Morgunblaðið - 27.11.1987, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987
53
og hætti störfum enda þá orðinn
nokkuð við aldur.
Helgi Vigfússon, móðurbróðir
minn, var glaðlyndur og hressilegur
maður. Mér er það í fersku minni
þegar hann birtist á heimili mínu í
æsku en milli móður minnar og
hans voru kærleikar og munu þau
hafa átt góðan trúnað hvors ann-
ars. Hann kom jafnan gustmikill inn
úr dyrunum með sinn hvella róm
og hafði tíðum gamanyrði á vörum.
Glettni var honum eiginleg. Oftar
en ekki brá hann á leik og hermdi
þá eftir einhveijum góðkunningja
sínum í græskulausu gamni. Hand-
tak hans var fast og ákveðið og
stundum fannst mér hann hvort
tveggja í senn geta verið léttur sem
fis og harður sem stál. Mikil hlýja
bjó í öllu hans fasi og það var gott
að vera návistum við hann.
Skemmtun hafði hann af góðum
samræðum. Hann var hrifnæmur
og hafði allt til hinstu stundar lif-
andi áhuga á mönnum og málefn-
um. Samt var hann dulur og flíkaði
ekki tilfínningum sínum við hvem
sem var.
Helgi Vigfússon var fremur seinn
til að festa ráð sitt en áður en það
gerðist eignaðist hann tvö böm.
Með Marsibil Bemharðsdóttur frá
Kirkjubóli í Önundarfirði átti hann
Helgu Kristínu (Hjörvar), sem nú
er skólastjóri Lejkíistarskóla ríkis-
ins. Hún er gift Úlfi Hjörvar rithöf-
undi og eiga þau tvö böm. Með
Margréti Gísladóttur frá Höfða í
Dýrafirði átti hann Gísla Jón versl-
unarmann í Reykjavík.
Eftirlifandi eiginkona og lífsföru-
nautur Helga er Jónína Aldís
Þórðardóttir frá Stokkseyri og voru
þau mjög náin, elskuleg og ágæt
hjón og gestrisin í betra lagi. Eftir
að Eyrarbakkadvöl lauk bjuggu þau
um allmörg ár á Vestri-Móhúsum
á Stokkseyri, síðar á Selfossi, um
stutt tímabil í Garðinum og loks í
Hveragerði. Aldís átti tvær dætur
af fyrra hjónabandi og ól Helgi þær
upp sem sín eigin böm. Þær eru
Hugrún Selma, húsfrú, gift Grétari
Zóphaníassyni sveitarstjóra á
Stokkseyri, og Þómnn Ágústa hús-
frú í Ytri-Njarðvík, gift Helga
Maronssyni húsasmíðameistara.
Sjálf eignuðust þau Helgi og
Aldís hvorki meira né minna en 10
böm saman og er slíkt fátítt nú til
dags. Bömin fæddust á ámnum
1948 til 1964 og em þessi: Sigrún
verslunarmaður í Kópavogi, gift
Martin Sischka gleraugnasérfræð-
ingi. Hún á ijögur böm. Vigfús
múrarameistari í Hafnarfirði,
kvæntur Geirlaugu Guðmundsdótt-
ur skrifstofumanni. Þau eiga tvö
böm. Magnús sérkennari í Svíþjóð,
kvæntur Liv Holtan sálfræðingi frá
Noregi. Hann á fjögur böm. Sess-
elja Katrín húsfrú í Sandgérði, gift
Ómari Einarssyni skipstjóra. Þau
eiga þijú böm. Jóhanna Björk
starfsstúlka sjúkrahússins á Sel-
fossi, gift Bimi Sigurðssyni húsa-
smíðameistara. Þau eiga þijú böm.
Steinunn húsfrú, Kópavogi, gift
Magnúsi Péturssyni húsasmið. Þau
eiga þijú böm. Óskar Helgi verka-
maður, Hveragerði. Friðmundur
Heimir, sjómaður, Hveragerði.
Hann á tvö böm. Sigríður Ragn-
hildur húsfrú, Hveragerði, hennar
maður er Sigurður Antonsson bif-
reiðastjóri. Þau eiga tvö böm. Jón
Lárus þroskaþjálfí í Svíþjóð.
Ég sendi Aldísi og bömunum ein-
lægar samúðarkveðjur.
Guðjón Friðriksson
Jóna Ásgeirs-
dóttír - Kveðjuorð
Fædd 19. apríl 1905
Dáin 18. nóvember 1987
Nú hefur hún amma, Jóna Ás-
geirsdóttir, kvatt þennan heim.
