Morgunblaðið - 28.01.1988, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988
4
...rí3*^jt::
'im iiIB
¦¦ liBP
5E ¦ |OJB
Taflfélag Dalvíkur:
Opið skákmót fyr-
ir börn og unglinga
Dalvflt.
FJÖLMENNT skákmót var haldið á Dalvík nú um helgina en þá var
haldið opið skákmót fyrir börn og unglinga á Norðurlandi. Það var
Taflfélag Dalvikur sem stóð fyrir mótinu og er það hið fyrsta sinnar
tegundar hérlendis.
Morgunblaðið/Þorkell
Byggðastofnun stendur til boða 2.750 fermetra stór lóð austan Landsbankans við Ráðhústorgið. Hugsan-
lega mun þar rísa þjónustumiðstöð opinberra stofnana og einkafyrirtækja.
Utibú Byggðastof nunar norður í sumar:
Rís miðstöð fyrirtækja og
stofnana við Ráðhústorg?
Alls voru þátttakendur 89 á aldr-
inum 16 ára og yngri og voru þeir
allir af Eyjafjarðarsvæðinu. Yngstu
keppendurnir voru aðeins 7 ára en
teflt var í fimm aldursflokkum.
.Mótið heppnaðist vel og ráðgerir
taflfélagið að halda annað svona
mót í marsmánuði. Sjgurvegarar
urðu sem hér segir:
Drengir fæddir 1972-74:
1. Rúnar Sigurpálsson, Akureyri, 7
vinningar.
2. Reimar Pétursson, Akureyri, 6
vinningar.
3. Ragnar Þorvarðarson, Akureyri,
5 vinningar.
Drengir fæddir 1975-77:
1. Örvar Arngrímsson, Akureyri, 6
vinningar.
2. Birkir Magnússon, Akureyri, 5,5
vinningar.
3. Þórleifur Karlsson, Akureyri, 5
vinningar.
Drengir fæddir 1.978 eða síðar:
1. Hafþór Einarsson, Akureyri, 7
vinningar.
2. Einar I. Gunnarsson, Akureyri,
6 vinningar.
3. Tómas H. Jónsson, Akureyri, 5
vinningar.
Stúlkur fæddar 1972-75:
1. Sigrún Bárðardóttir, Ólafsfirði,
12 vinningar.
2. Helga Jónsdóttir, Ólafsfirði, 10
vinningar.
3. Halla B. Arnarsdóttir, Akureyri,
8 vinningar.
Stúlkur fæddar 1976 eða síðar.
1. Þorbjörg Þórisdóttir, Akureyri,
10 vinningar.
2. Dóra S. Sigtryggsdóttir, Akur-
eyri, 9 vinningar.
3. Sigríður Torfadóttir, Akureyri, 8
vinningar.
Fréttarítari
ÚTIBÚI frá Byggðastofnun
verður komið á laggirnar á Ak-
ureyri f sumar og hefur Byggða-
stofnun auglýst starf forstöðu-
manns laust til umsóknar. I
t miðstöðinni eru, auk Byggða-
stofnunar, fyrirhuguð útibú frá
ýmsum öðrum opinberum og
hálfopinberum stofnunum og
fyrirtækjum.
Guðmundur Malmquist forstjóri
Byggðastofnunar sagði í samtali
við Morgunblaðið að ýmsir hefðu
sýnt starflnu áhuga, en engin form-
leg umsókn borist ennþá, enda
rynni umsóknarfrestur ekki út fyrr
en um miðjan febrúar. Þessa dag-
ana er verið að leita að heppilegu
bráðabirgðahúsnæði fyrir útibúið,
en síðar er hugmyndin að byggja
yfir þjónustumiðstöðina og hafa
bæjaryfirvöld á Akureyri geflð fyr-
irheit um lóð í hjarta bæjarins, við
Ráðhústorgið svokallaða, austan
Landsbankans. Lóðin er 2.750 fer-
metrar að stærð og má byggja á
lóðinni tæplega 4.000 fermetra
byggingu á þremur til fjórum hæð-
um. Þess má geta að Amtsbóka-
safnið á Akureyri er um 1.000
fermetrar að stærð og er því verið
að tala um tæplega fjórum sinnum
stærri byggingu en það.
Gert er ráð fyrir að stofnanir á
vegum bæjarins og ýmis önnur fyr-
irtæki sem nú þegar eru á Akureyri
komi til með að flytjast f fyrir-
hugaða þjónustumiðstöð auk þess
sem forráðamenn Byggðastofnunar
gera ráð fyrir fleiri útibúum „sunn-
lenskra" stofnana norður sem yrðu
þá undir sama þaki. Guðmundur
sagðist hafa átt fund með forráða-
mönnum Hagsýslustofnunar í
vikunni vegna fyrirhugaðrar mið-
stöðvar og mun Einar Sverrisson
hjá Hagsýslustofnun vera að kanna
þessa dagana hvernig leigu- og
húsnæðismálum opinberra stofnana
er háttað. „Við höfum mikinn hug
á því að draga aðrar þjónustustofn-
anir norður með okkur svo sem
Skipulag ríkisins, Lánasjóð
íslenskra námsmanna, Húsnæðis-
stofnun, Siglingamálastofnun og
fleiri slíkar," sagði Guðmundur.
