Morgunblaðið - 24.09.1987, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987
45
L
Afmælishátíð Náttúrulækn-
ingafélags Islands fjölsótt
AFMÆLISHÁTIÐ Náttúrulækn-
ingafélags Islands var haldin í
Heilsuhælinu í Hveragerði
síðastliðinn sunnudag, en félagið
er 50 ára á þessu ári.
Viðstaddir voru á fjórða hundrað
gesta, þeirra á meðal nokkrir sem
sátu stofnfund félagsins á Sauðár-
króki 5. júlí 1937. Hátíðin hófst
með því að Jónas Bjarnason forseti
NLFÍ og Eiríkur Ragnarsson,
framkvæmdastjóri lögðu blómsveig
að minnisvarða Jónasar Kristjáns-
sonar læknis, forvígismanns fé-
lagsins en síðan var gestum boðið
til hádegisverðar.Að loknum há-
degisverði var haldin hátíðardag-
skrá þar sem kór Hveragerðiskirkju
og Kotstrandarsóknar söng undir
stjóm Robert Darling auk þess sem
flutt voru ávörp. Dagskránni lauk
með því að forseti NLFÍ heiðraði
nokkra fyrrverandi og núverandi
starfsmenn félagsins og tvo félags-
menn. Hátíðahöldin voru að hluta
til kvikmynduð
I tilefni afmælisins sýnir Ragnar
Kjartansson,. myndhöggvari,
keramikmálverk og höggmyndir á
göngum hælisins og stendur sýn-
ingin til 31. október
Nokkrir veislugesta
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
+
Vefnaðarvöruverslun
Rótgróin verslun í vefnaðarvöru og smávöru
í eigin húsnæði í miðbæ Reykjavíkur til sölu.
Selst í einu lagi eða verslunarreksturinn sér.
Hentar tveimur fjölskyldum vel.
Þeir sem áhúga hafa leggi inn nafn og síma
á auglýsingadeild Mbl. fyrir 28. séptember
merkt: „V - 4703“.
Fiskiskip
Höfum til sölu eikarbáta af eftirfarandi stærð-
um:
56 rúml. með 565 hp. Caterpillar 1984.
57 rúml. með 365 hp. Caterpillar 1969.
74 rúml. með 620 Cummins 1984.
30 rúml. stálbátur 1982 með 260 hp. Volvo-
Penta 1982.
.i«vtíiwaw
SKIPASALA-SKIPALEIGA,
JÓNAS HARALDSSON/LÖGFR. SÍML 29500
W ÚTBOÐ
Flutningar
Tilboð óskast í flutninga á u.þ.b. 940 tonnum
af áfengi og tóbaki frá Reykjavík til útsölu-
sölustaða ÁTVR á Akranesi, Akureyri,
Sauðárkróki og Ólafsvík. Gert er ráð fyrir
vikulegum ferðum.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri og
tilboð verða opnuð á sama stað í viðurvist
viðstaddra bjóðenda kl. 11 .OOf.h. 7. október nk.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartuni 7, simi 26844
HAFNARHREPPUR
Utboð
Hafnarhreppur óskar eftir tilboðum í við-
byggingu dagheimilis sem er 167 fm að
flatarmáli. í útboðinu er gert ráð fyrir að
byggingunni sé skilað rúmlega fokheldri og
eigi síðar en 1. júlí 1988. Útboðsgögn eru
afhent á skrifstofu Hafnarhrepps gegn kr.
5.000,- í skilatryggingu. Tilboð verða opnuð
föstudaginn 16. október nk. kl. 11.00 á skrif-
stofu Hafnarhrepps.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Höfn, 23. september 1987.
Sveitarstjóri Hafnarhrepps.
Árbær — Breiðholt —
Laugarnes
Kennslugreinar í Árbæ eru:
Enska, 1., 2., 3. og 4. fl. Kennslud. mánud.
Spænska, 1. og 2. fl. Kennslud. mánud.
Þýska, 1., 2. og 4. fl. Kennslud. miðvikud.
Kennslustaður Árbæjarskóli.
Kennslugjald kr. 2.600,-
Kennslugreinar í Breiðholti eru:
Fatasaumur. Kennslud. mánud. og miðvikud.
Gjald kr. 5.000,-
Enska, 1., 2., og 3. fl. Kennslud. þriðjud.
Enska, 4. og 5. fl. Kennslud. miðvikud.
Franska, 1. fl. Kennslud. mánud.
Spænska, 1. og 2. fl. Kennslud. þriðjud.
í undirbúningi er kennsla í bókbandi. Áætlað
er að það hefjist seint í október.
Kennslustaður er í menningarmiðstöðinni
í Gerðubergi. Kennslutími frá kl. 18.00-
22.20.
Kennslugjald í saumum er kr. 5.000 og tungu-
málum kr. 2.600.
Kennslugreinar í Laugarnesi eru:
Þýska frh.fl. Kennslud. mánud.
