Morgunblaðið - 17.11.1987, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 17.11.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987 43 Jómfrúræða Danfríðar Skarphéðinsdóttur: Það gengiir ekki lengiir að prjóna bara suðvesturermina HÉR fer á eftir jómfrúræða Danfríðar Skarphéðinsdóttur (Kvl.-Vl.) er flutt var á Alþingi 27. október sl. í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. Virðulegi forseti. Góðir lands- menn. Þegar stefnuyfirlýsing nýrrar ríkisstjómar lítur dagsins ljós vakna margar spumingar um það hvað í henni felist og hvaða leiðir verði valdar að þeim markmið- um sem hún setur sér. Í öllum umræðum um það sem helst er við að glíma núna fara gjaman saman orðin þensla og góð- æri. Hin takmarkaða þýðing þeirra vill hins vegar gleymast. Þannig er þenslan staðbundin vandamál sem takmarkast við höfuðborgina og næsta nágrenni hennar. Helst mætti ætla að þeir sem sífellt tala um þensluna í þjóðfélaginu hafi ekki komið út fyrir malbik í þó nokkum tíma. Góðærið margumtalaða tak- markast við þá fáu sem þess hafa notið, ekki þorra landsmanna. Pyngjur láglaunafólks em enn létt- ar meðan kjör hinna betur megandi hafa stöðugt batnað. Á þessari stundu er ekkert sem bendir til að á þessu verði breyting á næstunni. Hugmyndaflug ríkisstjómarinnar beinist að léttari pyngjunum með því að leggja skatt á brýnustu nauð- synjar. Eins og öllum er ljóst er stærsti hópur hinna lágt launuðu konur, konur sem vinnumarkaður- inn hefur kallað til sín vegna breyttra þjóðfélagshátta. Þannig em konur uppistaðan í starfsstétt- um sem m.a. tengjast umönnun, bamauppeldi, fræðslu og fisk- vinnslu. Allir em sammála um þá ábyrgð sem slíkum störfum fýlgir, en annað er uppi á teningnum þeg- ar meta skal þau til launa. Þrátt fyrir síaukna þátttöku kvenna í atvinnulífinu gegna þær enn þá hinum lífsnauðsynlegu störf- um inni á heimilunum. í flestum tilfellum fellur það í þeirra hlut að sjá um viðurværi einstaklinganna, að fæða þá og klæða og skipta rétt- látlega því sem til ráðstöfunar er. Þessi störf ásamt listum og menn- ingu em gjaman lofuð á hátíðar- stundum en stórlega vanmetin í dagsins önn. Með sköpunargleði og hugviti sínu hafa konur skapað listaverk en jafnframt búið til skjólgóðar flíkur. Þær hafa búið til mynstur sem hentar hverju einu, valið liti og raðað saman og gert sér grein fýrir hlutverki hinna finustu þráða og litbrigða í þeirri heildarmynd Danfríður Skarphéðinsdóttir. sem þær vilja skapa. Þannig fær jafnvel hið smæsta notið sín. Þetta ásamt öðm hefur gefið konum þá yfirsýn sem nauðsynleg er þegar taka þarf tillit til margra mismun- andi þátta sem eiga að mynda eina samstæða heild. Hvað varðar hagsæld okkar og réttláta skiptingu þess sem þjóð okkar úr ber úr býtum stöndum við nú á krossgötum, ekki aðeins gagn- vart skiptingunni milli einstakling- anna heldur einnig milli dreifbýlis og þéttbýlis. Við verðum að búa til gott og heilsteypt mynstur sem rúmar okkur öll og metur okkur að verðleikum. Ríkisstjómin lítur á það sem eitt af meginverkefnum sínum, eins og segir í stefnuskrá hennar, með leyfi hæstvirts forseta, „að stuðla að betra jafnvægi í þróun byggðar með uppbyggingu atvinnulífs og þjón- ustu á landsbyggðinni". Og hvemig ætlar hún að ná fram þessu mikil- væga markmiði? Stjómvöld hafa á undanfömum ámm misst niður allt of margar lykkjur í sfnum pijóna- skap. Það gengur ekki lengur að ptjóna bara í suðvesturermina. Ef svo fer sem horfír stefnir í skjóllitla flík sem yljar aðeins hluta lands- manna og það er skammgóður vermir. Við kvennalistakonur höfum frá upphafi starfs okkar aðhyllst vald- dreifingu og ástundað hana með góðum árangri innan eigin raða. Við teljum því jákvætt skref stigið með því að dreifa valdi út til sveitar- félaganna og auka þannig sjálf- stæði þeirra og ábyrgð. En það verður að vera tryggt fyrir fram hveijir verða í raun tekjustofnar sveitarfélaganna þannig að þau verði örugglega fullfær um að taka á sig þau verkefni sem til er ætl- ast. Enn liggur ekki nákvæmlega fyrir hvemig þetta verður fram- kvæmt né heldur hvemig geta minnstu _ sveitarfélaganna verður tryggð. í fjárlagafrumvarpi kemur heldur hvergi fram hvenær ríkið ætlar að gera upp skuldir sínar við sveitarfélögin, skuldir sem ná mörg ár