Morgunblaðið - 17.11.1987, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987_______________
—I Fiskmarkaður á Suðurlandi?
30
3
Frá útifundinum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ráðhús við Tjörnina:
Askornn til borgarstjóm-
ar um skoðanakönnun
Ahugamenn funda
í Hveragerði
Þoriákshöfn.
FUNDUR um stofnun fiskmark-
aðar á Suðurlandi var haldinn í
Hótel Ljósbrá í Hveragerði sl.
sunnudag.
Á fundinum var kosin undirbún-
ingsnefnd skipuð mönnum frá
Þorlákshöfn, Eyrarbakka, Stokks-
eyri og Selfossi. Þessi nefnd á að
kanna möguleika á samstarfi við
fískmarkað Suðurnesja og stofnun
hlutafélags sem annað hvort yrði
beinn eða óbeinn aðili að Suður-
nesjamarkaðinum.
Lögð er áhersla á að nefndin ljúki
störfum sem fyrst því nauðsynlegt
sé að markaðurinn geti hafist í
byijun næstkomandi vetrarvertíðar.
Til greina hefur komið að fískmark-
aðurinn í Hafnarfirði og jafnvel
fleiri markaðir tengist þessu sam-
starfi um fjarskiptamarkað.
- JHS
Arnarstofninn:
Þrjátíu og fimm
pör fundust í sumar
Þrjátíu og fimm hafarnarpör
hafa fundist á landinu á þessu
ári og er það nokkrum pörum
færra en undanfarin ár.
Samkvæmt athugun Fuglavemd-
arfélagsins og Náttúmfræðistofn-
unar Islands virðist eitt hafamar-
parið horfíð og á nokkmm stöðum
vantar annan fuglinn. Talið er að
33 þessara para hafi orpið eða gert
tilraun til varps. Hjá 17 þeirra mis-
fórst varpið en 16 pör komu samtals
upp 21 unga. í Vestur-Barðastrand-
arsýslu einni komust upp sjö ungar.
Varpárangur var bestur við sunnan-
verðan Breiðafjörð eins og undan-
farin ár. Nítján amamngar vom
merktir í sumar.
Samtökin Tjörnin lifir héldu
útifund í Vonarstræti á sunnu-
dag. Fundurinn var haldinn til
að mótmæla fyrirhugaðri bygg-
ingu ráðhúss við Tjörnina.
Ávörp á fundinum fluttu frú
Valgerður Tryggvadóttir og
Guðrún Pétursdóttir lektor.
Gísli Helgason, Herdís Hall-
varðsdóttir og Ingi Gunnar
Jóhannsson léku og sungu
Tjarnarlög. Fundarstjóri var
Flosi Ólafsson leikari.
Flosi Ólafsson sagði í samtali
við Morgunblaðið að aðstandur
fundarins væm ánægðir með góða
mætingu og undirtektir fundar-
manna. „Sérstaklega fannst mér
ánægjulegt að sjá þama marga
gamalgróna Reykvíkinga, fólk
sem maður þekkir á götu frá fyrri
ámm og lætur sér greinilega annt
um Tjömina og Miðbæinn," sagði
Flosi Ólafsson.
í lok fundarins var eftirfarandi
ályktun samþykkt samhljóða:
Útifundur, haldinn í Vonar-
stræti sunnudaginn 15. nóvember,
beinir þeim tilmælum til borgar-
stjómar Reykjavíkur að hún láti
Félagsvísindastofnun Háskóla ís-
lands gera skoðanakönnun til að
kanna hug kjósenda til fyrirhug-
aðrar ráðhúsbyggingar við Tjöm-
ina.
'engnir voru kranar til að sýna útlínur raðhússins
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Minningar Stef-
áns Jónssonar
BÓKAFORLAGIÐ Svart á hvítu
hf. hefur gefið út bókina „Að
breyta fjalli" eftir Stefán Jéns-
son.
í fréttatilkynningu frá útgefanda
segir: „í bókinni „Að breyta fjalli"
rekur Stefán mismunandi sann-
sögulegar minningar frá uppvaxt-
arámm sínum á Austur- og
Norðurlandi á ámnum fyrir síðari
heimsstyijöld en skírskotar víða til
nútímans. í þessari bók koma fram
bestu eiginleikar Stefáns sem rit-
höfundar: Óborganlegur húmor og
frásagnargleði sem hvorttveggja
helgast af því að honum þykir ein-
faldlega svo vænt um þetta fólk sem
útbjó nestið sem hann lagði upp
með og „hrífst ekki síður af löstum
þess en kostum". Þetta em ekki
venjulegar bemskuminningar, nær
væri að segja að hér sé um „eins-
konar bemskuminningar" að ræða,
skrifaðar að hætti Stefáns Jónsson-
ar, en í inngangskafla bókarinnar
segir hann m.a.:
„Ég hef skrifað bemskuminning-
ar í þetta kver án nokkurra vilyrða
um sannindi, beinlínis í þeirri mynd
sem þær hafa þyrlast upp úr ryk-
ugu hugskoti mínu . . . En skáld-
saga er þetta ekki, nema þá að
bemska mín hafi verið það og ég
þá að sáralitlu leyti höfundur henn-
ar.“
Stefán Jónsson
Þetta er háalvarleg bók og
pólitísk á sinn hátt og hún er fram-
úrskarandi skemmtileg. Og vissu-
lega var gerð merkileg tilraun til
að breyta einu formfegursta fjalli
á íslandi, sjálfum Búlandstindi.
Reyndar stóð líka til að breyta
ýmsu öðm en margt fer öðmvísi
en ætlað er.“
!