Morgunblaðið - 24.09.1987, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987
33
Filippseyjar:
Aquino boðar her-
ferð gegn spillingu
Sérsveitir sendar gegn skæruliðum
Manilu, Reuter.
CORAZON Aquino, forseti
Filippseyja, boðaði í gær til her-
ferðar gegn hvers kyns spillingu
innan stjórnkerfisins. Er litið á
þetta sem lið i þeirri viðleitni
forsetans að treysta stjóm sína
í sessi en mikil spenna hefur ríkt
á Filippseyjum að undanförnu
eftir uppreisn innan hersins.
Teodoro Benigno, blaðafulltrúi
forsetans, tjáði fréttamönnum að
Aquino hefði mælst til þess við ráð-
herra sína að þjónusta ýmissa þátta
stjómkerfsins yrði bætt og unnið
yrði gegn bruðli og óráðsíu. Krafð-
ist hún þess að háttsettir embættis-
menn létu af hvers kyns bílífi og
skorin yrði upp herör gegn spilingu
innan stjómkerfísins. Boðaði Aqu-
ino til ríkisstjómarfundar sökum
þessa og var það hinn fyrsti frá því
herforingjar gerðu blóðuga upp-
reisn 28. ágúst síðastliðinn.
Vinsældir Aquino em sagðar hafa
minnkað í kjölfar uppreisnarinnar
og er iitið á spillingarherferðina sem
lið í baráttu hennar til að vinna
aftur vinsældir almennings.
Fidel Ramos, yfírmaður herafla
Filippseyja, hefur hvatt til hertra
aðgerða í baráttu stjómarhersins
við skæmliða kommúnista, sem
hafa færst í aukana eftir uppreisn-
ina innan hersins. Ramos tjáði
fréttamönnum á þriðjudag að hann
hefði farið þess á leit við þingmenn
að þeir samþykktu lög sem skyld-
uðu alla íbúa Filippeyja að bera
nafnskírteini, sem stjómvöld gæfu
út. Sagði Ramos að á þennan hátt
yrði auðveldara að hafa hendur í
hári skæmliða. Þann sama dag
sprengdu skæmliðar í loft upp brú
í Camarines-Sur héraði og hafa
þeir þar með eyðilagt fímm brýr
með þessum hætti undanfamar
tvær vikur. Ramos tjáði frétta-
mönnum í gær að afráðið hefði
verið að senda sérþjálfaðar úrvals-
sveitir hersins á þessar slóðir til að
glíma við spellvirkjana.
Reuter
Einmana áhorfendur
Það var tómlegt um að Litast á alþjóðlega tennismótinu í Ham-
borg sem hófst í mikilli rigningu á dögunum. Hinir áhugasömu
tennisaðdáendur á myndinni létu þó fara vel um sig í skjóli regn-
hlífar.
Le Pen hættur við
Bretlandsf erðina
Dæmdur til að greiða skaðabætur
vegna ummælanna um gasklefana
London. París, Reuter.
JEAN-Marie Le Pen, formaður Þjóðernisfylkingarinnar í Frakkl-
andi, hætti í fyrrakvöld við fyrirhugaða ferð til Bretlands en þar
ætlaði hann að halda ræðu á fundi, sem haldinn verður á sama tíma
og flokksþing íhaldsflokksins. Sama dag unnu frönsk mannréttinda-
samtök mál, sem þau höfðu höfðað gegn honum vegna ummæla
hans um gasklefa nasista.
Sir Alfred Sherman, fyrrum ráð-
gjafí Margaret Thatcher forsætis-
ráðherra, hafði boðið Le Pen að
koma til fundarins í Blackpool í
næsta mánuði en hann verður hald-
inn samtímis flokksþingi íhalds-
manna. í síðustu viku olli Le Pen
hins vegar miklu uppnámi þegar
hann sagði, að gasklefamir í útrým-
ingarbúðum nasista hefðu aðeins
verið smámál í sögu síðari heims-
styijaldar og hafa margir íhalds-
menn og aðrir krafíst þess, að
honum verði ekki leyft að koma til
Bretlands.
í fyrrakvöld tilkynnti Le Pen, að
hann harmaði uppistandið en til að
valda ekki Thatcher vandræðum
ætlaði hann að sitja heim. Sagði
Sherman um þá ákvörðun, að móð-
ursýkislegri umræðu í fjölmiðlum
væri um að kenna hvemig komið
væri og þótti heldur kynda undir
eldunum með því að bæta við, að
ungir menn í SS-sveitum Hitlers
hefðu einnig verið fómarlömb hans.
Formaður Ihaldsflokksins, Norman
Tebbit, sagði á blaðamannafundi á
mánudag, að Le Pen væri ekki vel-
kominn í Blackpool þótt ekki væri
hægt að meina honum komuna.
Sir Alfred Sherman var áður ráð-
gjafi og ræðuritari Thatchers en
féll í ónáð þegar öfgafullar skoðan-
ir hans þóttu keyra úr hófi fram.
Veitir hann forstöðu óháðum rann-
sóknarhópi og það var hann, sem
bauð Le Pen.
Frönsk mannréttindasamtök
unnu í gær fyrir dómstóli í París
mál gegn Le Pen en það var höfðað
vegna ummæla hans um gasklef-
ana. Var hann dæmdur til að greiða
einn franka (6,40 ísl. kr.) í skaða-
bætur og 1000 franka til 12
samtaka fórnarlamba styrjaldarinn-
ar og til þeirra, sem málið höfðuðu.
Félagi
geimapi
Apinn á myndinni er um borð
í „geimflaugarhermi“ í eigu
líffræðirannsóknarstofnunar í
Moskvu. Apinn er i þjálfun og
er hugsanlega farþegi í næstu
geimferð Sovétmanna þar sem
gerðar verða á honum liffræði-
legar athuganir
Dæmi um verð pr. einingu:
197 cm háir skápar með sléttum hurðum
breidd 40cm-frákr. 7.600,-
breidd 80cm-frákr. 11.750.-
breidd 100 cm - frá kr. 12.950,-
197 cm háir skápar með fræstum hurðum
(sjá mynd)
breidd 40 cm-frákr. 10.200.-
breidd 80cm-frákr. 16.950.-
breidd 100 cm -frá kr. 18.450,-
Trésmiðjan Viðja hóf nýlega framleiðslu á
vönduðum og sterkum fataskápum sem eru
afrakstur áralangrar þróunar og reynslu
starfsmanna fyrirtækisins. Þeir byggjast á
einingakerfi sem gerir kaupendunum kleift að
ráða stærð, innréttingum og útliti, innan
ákveðinna marka.
Hægt er að fá skápana í beyki, eik eða hvítu,
með sléttum hurðum. Auk þess eru hvítu
skáparnir fáanlegir með fræstum hurðum
(sjá mynd). Einingaskáparnir frá Viðju eru
auðveldir í uppsetningu og hafa nánastóend-
anlega uppröðunar- og innréttingamöguleika.
Þeir einkennast af góðri nútímalegri hönnun
og sígildu útliti sem stenst tímans tönn.
Stærðir:
hæð: 197 cm eða 247 cm
breidd: 40 cm - 50 cm - 60 cm o.s.frv.
dýpt: 60 cm.
Viðja býður nú nýja gerð af fataskápum sem settir eru
saman úr einingum eftir óskum viðskiptavinanna sjálfra
20% útborgun
12 mánaða
greiðslukjör.
þar sem
góðu kaupin
gerast.
FALLEGIR [ATASKAPAR Á
SÉRSTAKLEGA GÓÐU VERÐI
bmiöjuvegi 2 Kópavogi
Sími 44444