Morgunblaðið - 24.09.1987, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987
71
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA
Staðan
Sovetríkin.....6 4 2 0 11:2 10
A-Þýskaland....5 2 2 1 8:2 6
tsland.........7 2 2 3 4:12 6
Frakkland......6 1 3 2 3:5 5
Noregur........6 114 3:8 3
Leikimir sem eftir eru í riðlinum:
A-Þýskaland—Sovétríkin 10. októ-
ber, Frakkland—Noregur 14. októ-
ber, Sovétríkin— ísland og
A-Þýskaland—Noregur 28. október
og Frakkland—A-Þýskaland 18. nóv.
NoreguMsland
0 : 1
Evrópukeppni landsliða, Ullevaal-leik-
vangurinn í Osló, miðvikudaginn 23.
september 1987.
Mark íslands: Atli Eðvaldsson (32.)
Gult spjald: Pétur Amþórsson (40.)
Rautt spjald:Pétur Amþórsson (80.)
Áhorfendur: 3.450
Dómarí: Haakon Lundgren frá
Svíþjóð.
Lið íslands: Bjami Sigurðsson, Atli
Eðvaldsson, Guðni Bergsson, Sœvar
Jónsson , ólafur Þórðarsson, Viðar
Þorkelsson, Ragnar Margeirsson, Pét-
ur Araþórsson, Gunnar Gíslason, Lárus
Guðmundsson, (Halldór Áskelsson,
vm., á 85. mín.), Guðmundur Torfason.
Lið Noregs: Erik Thorstved, Rune
Drattseth, Andere Giske, Hans H. Hen-
riksen, Per Edmund Mordt, Erik Soler,
Kai Erik Herrlovsen, Kjetil Osvold,
Tom Sundby (Jan Berg vm. á 77.
mín.), Bjöm Andereen, Vegard Skog-
heim (Ulrich Möller vm. á 47. mín.).
Símamynd/Terje Pedersen
Fyrirliðinn stjórnar!
Atli Eðvaldsson, fyrirliði islenska landsliðsins í knattspymu, tryggði liði sínu sigur með eina marki leiksins gegn Noregi í gærkvöldi. Atli lék sem sá er valdið hefur
og stjómaði sínum mönnum af röggsemi.
Hvað sögðu þeir?
Sfmamynd/Verdens Gang
Lárus Qudmundsson með knöttinn í leiknum í gærkvöldi. Það er Hans
Hermann Henrikssen sem sækir að honum.
Slgfrtod Held,
þjálfari ístondlnga
„íslenska liðið lék vel í þessum
leik, en strákamir gerðu sig seka
um alltof mörg smávægileg mis-
tök — ónákvæmar sendingar og
fljótfæmi þegar á reið í sókninni.
Norska liðið. er sterkt og vann
meðal annars Frakkland 2:0 hér
á Ullevaal, en það sem skipti sköp-
um í leiknum í kvöld var að við
nýttum okkar marktækifæri en
Norðmenn ekki.“
Um brottrekstur Péturs Amþórs-
sonar sagði Siegfrid Held: „Þetta
er brandari og hann af lélegri
gerðinni."
Um frammistöðu einstakra leik-
manna vildi hann ekkert segja en
liðið sem heild hefði átt góðan
dag.
Tord Grlp, þjálfaii
NorAmanna
„Tapið er erfiður biti að kyngja.
Við spiluðum mjög vel úti á vellin-
um fyrstu 30 mínútumar og
sköpuðum okkur mörg marktæki-
færi sem við því miður nýttum
ekki til fulls.
Leikmenn íslands léku skynsam-
lega og náðu að bijóta niður
sóknir okkar á réttum tíma. Mínir
menn börðust eins og þeir gátu í
90 mínútur gegn ákveðnum ís-
lendingum sem hvergi gáfu eftir,
hvorki í návígum né í loftinu. Ég
hafði reiknað með Tom Sundby
sem heilanum á bak við upp-
byggingu sóknarinnar, en hann
virkaði bæði þreyttur og áhuga-
laus.“
Grip var undrandi á hvað íslend-
ingar náðu að sýna góðan leik og
hafði þá leikinn heima í huga.
Um einstaka leikmenn íslenska
liðsins þótti honum miðverðimir,
Atli Eðvaldsson og Sævar Jóns-
son, ásamt Guðna Bergssyni, spila
af öryggi og myndugleik.
„Pétur Amþórsson og Ólafur
Þórðarson voru einnig góðir en
allra bestur þótti mér þó Bjami
markvörður Sigurðsson sem átti
leik á heimsmælikvarða.
Ég óska íslendingum hjartanlega
til hamingju með sigurinn,“ sagði
Grip að lokum.
Sœvar Jónsson
„Auðvitað er ég ánægður,
hæstánægður. Það var fyrst og
fremst liðsheildin og skipulegur
vamarleikur sem skóp þennan
sigur. Ég held að við höfum leikið
mjög skjmsamlega í kvöld, létum
boltann ganga mjög vel og Norð-
menn komust aldrei inn í vafa-
samar sendingar hjá okkur eins
og oft hefur viljað brenna við.
Þeir pressuðu mikið fyrstu mínú-
tumar en sem betur fer komumst
við í gegnum það. Það má segja
það að mótlætið hafi orðið til þess
að vonleysi kom í leik Norðmanna.
Ég er mjög ánægður með leik
okkar, það var mikil hreyfíng á
leikmönnum og nú vom menn
óhræddir við að fá boltann. Þetta
er enn einn sigurinn fyrir knatt-
spymuna heima þvf eins og allir
vita þá vantaði okkur marga af
okkar bestu atvinnumönnum."