Þótt vitað væri að hveiju stefndi
var fregnin sár þegar hún kom.
Máltækið segir „enginn veit hvað
átt hefur fyrr en misst hefur" og
svo sannarlega var það mikið að
eiga að hana ömmu að. Ef ég ætti
að lýsa henni með einni setningu,
þá myndi sú setning vera: Hún
amma var góð kona. Þetta er
kannski ekki löng setning með
mörgum háfleygum lýsingarorðum,
en hún segir þeim sem hana þekktu,
allt sem segja þarf.
Já, þær em margar minningam-
ar um ömmu og hennar heimili sem
leita á hugann á þessum tíma. Þeg-
ar ég var smástrákur og bjó á
Hlíðarbrautinni var amma alitaf í
nálægð. Vom þá ekki ófá skiptin
sem hlaupið var í kaffi til hennar
og var þá alltaf tekið höfðinglega
á móti. Og amma sá til þess að
tekið væri hraustlega til matarins
þegar hún bauð og fannst reyndar
oft að ekki væri borðað nóg, þó svo
keppst væri við.
Amma pijónaði mikið hér áður
fyrr og er auðvelt að sjá hana fyrir
sér sitja í stofunni og vera með
handavinnuna. Þessar pijónavömr
vom oftast vettlingar eða sokkar
og vom þær einkum ætlaðar bama-
bömunum. Enda var það fastur
liður á jólunum að pakkinn frá
ömmu innihélt ásamt öðm eitthvað
af þessari handavinnu.
Eitt af því sem hún amma hafði
hvað mest gaman af, var að fletta
myndaalbúmum sínum og hafði hún
yndi af því að sýna þau. Þessi albúm
innihéldu mest myndir af ættingj-
unum, bæði fjar- og náskyldum, en
hún kunni skil á öllum og aldrei
stóð á skýringum hver væri hverra
manna. Og eitt af því sem gladdi
hana mikið var að fá nýja mynd í
safnið og víst var að sú gjöf ryk-
féll ekki.
Ömmu hjartans mál var fjöl-
skyldan og fylgdist hún vel með
hvemig hveijum og einum vegnaði.
Hún var vön að bjóða allri íjölskyld-
unni í kaffi á jóladag og þeim sið
hélt hún alveg til síðustu jóla, þrátt
fyrir að heilsan væri farin að gefa
sig. En nú verður ekkert jólakaffi
í ár og líklega verður hálf tómlegt
á jóladag.
Það er alltaf erfitt að kveðja og
einkum er það tregablandið þegar
vitað er að það sé gert í hinsta sinn.
En þetta er gangur lífsins og sá
gangur verður ekki stöðvaður. En
það sem eftir lifir eru minningamar
og svo sannarlega eru þær margar
þegar amma á í hlut.
Guð blessi minninguna um
ömmu.
Jón Bergþór Kristinsson
gluggar
Við sérsmíðum glugga efbir
þínum óskum. Hér eru
aðeins smásýnisliorn af
gluggunum okkar. Við
gerum föst verðtilöoð í alla
sérsmíði.
Vönduð íslensk framleiðsla.
Góðir greiðsluskilmálar —
Sendum í póstkröfu.
AUK h(. 10.64/SlA
TRESMIDJA
BJÖRNS ÓLAFSSONAR hf.
V/REYKJANESBRAUT, HAFNARFIRÐI,
SlMAR: 54444, 54495
ÁRATUGA REYNSLA í GLUGGASMÍÐI
Vió bjoðum uppá jóla—og áramótaferð til Vínar, heimsborgarinnar
sem býður uppá það sem flesta "rómantíkera” dreymir um.
Þú nýtur tónlistar, skoðar söfn, ferð í óperuna
eða bara situr á góðum ”restaurant” eða vinkrá
jafnvel i sama sæti og Mozart fyrir nokkrum öldum siðan,
og horfir á mannlifið í fjölbreytileik sinum
i sögufrægu umhverfi.
Ómótstæðilegir töfrar Vinarborgar heilla alla
og það ekki sist á þessum árstima.
Haltu uppá jólin og áramótin i Vín.
Gist verður á góðu hóteli. Brottför 23. des. og komið heim 3. jan.
Ferc5.íshn(s(o/.iii
llaiandí
Vesturgötu 5, Reykjavik sími 622420