Morgunblaðið - 27.11.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987
37
Guðriður Sigurðardóttir, eigandi, og Guðmunda Ingadóttir, verslunarkona.
Regnhlífabúðin 50 ára
REGNHLÍFABÚÐIN, Lauga-
vegi 11, er 50 ára í dag. Hún
var stofnuð 27. nóvember 1937
af Láru Siggeirs, kaupkonu.
í upphafi voru framleiddar
regnhlífar og regnkápur í verzlun-
inni, en fljótlega var jafnframt
farið að verzla þar með snyrti-
og gjafavörur, sem nú orðið eru
aðalsöluvörur verzlunarinnar. Er
Regnhlífabúðin því með allra elztu
snyrtivöruverzlunum í Reykjavík.
Aðeins tveir eigendur hafa ver-
ið að Regnhlífabúðinni í þessi 50
ár. Núverandi eigandi, Guðríður
Sigurðardóttir, keypti verzlunina
1. apríl 1976.
í tilefiii af hálfrar aldar af-
mælinu verða allar vörur verzlun-
arinnar seldar með 20% affslætti
í dag og á morgun.
Bíóhöllin: ^
Sýnir myndina I
kapp við tímann
BÍÓHÖLLIN hefur hafið sýning-
ar á mynd er nefnist í kapp við
tímann. Leikstjóri er Steven Lis-
berger og með aðalhlutverk fara
John Cusack, Robert Loggia,
Jerri Stiller og Wendy Gazelle.
Myndin §allar í stuttu máli um
Dan sem er óskaplega hrifinn af
kærustunni sinni, Lori. Honum hef-
ur verið boðið í skemmtisiglingu á
Karabíahafinu með Lori og foreldr-
um hennar. En hann verður að taka
próf í skólanum áður en haldið er
af stað og ekki vill betur til en
hann kemur of seint á flugvöllinn
og missir af Lori. Dan heldur
ótrauður á eftir Lori þar til hann
kemst loks á leiðarenda en þar bíða
hans ævintýri, segir m.a. í frétt frá
kvikmyndahúsinu.
Loðnuveiðin fremur lítil
LOÐNUVEIÐI er fremur lítil um
þessar mundir. 7 skip höfðu til-
kynnt um afla siðdegis í gær, en
mörg voru þá enn að veiðum.
Eftirtalin skip höfðu tilkynnt um
afla um klukkan 18: Kap II VE 580
til Vestmannaeyja, Hilmir II SU
590 til Siglufjarðar, Þórshamar GK
600 til Þórshafnar, Svanur RE 720,
óákveðið, Guðrún Þorkelsdóttir SU
690 til Eskifjarðar, Sighvatur
Bjamason VE 700 til Vestmanna-
eyja og ísleifur VE 670 til Vest-
mannaeyja.
August Hákansson með þrjár af myndum sínum i nýja sýningarsaln-
um Galleri 15 við Skólavörðustig.
Nýr sýningarsalur opn-
aður á Skólavörðustíg
NÝR sýningarsalur fyrir listsýn-
ingar verður opnaður um næstu
helgi. Sýningarsalurinn ber
nafnið Gallerí 15 og er við Skóla-
vörðustíg.
Eigandi Gallerí 15 er August
H&kansson sem hefur undanfarin
ár flutt inn og selt myndlistarvörur
á þessum sama stað, þ.e. Skólavörð-
ustíg 15.
Sýningarsalurinn er með dökkum
bitum í lofti og í honum er gamall
steinveggur, hlaðin úr stórgrýti árið
1896, en sýningarveggimir eru
lýstir með nýrri tegund lampa sem
gefa myndunum jafna birtu.
August verður fyrsti listmálarinn
sem sýnir í nýja sýningarsalnum. í
fréttatilkynningu segir að August
hafi ungur stundað listnám en horf-
ið að viðskiptum vegna brauðstrits-
ins. Undanfarin 10 ár hefur hann
bytjað að málað á ný og er þetta
yfirlitssýning á verkum hans frá
upphafi til þessa dags. Elstu mynd-
imar eru unnar í olíu- og yatnslit-
um, en myndir síðustu ára eru
vatnslitamyndir.
Guðmundur
Pétursson
sýnir í Eden
Hveragerði.
GUÐMUNDUR Pétursson mynd-
listamaður opnaði sýningu i Eden
í Hveragerði 24. nóvember sl.
Á sýningu Guðmundar eru 30
tússteikningar sem unnar em á
síðustu fjórum árum. Efni mynd-
anna er fjölbreytilegt. Guðmundur
hefur áður sýnt og þá í Reykjavík.
Sýningin í Eden stendur til 6.
desember.
— Sigrún.
sín.
Kveikt ájólatrjám 1 Kringlunni
KVEIKT verður á fimm íslensk-
um jólatijám, elrni, úr Hallorms-
staðaskógi i Kringlunni
laugardaginn 28. nóvember kl.
11.
Það er Ástríður Thorarensen
borgarstjórafrú, sem kveikir á
trjánum og tekur um leið á móti
styrkjum til bamadeildar Hringsins
frá húsfélagi Kringlunnar og kaup-
mönnum í Kringlunni.
Fyrirtækin í Kringlunni verða
komin í jólabúning, jólalög verða
leikin og skólakór Kársnesskóla
syngur. Ýmislegt fleira verður til
skemmtunar alla daga fram að jól-
um og nær hámarki á Þorláks-
messu.
(Úr fréttatilkynningu).
Leikrit Shakespeares
V. bindi
Nú eru komin út fimm bindi af þýðingum Helga Hálfdanarsonar á
verkum WilliamsShakespeares. í þessu fimmta bindi eru meðal annars:
Allt í misgripum, Snegla tamin og Draumur á Jónsmessunótt.
é
Sérstakt tilboðsverð:
Fimm bindi
fyrir verð þriggja.
<á
\bók
\góð bók