Morgunblaðið - 24.09.1987, Síða 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987
-\
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNIN
Símamynd/Terje Pedersen
Ólafur endurtók leikinn
ólafur harðjaxl Þórðarson lék I gær sinn flórða sigur-landsleik í röð! Eins og sagt var frá í Morgunblaðinu í gær var hann með er U-21 árs liðið vann Dani á útivelli, einnig er ólympíuliðið vann Austur-Þjóðveija
á Laugardalsvelli og síðan er A-liðið Iagði Norðmenn á sama stað. Hann er greinilega til mikillar lukku, og hlýtur að vera búinn að tryggja sér sæti I liðinu. Það tapar ekki ef hann leikur!
Barátta liðsheildar dugði
til frækins sigurs í Osló
ÍSLENSKA landsliðið og þeir
fjölmörgu íslendingar sem bú-
settir eru hér í Noregi og
^maattu á völlinn til að hvetja
landann, íslenska landsliðið,
höfðu svo sannarlega ástœðu
til að fagna á Ullevaal-leikvang-
inum f gœrkvöldi þegar
íslenska landsliðið í knatt-
spymu lagði það norska að
velli f sfðari leik llðanna f Evr-
ópukeppni landsliða. Með
sigrinum er nœsta víst að
Norðmenn verða f neðsta sœti
riðiisins enn eina ferðina, en
íslenska liðið er nú komið f 3.
sseti. Það var fyrst og fremst
vel skipulagður ieikur og bar-
átta liðsheildarinnar sem skóp
þennan sasta sigur. Allir lögð-
ust á eitt og uppskeran var
-Abetri en nokkur hafði búist við.
Sigur gegn sterkasta liði sem
Norðmenn hafa haft f nokkurn
tfma.
Fór rólega af stað
Fyrri háfleikurinn fór rólega af
stað. íslenska liðið lék mjög
varfæmislega og var Bjami mark-
vörður Sigurðsson allt að því leik-
stjómandi fyrsta
stundarfjórðunginn,
svo aftarlega var
leikið.
Það vakti athygli að
Norðmenn komu ekki út á leikvang-
inn fyrr en flautað var til leiks,
þeir hituðu upp annars staðar. Frá-
bær lúðrasveit hersins skemmti
gestum fyrir leik með stórskemmti-
legum lögum og marseringu sem
vakti mikinn fögnuð þeirra örfáu
^fJiorfenda sem á leikinn komu.
' Norðmenn fengu óskabyijun, eða
Skúli Unnar
Sveinsson
. skrífar
—’fráOsló
hefðu getað fengið óskabyijun,
skulum við segja. Andersen fékk í
tvígang gott færi en misnotaði þau.
Hann fékk raunar 6 þokkaleg færi
í fyrri hálfleik sem hann nýtti ekki.
Hann er ótrúlega óheppinn við
markið, enda hefur hann aðeins
skorað 3 mörk í sfðustu 17 land-
sleikjum og leikur þó sem fremsti
maður.
Atll skorar
Leikur íslenska liðsins fór batnandi
er líða tók á og taugamar vora
komnar í lag. Samspil strákanna
var þó á köflum of stutt og bar
lítinn árangur — þar til markið kom.
Ólafur Þórðarson tók aukaspymu
frá hægri kanti, sendi knöttinn hátt
inn í vítateig Norðmanna þar sem
vamarmaður skallaði frá en beint
fyrir framan fætur Atla Eðvalds-
sonar sem var rétt utan við vftateig—
Atli afgreiddi boltann í netið með
þokkalegu skoti, boltinn fór tvíveg-
is í jörðina og yfír markvörðinn sem
var lagstur niður. Mark þetta vakti
litla hrifningu norsku áhorfend-
anna, en þeim mun meiri hjá þeim
íslensku sem vora bæði fjölmennir
og háværir og var sem leikið væri
á Laugardalsvelli.
Sá aó hann var veikastur fyrir
Jarðarboltum hasgra meginl
„Ég fylgdist með markverði Norð-
manna á æfingu fyrir leikinn og
þá sá ég að hann var veikastur
fyrir jarðaboltum hægra megin.
Auðvitað skaut ég því þar,“ sagði
Atli Eðvaldsson hlæjandi eftir leik-
inn og að vonum ánægður.
íslensku leikmennimir lék síðari
hálfleikinn frábærlega vel. Þeir létu
boltann ganga vel manna á milli
og oftast fram á við. Liðið réði hrað-
anum í leiknum og Norðmenn náðu
ekki að ógna marki okkar að neinu
gagni miðað við fyrri hálfleikinn.
Það munaði ekki nema hársbreidd
að Lárasi tækist að skora annað
mark. Sævar tók aukaspymu og
Láras var í ágætu færi en hitti
ekki boltann.
Vömin fróbær
Vöm ísland var frábær. Atli og
Sævar eins og herforingjar og
Guðni öiyggið uppmálað aftastur.
Þeir gættu manna sinna mjög vel
og Norðmenn komust hvergi gegn
þeim. Norðmenn fengu þó færi og
á 67. mín. munaði ekki miklu að
þeir jöfnuðu. Soler gaf fyrir markið
og Bratseth skallaði að marki en
bjargað var í hom af línu. Úr því
skallaði Bratseth aftur að marki en
Bjami varði enn eina ferðina. Er
líða tók á leikinn virtust framheijar
okkar dálftið þreyttir, enda ekki
öfundsverðir af því að eiga við þá
Giske og Bratseth, sem era geysi-
sterkir miðheijar.
Baráttan hjá íslensku strákunum
var einstök og minnti helst á leikina
við Frakka og Sovétmenn á Laugar-
dalsvellinum í fyrra. Allir lögðust á
eitt um að leika vel. Og það tókst.
Menn voru mjög hreyfanlegir og
allir ólmir í að fá boltann, nokkuð
sem því miður hefur ekki sést í
síðustu landsleikjum A-landsliðsins.
Þegar tæpar 3 mínútur voru eftir
kórónaði slakur sænskur dómari
leik sinn með því að reka Pétur
Amþórsson af velli fyrir að sparka
boltanum frá er hann hafði dæmt
aukaspymu. Rétt hjá honum en
þetta var í eitt af fáum skiptum sem
hann gerði eitthvað rétt. Hann var
n\jög hliðhollur Norðmönnum, virt-
ist eitthvað hræddur við þá — eða
Slmamynd/Terje Pedersen
Atll Eðvaldsson, fyrirliði Islenska landsliðsins, stýrði mönnum sínum vel i
gærkvöldi, lék vel í vöminni og skoraði sigurmarkið. Hér er hann I baráttu
úm boltann við einn norska leikmanninn í gærkvöldi.
kannski sænska þjálfarann þeirra!
Bestu menn íslenska liðsins, af mjög
sterkri liðsheild, vora Bjami í mark-
inu, sem lék frábærlega, Sævar og
Atli í vöminni og á miðjunni vora
Ólafur, Pétur og Ragnar bestir. Hjá
Norðmönnum var Soler langbestur
og Bratseth lék vel í vöminni svo
og Henriksen, sem átti geysigóða
spretti upp hægri kantinn.