Morgunblaðið - 28.01.1988, Síða 24

Morgunblaðið - 28.01.1988, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988 Neytendasamtökin: Birta heildsöluverð á eggjum og kjúklingum Innflutningnr verði leyfður, ef framleiðslustj órnun verður ekki afnumin Neytendsamtökin hafa lýst reg-lugerð landbúnaðarráðherra um endurgreiðslu á sérstöku fóð- urgjaldi vegna afurða alifugla og svína, ólöglega. Segja þau fram- leiðslustjórnun leiða til óeðlilegr- ar hækkunar á eggjum og kjúklingum. Munu þau birta það sem þau telja eðlilegt verð á þess- um vörum og hvetja jafnframt kaupmenn til að kaupa ekki egg og kjúklinga á því verði sem nú er. Verði framleiðslustjórnunin ekki aflögð krefjast þau þess að innflutningur á umræddum vör- um verði leyfður. Þá taka samtökin undir þau tilmæli Verð- lagsstofnunar að bakarar lækki þegar verð á brauði. Einnig segja þau að með þvi að veita samtökun- um einungis 15% hækkun á fjárframlögum, lami stjórnvöld neytendastarf i landinu um leið og aðgerðir þeirra krefjist virk- ara neytendastarfs en nokkru sinni. „Landbúnaðarráðherra lofaði árið 1986 að koma ekki framleiðslu- stjómun á og því eru vinnubrögð hans nú hrein vanvirðing við aðila vinnumarkaðarins," sagði Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda- samtakanna á fundi sem samtökin efndu til .í gær. Sagði hann að með þessari reglu- gerð væri í raun og veru búið að koma á kvótakerfi. Með því að end- urgreiða 75/80 af sérstöku fóður- gjaldi til eggja- og kjúklingafram- leiðanda, sé nýjum aðilum gert ókleift að hefla framleiðslu. Þeir fái ekki endurgreiðslu fóðurgjalds og þannig sé komið í veg fyrir eðlilega endumýjun í greinunum. Þá sé for- senda frjálsrar verðlagningar á umræddum vörum í heildsöíu úr sög- unni með þessum aðgerðum. Hefði landbúnaðarráðherra átt að sjá til þess að verðlagning þessara afurða væri ákvörðuð af verðlagsnefnd bú- vara jafnhliða setningu reglugerðar- innar. Reglugerðin geri svínabændum einnig kleift að grípa til svipaðra aðgerða og í kjölfarið gætu fylgt fleiri framleiðendur. Til að beijast gegn þessu hafa Neytendasamtökin kannað hvað sé sanngjamt heildsöluverð á eggjum og kjúklingum. Er niðurstaðan sú að heildsöluverð eggja eigi að vera 123 krónur í stað 160 og verð á kjúklingum ekki hærra en 162 kr. í 325 kr. Jónas Bjamason formaður land- búnaðamefndar Neytendasamta- kanna sagði þau hafa rætt við einstaka kaupmenn og hefðu þeir lýst yfír stuðningi við þessar aðgerð- ir. Neytendasamtökin væntu kröft- ugs stuðnings kaupmanna og launþegasamtaka. Morgunblaðið/Bjami Formaður Neytendasamtakanna, Jóhannes Gunnarsson og Jónas Bjarnason, formaður landbúnaðarnefndar samtakanna, skýra frá aðgerðum Neytendasamtakanna verði framleiðslustjómun á afurðum alifugla og svina ekki afnumin. Verslunardeild SÍ S verður endurskipulögð Ólafur Friðriksson ráðinn framkvæmdastjóri ÓLAFUR Friðriksson kaupfé- lagsstjóri á Sauðárkróki hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ríkissjónvarp: Borgaraflokkur hunzaður - segir Albert Guðmundsson ALBERT Guðmundsson formaður Borgaraflokksins hefur sent út- varpsstjóra Ríkisútvarpsins bréf þar sem fréttastofa sjónvarps er gagnrýnd fyrir að „hunza Borg- araflokkinn og reyna að halda honum frá allri opinberri umræðu um þjóðmál á vegum sjónvarps- ins.