Morgunblaðið - 28.01.1988, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 28.01.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988 41 Afmæliskveðja: Bergþóra Pálsdóttir frá Veturhúsum í dag, 28. janúar, er Bergþóra Pálsdóttir frá Veturhúsum 70 ára. Foreldrar Bergþóru voru hjónin Þorbjörg Kjartansdóttir frá Keldu- djúpasíðu í Vestur-Skaftafellssýslu, en Þorbjörg kona hans var fædd í Eskiijarðarseli. Þau giftust 11. maí 1899 og hófu búskap á Vetur- húsum, sem eru stutt frá Eskifjarð- arkaupstað. Þess má geta að Þorbjörg, móðir Bergþóru, og Jón, faðir AUa ríka á Eskifirði, voru systkin. Þau Þorbjörg og Páll eignuðust tíu börn, allt myndarlegt og dug- mikið fólk, sem hefur komið sér vel og heiðarlega áfram í þessu lífí. Það var oft talað um að það væri sár fátækt í Kjálkinum og mér finnst að í gegnum árin hafi oftast komið þaðan duglegustu og nýtustu þegnar þjóðfélagsins, þar sem fá- tæktin er mest. Faðir Bergþóru dó 1940 og þá voru flest böm hans flutt að heim- an. Þau systkinin Páll og Bergþóra héldu áfram búskap með móður sinni. Páll var búinn að vera lengi fyrirvinna heimilisins, því faðir hans hafði lengi verið veikur áður en hann dó. En 1945 losnaði ættaróðal Þorbjargar og keyptu Páll og Berg- þóra jörðina Eskifjarðarsel. Var Þorbjörg heldur en ekki ánægð að vera komin aftur á sínar æskustöðv- ar. Þeim systkinunum búnaðist mjög vel. Þau byggðu upp peningshús og stækkuðu og lagfærðu íbúðar- húsið mikið. Einnig ræktuðu þau mikið land, svo túnin voru öll slétt og mest allt slegið með sláttuvél. Það var fallegt og þrifalegt sveita- heimili, Eskiijarðarsel, og bú þeirra systkina gaf vel af sér. Bergþóra var dulræn og gat fylgst með því sem gerðist f fjar- lægð. En fólk hennar flest mátti ekki heyra hana segja frá því sem hún sá. Þar af leiðandi leið henni oft illa, því enginn vildi hlusta á .margt hryllilegt sem hún sá. Berg- þóra þráði að fólkið hjálpaði þeim sem lágu hjálparlausir og oft stór- slasaðir langt frá mannabyggðum. Enginn hlustaði á hina skyggnu konu og var hlegið að henni og passað að hún væri ekki mikið á meðal fólks sem kom í heimsókn á æskuheimili hennar. Já, það er mörg mannanna raunin, en verst held ég að skilningsleysi fólks sem umgekkst fólk með sérgáfu hafi leikið hana. Bergþóra var ljómandi vel gefin. Sem unga stúlku langaði hana að læra hjúkrun og komast upp úr fátæktinni og vinna sig upp mannfélagsstigann eins og hún orð- ar það. En slíkt markmið þótti Qarlægt í þá daga. Tvær bækur hafa verið gefnar út eftir Bergþóru, auk þess kvæði og margar prýðisgreinar og frá- sagnir sem hafa birst í Morgun- blaðinu. Hefur fólk lesið þetta með athygli. Minnisstæðust af frásögn- um hennar finnst mér greinin um bresku hermennina, sem urðu úti á Eskifjarðarheiði 20. janúar 1941. Þá dóu þrír, en 48 var hjálpað til að komast inn í bæinn Veturhús af þeim bræðrum Páli og Magnúsi í aftakaveðri og mesta flæði sem komið hefur í Eskifjarðará! Þá var símalaust og ekkert hægt að hringja, enda hefði enginn komist að Veturhúsum vegna flæðisins. Þær mæðgumar þurrkuðu fatnað alla nóttina, stóðu við bakstur og hituðu mjólk og kaffi til að bjarga hinum deyjandi mönnum. Þá var Bergþóra dugleg því henni kom þessi björgun ekki á óvart. Hún hafði séð það allt fyrir og var það henni að þakka að mönnunúm var komið til hjálpar. Gamalt máltæki segir, að enginn sé spámaður í sínu föðurlandi og það má með sanni segja um Berg- þóru Pálsdóttur. Hún var í mörgu á undan sínu samtímafólki. Hún fékk sér frystikistu og fyllti hana fljótt um haustið, eins og flestir gera. En hún iét ekki staðar numið þar heldur fékk sér aðra frystikistu og fyllti hana af alls konar bak- kelsi og listilega skreyttum tertum. Að þessu hló fólkið mikið og þótti sérkennilegt að hafa frosið brauð með kaffinu. En nú er ekki til það heimili á Eskifirði, sem býður gest- um ekki upp á frosið brauð. 10. mars 1971 varð átakanlegt slys hjá systkinunum. Voru þau að fara á bfl sínum til Eskifjarðar og var hálka á veginum. Bfllinn snerist með þeim afleiðingum að Páll missti stjóm á honum. Slasaðist Páll svo mikið að hann lamaðist upp að hálsi og hefur verið í hjólastól síðan. Bergþóra meiddist á höfði, en þegar hún rankaði við sér fór hún heim og hringdi. Bergþóra meiddist á höfði og hefur ekki náð sér síðan. Hún hefur dvalið í Ási í Hveragerði síðan og vinnur 4 tíma á dag þegar heilsa hennar léyfír. Ég kynntist Bergþóru og Páli fljótlega eftir að ég kom til Eski- fjarðar 1962. Þau voru vinir vina sinna og vom mikið útaf fyrir sig. Bergþóra lokaði oft húsi sínu, þegar hún sá sýnir. Þess má geta að Páll skildi systur sína vel og það er Bergþóra Guði þakklát fyrir. Ég var stundum í töðugjöldum hjá þeim systkinunum og þau út- bjuggu skemmtikrafta og jafnvel leikrit og vom þau leikin. Þau systk- inin em djúpgreind og kunnu að skemmta gestum sínum. Veitingar vom þá frábærar og rausnarlegar. Síðustu tvö sumrin sem þau systkinin bjuggu í Eskifjarðarseli var kona stýrimannsins á Jóni Kjartanssyni og kennara í Sjó- mannaskólanum hjá þeím yfir sumartímann. Hafði hún mjög góð áhrif á Bergþóm og Pál. Sá Berg- þóra ekkert nema gott eitt sem fylgdi þeim hjónum og sýni þeirra. Áðurgreind hjón reyndust þeim systkinunum vel eftir slysið þegar þau vom bæði rúmliggjandi í Reykjavík. Ég hitti Bergþóm oft eftir að við hjónin fluttum á Selfoss. Bergþóra er ánægð með lífið í Hveragerði og er með tveim sómakonum í flottri íbúð. Ég óska þér, Bergþóra, allra heilla með 70 ára afmælið og þakka fyrir góð og ógleymanleg kynni. Lifðu heil. Regína Thorarensen -en þekking margfaldar vinningslíkur Höfuömáliö er aö fylgjast meö. Ef þú kynnir þér stööu og árangur liðanna stenduröu betur að vígi. X / \ / V ISLENSKAR GETRAUNIR íþróttamiðstööinni v/Sigtún - 84590
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.