Morgunblaðið - 27.11.1987, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 27.11.1987, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987 Minning: Pálmi Sveinsson Fæddur 24. október 1921 Dáinn 16. nóvember 1987 Mér er ljúft að minnast með nokkrum orðum míns elskulega frænda, Pálma foðurbróður míns. Hann var fæddur í Bolungavík 24. október 1921, sonur hjónanna Sveins Halldórssonar skólastjóra frá Skeggjastöðum í Garði og Guð- rúnar Pálmadóttur frá Skálavík. Pálmi var þriðji í röð fimm systk- ina. Elst þeirra var Þorvalda Hulda sem lést fyrir tveim árum, ekkja eftir séra Guðmund Helgason. Bald- ur var næstur í röðjnni en lést aðeins 8 ára að aldri. Á eftir Pálma komu tvíburar sem nú lifa. Þau eru Haukur fyrrum póstfulltrúi í Reykjavík, kvæntur Huldu Guðjóns- dóttur bankafulltrúa í Hafnarfirði og Kristín húsmóðir í Kópavogi gift Emil Guðmundssyni skipasmið. Pálmi ólst upp í Baldurshaga undir Traðarhymu við Bolungavík. Hann átti góða barnæsku í foreldra- húsum þar sem geitarmjólk var á borðum og egg úr eigin hænsnum, hundur og köttur að leika við. Hon- um gekk fljótt vel í skóla. Hann var vinnuglaður, og var snemma byijaður að stokka upp og vinna við beitingar. Hugurinn hneigðist ekki til bóknáms, hann stefndi á sjóinn. Pálmi var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Rannveig Jónsdóttir frá Vatnsholti á Snæfellsnesi. Þau eignuðust þijú böm. Elst þeirra er Guðrún Konný sem er búsett í Búð- ardal, gift Jóiii Markússyni raf- virkja og eiga þau fjórar dætur. Næstur er Þorvaldur, kennari að Kleppjámsreykjum sem er kvæntur Sigríði Einarsdóttur. Þau búa að Runnum í Reykholtsdal, þaðan sem hún er og eiga tvær dætur. Yngst- ur er Konráð Breiðfjörð trésmiður en hann er nú búsettur í Ástralíu, ásamt konu sinni Marín Sigurgeirs- dóttur úr Hafnarfírði og tveim sonum. Rannveig og Pálmi bjuggu sinn búskap í Garðinum, á Akranesi og í Stykkishólmi, en slitu svo sam- vistum. Nokkrum árum síðar kvæntist Pálmi á ný, Guðlaugu Magnúsdóttur frá Hraunholtum í Kolbeinsstaðahreppi á Snæfells- nesi. Frænka mín hafði á orði við mig að Pálma hefðu verið sendir tveir englar og báðir frá Snæfells- nesi! Var svo einhver að tala um vont fólk á Snæfellsnesi? Guðlaug er húsmæðraskólageng- in á Staðarfelli en hefur lengst af starfað sem saumakona og gerir enn. Þau settust fyrst að á Súg- andafírði þar sem Pálmi réðst til sjós en Guðlaug sem matráðskona og um tíma kokkur með Pálma. Seinna fluttust þau til Bolungavík- ur, þar sem þau bjuggu í sex ár. Þar eignuðust þau sína tvo syni, Halldór Bjarna sem verið hefur vist- maður að Skálatúni frá 6 ára aldri og Svein Grétar sem hefur verið togarasjómaður en er nú viðskipta- fræðinemi við Háskóla íslands. Hann er trúlofaður Guðrúnu Brynj- ólfsdóttur háskólanema í sjúkra- þjálfun. Guðlaug og Pálmi fluttust suður til Reykjavíkur 1968. Pálmi fór að vinna suður með sjó, fyrst í Sand- gerði og síðar í Garðinum, þar sem þau byggðu sér hús. Þau fluttust aftur til Reykjavíkur 1975 og áttu heimili þar síðan. Líf Pálma markaðist af þeim sjúkdómi sem hann átti við að stríða lengst af. Þrátt fyrir það skilaði hann góðu dagsverki. Pálmi var vel af Guði gerður til líkama og sálar. Hann var þrátt fyrir allt með ein- dæmum haustur og í raun með ólíkindum hvað hann átti langt líf. Hann var glæsimenni. Honum voru gefnar góðar gáfur, sem sýndi sig m.a. í því hve létt hann átti með nám. Þrátt fyrir hvatningu föður síns hneigðist hugurinn ekki til mennta heldur til sjómennsku eins og títt var með unga menn á Vest- fjörðum. Hann var bam að aldri, 11—12 ára, þegar hann fór að vinna við beitingar og fór á sjóinn