Morgunblaðið - 17.11.1987, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.11.1987, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987 35 Ítalía: ísmolar notaðir sem símapeningar Frá Brynju Tomer, fréttaritara Morgunblaðisins. YFIRMÖNNUM ítalska landsím- ans hefur tekist að leysa mál sem hefur valdið þeim miklu hugar- angri undanfarna mánuði. í ljós kom að í borginni Napolí reynd- ust margir almenningssímar leka og þótti þessi leki með öllu óskilj- anlegur þar sem ekki var vitað til þess að vatn væri í símtækjun- um. Nú hefur komið í ljós að hópur ungmenna í Napolí útbjó mót sem sem voru nákvæm eftirlíking af þeim sem notuð eru til að steypa símapeninga úr bronsi. Mót þessi fylltu þau með vatni, frystu þau og seldu síðan sem símapeninga á hálf- virði. „Þetta verður ekki hægt eftir að nýju símamir sem væntanlegir eru til landsins verða teknir í notkun," segir Orazio d’Eletto, sem er yfír- maður þeirrar deildar landsímans sem hefiir með almenningssíma að gera. Alls eru 440.000 almennings- símar á Ítalíu og eru þeir hvergi fleiri í Evrópu. Sérstaka -Símapen- inga þarf í 250.000 þessara'síma en að sögn d’Eletto verða þeir allir teknir úr umferð á næstu sjö til átta árum. í staðinn munu koma nútímalegri tæki og verður þá hægt að nota misstóra mynt, símakort og kreditkort. Orazio d’Eletto vildi ekki tjá sig nánar um athæfi ungmennanna. Ekki er vitað hversu mörg símtól hafa verið skemmd sökum „frystu símapeninganna" og ekki liggur enn fyrir hvort falsaramir verða lögsóttir sökum þessa. Italía: Vilja endurnýja stj órnarsamstarf Reuter * Olympíueldur tendraður Eldur var tendraður í sérstökum kyndli við hátiðlega athöfn i Ólympiu hinni fornu á Grikklandi á laugardag. Myndin var tekin við athöfnina. Hófst siðan ferðalag með kyndilinn, sem lýkur snemma næsta árs i Calgary i Kanada. Verður hann notaður til að tendra ólympíueldinn, sem loga mun meðan á vetr- arólympíuleikunum 'i Calgary stendur. Róm, Reuter. LEIÐTOGAR flokkanna fimm, sem starfað hafa saman í stjórn á ítaliu, kváðust i gær vilja ná sáttum og binda enda á stjómar- kreppuna. Á laugardag drógu fijálslyndir sig út út stjórainni vegna ágreinings um fjárlögin fyrir næsta ár. Francesco Cossiga forseti, sem varð að aflýsa sex daga opinberri heimsókn til Bretlands vegna stjómarkreppunnar, ræddi í gær við forystumenn flokkanna, kristilegra demókrata, sósíalista, repúblikana, sósíaldemókrata og fijálslyndra, og voru þá allir á einu máli um að reyna að leysa ágreiningsmálin, einnig Renato Altissimo, leiðtogi Frjálslynda flokksins. Fijálslyndir ákváðu að hætta samstarfinu þegar stjómin sam- þykkti að fresta fyrirhuguðum skattalækkunum og tók ekkert tillit til mótmæla þeirra. Ekki er ljóst hvemig deilumar verða settar niður en Altissimo sagði, að endumýjað samstarf yrði að byggjast á ákveð- inni stefnu og einlægri samstöðu flokkanna. Þá er heldur ekki vitað hvort Giovanni Goria, forsætisráð- herra úr flokki kristilegra demó- krata, gegnir því embætti áfram. Fjárlagahallinn í Bandaríkjunum: Ummæli Reagans styrkja stöðu Bandaríkjadollars Giovanni Goria f orsætisráðherra Washington, Reuter. GENGI Bandarílgadollars og verð á hlutabréfum hækkaði á fjármálamörkuðum í Evrópu í gær. Töldu