Morgunblaðið - 17.11.1987, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987
1
Minning:
Sigríður Guðmunds-
. dóttirfrá Hellissandi
Fædd Sl. ágúst 1923
Dáin 8. nóvember 1987
í dag, þriðjudag 17. nóvember,
fer fram útför Sigríðar Guðmunds-
dóttur frá Hellissandi. Hún var
fædd 31. ágúst, dóttir hjónanna
Kristínar Hjartardóttur og Guð-
mundar Sæmundssonar, formanns
á Hellissandi, en hann er látinn
fyrir mörgum árum.
Didda, en svo kölluðum við hana,
var næstelst fjögurra bama þeirra
hjóna, elstur var Þorbjöm, bjó á
Akranesi, hann er látinn, hin eru
Jóhanna, þá Sæmundur, bæði bú-
sett í Reykjavík, yngst er Guðrún,
hún býr í Keflavík.
í Bifröst á Hellissandi ólust þessi
systkini upp í skjóli góðra foreldra.
Þótt veraldarauðurinn væri ekki
stór eftir mælikvarða dagsins í dag,
vom alltaf gnægtir á borðum hjá
Kristínu og Guðmundi í Bifröst og
öllum, gestum og gangandi, veitt
af rausn og myndarskap, því Kristín
var mikil og góð húsmóðir og Guð-
mundur hlýr og glaður gestgjafí.
veit ég það af eigin reynslu, því ég
dvaldi sumarlangt hjá þeim og
minnist þess tíma með gleði og
hlýju.
I sjávarplássum á þessum tíma
þótti sjálfsagt að bömin færu
snemma að vinna og taka þátt í
störfum fullorðinna og stuttu eftir
fermingu hleyptu þau oft heimdrag-
anum og fóru að heiman að vinna
fyrir sér, um skólagöngu var ekki
að ræða, aðalmálið var að spjara
sig á eigin spýtur, og svo var einn-
ig um þessi systkini.
Um 15—16 ára aldur fer Didda
til Reyiq'avíkur og vinnur hin ýmsu
störf en þó mest við saumaskap og
þar kunni hún svo sannarlega vel
tii verka, enda má segja að það
hafí verið hennar ævistarf, meðan
kraftar og heilsa leyfðu, starfaði
hún sjálfstætt við það um árabil.
Didda var gift Guðmundi Inga
Bjamasyni heildsala. Bjuggu þau
lengi á Seltjamamesi, en byggðu
sér ekki alls fyrir löngu fallegt ein-
býlishús við Bergstaðastræti 43 í
Reykjavík, þar sameinuðu þau
vinnu sína og heimili. Þau eignuð-
ust ekki böm, en voru hvort öðru
eitt og allt.
Minningar mínar um Diddu
frænku em að mestu leyti bundnar
við bemsku mína og æsku, frá þeim
tíma er ég dvaldi í sveitinni hjá
langömmu minni Elínborgu á Gufu-
skálum, en hún var og amma
hennar, einnig frá þeim tíma er ég
var í Bifröst, því þótt Didda væri
þá flutt suður til Reykjavíkur kom
hún oft í heimsókn á æskustöðvam-
ar og þá var glatt í bænum, því
henni fylgdi ætíð frískur og hress-
andi blær. Víst gat stundum gustað
af henni og orðin stundum stór, en
hún átti líka aðra hlið, þeim sem
hún tók var hún trölltrygg og rausn-
arskapur var henni í blóð borinn.
í hug mér koma löngu liðnar
stundir úr sveitinni, blíður andvari
leikur um kinn, hlýir geislar sumar-
sólarinnar verma bæjarþil og tún,
heimilisfólkið á bænum stendur á
hlaðinu og bíður gestakomu og
Didda kemur gangandi eftir grund-
unum, hnarreist, fríð og fönguleg,
sannkölluð „blómarós" og flytur
okkur framandi blæ að sunnan, hún
strýkur vanga minn og segir „Sæl
vertu elskulega litla frænka mín,“
þessi ávarpsorð notaði hún ávallt
er fundum okkar bar saman og ylj-
uðu þau mér alltaf, ekki bara þegar
ég stóð á hlaðinu heima á Gufuskál-
um, heldur einnig eftir að ég var
orðin fullorðin kona. — Fundir okk-
ar voru ekki margir seinni árin, en
þeir vom alltaf góðir. Síðast kom
hún að heimsækja mig og gleðja á
afmælinu mínu fyrir rúmlega
tveimur mánuðum, þá fársjúk orðin,
sýnir það best tryggð hennar og
frændrækni.
Nú er hún horfín til annarrar til-
veru og ég veit að þar bíða hennar
vinimir sem forðum fögnuðu henni
á hlaðinu á Gufuskálum og bjóða
hana velkomna, og ég heyri hana
hvísla með blænum: „Verið þið sæl
elskumar mínar."
Frænku minni óska ég góðrar
ferðar og veri hún ævinlega sæl og
hafí hún þökk fyrir allt og allt.
Eiginmanni hennar, aldraðri
móður og öðmm ættingjum sendi
ég mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Mjöll Sigurðardóttir
Þegar barst sú sorgarfregn að
Didda frænka, Sigríður Guðmunds-
dóttir, væri látin, komu margar
minningar upp í huga minn.
