Morgunblaðið - 28.01.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988
21
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
í „íslenskum orðskviðum" segir:
„Hvar sem mikill vísdómur er,
þar eru djúpíyndnar hugsanir“.
Fiskur er sagður vera okkar besta
heilafóður og því kjörinn til að ýta
undir hugvitið, og mun ei af veita,
þvði að í „ísl. Orðskviðum" segir
einnig: „Hugurinn er hálfur draum-
ur.“
Fiskrétturinn sem þessum „gull-
komum" fylgir er á engan hátt
loftkenndur heldur fremur bragð-
mikil:
Steikt ýsa
með brúnni
grænmetis-
sósu
800 g ýsuflök
1 sítróna
3 matsk. hveiti
1 tsk. salt
malaður pipar
2 matsk. matarolía
1 hvítlauksrif
2 matsk. söxuð púrra
1 tsk. chives
IV2 bolli vatn
1 ten. kjúklingakraftur
salt.
1. Fiskurinn er roðflettur og skor-
inn í hæfilega stór stykki. Fiskstykk-
in eru síðan sett á disk og safa úr
hálfri sítrónu dreypt yfir fiskinn. Þau
eru látin standa smá stund með
sítrónusafanum, þannig verða þau
bragðmeiri og einnig þéttari í sér.
2. Matarolían eða smjörlíkið er
brætt á pönnu, hveitið er blandað
salti og möluðum pipar. Fiskstykkj-
unum er velt upp úr hveitinu og þau
steikt í feitinni á báðum hliðum við
vægan hita í 10 mínútur. Fiskurinn
á að vera steiktur í gegn. Hann er
síðan tekinn af pönnunni og geymd-
ur á heitum stað á meðan sósan er
útbúin.
3. Matskeið af feiti er bætt á
pönnuna. Hveitið (afgangur frá
steikingu) er sett á pönnuna og soð-
ið í feitinni á meðan það er að
brúnast. Hrært stöðugt í á meðan
hveitið er að brúnast. Vatni er bætt
á pönnuna og hrært vel í sósunni á
meðan hún nær að þykkna.
4. Því næst er bætt út í sósuna
kjúklingakrafti, pressuðu eða fínsöx-
uðu hvítlauksrifi, smátt saxaðri
púrru, chives, safa úr hálfri sítrónu
ásamt salti og pipar eftir smekk.
Sósan er látin sjóða í 5 mínútur eða
þar til hún er orðin hæfilega þykk.
Sósunni er hellt yfir fiskinn og
hann síðan borinn fram með heitum
kartöflum og hrásalti.
Vérð á hráefni:
600gýsa ........ kr. 240,00
sítróna ........kr. 15,00
V2 kg kartöflur .... kr. 30,00
lítil púrra ........ kr. 15,00
Kr. 300,00.
hjálpar tmðsUðiuu
íSeoul
Til að ná langt á Olympíuleikunum í Seoul þá þurfa handknattleiksmenn okkar að
leggja hart að sér. Þú getur hjálpað þeim með því að kaupa Boltabrauð. Af hverju
brauði sem keypt er renna 3 krónur til handknattleikslandsliðsins.
bakarameistara
GERVIHNATTASJONVARP