svo fljótt sem auðið varð. Hann hafði verið til sjós í mörg ár bæði á bátum og togurum þegar hann fór á vélstjóra- námskeið og aflaði sér réttinda í Ólafsvík. Þau nýttust honum ekki síst meðan hann stundaði eigin út- gerð. Hann vann jöfnum höndum til sjós og lands og þá lengst af við fiskvinnslu. Síðasta áratuginn starfaði hann að ýmsu. Var um tíma á skipi Vita- og hafnamálastjómar, við Sigöldu, starfaði nokkur ár hjá Reykjavíkurborg og síðustu árin hjá Pósti og síma. Pálmi frændi átti stóran hluta ævi sinnar við Bakkus að stríða. Sjúkdómurinn greip hann heljartök- um á unga aldri. Hann gerði margar tilraunir til að rífa sig upp og tókst hvað eftir annað að safna brotunum saman á ótrúlega skömmum tíma. Hann náði þá æ lengri tímaskeiðum þar sem hann vann eins og honum var tamt af einstakri hörku og dugnaði. Pálmi var orðlagður verk- maður hvort sem var til sjós eða lands. Fáir voru honum afkasta- meiri við flökun, svo dæmi sé tekið, og aflakóngur varð hann fyrir vest- an er hann var búinn að komast yfir eigin bát og réri frá Bolung- arvík. En þegar best gekk taldi hann sig orðinn nógu sterkan til að taka eitt glas er suður var kom- ið til að ganga frá síðustu greiðsl- um. Ö1 er ekki innri maður, öl er annar maður. Á svipstundu var öllu eytt og sóað, allt gefið frá sér. Pálmi elskan var hann kallaður af félögum sínum sem nutu góðs af. Þetta var á þeim árum sem „með- ferðin" sem svo er kölluð, var ekki komin til sögunnar. Stuttu áður en til þess kom auðnaðist Pálma að kynnast leið AA-samtakanna. Það þakkaði hann Lilla Berndsen og samferðarmönnum sem dvöldu um skeið á áfangastaðnum „Skildi" við Ránargötu í Reykjavík. Þetta var fyrir um áratug. Þar með lauk þeim ramma slag að Pálmi með Guðs og góðra manna hjálp vann bug á Bakkusi. Síðustu tíu árin má segja að allt Fæddur 1. nóvember 1923 Dáinn 13. nóvember 1987 Sveinbjöm Albert Magnússon varð bráðkvaddur á heimili sínu á Blönduósi aðfaranótt 13. nóvember sl. Hann var fæddur 1. nóvember 1923 á Syðra Hóli í Vindhælis- hreppi sonur Magnúsar Bjömssonar bónda, kennara, fræðimanns og rit- höfundar og eiginkonu hans, Jóhönnu Albertsdóttur. Útsýni er ægifagurt á Syðra Hóli. Laxá rennur eftir hrikalegu gljúfri fyrir neðan bæinn á leið til sjávar. Fjörðurinn blasir við í suðri með Vatnsnesið og Strandaíjöllin í vestri, og mikilúðlegur opnast Húnaflói í norður. Bærinn stendur í góðu skjóli fyrir norðanátt en í austri og suðri blánar fyrir mynni margra dala, eins og þeim væri raðað hlið við hlið. I þessu um- hverfí ólst Sveinbjöm upp ásamt systkinum sínum en þau em: Hólm- fríður, Jóhanna María, Bjöm bóndi á Syðra Hóli, Guðrún Ragnheiður dáin 1938 og Guðlaug Ásdís. Skólagöngu og kennarastörfum Sveinbjamar verður sagt frá af þeim sem betur þekkja til. Ég kynntist honum fyrst eftir að hann hætti að kenna og ekkert var hon- um fjær skapi en að tala um sjálfan sig og vildi sem minnst láta á sér bera. I Kennaratalinu er þess getið, að hann tók gagnfræðapróf á Akur- eyri. Hóf síðan kennslustörf sem hann stundaði ámm saman víða í hafi gengið honum í hag með Guð- laugu við hlið sér. Á hinn bóginn höfðu afleiðingar áfengissýkinnar þá sett mark sitt á heilsufar hans þótt hann ætti eftir lengst af að vinna fullt starf og vel það, eins lengi og heilsan leyfði og raunar lengur. Hann hélt áfram störfum hjá Pósti og síma í 2 ár eftir að hann gekkst undir krabbameinsað- gerð og eftir að hann komst ekki lengur að heiman hélt hann áfram að hnýta á. Nú síðustu mánuðina var hann rúmfastur á Landspítalanum, þar sem hann naut einstakrar um- hyggju Hannesar Finnbogasonar og annarra lækna og