Morgunblaðið - 28.01.1988, Page 22

Morgunblaðið - 28.01.1988, Page 22
22 MORGUNBLAÐE), FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988 25% AFSLÁTTUR á skinnhúfum og hönskum á dömur og herra RAMMAGERÐIN HAFNARSTRÆTI 19 & KRINGLUNNI X Sendw i Póstkröfu - slmar 16277 og 17910 .y RANNSÓKNARÁD RlKiSINS Rannsóknasjóður Rannsóknaráð ríkisins auglýsir styrki til rannsókna og tilrauna árið 1988 Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Umsóknareyðublöð fást á skrif- stofu ráðsins, Laugavegi 13, sími 21320. Um styrkveitingar gilda m.a. eftirfarandi reglur: • Um styrk geta sótt einstaklingar, stofnanir eða fyrirtæki. • Styrkfé á árinu 1988 skal einkum verja til verkefna á nýjum og álitlegum tæknisviðum. Sérstök áhersla skal lögð á: - efnistækni - fiskeldi - upplýsinga- og tölvutækni - líf- og lífefnatækni - nýtingu orku til nýrrar eða bættrar framleiðslu - matvælatækni - framleiðni- og gæðaaukandi tækni • Mat á verkefnum sem sótt er um styrk til skal byggt á: - líklegri gagnsemi verkefnis - gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróunar - atvinnugreina - möguleikum á hagnýtingu á niðurstöðum hér á landi - hæfni rannsóknarmanna/umsækjenda - líkindum á árangri • Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefhi sem svo háttar um að: - samvinna stofnana eða fyrirtækja og stofnana er mikilvægur þáttur í framkvæmd verkefnisins - fyrirtæki leggja umtalsverða fjármuni af mörkum - líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri til hagnýtingar í atvinnulrfi. Þó er einnig heimilt að styrkja verkefni sem miða að langframa uppbyggingu á fæmi á tilteknum sviðum. Eftirlit með lækna- reikningnm — réttmæt læknaJaun Ný lexía um þróun heilbrigðiskerfisins eftir Hörð Bergmann Þegar þetta er skrifað lítur út fyrir að fróðlegar fréttir og umræð- ur í sjónvarpinu síðustu vikur um nokkur grundvallaratriði í rekstri heilbrigðiskerfisins ætli að verða heldur endasleppar eins og oft ger- ist í íslenskri þjóðmálaumræðu. Ég á hér við frásagnir af átökum um rétt og möguleika Tryggingastofn- unar til að kanna hvað er á bak við reikninga hjá læknum og pæl- ingar um hversu miklir íjármunir væru þar í húfi. Ég tel mörg fróð- leg vandamál og sjónarmið í þessu máli órædd og ætla að reifa nokkur þeirra í þessari grein. Þeim sem fylgdust með umfjöll- uninni í sjónvarpinu varð a.m.k. eftirfarandi ljóst: 1. Einhveijir læknar hafa á liðnu ári sent Tryggingastofnun reikninga fyrir verk sem þeir unnu ekki. 2. Landlæknir og yfirlæknir Heilsugæslustöðvarinnar í Árbæ eru á móti því að fulltrúar Tryggingastofnunarinnar fái að kanna hvað er á bak við ein- hveija reikninga sem þaðan hafa borist til stofnunarinnar með þeim hætti sem hún vill gera það. Þeir skírskota til lagaá- kvæða um þagnarskyldu lækna. 3. Ríkisendurskoðandi sagði í sjón- varpsviðtali 17.1. að laun sér- fræðinga í hópi lækna væru á bilinu 300/400 þúsund á mánuði og upp í 900 þúsund krónur. Daginn eftir sagði yfirlæknirinn í Arbæ að heimilis- og heilsu- gæslulæknar hefðu mun minna. Þann 20.1. sagði Hallur Halls- son, fréttamaður, svo frá ítar- legri úttekt sinni á þessari hlið málsins þar sem fram kom m.a. að níu af hveijum tíu sérfræð- ingum væru í föstum stöðum hjá ríkinu. Reikningar þeirra fyrir önnur verk, unnin á einkastofu sinni, hefðu á síðasta ári numið rúmlega 165.000,- krónum að meðaltali á mánuði. Fréttamað- urinn minnti í lokin á fríðindi lækna en gerði ekki sérstaka jrrein fyrir þeim. I framhaldi af þessu virðist mér brýnast að taka tvennt til umræðu: Hvemig hægt er að bæta eftirlit Tryggingastofnunar og hvemig' hægt er að færa samninga stofnun- arinnar nær því að þjóna hagsmun- um almennings. Þetta þarf að taka til rækilegrar athugunar vegna þess að auðlindir samfélagsins eru tak- markaðar og þess er ekki að vænta að pólitískur meirihluti verði fyrir því meðal þjóðarinnar og jafnframt á Alþingi að veita meira fé til