Morgunblaðið - 27.11.1987, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 27.11.1987, Qupperneq 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987 fclk í fréttum Danadrottning’ og Uffe Ellemann ganga inn í hátíðarsal Versala undirfurðuleg á svip. Innfellda myndin er af Versölum. MARGRÉT DANADROTTNING Yeiktust veislugestir eður ei? Mörgum þjóðhollum Dananum svelgdist heldur betur á morgunkaffínu sínu síðasta sunnu- dagsmorgun, er morgunþáttur sænska sjónvarpsins birti frétt þess efnis að ástsæl Danadrottning hefði eitrað fyrir sjö hundruð manns í glerfínu matarboði sem haldið var í Versölum, er drottningin var í opin- berri heimsókn í Frakklandi. „Drottningu mistókst hrapallega að kynna danska matreiðslu í veislu sem hún hélt og var hluti af menningarkynningu henn- ar. Bauð danska drottningin 700 manns til veislunnar og urðu allir fárveikir af kræsingunum, meðal ann- arra danski heilbrigðisráðherrann sem þurfti að styða frá borðum," sagði í fréttinni sem raskaði svo ró frænda vorra. En er farið var að rannsaka málið kom í ljós að nokkar smávillur höfðu læðst inn í fréttina. Drottningin hafði ekki haldið veisluna, held- ur utanríkisráðherrann, Uffe Ellemann-Jensen. Þá sýndu matargestir heldur ekki nein bráð eða sýnileg einkenni, en ekki var vitað um seinni tíma afleiðing- ar. BOB GELDORF Hefur ekki gleymt Eþíópíu jt Irski popparinn og góðgerðarfrömuðurinn Bob Geldorf, sem fyrir tveim- ur árum var aðalhvatamaður að „Band-Aid“ hljómleikunum og söfnuninni, reynir nú á nýjan leik að vekja athygli okkar velmegandi Vesturlandabúa á hungursneiðinni sem ógnar íbúum Eþíópíu. Hann er á förum til landsins og ætlar að sækja heim þau svæði sem verst hafa orðið úti en um fímm milljónir manna sjá nú fram á hungursneið, því haustupp- skeran brást vegna þurrka. SÖNGKONA BANGLES Susanna er of sæt Sumir hafa fullyrt að Susanna Hoffs, söngkona Bangles, sé verðugur arftaki rokkdrottningar- innar Madonnu og víst er að hún þykir afskaplega myndarleg. Hún er söngvari kvennahíjómsveitarinn- ar Bangles en stöllur hennar í hljómsveitinni eru lítt hrifnar af hversu vinsæl hún er. Susanna hef- ur verið orðuð við marga, sagt er að þegar Prince samdi fyrir þær lagið „Manic Monday" hafí það verið vegna þess að hann hafí verið töfrum sleginn af „dularfullu að- dráttarafli" Susönnu. Það líkaði félögum hennar afar illa, þær segja að hún sé hreinlega of sæt og sam- komulagið í hljómsveitinni fer hríðversnandi. En Susanna hefur ekki miklar áhyggjur af því, hennar nánasta framtíð er tryggð, hún vinnur fyrir sér sem fyrirsæta og hefur nú leikið í sinni fyrstu kvik- mynd. Frægðarsólin skín skært á Susönnu. DONADAN SINN Af Jennifer Grey Kvikmyndin „Dirty Dancing" er sýnd við miklar vinsældir í hérlendum kvikmyndahúsum um þessar mundir. Aðalleikkonan í henni er hin áður óþekkta Jennifer Grey sem er 27 ára. Hún er dóttir Joels Grey sem fékk Óskarsverð- Iaunin fyrir leik sinn í kvikmyndinni „Cabaret" og hafði lengi látið sig dreyma um að feta í fótspor föðurs síns og öðlast frægð og frama á hvíta tjaldinu. Og með leik hennar í Dirty Dancing" virðist það hafa tekist. Hún fór því með kærsastan- um sínum, Matthew Broderick sem lék meðal annars í „Ferris Buellers Day Off“, í frí til írlands. En þeirri sumarleyfísferð vilja þau sjálfsagt bæði gleyma sem fyrst, því í rign- ingarsudda á írskum sveitavegi, lentu þau í hörðum árekstri sem kostaði þau bæði nærri lífið. Kon- umar tvær sem voru í hinum bflnum létu lífíð og Matthew slasaðist tölu- vert. Jennifer ein slapp svo til ómeidd og yfir Matthew sat hún þegar verðlaunaafhending fyrir „Dónadansinn" fór fram. En það skipti hana minnstu máli „það eina sem ég hugsa um núna er að Matthew nái sér,“ segir hún. Matthew og Jennifer fyrir írlandsförina.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.