið hefði
rétt til þessara bókhaldslegu tilfær-
inga. An þeirra hefði fyrirtækið
orðið að bera gamlar skuldir næstu
árin.
Bandaríkin:
Byssumað-
ur banar
þremur
Persaflóastríðið:
Iranar þjálfa tveggja
manna
New York, Nicosia, Reuter.
ÍRANAR hyggjast á næstunni
efla herafla sinn með tveunur
milljónum sjálfboðaliða, sagði i
tilkynningu í útvarpinu í Teher-
an i gær. Nýliðunum er ætlað að
vera varalið ef til átaka kemur
við hvert það „stórveldi sem ógn-
ar sjálfstæði landsins". Ali
Khamenei, forseti írans, sagði á
fundi með fréttamönnum i New
York í gær að árás Bandaríkja-
manna á íranskt skip á mánudag
hefði verið „ein stærstu mistök“
Reagans Bandaríkjaforseta.
Hann sagði að við þetta hefði
Washinarton, Mexíkó, Reuter.
FULLTRÚADEILD Bandaríkja-
þings samþykkti i gær 3,5 millj-
óna dollara framlag til kontra-
skæruliða i Nicaragua.
Fjárframlagi þessu er ætlað að
sjá kontra-skæruliðum fyrir vist-'
um, lyfjum og öðrum nauðsynj-
um þann tima sem þeir þurfa að
biða eftir að fjárlagafrumvarp
fyrir næsta ár verði lagt fram á
Bandaríkjaþingi. Öldungadeild
Bandaríkjaþings á eftir að sam-
þykkja framlagið til þess að af
því verði.
Forseti Costa Rica, Oscar Arias,
sem er einn af frumkvöðlum friðar-
samkomulagsins f Mið-Ameríku er
nú á ferð í Bandaríkjunum. Forset-
anum hefur hvarvetna verið vel
Persaflóastríðið tekið á sig nýja
mynd og íranar áskildu sér rétt
til að gripa til hefndarráðstaf-
ana.
Utanríkisráðherra Breta, Sir
Geoffrey Howe, sagði í gær að
Bretar hefðu fyrirskipað lokun
vopnakaupaskrifstofu írans í Lon-
don og vísað starfsmönnum hennar
úr landi. Þetta væri svar við sjöttu
árás írana á breskt skip á mánudag.
Caspar Weinberger, vamarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði áður
en hann hélt í gær til Persaflóa-
svæðisins að þrjú tundurdufl hefðu
tekið og hann ávarpaði þingmenn
áður en þeir gengu til atkvæða og
hvatti þá til að „gefa friðnum tæki-
færi“.
Á meðan atkvæðagreiðslan fór
fram voru bandarísk friðarsamtök
að mótmæla framgöngu kontra-
skæruliða í Nicaragua. Sögðu
mótmælendur að kontra-skæruliðar
væru hryðjuverkamenn, sem hefðu
notað flármagn fengið frá stjóm
Reagans Bandaríkjaforseta til að
ræna og myrða óbreytta borgara í
Nicaragua.
Þær fréttir bámst í gær að vinstri
sinnaðir skæruliðar í E1 Salvador
hefðu fallist á friðarviðræður við
forseta landsins Jose Napoleon
Duarte.
fundist sem lögð hefðu verið af
áhöfn íranska skipsins sem Banda-
rílgamenn tóku herskildi á mánu-
dag. íranar höfðu fullyrt að skipið
hefði staðið í matvælaflutningum.
Weinberger neitaði orðrómi um að
ný olíuskipalest, varin af banda-
rískum herskipum, væri á leið út
Persaflóa.
íranar og írakar skiptust á skot-
árásum í gær. írakskar omstuþotur
vörpuðu einnig sprengjum á landa-
mæraþorp í Tyrklandi. Tveir létust
og 19 særðust.
Stjómmálaskýrendur hafa lýst
efasemdum um vopnasölubann á
íran sem Bandaríkjamenn hyggjast
leggja fyrir Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna. Þeir segja að meiri áhrif
hefði ef ríki sameinuðust um að
kaupa ekki olíu af írönum.
Eduard Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, sagði í gær
í ræðu á Allsheijarþingi Sameinuðu
þjóðanna að bandalag þjóðanna yrði
að veija siglingar á Persaflóa:
Taiwan:
Ferðabanni
til Kína aflétt
Taipei, Reuter.
í TAIWAN hefur 38 ára gömlu
ferðabanni til Kina verið aflétt.
Þetta er talið vera gert til að
bæta imynd landsins eftir harðar
pólitískar árásir stjómvalda i
Peking.
Að sögn háttsettra embættis-
manna í Taipei geta Taiwan-búar
brátt heimsótt ættingja I Kína og
jafnframt borið velmeguninni í Tai-
wan vitni. Þeir leggja þó áherslu á
að ekki sé um að ræða fyrstu skref-
in til sameiningar Kína og Taiwan.
„Siglingaöiyggi á Persaflóa verður
að tryggja og til þess em Samein-
uðu þjóðimar rétti aðilinn. Ef
nauðsyn krefur verður að sjá Sam-
einuðu þjóðunum fyrir viðeigandi
herafla,"
Dallas, Reuter.
MAÐUR sem gengur undir nafn-
inu „Rambo“ skaut í gær í Texas
þijá menn til bana áður en hann
svipti sig lffi.
Howard Stewart, 37 ára gamall,
byijaði á því að skjóta yfírmann
sinn á jámbrautaverkstæði eftir að
hafa verið rekinn úr vinnu. Því
næst hélt byssumaðurinn, brynjað-
ur eins og kvikmyndapersónan
Rambó, til heimilis fyrrverandi konu
sinnar og myrti hana og félaga
hennar. Að síðustu beindi hann
byssunni að eigin höfði og hleypti
af.
Stewart sem einnig er gmnaður
um þijú morð í Missouri í síðustu
viku var gjama kallaður „Rambó“
vegna þess að hann bar jafnan víga-
klæði og Ias lítið annað en tfmarit
um vopn og veijur.
Reuter
Reagan hittir Shcharansky
Bandaríkjaforseti hitti sovéska andófsmanninn Natan Shchar-
ansky og eiginkonu hans að máli í Washington i gær. Shcharansky
sagðist vera bjartsýnn á að mannréttindi ykjust frekar i Sov-
étrikjunum undir stjórn Mikhails Gorbachev. Hann sagðist
ennfremur vonast til að Sovétmenn létu sér ekki nægja að veita
einstökum frægum andófsmönnum brottfararleyfi eins og gerst
hefur á undanfömum vikum.
Bandaríska þingið:
Stuðningnr við
kontra-skæruliða