heil- . brigðisþjónustunnar en nú er gert. Sé málið skoðað í þessu samhetígi er ljóst að eftir því sem ein starfs- stétt í kerfinu fær meira fá hinar minna. Einnig er ljóst að eftir því sem meira er greitt af fölsuðum reikningum þeim mun minna er eftir til að glíma við hin raunveru- legu heilbrigðisvandamál. En raunar vekur þetta mál upp afar margar spumingar um áherslur og æskilegar breytingar. Dregið í happ- drætti KSH DREGIÐ var {happdrætti Kristi- legrar skólahreyfingar 25. janúar sl. Dregið var í þúsund miða happ- drætti KSH hjá yfirborgardómara og kom vinningurinn, Daihatsu Cuore bifreið, á miða nr. 893. Vinningsnúmerið er birt án ábyrgðar. Eftirlitið Við vitum að eftirlit opinberra stofnana og starfsmanna þeirra með því að farið sé að lögum og hagsmuna heildarinnar gætt verður eðli máisins samkvæmt alltaf veikt. Eigi að gera það sterkt verður það svo dýrt að vafi fer að leika á því hvort það getur talist þjóðhagslega hagkvæmt. Almennt aðhald og innra eftirlit, eða það sem einfald- lega er kallað gott siðferði eða ábyrgðartilfinning, er æskilegast. Séu í gildi lagaákvæði sem hindra það litla eftirlit sem Trj'gginga- stofnun getur haft á hendi með því að reikningar frá læknum séu rétt- ir ber að afnema þau hið fyrsta. Ég sé enga ástæðu til þess að lækn- irinn, sem skráir sjúkraskýrslu, hafi einn rétt til að sjá hana. Alla vega býst ég ekki við að margir hafi eitthvað við það að athuga að fulltrúar Tiyggingastofnunar komi þar nálægt með þeim hætti sem þurfa þykir þegar þeir eru að reyna að gegna skyldum sínum. Raunar er það svo að þetta eftir- lit hefur að líkindum afar lítil áhrif á markvissa nýtingu fjármagns í heilbrigðiskerfínu. Hún er meira háð siðferðisstyrk og ábyrgðartil- finningu læknastéttarinnar. A hana verður að treysta þótt mörgum finn- ist oft vera nokkur asi á sérfræðingi sem þeir neyðast til að fara til. Alltaf fækki mínútunum sem þeir. fá fyrir hvem 500 kall frá sjálfum sér og mun hærri upphæð sem Tryggingastofnun greiðir á móti í flestum tilvikum. En þetta er nú bara persónuleg reynsla sem ekki hefur verið sett í ramma fræðilegr- ar könnunar enda virðist sem fyrr segir ekki auðvelt fyrir alla að gera athuganir á því sem enn leyfist að kalla viðkvæm mál innan heilbrigði- skerfisins. Hér er því miður ekki tóm til að ræða kerfisbreytingar, sem gætu skilað almenningi betri nýtingu fjármunanna sem hann leggur til heilbrigðiskerfisins. Hér á ég t.d. við að afnema einkarétt lækna til að vinna ýmis einföld verk sem hjúkrunarfræðingar gætu annast og fara með hefðbundnar þulur yfir fólki sem kemur í blóðþrýstings- rannsókn og því um líkt. Ódýrari leið getur verið jafngóð. Svo litið sé í aðra átt innan kerf- isins er auðvitað afar brýnt að fara að lækka núgildandi heimild lyfsala til 68% smásöluálagningar. Þetta er fráleit og úrelt heimild í verslun með jafn hraða og örugga umsetn- ingu og er í apótekum. Vonandi fær Jón Baldvin bráðum tíma til að framkvæma slíkan spamað á einum stærsta útgjaidaliðnum hjá sér og létta um ieið þungum byrðum af alþýðu. Mér skilst að Guðmundur Bjamason, heilbrigðisráðherra, hafí iíka áhuga á að láta peningana hjá ráðuneyti sínu koma að sem mestu gagni. Eina breytingu er hægt að fram- kvæma þegar í stað. Heilbrigðis- ráðuneytið gæti nú þegar gert óheimilt að láta sjúklinga undirrita óútfyllta reikninga eins og tíðkast hjá sérfræðingum og þar sem sjúkl- ingar fara í rannsóknir. Er kannski enginn áhugi á því að auka kostnað- arvitund þeirra sem nota kerfið? Snúum okkur næst að því að at- huga hvemig samninganefnd Tryggingastofnunar hefur bmgðist í því hlutverki að gæta hagsmuna heildarinnar síðast þegar hún var að semja um taxta fyrir sérfræð- ingaverk. Það mál skýrist þegar litið er á upplýsingamar sem ég rakti í upphafi. Laun og fjármagnsnýting Við skulum alveg gleyma reikn- ingum fyrir sérfræðiverk upp á 900

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.