í nokkur ár hafði hún barist
hetjulega við sjúkdóm þann er nú
heftir heltekið hana.
Hún var fædd og uppalin á Hell-
issandi en foreldrar hennar vom
Guðmundur Sæmundsson og Kristí-
n Hjartardóttir.
Didda móðursystir mín var mjög
lifandi, opin og skemmtilegur per-
sónuleiki, smitandi hláturinn og
frásagnargleði var með eindæmum,
var hún því jafnan „hrókur alls
fagnaðar" á mannamótum.
Didda og eiginmaður hennar,
Guðmundur Ingi Bjamason, urðu
ekki þeirrar gæfuu aðnjótandi að
eignast böm. En bamgæsku þeirra
og gestrisni nutum við systkinin
óspart. Alltaf var mjög vinsælt hjá
okkur systkinunum að heimsælq'a
Diddu því þar vomm við svo inni-
lega velkomin. Hún tók á móti
okkur með útbreiddan faðminn, tai-
aði til okkar eins og við fullorðið
fólk, með miklum áhuga fyrir því
sem við vomm að gera og höfðum
fram að færa. Hafði endalausan
tíma til að hlusta, riíja upp ánægju-
legar minningar, velta fyrir sér
hlutunum og skemmta sér með
okkur. Þá vakti hún mig oft til
umhugsunar um ýmislegt í lífinu
og tilvemnni sem ég sjálf hafði
varla komið auga á. Hressleiki
hennar og hreinskilni náði einnig
svo einkar vel tii okkar bamanna.
Þegar hún kvaddi okkur síðan eftir
samverastundirnar yfírfull af
ánægju og ýmsum gjöftim sem hún
átti í pokahominu, var alltaf svo
ótal margt að hugsa um.
Þá átti Didda myndavél sem var
fátítt fyrr á ámm, og tók myndir
af dýrmætum augnablikum okkar
í æsku sem við njótum í dag.
Didda starfaði í mörg ár við sjálf-
stæðan saumaskap á kvenfatnaði
og kom þar sterklega í ljós ná-
kvæmni hennar og vandvirkni í
vinnubrögðum en í hennar huga var
allt svo auðvelt.
Elsku Diddu þakka ég að lokum
fyrir það dýrmætasta veganesti sem
hún gaf okkur bömunum, og sendi
Guðmundi Inga, ömmu og öðmm
aðstandendum mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Br.)
Birna Róbertsdóttir
og fjöiskylda.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
AÐALHEIÐUR KRISTÍN HELGADÓTTIR,
Hátúni 10, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 18. nóvem-
ber kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Elsa Smith, Sigurður Þórir Sigurðsson,
Helgi Bergman Sigurðsson, Þórunn Ástrós Sigurðardóttir,
Ágúst Sigurðsson, Guðjón Sigurðsson,
Hilmar Sigurðsson,
tengdabörn og barnabörn.
t
Móðir mín, tengdamóöir, amma og langamma,
ALDNÝ MAGNÚSDÓTTIR,
Norðurbrún 1,
verður jarðsungin miðvikudaginn 18. nóvember kl. 15.00 frá kap-
ellunni við kirkjugarð Hafnarfjarðar.
Örn Árnason,
Ámi Arnarson,
Gunnar Arnarson,
Aldís Arnardóttir,
Sigrfður Árnadóttir,
Þórdfs Erla Gunnarsdóttir.
Erla Jónsdóttir,
Borghildur Vigfúsdóttir,
Kristbjörg Eyvindsdóttir,
Örn Árnason,
t
Þökkum innilega hlýhug og samúð viö andlát og útför
GUÐBJARGAR LIUU ÁRNADÓTTUR,
Bólstaðarhlfð 45.
Jóhannes Björnsson,
Ingólfur Jóhannesson, Þórunn Benný Finnbogadóttir.
t
Útför eiginkonu, móður, dóttur, systur og mágkonu okkar,
KRISTÍNAR INGVARSDÓTTUR,
Hvassaleiti 3,
Reykjavfk,
fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 19. nóvember kl. 10.30.
Jarðsett veröur að Hlíðarenda í Fljótshlíö þann sama dag.
Bragi Hannibalsson,
Bryndfs Bragadóttir,
Hörður Bragason,
Sólrún Bragadóttir,
Ingibjörg Svava Helgadóttir, Ingvar Þórðarson,
Dóra Ingvarsdóttir, Ólafur Oddgeirsson,
Helgi Ingvarsson, Bára Sólmundsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför sonar
okkar og bróður,
FRIÐRIKS HÁKANSSON.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki og kennurum Skálatúnsheimilis
og Safamýrarskóla og öðrum þeim sem hafa stutt hann gegnum árin.
Vilhelm Hákansson, Margrét Ó. Hákansson,
Ólafur M. Hákansson, Sigrfður Í. Hákansson.
t
Innilegar þakkir til þeirra er auösýndu samúð og vinarhug við
andlát og útför systur okkar og mágkonu,
SIGRÚNAR BERGMANN,
Hátúni 12.
/
Unnur Sigurðardóttir, Stefán Jónsson,
Elfn Sigurðardóttir,
Magnús Sigurðsson, Dórothea Einarsdóttir,
Garðar Júlfusson, Sigrfður Björnsdóttir.