Morgunblaðið - 17.11.1987, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987
Stríðsglæpamaður
handtekinn í Argentínu
Rnpniui ÁirPR Rpntpr
Bucnos Aires, Reuter.
JOSEF Schwamberger sem sak-
aður er um stríðsglæpi var
handtekinn i Cordoba í Arg-
entínu á föstudag að kröfu
Vestur-Þjóðverja og fluttur til
Buenos Aires. Schwamberger er
75 ára og er hann sagður vera
fyrrum foringi í SS-stormsveit-
nm nasista. Dómstóll í Stuttgart
í Vestur-Þýskalandi gaf þegar
árið 1973 út handtökuskipun á
hendur Schwamberger og sakaði
hann um „morð ánægjunnar
vegna og kynþáttahatur“.
RÉTTI KODDINN
fyrir fólk á öllum aldri
SIDSEL •
Rétt
Sidsel koddi
/
Venjulegur koddi
SIDSEL koddinn gefur
fullan stuðning við hálslið-
ina.
SIDSEL koddinn fyrir-
byggir og dregur úr stirð-
leika í herðum og hálsi.
• SIDSEL koddann má
handþvo í volgu vatni.
• SIDSEL koddanum fylgir
koddaver.
• SIDSEL koddinn hefur
fengið afar góðar viðtökur
hjá sjúkraþjálfurum hér-
lendis sem erlendis.
• SIDSEL koddinn er sér-
hönnuð sænsk gæöavara.
Sendum í póstkröfu um alK land.
Sendingarkostnaður inn'ifalinn.
Verð kr. 2.100.-
Pantið tímanlega.
SIDSEL umboAíð
Finnbogi Karlsson
Pósthólf 9145,129 Reykjavík, sími 91 -76731.
f Égóska eftir að fá send.stk. SIDSEL kodda
i NAFN................................
-I
HEIMILISFANG..
| PÓSTNR.......PÓSTSTÖÐ..
Skíðaferðir vetrarins:
SVISS - AUSTURRÍKI
6.-20. febrúar: Tvær vikur í paradís skíðamanna Ischgl i Austurríki og
Samnaun í Sviss, sem bjóða upp á sameiginlegan skiðapassa fyrir
Silvretta-skíðasvæðið.
Gist verður á glæsilegu, nýju hóteli, sem hefur öll nútíma þægindi.
20. mars-4. apríl: 10 daga páskaferð til Crans-Montana í Sviss.
Bæklingar og allar upplýsingar á skrifstofunni.
FERÐASKRIFSTOFA
GUÐMUNDAR JÓNASSONAR HF.,
Borgartúni 34, sími 83222.
Miðstöð Simons Wiesenthal sem
hefur að markmiði að koma rétt-
læti yfir stríðsglæpamenn nasista
sagðist fagna handtöku Schwam-
bergers. í yfirlýsingu frá stofnun-
inni sagði að hann hefði verið á lista
yfír tíu eftirsóttustu stríðsglæpa-
menn nasista. Schwamberger var
tekinn höndum undir lok seinni
heimsstyrjaldarinnar en slapp til
Argentínu. Hann var foringi í
stormsveitunum og starfaði sem
slíkur við gettóið í Rozwadeva og
í vinnubúðunum í Przemysl í Póll-
andi. Þar tók hann þátt í flutningum
fólks til Auschwitz. í yfírlýsingunni
segir ennfremur að Schwamberger
hafí á einum degi, þann 3. septem-
ber árið 1943, myrt fímmtíu
gyðinga með eigin hendi.
Talsmenn stofnunarinnar sögðu
að eftirlýstasti stríðsglæpamaður-
inn væri nú Alois Brunner, aðstoð-
armaður Adolfs Eichmann, sem
bæri ábyrgð á brottflutningi
128.000 gyðinga. Hann er sagður
búsettur í Damaskus.
Reuter
Her sandinista leggur af stað frá þorpinu Pantasma, rúmlega hundr-
að km frá höfuðborginni Managua, í leit að kontra-skæruliðum.
Undanfarið hefur stríðið færst í vöxt vegna aukinnar hernaðarað-
stoðar Bandaríkjamanna við kontra-skæruliða.
Nicaragua:
Ortega tekur undir til-
lögu stjómar Hondúras
New York, Reuter.
HONDÚRAS hefur lagt fram til-
lögu um að uppreisnarherir á
landamærum Nicaragua og
Hondúras afvopnist og að
sandinistar dragi herlið sitt til
baka af svæðinu. Þetta kemur
fram í viðtali sem timaritið
Newsweek átti við Daniel Ortega
forseta Nicaragua. Ortega segir
tillöguna vera mjög mikilsverða.
í tillögunni felst að sögn Ortegas
að landamæri Hondúras og Nic-
aragua verði friðuð. Sandinistar
myndu samkvæmt því ekki gera
innrásir í stöðvar kontra-skæruliða
á svæðinu eða í Hondúras. Stjóm-
völd í Hondúras hafa einnig lagt
til að þar í landi verði haldinn fund-
ur Bandaríkjamanna og stjómar
Nicaragua ef samkomulag næst um
slíkan fund.
Miguel Obando y Bravo kardiná-
li flaug á laugardag heimleiðis til
Nicaragua frá Bandaríkjunum. Þar
hafði hann átt viðræður við Ortega
og fulltrúa kontra-skæmliða frá því
Ortega tilnefndi hann sem sátta-
semjara í borgarastyijöldinni.
