Morgunblaðið - 24.09.1987, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987
47
Öþekkt andlit
Hljómsveltina Óþekkt andlit frá Akranesl sklpa
þelr Orrl Harðarson gltarlelkarl, Jóhann
Slgurðarson trommuleikari, Pétur ÞórAarson
gítarlelkarl og Hrannar Hauksson bassaleikarl.
Morgunblaðið/Sverrir
Við erum búnir
að prófa allt
frá pönki ítrúbadúr
Óþekkt andlit er hljómsveit frá
Akranesi sem, þrátt fyrir ungan
aldur sveitarmeðlima, hefur skip-
að sér í hóp efnilegustu hljóm-
sveita hérlendra.
Óþekkt andlit skipa þeir Pétur
Þórðarson gítarleikari og söngvari,
Örri Hdrðarson gítarleikari, Hrann-
ar Hauksson bassaleikari og
Jóhann Sigurðarson trommuleik-
ari. Síðan viðtalið var tekið hefur
baest söngvari í sveitina, Trausti
Harðarson frá Akureyri. Hljóm-
sveitin vakti athygli í Músíktilraun-
um Tónabæjar og einnig á
Rykkrokktónleikum Fellahellis fyrir
þétt rokk með góðum íslenskum
textum. Útsendari Rokksíðunnar
brá sér upp á Skaga til að ræða
við Óþekkt andlit.
Hvað er hljómsveitin búin að
starfa lengi?
Hjómsveitin var stofnuð í janúar
Plötuflóð
Hlómplötuútgáfa á íslandi
er með blómlegasta móti um
þessar mundir og muna menn
ekki annað eins.
Á árinu hafa komið út nær
þrjátíu plötur, og á útgáfuáætl-
un eru á milli þrjátíu og fjörutíu
plötur hjá Steinum, Gramminu,
Skífúnni, Fálkanum, Geim-
steini, Tóný, Smekkleysu s/m
og Erðanúmúsík.
Búast má við því að þegar
upp er staðið verði titlar á árinu
nálægt því að vera hundrað,
sem er það mesta á einu ári
sem menn þekkja hérlendis.
Rýmið leyfir ekki upptalningu
á þeim plötum sem út koma
að sinni, en úr því verður bætt
á næstu rokksíðu.
og telst því vera átta mánaða eða
þar um bil.
Varð hún til upp úr öðrum
hljómsveitum eða er þetta frum-
raun ykkar?
Hún er orðin til úr rústum
margra sveita. Við komum sinn úr
hverri áttinni, höfum verið í pönk-
hljómsveitum, trúbadúr og þunga-
rokksveitum, erum búnir að prófa
allt. Þrír okkar spiluðu m.a.s. í sjón-
varpinu í hljómsveitinni Ofbirta.
Voruð þið góðir?
Nei.
Er þetta þá ein tilraunin enn,
eða ætlið þið að halda áfram?
Þessi hljómsveit heldur áfram á
meðan fært er. Það er nóg að
gerast, við erum að semja helling
af lögum.
Hvað er það þá sem heldur
ykkur við efnið?
Áhuginn, hann er ódrepandi.
Er gaman að spila?
Já það er gaman að spila í
Reykjavík. Hér er allt steindautt
og hundleiðinlegt að spila. Maður
nær engu sambandi við fólkið.
Ætlið þið þá að spila eitthvað
meira fyrir sunnan i haust og
vetur?
Ef einhverjir vilja fá okkur.
Hvað með útgáfu, hafið þið
reynt eitthvað fyrir ykkur í því?
Það stóð til að við yrðum með
á Snarlspólunni en fyrir misskilning
þá varð ekkert úr því. Við viljum
ólmir taka upp ef einhver vill gefa
það út.
Lokalag ykkar á Rykkrokktón-
leikunum var gamla Joy Division-
lagið Love Will Tear Us Apart.
Er ykkar tónlistarinnblástur kom-
inn úr bresku nýbylgjunni sem
var?
Já, við höfum riokkur áhrif frá
breskri tónlist, en í seinni tíð höf-
um við líka farið að spá í banda-
rísku nýbylgjuna, enda er mikið að
gerast fyrir vestan. Kannski eru
mestu áhrifin komin frá Bubba
Mortens, við höfum alltaf haldið
mikið upp á hann og hansihljóm-
sveitir.
Reyndar lærðum við Love Will
Tear us Apart ekki af plötum Joy
Division, við lærðum það af tón-
leikum Bubba og Das Kapital sem
við eigum á spólu.
Þið eruð þá ekkert að skamm-
ast ykkar fyrir að fá áhrif að utan?
Nei, alls ekki, enda ekki ástæða
til.
Hver semur lög og texta.
Pétur og Orri semja allt.