hjúkmnar- fólks, að ógleymdri Guðlaugu, bömum og nánustu ættingjum. Ég heimsótti hann nokkmm sinnum í banalegunni. Það var oft erfitt að koma til hans þar sem hann var að tærast upp. En samt var alltaf gott að koma til hans. Hann mætti dauðanum æðmlaus. Eins og ævin- lega sótti ég til hans hlýju og innileik sem einkenndi hann frá því ég man fyrst eftir honum og allt til endaloka. Líf Pálma einkenndist mikið af vonbrigðum, eins og hjá okkur öll- um sem átt hafa við Bakkus að stríða. Að bregðast eigin vonum og annarra. Hann var mér alla tíð góður og flestum sem minnast hans, en sjálfum sér verstur. Ég mun allt- af minnast hans fyrir þá sál sem hann hafði að geyma í gegnum alla örðugleika. Það er sál sem hlýjar mér enn og mun gera. Hún er hjá Guði. Sveinn Rúnar Hauksson sveitum landsins. Síðast kenndi hann í Engihlíðar- og Vindhælis- hreppi. Á þessum ámm kynntist hann fjölda fólks og aflaði sér stöð- ugt nýrrar þekkingar á mannlífi og þjóðlífi í þessum sveitum. Hann var svo vel að sér í ættfræði, að þegar maður var nefndur, vissi hann vel um ætt hans og uppruna. Svein- bjöm átti bókasafn gott, þar á meðal flestar þær bækur um ætt- fræði sem út hafa komið. Hann unni öllum þjóðlegum fróðleik og góðum skáldskap. Hann átti mikið safn af ferskeytlum og tók saman vísnaþátt fyrir Húnavöku ámm saman. Sjálfur var hann hagmæltur vel. Sveinbjöm var dáður af nemend- um sínum, hafði lag á að segja þeim til og vísa þeim veginn. Einu sinni sem oftar var ég stödd í eld- húsinu hjá Ásgerði og Sveinbimi. Lítill, ókunnur drengur kom þá í heimsókn. Sveinbjöm tók hann á hné sér og í huganum var drengur- inn leiddur út í guðs græna náttúr- una. Báðir höfðu gleymt stund og stað, og spumingamar og svör beggja gengu á víxl, og augun ljóm- uðu. Ég sá kennara með þennan eldlega neista, sem þarf til að vera kennari. Þegar Sveinbjöm hætti að kenna hóf hann störf hjá Kaup- félagi A-Húnvetninga á Blönduósi. Þar hefur hann unnið síðan. Fyrir tveimur til þremur ámm fór hann að finna fyrir þeim sjúkdómi, sem nú hefur dregið hann til dauða. Minning: Sveinbjöm A. Magnús- son Blönduósi Helgi Vigfússon fv. kaupfélagsstjóri Fæddur 21. desember 1910 Dáinn 21. nóvember 1987 1 dag verður til moldar borinn á Selfossi Helgi Vigfússon frá Eyrar- bakka en hann varð bráðkvaddur á heimili sínu í Hveragerði 21. nóvem- ber síðastliðinn, tæplega 77 ára gamall. Með fráfalli Helga þykir okkur ættmönnum hans sem stórt skarð sé höggvið í frændgarðinn og marg- ir munu koma til með að sakna mannkosta hans: góðmennsku, hlýju, glaðværðar, kímni og hressi- legs viðmóts. Helgi Vigfússon fæddist á Gamla-Hrauni á Eyrar- bakka 21. desember 1910 og vom foreldrar hans hjónin Vigfús Helga- son tómthúsmaður þar og Sesselja Helgadóttir. Vigfús var kynjaður austan úr Rangárvallasýslu en Sesselja var Eyrbekkingur í marga ættliði, dóttir Helga Jónssonar formanns á Litlu-Háeyri og Guðríð- ar Guðmundsdóttur á Gamla- Hrauni Þorkelssonar. Það er Bergsætt. Framan af öldinni heijuðu berkl- ar mjög á íslendinga og fór æskuhemili Helga á Gamla-Hrauni ekki varhluta af því. Fór svo að báðir foreldra hans lágu í valnum og einnig yngri bróðir hans, Guð- bjartur Oskar. Föður sinni missti Helgi þegar hann var 10 ára og móður sína 13 ára og stóð hann þá uppi munaðarlaus ásamt systr- um sínum tveimur. Sú eldri var Sigríður (1908—1964) er síðar gift- ist Friðrik Guðjónssyni trésmið í Reykjavík, en yngri var Guðríður (f. 1912). Hún er ekkja Gísla Jóns- sonar í Mundakoti á Eyrarbakka. Systkinahópnum var tvístrað en öllum komið fyrir á góðum heimil- um þar sem þau fengu gott uppeldi eftir því sem þá gerðist. Helga