“ Er umræðuþáttur um skatta- og kjaramál sem haldinn var í Múlakaffi á þriðjudagskvöld og sendur út beint nefndur sem dæmi um þetta. Á þessum fundi sátu fyrir svörum tveir fulltrúar stjómarflokkanna og tveir frá stjómarandstöðunni, og vora þeir síðastnefndu frá Alþýðu- bandalagi og Kvennalista. „Hér er um augljósa mismunun að ræða, þar sem Borgaraflokkurinn er annar stærsti stjómarandstöðuflokkurinn á þingi. Þar fyrir utan hefur flokkurinn sett fram athyglisverðar hugmyndir í söluskattsmálum, sem hefði verið eðlilegt að fá ræddar," segir í bréfí Borgaraflokksins til Markúsar Amar Antonssonar útvarpsstjóra. „Fyrir hönd Borgaraflokksins mótmæli ég þessari vísvitandi tilraun til þess að gera Borgaraflokknum og málstað hans lágt undir höfði og þannig reyna að hafa áhrif á frjálsa skoðanamyndum almennings. Þetta athæfi veikir mjög tiltrú manna á Ríkisútvarpinu og stöðu þess sem hlutlauss miðils allra landsmanna. Það er ef til vill skoðun forráða- manna Rfkisútvarpsins, að hlutverk þess sé aðallega að treysta stöðu rikisstjómarflokkanna og viðhalda ríkjandi stjómmálaskipan í landinu. Ef svo er háttað málum, er tíma- bært að taka innheimtu afhotagjalda Ríkisútvarpsins af öllum landsmönn- um til endurskoðunar. Eðlilegt hlýtur að teljast, að einungis þeir, sem Ríkisútvarpið telur hlutverk sitt að þjóna, greiði afnotagjald þess,“ segir ennfremur í bréfi formanns Borgara- flokksins. verslunardeildar SÍS frá og með 1. mars næstkomandi. Hann tek- ur við af Hjalta Pálssyni sem lét af störfum um áramót. Jafn- framt hefur stjórn SÍS ákveðið að hefjast þegar handa við end- urskipulagningu samvinnuversl- unarinnar í landinu samkvæmt tillögum sérstakst starfshóps sem starfað hefur að undirbún- ingi endurskipulagningunnar undanfarna mánuði. Stjóm SÍS leggur til að sam- bandsfélögin stoftii með sér sérs- takt hagsmunafélag, landssamtök um samstarf og samvinnu á sviði verslunar. f fréttatilkynningu segir að tilgangur félagsins verði að koma á skipulögðu samstarfí á sviði smásöluverslunar með það fyrir augum að samtakamáttur á lands- vísu verði nýttur sem grundvöllur fyrir samkeppnishæfa og arðbæra samvinnuverelun. Gerður verði samningur milli Sambandsins og þessa nýja hagsmunafélags um að endurekipulögð verelunardeild SÍS annist þá sameiginlegu þjónustu er smásöluverelun félaganna er nauð- synleg. Þá muni stjóm SÍS beita sér fyrir því að skipulag og verka- skipting innan Sambandsins verði með þeim hætti áð rekstur hennar og fyrmefnt samstarf megi sem best tryggja bætta samkeppnis- stöðu og árangur í verelunarrekstri sambandsfélaganna. Nýráðinn framkvæmdastjóri verelunardeildarinnar, Ólafur Frið- riksson, er 34 ára, fæddur á Kópaskeri 5. júní 1953. Hann lauk Samvinnuskólaprófí árið 1974 og var sama ár ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags Langnesinga á Þóre- höfn. Árið 1976 varð hann kaup- félagsstjóri hjá Kaupfélagi Norður-Þingeyinga á Kópaskerí og árið 1982 tók hann við