aftur í tímann og era að sliga mörg hinna minni sveitarfélaga. Ein meginundirstaða blómstr- andi byggðar í landinu er að boðið sé upp á sambærilega þjónustu t.d. á sviði menntunar og heilsuvemdar um land allt. En það verður að ganga frá öllum lausum endum áður en nokkur afgerandi skref era stigin. Á þessari stundu, þegar enn einu sinni era skert lögbundin fram- lög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, fer ekki hjá því að menn efíst um raunveralegan vilja stjómvalda í þessum efnum. Bændur landsins hafa um árabil búið við mikla óvissu vegna þess samdráttar í framleiðslu sem nauð- synlegur er. Landbúnaðurinn er sú atvinnugrein sem hvað mesta þörf hefur fyrir nýsköpun. Ríkisstjómin setur sér eftirfarandi markmið: „að treysta starfsskilyrði í landbúnaði og bæta hag bænda", jafnframt að „menntun, starfsfræðsla og rann- sóknir verði efldar". Engum bland- ast hugur um nauðsyn menntunar ’og rannsókna í atvinnugrein sem stendur á þvílíkum tímamótum, en hvemig ríkisstjómin ætlar að ná fram þessum markmiðum með stór- felldum niðurskurði til ráðunauta og rannsókna er með öllu óskiljan- legt. Allir sem til þekkja vita hver lífæð hafnir landsins era. Margar þeirra era nú í alls óviðunandi ástandi. Stórskert framlag til hafn- arframkvæmda styrkir því heldur ekki trúna á hina svokölluðu byggðastefnu ríkisstjómarinnar.. Hæstvirtur forsætisráðherra minnist í ræðu sinni á einhug og samtakamátt. Gerir hann sér í raun vonir um að einhugur geti ríkt í þeirri spillingu og neðanjarðarstarf- semi sem viðgengst í launakerfinu eða jafnvel að fólk finni til samtaka- máttar við núverandi aðstæður? Það er forkastanlegt að hið opinbera skuli taka fullan þátt í þeim skolla- leik yfirborgana undir borðið sem tíðkast þar sem laun fólks fara eft- ir ýtni þess sjálfs eða slyngni yfírmanna tiltekinna stofnana. Við byggjum ekki upp heilsteypt þjóð- félag á sérhagsmunum. Þar eð Míele RYKSUGAN Húnervönduð oqvinnurvel 1000 watta kraftmikill mótor Afkastar 54 sekúndulítrum Lyftir 2400 mm vatnssúlu 7 lítra poki 4 fylgihlutir í innbyggöri geymsluj Stillanleg lengd á röri Mjög hljóölát (66 db. A) Fislótt, aöeíns 8,8 kg Þreföld ryksía Hœgt aö láta blása 9,7 m vinnuradíus Sjálfvirkur snúruinndráttur Teppabankari fáanlegur Taupoki fáanlegur Rómuö ending Hagstœtt verö Reyndu hana á næsta útsölustað: Einkaumboð: JÓHANN ÓLAFSSON & CO ^ Sundaborg 13, sími 688588 Mikligarður v/Sund JL-húsið, rafdeild Rafha, Hafnarf. Gellir, Skipholti Teppabúðin, Suðurlandsbraut Raforka, Akureyri Kaupféiag Skagfirðinga, Sauðárkróki KB, Borgarnesi KHB, Egilsstöðum Verzl. Sig. Pálma, Hvammstanga KH, Blönduósi Straumur, ísafirði KASK, Höfn Rafbúð RÓ. Keflavik Árvirkinn, Selfossi Kjarni, Vestmannaeyjum Rafþj. Sigurd., Akranesi Grimur og Árni, Húsavik Rafbora, Patreksfirði Glóev Armúla 19 hæstvirtur fjármálaráðherra hefur boðað mikla tiltekt í sínu ráðuneyti hlýtur það að vera eitt af hans fyrstu verkum að fara undir borðið og taka til hendinni og dreifa því fé sem þar fínnst til allra. Eins og fram kom í stjómar- myndunarviðræðunum sl. sumar er það skýlaus krafa Kvennalistans að ekki séu greidd lægri laun fyrir fulla vinnu en svo að „þau dugi til framfærslu einstaklings". Ekki náðist samkomulag um þetta og enn er langt frá því að þessu hóflega marki okkar sé náð. Það er til há- borinnar skammar fyrir eina af ríkustu þjóðum heims. Hæstvirtur forsætisráðherra sagði áðan að meðaltalskaupmáttur launa hefði aldrei verið meiri. Hitt vita allir að launabilið hefur aldrei verið stærra. Góðir áheyrendur. Ptjónaupp- skrift ríkisstjómarinnar gengur ekki upp. Til þess að komast fyrir vitleysumar þarf að rekja upp og pijóna nýtt. Við kvennalistakonur viljum nýtt verðmætamat og nýja lífssýn. Það teljum við vænlega uppskrift að skjólgóðri flík sem rúmar landsmenn alla. Ég þakka áheymina. — Góða nótt. Electrolux Ryksugu- úrvalið D-720 1100 WÖTT. D-740 ELECTRONIK Z-165 750 WÖTT. Aðeins 1 .500 kr. út og eftirstöðvar til allt að 6 mánaða. Vorumarkaöurinn hl. KRINGLUNNI, SÍMI 685440. EINLITAR OG MUNSTRAÐAR FLISAR ODYRAR OGDYRAR / VANDAÐAR FLISAR VEGG OG GÓLF FLISAR UTI OGINNI FLISAR f Rartek Höganás FYRIRMYND ANNARRA FLÍSA HÉÐINN SEUAVEGI 2.SÍMI 624260
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.