Morgunblaðið - 24.09.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987
29
ur túlipani hefur reyndar nýlega
litið dagsins ljós. Laukamir eru
settir niður í garðana á haustin um
10—20 cm djúpt eftir stærð og öðr-
um aðstæðum. Algengast er að
setja þá niður í september og októ-
ber. Niðursetning síðar seinkar
blómgun að vori, en þess eru dæmi
að laukar sem settir hafa verið nið-
ur í gegnum klaka í janúar hafi náð
að bómgast næsta sumar!
Blómgast þeir aftur?
Flestar tegundir þarf að end-
umýja árlega, en aðrar blómgast
árum saman ef vel er að þeim búið
móti sól og í skjóli. Að blómgun
lokinni skal nema blómið (og aðeins
sjálft blómið) burt, strax og það fer
að visna. Þetta er gert til að sú
orka sem ella færi í fræmyndun
myndi forðanæringu í laukunum
fyrir næsta ár. Þegar blöð og stöng-
ull ern orðin gulleit eða alveg
visnuð, nokkmm vikum eftir blómg-
un, hafa myndast nýir laukar sem
em gætilega grafnir upp. Þeir lauk-
ar sem em meira en 3 cm í þvermál
geta blómgast næsta sumar. Gey-
mið þessa lauka á þurmm loftgóð-
um stað, ekki of heitum, til
haustsins. Góða, gamla lauka má
einnig taka upp og geyma. Þessir
laukar em svo settir niður á venju-
legan hátt í september-október.
Staðsetning
Best fer á því að planta laukunum
í hópa, 10 eða fleiri í hvern stað.
Plöntun í raðir meðfram aðkomu
að húsi getur verið prýðisfalleg.
Einnig má planta í trjábeð, innan
um sígrænan gróður og í stein-
hæðir. Best fallnir til plöntunar í
steinhæðir em lágvaxnir túlipanar,
10 cm. Þeir em kallaðir villi- og/
eða dílatúlipanar (bótanískir). Til
sömu nota henta kaupmanna- og
íjölblómatúlipanar sem hafa fleiri
en eitt blóm á hveijum stilk. Há-
vaxnari túlipanar þurfa meira skjól.
Margir freistast til að planta við
húsveggi og getur farið vel á því.
Þess ber þó að gæta, að við hús-
veggi geta orðið snöggar hitabreyt-
ingar, sem laukarnir geta beðið tjón
af. Auk þess sem frákast vinds frá
vegg getur feykt plöntunum um
koll. Plöntun á gisin grasengi ásamt
öðmm laukum og fjölæmm plöntum
er einnig möguleiki sem vert er að
benda á.
Jarðvegfur - áburður
Túlipanar em ekki sérlega vand-
látir á jarðveg, en kjósa helst
sandblendna mold. Hún þarf að
hafa eðlilegt innihald næringarefna
og vera heilbrigð. Sýmstig jarðvegs
(pH) er æskilegast sem næst 7.
Islenskur jarðvegur er oftast súr.
Þess vegna þarf að kalkbera jarð-
veginn til að hækka sýmstigið.
Haldið jarðvegi lausum og vökvið,
ef þurrkar ganga. Blanda má ofur-
litlu af áburðarlegi í vökvunarvatn-
ið. T.d. til skiptis með blákorni
(Rustica 12-12-17-2) eða kalksalt-
pétri (sem hækkar pH lítillega).
Ráðlegt er að gefa lítið og oft frek-
ar en mikið og sjaldan.
Framræsla -
sjúkdómar
Gæta verður að framræsla sé góð
og vatn standi ekki á laukunum.
Mikill raki og loftleysi auka líkur á
sjúkdómum. Verði vart við sveppi
eða rotnun, er ráð að vökva með
upplausn af euparen.
Val lauka
Mörgum hefur reynst erfitt að
átta sig á flokkum og gerðum túlip-
ana. Það þekkja þeir sem staðið
hafa frammi fýrir ótrúlegu úrvali
af litskrúðugum pakkningum í
verslunum. Bent skal á að þegar
Hvernig getur fram-
sýni að hausti skapað
fegnrð að vori? Ef þú
arkar út í garðinn þinn
í hrímkaldri haustnepj-
unni með haustlauka og
plöntuskeið í hönd og
annast af natni og alúð
um túlipanalaukana
þína, muntu uppskera
ávöxt erf iðis þíns í
dýrðlegu blómaskrúði
næsta vor.
nánar er að gætt, eru pakkarnir
oftast kyrfílega merktir með heiti
afbrigðis og á þeim er greint frá
hæð, plöntudýpt, millibili og blómg-
unartíma. Stórir og meðalstórir
laukar gefa að jafnaði bestu blóm-
in. Athugið að blómgunartími
laukanna hér er seinna en í suðlæg-
ari löndum. Lesið leiðbeiningamar
á pökkunum vel og leitið aðstoðar
afgreiðslufólks. Hver tegund hefur
ákveðna eiginleika og það auðveld-
ar kaupandanum valið ef hann
hefur einhverja þekkingu á flokkun
túlipana.
Hollendingar gefa út á fjögurra
ára fresti heilmikla doðranta um
flokkun túlipana og verða að jafn-
aði einhverjar lítilsháttar breytingar
á flokkuninni við hverja útgáfu.
Fólki til hægðarauka við laukaval
birtist hér með yfírlit yfir helstu
flokka túlipana, eiginleika og dæmi
um afbrigði sem á boðstólum era í
verslunum hérlendis.
Jólatúlipanar
(driflaukar)
Ekki er hægt að skilja svo við
túlipana að ekki sé fjallað um jóla-
túlipana, svo snar þáttur sem þeir
era orðnir í lífi okkar um' jól, hvíta-
sunnu og páska. Það sem gerir
okkur kleift að fá túlipanana til að
blómstra snemma og nánast þegar
þess er óskað, er ákveðið hitaferli
sem laukarnir era látnir fara í gegn-
um hjá framleiðanda. Algengasta
afbrigðið sem er á boðstólum í versl-
unum er Brillant Star.
Laukarnir era settir í potta, eða
þau ílát sem þeim er ætlað að vera
í þegar að blómgun kemur. Vökvið
síðan vel og setjið á kaldan stað.
Einnig má grafa laukana með ílát-
inu utandyra og hylja með sandi,
mosa og mold. Þegar spíramar
hafa náð 3-4 cm lengd um mánaða-
mótin nóvember, desember, er
óhætt að taka laukana úr geymsl-
unni. Blómin þroskast best í 20—22°
C hita. Þegar blómin fara að sýna
lit era plönturnar færðar í lægri
hita og mikla birtu. Hátt hitastig
og mikill raki orsakar langa leggi,
en þurrkur og birta hið gagnstæða.
Munið áð hressa plöntumar með
alhliða áburðarvatni þegar að
blómgun kemur og þið getið stýrt
blómgunartímanum með því að
spila á strengi ljóss, raka og hita.
Höfundur er garðyrkjufræðingur
íReykjavík.
Ekið á hest
á Suður-
landsvegi
STÓR jeppabifreið ók á hross á
Suðurlandsvegi skammt fyrir
vestan Hvítanes á níunda tíman-
um á þriðjudagskvöld. Hrossið
dó samstundis þegar það stökk
upp á veginn í veg fyrir jeppa-
bifreiðina, sem skemmdist
mikið.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar á Hvolsvelli er lausa-
gangur hrossa við vegi mikið
vandamál, einkum eftir að daginn
tekur að stytta og skyggni verður
lítið vegna myrkurs.
Áskriftarshninn er 83033
2,0 LÍTRAR
Sanilas