var komið fyrir hjá Magnúsi oddvita Jónssyni i Klausturhólum í Grímsnesi og konu hans, Sigríði Jónsdóttur, sæmdarhjónum sem Helgi hélt ávallt tiyggð við. Helgfi Vigfússon þótti efnilegur unglingur og snemma komu í ljós góðir námshæfileikar hans. Sextán ára gamall fór hann í íþróttaskólann í Haukadal og síðan á héraðsskól- ann að Laugarvatni og lauk hann þaðan prófi 1930. Á þessum árum mun Helgi hafa drukkið í sig hug- sjónir ungmennafélags- og sam- vinnuhreyfíngar og settu þær ævilangt mark sitt á hann. Þannig var hann alla tíð stakur reglumaður á tóbak og vín. Kennaraprófi lauk Helgi 1934 og næstu 10 árin var hann kennari víða urn sveitir Suðurlands, síðast á Sólheimum í Grímsnesi 1943—44. Hann var hvarvetna vel látinn og litið upp til hans af bömum. Árið 1944 varð sú breyting á högum Helga að Egill Thorarensen kaup- félagsstjóri á Selfossi kom auga á hann sem efnilegan starfsmann og réði hann til að veita útibúi Kaup- félags Ámesinga á Eyrarbakka forstöðu og í því starfi var hann allt til 1955 við almennar vinsæld- ir. Þá var hann ráðinn sem kaup- félagsstjóri á Fáskrúðsfirði og gegndi þeirri stöðu í 1 ár. Aftur lá leiðin suður og um hríð var Helgi stjómarráðsfulltrúi í Reykjavík en síðla árs 1957 skipaði Hermann Jónasson, þáverandi dómsmálaráð- herra, hann til að vera forstjóra fyrir vinnuheimilinu á Litla-hrauni á Eyrarbakka. Því starfi gegndi hann til 1961. Ár Helga Vigfússonar sem fang- elsisstjóra á Litla-Hrauni vom honum erfið á marga lund. Hann var góðmenni í eðli sínu og hafði tilhneigingu til að treysta mönnum og þessa galt hann stundum í sam- skiptum sínum við fanga og starfs- menn hælisins. Eftir 4 þreytandi ár á Litla-Hrauni kaus hann að segja upp störfum og slapp þaðan dálítið „kalinn á hjarta", eins og sagt var af öðmm manni við annað tækifæri. Næstu ár gegndi hann ýmsum bókhalds- og skrifstofu- störfum á Eyrarbakka og þó einkum Stokkseyri og var m.a. skriístofustjóri Hraðfrystihúss Stokkseyrar á ámnum 1966—75. Ifyrir fáum ámm dró hann sig í hlé Eftir nokkurra vikna hvíld vom honum falin léttari störf en hann hafði áður og fór nú að vinna með sömu alúð og trúmennsku og allt annað sem hann tók sér fyrir hend- ur. Seinustu árin vom honum þung- bær að ýmsu leyti. Konan hans, elskuleg lá oft rúmföst farin að heilsu og kröftum. Hann sjálfur oftlega þjáður, þó ekki væri kvart- að. Hann hjúkraði Ásu sinni og vann heimilisstörfin á kvöldin eftir heilan vinnudag. Hafði þó alltaf tíma fyrir góða rabbstund með nágrönnum sinum, ef svo bar við. Fljótur til að rétta þeim hjálparhönd, ef á þurfti að halda. Sveinbjöm var mikill hag- leiksmaður til hugar og handa. Var sífellt að lagfæra eitt og annað, mála og dytta að, snyrtilegur í allri umgengni. Og alltaf þetta ljúfa, elskulega viðmót. Aldrei sagði hann hnjóðsyrði um aðra, en gat orðið hryggur, ef einhveijum var gert rangt til. Allir, sem þekktu hann sakna hans sáran. En sárastur er missirinn sjúkri eiginkonu hans og háaldraðri móður, sem einnig er á sjúkrahúsi. Með þessum orðum viljum við Óskar votta þeim báðum, svo og systkinum og öðrum aðstandendum innilega samúð. Við erum bæði þakklát fyrir að hafa átt fölskva- lausa vináttu þessa mæta manns. Hann er nú horfínn inn á æðra til- verusvið. Eftir hjá okkur lifa minningamar um óvenjulegan mann, sem var svo mörgum kostum búinn og í engu mátti vamm sitt vita. Mildi og ró er yfir bjartri minn- ingu um hann. Sólveig Benediktsdóttir Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins em birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar em birtar af- mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.