Obando segist ekki enn hafa gert
upp hug sinn hvort hann taki að
sér málamiðlun í eijum sandinista
og kontra-skæmliða. Sameinuð
stjómarandstaða í Nicaragua
(UNO) fundaði með Obando í Miami
fyrir helgi. Fulltrúar stjómarand-
stöðunnar höfnuðu í þeim viðræðum
tillögum Ortegas um Washington
sem fundarstað stjómar og stjóm-
arandstöðu í Nicaragua. Þeir
sögðust frekar vilja hitta Ortega í
Washington. Einnig gagnrýndu þeir
sáttatillögur Ortegas í 11 liðum frá
því á föstudag. Þeir sögðust ekki
geta fallist á ákvæði um að skæm-
liðar afvopnist og safnist saman á
ákveðnum svæðum áður en viðræð-
ur heijist.
Skoðanakönnun á Bretlandi:
Efnaleg gæði lykill-
inn að lífshamingju
London, Reuter.
TÁNINGAR á Bretlandi tejja al-
mennt að söfnun auðs og frami
í starfi séu þau gildi sem stefna
beri að í lífinu, ef marka má nið-
urstöður könnunar á verðmæta-
mati breskra ungmenna, sem
birtar voru í gær.
Að sögn Christine Bestell, fram-
kvæmdastjóra McCann Erickson-
auglýsingafyrirtækisins sem
framkvæmdi könnunina, lét þriðj-
ungur ungmennanna í ljós þá ósk
að hreppa störf sem tengdust fjár-
málum á einn eða anna hátt. Margir
þeirra sem þátt tóku kváðust telja
að starfsframi og auðsöfnun væm
mikilvægari en ástúð og elska.
Tæplega 1.000 manns tóku þátt í
könnuninni og sagði talsmaður fyr-
irtækisins að viðhorf unga fólksins
væri greinilega mótað af þeirri hug-
myndafræði sem ríkt hefði á
Bretlandi frá því Margaret Thatc-
her varð forsætisráðherra landsdins
árið 1979. Unga fj&lkið væri reiðu-
búið til að leggja mikið á sig og
uppskera í samræmi við það.
„Ungmennin hafa sett sér
skammtímamarkmið og efnis-
hyggja og raunsæi einkennir
viðhorf þeirra," sagði Christine
Bestell. „Niðurstaðan er einkum sú
að almennt virðast þau telja að
peningar séu skilyrði fyrir því að
unnt sé að njóta lífsins á nútímaleg-
an hátt og að neysla segi ti! um
manngildi," bætti hún við.
34 prósent þeirra karla sem þátt
tóku í könnuninni sögðust telja að
peningar tryggðu mönnum ham-
ingjusamt líf. 23 prósent kvenna
vom sama sinnis. Hins vegar kváð-
ust aðeins 10 prósent karla og 19
prósent kvenna líta svo á að gagn-
kvæm ást tveggja einstaklinga
væri nauðsynlegur þáttur í lífínu.
Meirihluti ungmennanna var þeirr-
ar skoðunar að traust og gott
heilsufar skipti mestu í jarðvistinni.
Bretland:
Sektaður fyr-
ir að smygla
slöngu í nær-
buxunum
Limdúnum, Reuter.
RÚMLEGA tvítugur ítali var á
fimmtudag sektaður um 300
sterlingspund fyrir að reyna að
smygla slöngu inn i landið í nær-
buxum sínum.
Toliverðir á Heathrow-flugvelli
héldu greinilega vöku sinni þegar
maðurinn, Rosario Tropea, kom til
landsins, því við leit á honum fundu
þeir 53 cm langa sandbóu sofandi
í nærbuxum kauða. Slangan er af
kyrkislönguætt og er ekki með eit-
urkirtla.
Slangan, sem var fyrir komið í
sokki, fylgdi Tropea frá Indlandi.
„Ég ætlaði að taka hana með mér
heim til Ítalíu til þess að setja í
garðinn minn. Hún var bara eins
og lítið bam,“ sagði Tropea í réttin-
um. Dómaranum þótti það þó ekki
viðhlítandi skýring og sektaði hann
um 300 pund fyrir vikið.
Kína:
531 fær matareitrun
af rotnu hundakjöti
Peking, Reuter.
MEIRA en 500 þorpsbúar í Aust-
ur-Kína fengu matareitrun eftir
að þeir borðuðu rotið hundakjöt,
að þvi er sagði í landsbyggðar-
blaði þar eystra.
í_blaðinu Alþýðublað Shangd-
ung-héraðs birtist frétt undir fyrir-
sögninni „Allt fyrir peninga" og var
því lýst hvemig slátrarinn Liu
Zongqi og fjórir aðstoðarmenn hans
hefðu slátrað 55 hundum og matr-
eitt þá. Þrátt fyrir að slátrarinn og
sveinar hans yrðu fárveikir seldu
þeir afganginn af kjötinu til hinna
lánlausu þorpsbúa.
Af hinu 531 fómarlambi slátrar-
ans ósvífna þurfti að færa 251 á
sjúkrahús. Hundakjöt þykir sæl-
gæti í Kína, sérstaklega á vetuma.