Nú er meiri hugsun á bak við
textana en almennt í íslenska
poppinu, eruð þið mjög áhyggju-
fullir almennt?
Nei, alls ekki. Það er bara það
að okkur finnst fáránlegt að semja
texta sem eru innihaldslaust bull.
Menn eiga að leggja metnað sinn
í að semja góða texta.
Nú hafið þið áður nefnt Bubba
sem áhrifavald. Hvað með Bubba
í dag og hvað með annað íslenskt
rokk?
Bubbi er alltaf góður, þó hann
hafi áður verið betri að okkar mati.
Það er hálfgert stuðmannahopp á
honum í dag. Af öðrum íslenskum
sveitum þá erum við geysihrifnir
af Svart/hvítum draumi og Sykur-
molunum. E-X og Gildran eru líka
góðar hljómsveitir og Sogblettir.
Nú eru hljómsveitir eins og
Sogblettir mjög beinskeyttir í
textum og ófeimnir í þjóðfélags-
gagnrýni. Hvað með ykkur, hafið
þið engar skoðanir?
Jú, víst höfum við skoðanir.
Málið er að eins og er þá er okkur
efst í huga almennt óréttlæti. Það
sértæka kemur sjáfsagt síðar.
Er eitthvað sem þið viljið segja
um íslenska rokkheiminn að lok-
um?
Við erum ánægðir með það hve
margar nýbylgjuhljómsveitir eru í
gangi núna, það minnir um margt
á það þegar rokksprengingin varð
með Utangarðsmönnum. Þó eru
til nokkrar hljómsveitir sem fara
ætti með hér inn í fjörð þar sem
dýpst er og sökkva þar.
TÓmaS Ljósmynd/BS
viA stjómborðlA i Grettlsgatl. AA öArunt ólöstuAum é hann
mestan þétt i því hve platan er vel heppnuA, að mati Bubba.
MeA Tómasi hefur starfaA Ásgeir Jónsson.
Ljósmynd/BS
Ekki dæmigerd
poppplata
Bubbi í hjóðveri
Nú er helsta plötuvertíð á
íslandi að hefjast og væntanleg-
ar eru yfir þrjátiu íslenskar
plötur á markað fram að jólum.
Umsjónarmaður rokksíðunnar
brá sér í heimsókn í hljóðver til
ýmissa tónlistarmanna til að
grennslast um hvað væri á seyði.
Fyrsta heimsóknin var í Grettis-
gat hvar Bubbi Morthens er aö
vinna að væntanlegri plötu sinni
með Tómasi Tómassyni.
Bubbi, nú hefur Frelsi til sölu
náð um sautján þúsund eintaka
sölu, er ekki erfrtt að vera að
keppa við sjálfan sig?
Auðvitað má þó segja að það
sé pressa að eiga að fylgja eftir
hátt í tuttugu þúsund eintaka
sölu, en ég lít á hverja plötu sem
bara plötu og salan skiptir engu
meginmáli. Áheyrendur verða að
dæma, en þaö get ég sagt að
þetta er ekki dæmigerð popp-
plata.
Ég vil ekki segja að ég sé að
keppa við sjálfan mig, enda er
ég að gera allt aðra hluti en á
Frelsi til sölu. Tónlistin er annars-
konar, þó kannski svipi a-hliðinni
eitthvað til Frelsisins. Vinnu-
brögðin við plötuna eru þau
vönduðustu sem ég hef átt hlut
að, hljómur er betri og allar út-
setningar eru betri en áður. Ég
er reyndar á því að ekki hafi áður
verið gerö vandaðri íslensk plata.
Það er að miklu Tómasi að þakka
og hans vinnubrögðum. Að mínu
mati er Tómas búinn að skipa
sér á bekk með útsetjurum og
upptökustjórum á heimsmæli-
kvarða.
Nýja platan verður íslenskari
en Freiaið og textarnir eru það
besta sem ég hef gert hingað
til, en ég er búinn að vera að
vinna viö þá í allt sumar. í þeim
textum sem ég nota næ ég að
segja það sem mig langar að
segja og það sem meira er, ég
held að ég sé ekki að endurtaka
mig, hvorki textalega né tónlist-
arlega.
Hvernig skilgreinir þú tónlist-
ina, ertu að taka upp rokktón-
list?
Nei, ég hef sagt skilið við rokk-
ið að sinni, ég hef gert allt það
í rokkinu sem mig hefur langað.
Nú er ég að móta minn eigin
tónlistarstíl. Tónlistin á þessari
plötu byggist öll i kring um gítar-
inn og röddina, án þess þó að
ég sé að leika trúbadúrtónlist.
Síðan hefur Tómas raðað öðrum
hljóðfærum og hljóðum umhverf-
is.