Sænska, 1. og 2. fl. Kennslud. þriðjud.
Sænska, 3. og 4. fl. Kennslud. mánud.
Enska, 2. og 3. fl. Kennslud. miðvikud.
Bókfærsla, 1. og 2. fl. Kennslud. þriðjud.
Vélritun, 1. og frh.fl. Kennslud. þriðjud.
Auk þess fer kennsla á verslunarsviði í öld-
ungadeild fram í Laugalækjarskóla.
Kennslustaður í Laugarnesi er Laugalækj-
arskóli. Kennslutími kl. 18.40 til 22.20.
Kennslugjald kr. 2.600,-
Innritun er þegar hafin og fer fram i' Mið-
bæjarskóla daglega þessa viku, síðdegis.
Ath.: í Breiðholti tökum við á móti innritun-
um fimmtudaginn 24. sept. kl. 18.00-20.00
í Gerðubergi.
Námsfiokkar Reykjavíkur.
Lögtaksúrskurður
Að kröfu Innheimtu ríkissjóðs í Hafnarfirði,
Garðakaupstað, á Seltjarnarnesi og í Kjósar-
sýslu mega fara fram lögtök fyrir ógreiddum
en gjaldföllnum tekjuskatti, eignaskatti,
sóknargjaldi, slysatryggingargjaldi v/heimil-
isstarfa, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjaldi,
slysatryggingagjaldi atvinnurekenda skv. 36.
^gr. lífeyristryggingagjalda atvinnurekenda
skv. 20 gr., atvinnuleysistryggingagjaldi,
vinnueftirlitsgjaldi, launaskatti, kirkjugarðs-
gjaldi, sjúkratryggingagjaldi, gjaldi í fram-
kvæmdasjóð aldraðra og skatti af skrifstofu-
og verslunarhúsnæði.
Einnig fyrir aðflutningsgjaldi, skipaskoðunar-
gjaldi, lestargjaldi og vigtargjaldi, bifreiða-
skatti, skoðunargjaldi bifreiða og slysatrygg-
ingagjaldi bifreiða og slysatryggingargjaldi
ökumanna 1986, áföllnum og ógreiddum
skemmtanaskatti og miðagjaldi, söluskatti
af skemmtunum, vörugjaldi af innlendri fram-
leiðslu sbr. 1.65/1975, gjöldum af innlendum
tollvörutegundum, matvælaeftirlitsgjaldi og
skipulagsgjaldi af nýbyggingum.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum ásamt
dráttarvöxtum og kostnaði mega fara fram
á kostnað gjaldenda, en á ábyrgð Innheimtu
ríkissjóðs, að liðnum átta dögum frá birtingu
þessa lögtaksúrskurðar.
Hafnarfirði 22. september 1987.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði,
Garðakaupstað, Seltjarnarnesi,
sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
Lögtaksúrskurður
Að kröfu Innheimtu ríkissjóðs í Hafnarfirði,
Garðakaupstað, á Seltjarnarnesi og í Kjósar-
sýslu mega fara fram lögtök fyrir gjaldföllnum
en ógreiddum söluskatti 1987, svo og við-
bótar- og aukaálagningu söluskatts vegna
fyrri tímabila.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum geta
farið fram á kostnað gjaldenda, en á ábyrgð
Innheimtu ríkissjóðs, að liðnum átta dögum
frá birtingu þessa lögtaksúrskurðar ef full
skil hafa ekki verið gerð fyrir þann tíma.
Hafnarfirði 22. september 1987.
Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi,
Garðakaupstað, Setljarnarnesi og
sýslumaðurinn í Kjósarsýsiu.
Árnessýsla — Selfoss
Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæöisfélaganna I Árnessýslu veröur
haldinn á Tryggvagötu 8, Selfossi, þriðjudaginn 22. þ.m. kl. 21.00.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Kjördæmisráðsfundur
Sjálfstæðisflokksins á
Suðurlandi
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjélfstæðisflokksins á Suðurlandi verður
haldinn i Vestmannaeyjum 3. og 4. október nk. i Básum. Fundurinn
hefst kl. 17.00 á laugardeginum. Um kvöldið verður farið á Eyjakvöld
á Skansinum, en fundinum lýkur á sunnudeginum. Gist veröur í
Hótel Þórshamri, nýju og glæsilegu hóteli.
Stjóm kjördæmisráðs.
Akureyringar
Þingmaðurinn ykkar
Halldór Blöndal og
Gunnar Ragnars,
bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins á
Akureyri, verða með
viðtalstfma fimmtu-
daginn 24. sept-
ember nk. í
Kaupangi við Mýrar-
veg á Akureyri.
Viðtalstíminn er frá
kl. 20.00-22.00 e.h.
MMtMEKOaMM
■NUISKIMIMAUMMIHNBMMMMnUMHMMMMMMMBHMHMBBMl