Pðtur Amþórsson
„Þetta var bara alveg meiriháttar
— allt nema rauða spjaldið! Það
gekk allt upp hjá okkur, við lékum
skynsamlega, héldum boltanum
mjög vel, en það er það sem mér
hefur fundist vanda á í undanföm-
um leikjum."
Um brottvfsunina sagði Pétur:
„Þetta var náttúmlega bara mgl.
Fyrir það fyrsta átti ég aldrei að
fá gult spjald fyrir þetta sakleysis-
lega brot í fyrri hálfleik og í öðm
lagi þá er fáránlegt að gefa rautt
spjald fyrir það sem ég gerði.
Þetta er gert í hita leiksins og
það hefði verið hægðarleikur fyrir
dómaranna að stoppa klukkuna
og bæta við tímann."
ErikSoler
„Við náðum ekki að sýna okkar
allra besta. Það var eins og að
margir af atvinnumönnum okkar
væm þreyttir og þungir. Ég er
ánægður með mína frammistöðu,
hef ekki verið betri í háa herrans
tíð.
íslenska liðið kom mér á óvart,
spilaði af öryggi og gaf ekki
tommu eftir frá fyrstu mfnútu til
loka leiksins. Bjami félagi minn
í Brann fannst mér bestur
íslensku leikmannanna og einnig
léku vamarmennimir Atli, Sævar
og Guðni óaðfinnanlega."
Bjöm Andersen
„Lið sem ekki nýtir slfkan fjölda
af marktækifæmm sem við feng-
um í dag á ekki skilið að vinna.
íslendingamir gáfust aldrei upp
og uppskám eftir þvf. Bjami var
frábær í markinu og allt íslenska
liðið lék vel.“
AndersGlske
„Vömin var okkar sterkasta hlið
og samvinnan milli mín og Brat-
seth var eins og best verður á
kosið. Sóknir okkar gufuðu upp
og íslendingamir nýttu það til
fulls og náðu að leggja okkur að
velli f dag.
íslensku framheijamir vom ekk-
ert vandamál en miðjan og aftasta
vömin var fimasterk. Það er und-
arlegt að Bjami Sigurðsson skuli
leika í Noregi — annar eins mark-
vörður er vandfundinn.
KNATTSPYRNA / VINÁTTULEIKUR
Bordeaux vann
jólympíulið
íslands 3:0
DEILDAR- og bikarmeistarar
Frakka, Bordeaux, sigruöu
ólympíulandslið íslands 3:0 í
Bordeaux í gærkvöldi. Leikur-
inn var liður í heimsókn forseta
íslands og íslandsdaga f
Bordeaux. Um 15.000 áhorf-
endur fylgdust með leiknum
þar á meðal Vigdfs Finnboga-
dóttir forseti íslands og
íslensku sendiherrahjónin í
Frakklandi.
Strax í upphafi leiksins sýndu
meistarar Bordeaux að í dag
em þeir í hópi sterkustu félagsliða
í Evrópu. Leikur þeirra var mjög
hraður og skemmti-
legur. íslenska liðið
átti erfítt uppdráttar
gegn stuttu og nettu
spili Frakka. ís-
lenska liðið fór sér þó engu óðsiega
og náði að skipuleggja vamarleik
sinn. Önnur ráð vom ekki tiltæk
með tilliti til leiks Bordeaux.
Fyrsta mark leiksins kom á 20.
mínútu og var það Jose Toure sem
skoraði úr vítaspymu. Vítið var
dæmt á Þorstein Þorsteinsson eftir
að leikmaður Bordeaux hafði bakk-
að í hann og látið sig falla. Eftir
markið efldust heimamenn og áttu
hvert marktækifærið á fætur öðm.
Á 28. mínútu fengu íslendingar
homspymu sem endaði með skoti
þorsteins Þorsteinssonar rétt fram-
hjá markinu. Á 40. mínútu bjargaði
Birkir með góðu úthlaupi eftir
stungusendingu Tigana á Vujovic.
Á 43. mínútu átti Ferreri frábært
skot af um 20 metra færi í þverslá
fslenska marksins og barst knöttur-
inn þaðan út í teiginn þar sem írinn
O’Boyle skoraði annað mark Borde-
aux.
Seinni hálfleikur einkenndist af
miðjuþófí á báða bóga. Ekki bar
það árangur fyrr en á 85. mínútu
er Fargeon skoraði þriðja og sfðasta
mark Bordeaux eftir góða fyrirgjöf
frá Ferreri.
Sem fram kemur átti hið unga
fslenska lið í vök að veijast allan
tfmann. En leikmenn Bordeaux em
greinilega á mikilli uppleið eftir
Slguróll Kristjánsson lék vel með
ólympíuliðinu í gær.
heldur slæma byijun í frönsku 1.
deildinni.
Þeir Tigana, Toure, Ferreri og
Vujovic-bræðumir vom fremstir
leikmanna Bordeaux. Þrátt fyrir
óhagstæð úrslit sýndu fslensku leik-
mennimir oft á tíðum góðan
samleik og þarf íslensk knattspyma
ekki að örvænta f framtíðinni. Þeir
Þorsteinn Guðjónsson, Siguróli
Kristjánsson og Birkir Kristinson
léku best í íslenska liðinu.
„Það kom mér mjög á óvart hve
franska liðið tók leikinn alvarlega
ef tillit er tekið til hversu liðið á
mikilvægan leik fyrir höndum í
næstu viku,“ sagði Hörður Helga-
son, þjálfari íslenska liðið eftir
leikinn. „Þeir gáfu aldrei þumlung
eftir — byijuðu að pressa strax upp
við vítateig íslenska liðsins. Ég er
ánægður með leik íslenska liðsins
og þetta er reynsla sem mun koma
sér vel fyrir strákana okkur í fram-
tíðinni."
Frá
Bemharði
Valssyni
í Frakklandi