Morgunblaðið - 17.11.1987, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987
Morgunblaðið/Svemr
Vinnuvélarnar taka við jólatijánum þegar út úr skóginum er komið en þar eru þau flokkuð eftir tegund-
um og stærð.
Allir fá jólatré
við sitt hæfi
Morgunblaðið/Sverrir
Björn Kristjánsson og Oddgeir Jónsson draga tréð á milli sín úr
skóginum.
JÓLAUNDIRBÚNINGUR er þegar
hafínn hjá skógræktarmönnum og
þeir byijaðir að fella jólatrén, sem
síðar eiga eftir að koma fólki f
jólaskap. Hjá skógrækt ríkisins f
Skorradal verða um 5.000 tré felld
f ár og er það svipaður fjöldi og
á siðasta ári, að sögn Ágústs Áraa-
sonar skógarvarðar. Vinsælustu
trén eru um 1 m til 1,75 m að hæð
og mun rauðgrenið kosta á bilinu
560 kr. til 1.260 kr. f ár. En hvera-
ig tilfinning er það fyrir skógrækt-
armann að fella tré, sem tekið
hefur mörg ár að rækta ?
„Það er ekki svo slæmt. Skóginn
þarf að grisja, hvort sem mönnum
líkar betur eða ver, en þetta er vanda-
samt starf og ekki sama hvemig
staðið er að verki. Það verður að
velja úr réttu trén með tilliti til stað-
setningar, landslags og annars
gróðurs og svo verða þ_au að vera
falleg sölijvara," sagði Ágúst. „Við
fellum stærstu trén fyrst, sem sett
eru upp á torgum og við verslanir
en þar eru mest sitkagreni um 7 til
8 metrar á hæð og seinna fellum við
rauðgreni sem er stærst um 5 til 6
metrar."
— Hvaða tré eru vinsælust ?
„Hingað til hefur það verið rauð-
greni en ég spái þvf að þinur verði
aðal jólatréð í ár. Þar stöndum við
hjá skógræktinni illa að vígi því við
höfum lagt aðaláherslu á að rækta
rauðgreni sem flestir hafa sóst eftir
hingað til. Af öðrum tegundum má
nefna stafafuru sem hefur sótt á
undanfarin ár en hún er yfírleitt ekki
mjög stór þegar við fellum hana. Ég
felli um 1000 tré en anna ekki eftir-
spum og get því ekki afgreitt nema
um 20 til 25% af þeirri fum sem
beðið er um því hún er erfið í rækt-
un. Hún vex í hlíð hér í skóginum,
sem snýr móti sólu og em greinamar
þess vegna oft mjög ójafnar á stofnin-
um.“
— Er mikið lagt upp úr stærð og
gerð jólatrésins þegar það er valið ?
„Já, íslendingar em mjög kröfu-
harðir, þegar jólatré eiga í hlut. Þeir
vilja flestir hafa þau þétt og stutt á
milli greinanna, þannig að jólaskraut-
ið nánast liggur á greinunum en aðrir
vilja hafa bil milli greina og láta
skrautið hanga. Margir koma dag
eftir dag og líta yfír þau tré sem em
á boðstólnum. Láta jafnvel taka frá
fyrir sig tré sem þeim líst vel á en
koma loks og finna „hið eina rétta
tré“ og gera þá loks út um kaupin.
Sem betur fer hafa ekki allir sama
smekk svo allir fínna að lokum jóla-
tré við sitt hæfí.“
—Hvenær hefst sala á jólatijám ?
„Landgræðslusjóður byijar að selja
sín tré eftir fyrstu vikuna í desember
en þau fyrirtæki og verslanir sem
hafa áhuga á að setja upp trén fyrr
til skreytingar geta haft samband við
okkur hér f Hvammi og þá sendi ég
þeim tré. Okkar markaður nær allt
frá Keflavík að Hofsósi."
Morgunblaðið/Svcrrir
Rauðgreni er selt með hnaus til skreytinga en þannig stendur það mun lengur en
ella. Að sögn Ágústs gagnar lítið að setja tré sem þessi niður utandyra eftir að þau
hafa staðið inni um tíma.
Morgunblaðiö/Sverrir
Ágúst Árnason skógarvörður, nýtur aðstoðar þeirra Bjöms Kristjánssonar og Odd-
geirs Jónssonar þegar um 5 metra grenitré er fellt.
Allar gerðir til afgreiðslu strax. Sýningarbílar í Volvosal.
Oplð í Volvosal món.-fðs. 9-18 laugardaga 10-16
VELTIR
SKEIFUNNI 15 SÍMI 91-691600, 691610 P&Ó/SlA