„Ég vonast til að hægt verði að
byggja upp þjónustumiðstöð á lóð-
inni sem okkur stendur til boða, en
vissulega verðum við að fá fleiri
aðila í lið með okkur, ríkisfyrir-
tæki, einkafyrirtæki, verslanir og
jafnvel banka. Við höfum verið í
viðræðum við forráðamenn Búnað-
arbankans og höfum ekki gefið upp
alla von í því sambandi. Bankinn
hefur hug á að selja húsnæði sitt
á Akureyri og taka í staðinn þátt
í byggingu miðstöðvarinnar með
okkur." Guðmundur sagðist ekki
geta sagt til um hvenær hægt yrði
að hefjast handa við bygginguna.
Fyrst þyrfti að ákveða hvaða starf-
semi yrði þar innan dyra, ganga frá
lóðarsamþykkt, gera lóðina bygg-
ingarhæfa og hefjast handa á
réttum tíma þegar lægð er í fram-
kvæmdum á Akureyri frekar en
spenna, eins og nú. Byggðastofnun
hefur frest fram í mars til þess að
þiggja lóðina eða hafna henni. Guð-
mundur sagði að þessar hugmyndir
væru allar á viðræðustigi ennþá,
en hugsanlega yrði byggingartími
allt frá þremur og upp í fimm ár
ef úr yrði.
Morgunblaðið/Trausti
Frá skákmóti Taflfélags Dalvikur um siðustu helgina.
JANUARTILBOÐ
Tilboö sern
bragðerað
Til þess að létta þunga nýja matarskattsins höfum
við ákveðið að koma til móts við ykkur með glæsi-
legu janúartilboði/
1. Hamborgari m/frönskum kartöflum og gosglasi
Örfáar 185,-kr.
2. Bamahamborgari m/frönskum kartöflum og gosglasi
Litlar135,-kr. '
3. Grænmetispíta m/frönskum kartöflum og gos-
glasi
Aðeins 225,- kr.
Vinsamlega biöjifi um tilboö tilþess aö koma i veg
fyrir misskilning.
i CR0WN
í CHICKEN
EHMI
SKIPAGÖTU 12. AKUREYRI
Besti bitinn í bcenum aö sjálfsögöu.
Nýtt vinnslukerfi hjá fiskverkunum í Hrísey og á Vopnafirði:
Hópbónus kemur í stað
einstaklingsbónuss
SAMKOMULAG hefur tekist á
milli verkalýðsfélagsins Eining-
ar á Akureyri og Fiskvinnslu-
stöðvar KEA í Hrfsey um
bráðabirgða8amninga vegna nýs
vinnslukerfis f frystihúsinu, svo-
kallaðs flæðilfnukerfis. Byrjað
var að vinna eftir kerfinu sl.
föstudag og nœr reynslutími þess
til 31. mars nk. Auk Hrfseying-
anna hefur f iskverkun Tanga hf.
á Vopnafirði tekið upp sama
kerfið til reynslu og hljóða
bráðabirgðasamningar þar ná-
kvæmlega eins og í Hrisey, að
sögn Péturs Olgeirssonar fram-
kvæmdastjóra Tanga hf.
Ofan á tímakaupið verður greidd-
ur 91 krónu kaupauki auk tveggja
króna ofan á hvert framleitt kíló. Á
þessu tveggja mánaða reynslutíma-
bili verða mældir upp staðlar og á
þeim verður síðan grundvallaður
bónus eða hlutaskiptar greiðslur.
Jóhann Þór Halldórsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að hið
hefðbundna einstaklingsbónuskerfi
væri sett til hliðar, en í stað þess
tekin upp hópbónus.
„I hópnum eru allir starfsmenn
nema vélstjórar og verkstjórar. Við
erum mjög ánægðir með þetta kerfi
eins og það kemur nú fyrir sjónir
og segja má að starfsfólk sé það
einnig. Kerfið hefur farið mjög vel
af stað stra^ á fyrstu dögum og
góð afköst hafa náðst. Fólkið fær
út úr þessu miklu betri vinnuað-
stöðu. Það fær nú stóla og stendur
á pöllum, sem hægt er að stilla
hæðina á, og allar hreyfingar í
þessu kerfí eru miklu styttri og
auðveldari þannig að minna reynir
á líkamann en áður. Til dæmis eru
vinnsluborðin nú hallandi frá kon-
unum og renna til staðar sem tekur
á móti öllu rusli og vatni frá borðun-
um. Búast má við að hægt sé að
sporna á móti veikindum og at-
vinnusjúkdómum með þessu nýja
kerfí," sagði Jóhann Þór.
Framleiðni sf. í Reykjavík hefur
hannað þetta nýja vinnslukerfí í
samvinnu við Sjávarafurðadeild SÍS
og er aðdragandinn nú orðinn um
tveggja ára gamall. Jóhann Þór
sagði að markmið kerfisins væri
að bæta alla tæknihlið vinnslunnar
og fækka starfsfólki í greininni með
því að auka afköst jafnframt því
að bæta vellíðan fólksins. Ekki hef-
ur komið til fækkunar starfsfólks í
Hrísey, en færri aðkomumenn verða
ráðnir til starfa hjá fiskverkuninni
en hingað til hefur tíðkast, að sögn
Jóhanns. Allur flutningur til og frá
starfsfólkinu fer' nú fram á færi-
böndum í stað þess að áður voru
bakkar bornir á milli fólksins.
Kostnaður við uppsetningu kerfis-
ins nemur fimm til sex milljónum
króna í Hrísey. Jóhann Þór sagðist
ekki vera viss um hvort þetta kerfi
hentaði stærri frystihúsum landsins
nægjanlega vel. Stærri húsin i^á
mun betri nýtingu á aukastörfum
í kringum vinnsluna, svo sem á flölc-
unar- og móttökustörfum þar sem
mikið hráefnisflæði ætti sér stað í
gegnum stærri húsin miðað við þau
minni.