sérfræðingar að hæk- un þessa mætti rekja til ummæla Ronalds Reagan Bandaríkjafor- seta um síðustu helgi er hann kvaðst vongóður um að unnt yrði að skera fjárlagahaUann í Bandaríkjunum niður um 80 miUjarða dollara (rúma 3.000 milljarða ísl kr.) á næstu tveimur árum. Heimsmeistaraeinvígið í skák: Jafntefli í 14. skákinni Sevilla, Reuter. • Fjórtánda skákin í einvígi þeirra Garrys Kasparov og Ana- tolys Karpov, sem fram fer í Sevilla á Spáni, var tefld í gær. Meistararnir sömdu um jafntefli eftir 21 leik. Heimsmeistarinn Kasparov stýrði hvítu mönnunum og þótti skákin tilþrifaiítil. Kasparov hefur því enn eins vinnings forskot í eign- víginu, hefur hlotið sjö og hálfan vinning en Karpov sex og hálfan. Tefldar verða 24 skákir og heldur Kasparov heimsmeistaratitlinum lykti einvíginu með jafntefli. Fulltrúar Bandaríkjaforseta og þingmenn sögðust í gær vera bjart- sýnir um framhald viðræðna um leiðir til að draga úr fjárlagahallan- um en samningamennimir stefna að því að ná samkomulagi um að- gerðir fyrir næsta fostudag. Liggi samkomulag ekki fyrir þá gengur í gildi áætlun sem hljóðar upp á 23 milljarða dollara niðurskurð. Reagan Bandaríkjaforseti og full- trúar þingheims hafa orðið ásáttir um að stefna að frekari minnkun fjárlagahallans en greinir á um leið- ir að því marki. Fullvíst er talið að stjómin neyðist til að fallast á skattahækkanir auk þess sem dreg- ið verði úr fjárframlögum hins opinbera. Viðræður þessar hófust eftir verðhmnið mikla á hlutabréfamark- aðinum í New York 19. október síðastliðinn. Telja sérfræðingar fjárlagahallann hafa verið eina helstu orsök verðhrunsins og hafa margir lýst þeirri skoðun sinni að stöðugleika verði ekki komið á fyrr en kynntar hafa verið aðgerðir til að vinna bug á honum. Hefur einn- ig verið bent á að fjárlagahallinn auki enn frekar á viðskiptahalla Bandaríkjanna, sem farið hefur vaxandi á undanfömum ámm. Reagan forseti sagði á laugardag að samkomulag um aðgerðir vegna Qárlagahallans væm í augsýn og kvaðst vongóður um unnt yrði að minnka hann um 80 milljarða doll- ara á næstu tveimur ámm. Fulltrú- ar bæði Demókrataflokksins og Repúblikana sögðust einnig bjart- sýnir. Stefnt er að því að minnka fjárlagahallann um 30 milljarða dollara á þessu fjárlagaári, sem hófst 1. október og um 45 milljarða dollara á því næsta. Gengi Bandaríkjadollars á fjár- málamörkuðum hefur farið hækk- andi undanfarna daga og var svo einnig í gær bæði í Tókíó og á mörkuðum í Evrópu. Hlutabréf hækkuðu einnig í verði vegna styrkrar stöðu dollarans. Er vigtin að angra þig? Er úthaldið lítið? V-þýsk æfinga- tæki i r Aerobic æfingadýnur, kr. 1.930,- Trimmsett, gormar, sippubönd o.fl. kr. 2.530,- Borðtennisspaðar / Nl “Œfl- / ** 5^ m Borðtennisborð, verð frá kr. 10.355,- stgr. Borötenniskúlur Þrekhjól í miklu úrvali. Verð frá kr. 9.215,- stgr. Fjölnota æfingatæki; róður, auk alls konar annarra æfinga. Verö kr. 16.625,- stgr. Aerobic lóð, parið kr. 945,- Handlóð 1,5 kg., pariö kr. 850,- Handlóð 2,5 kg., parið kr. 1.150,- Handlóð 5 kg., parið kr. 1.650,- Armúla 40, sími 35320 Lóð 0,5 kg. til 20 kg. Stangir Æfingastöövar 35 cm og 160 cm. Æfingabekkir Lóóasett 50 kg. kr. 5.800,- /VI4RKIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.