Morgunblaðið - 28.01.1988, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 28.01.1988, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988 7 Norðfjörður: Loðnufrysting 1 norskum skipum Neskaupstað. TÍU NORSK loðnuveiðiskip hafa legið hér inn á firðinum undan- farna daga og áhafnir þeirra unnið að loðnufrystingu um borð. í hinni miklu aflahrotu hjá loðnu- veiðiflotanum sem staðið hefur undanfarið hefur talsvert borið á þvi að norsk loðnuveiðiskip hafí leit- að hér inn á fjörðinn bæði til að liggja af sér veður og einnig hafa þau legið hér dögum saman á slétt- um firðinum á meðan áhafnir þeirra hafa unnið að því að frysta loðnu um borð sem síðan er seld til fískeld- isstöðva í Noregi. Þá hafa þeir af og til landað smáslöttum í bræðslu. Mikil loðna hefur borist á land hér frá áramótum eða um 13.500 tonn en á sama tíma í fyrra hafði nán- ast engin loðna borist hingað vegna verkfalla á fískiskipaflotanum. — Ágúst Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Norska skipið Ostbas landaði loðnu á Neskaupstað. Frá Höfn. Sindrabær er húsið fremst til vinstri. Höfn: 150 lítrar af bruggi undir sviði Sindrabæjar KÚTUR með 150 litrum af bruggi í gerjun fannst í félags- heimilinu Sindrabæ á Höfn í Hornafirði um miðjan mánuðinn. Kúturinn, eða tunnan, var falin undir sviði hússins og var skons- an hituð upp með rafmagni á kostnað sveitarfélagsins. Þetta kemur fram í frétt blaðsins Eystrahoms, sem gefíð er út á Höfn. Þar segir að hópur, sem var að æfa skemmtiatriði fyrir þorra- blót Hafnarbúa, hafi rekist á braggið. Fyrir tilviljun hafí hlera á sviðinu verið lyft og þá hafí dýrðin blasað við. Braggklefinn hafí greinilega verið fóðraður í þessum tilgangi og til hliðar við tunnuna, sem var geysistór (olítunna er 200 lítrar), hafí verið rafmagnsofn með opnu elementi, þannig að braggar- inn hafí greinilega haft lag á því að láta sveitarfélagið greiða hita- kostnaðinn. Frétt Eystrahoms var borin und- ir lögregluna á Höfn og kom fram að lögreglan frétti fyrst af bragginu þegar blaðið kom út. Þá fékkst stað- fest að málið væri nú upplýst, en aðrar upplýsingar vora ekki veittar. HLUSTUM ÁÞIG! V/ŒZLUNfiRBfiNKINN KASKÓ heldur forystu sinni á sviði óbundinna sparifjárreikninga og býður einn mesta sveigjan- leika í verðtryggðum sparnaði sem völ er á. Við hlustum á allar ábendingar sem koma að gagni, þess vegna er KASKÓ-reikningurinn eins og sniðinn fyrir þig. KASKÓ-öryggislykill sparifjáreigendii

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.