starfí kaup- félagsstjóra Kaupfélags Skagfirð- inga á Sauðárkróki. Ólafur er kvæntur Freyju Tryggvadóttur og eiga þau tvö böm. Snorri Egilsson verður áfram aðstoðarframkvæmdastjóri verel- unardeildarinnar. Forsætisráðherra um Vestfjarðarsamningana: Mega ekkí verða almennt fordæmi Morgunbtaftið/Sverrir Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra, á fundi Óðins og Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins. ÞORSTEINN Pálsson, forsætis- ráðherra og formaður Sjálf- stæðisflokksins, mætti síðastlið- inn mánudag á fund hjá málfundafélaginu Óðni og Verkalýðsráði Sjálfstæðis- flokksins f Reykjavík. Forsætis- ráðherra ræddi á fundinum stöðu efnahags- og kjaramála. Taldi hann að ef fram færi sem horfði væri ástæða til bjartsýni, við værum ekki að ganga til móts við kollsteypu. Vissulega væru blikur á lofti en nýjustu tölur bentu til þess að ríkis- stjórnin væri að ná tökum á verðbólgunni. Þeir samningar sem gerðir hefðu verið á Vest- fjörðum mættu ekki ganga yfir alla linu. Það myndi blása á glæður verðbólgunnar. Forsætisráðherra sagði síðustu kosningar hafa verið áfall fyrir þjóðarbúið i heild sinni þar sem ekki hefði veríð hægt að mynda nema þriggja flokka ríkisstjóm að þeim loknum. Það hefði verið mat Sjálfstæðisflokksins að þegar i upphafí þyrfti að gera aðgerðir til að slá á þenslu i þjóðfélaginu. í september sl. hefðum svo kom- ið 'nýjar tölur er sýndu aðra og mun dekkri mynd en menn hefðu áður gert sér grein fyrir. Foreætis- ráðherra sagði að hann hefði ekki talið óhætt að fara inn í 1988 með halla á ríkissjóði og hefði hann því gert að tillögu sinni að fjárlaga- frumvarpið yrði tekið upp að nýju og því breytt þannig að jöfnuður næðist. Um þetta hefði verið fullt sam- komulag milli sljómarflokkanna ásamt samkomulagi um ráðstafan- ir í peningamálum til að halda uppi innlendum spamaði og skipulags- breytingum á tekjuöflunarkerfí rikisins. Foreætisráðherra sagði stjómar- andstöðuna stundum halda því fram að ríkisstjómin væri veik. Engin ríkisstjóm hefði þó náð fram jafn stórum málum á jafn skömm- um tíma og þessi ríkisstjóm. Veik ríkisstjóm gerði slíkt ekki. Næst vék ráðherrann að aðgerð- um ríkis8tjómarinnar og gagnrýndi menn fyrir rangtúlkun á áhrifum þeirra. Foreeti ASÍ hefði til að mynda borið saman hækkun lág- markslauna og matvæla og fengið þá niðurstöðu að matargjöld hefðu hækkað umfram lágmarkslaun. Foreætisráðherra sagði að jafnvel þótt miðað væri við lágmarkslaun væri niðurstaðan sú að þau, ásamt hækkun bamabóta ( staðgreiðslu- kerfinu, hefðu hækkað meira en matvælakostnaður. Það væri auð- velt að sýna fram á að hliðarráð- stafanimar hefðu gagnast. Eftir að hafa rekið þróun efna- hagsmála síðustu mánuði sagði forsætisráðherra að stjómvöld væra nú að ná tökum á verðbólg- unni. Þó að verðbólgutölur nú sýndu að einhver afturkippur hefði orðið þá sýndu dæmin að hægt væri að snúa slfkri þróun við. Þetta sæjist best á nýjustu vísitölu bygg- ingakostnaðar sem ekki bara hækkaði minna en venjulega heldur lækkaði núna. Ef fram færi sem horfði taldi foreætisráðherra ástæðu til bjart- sýni, við væram ekki að ganga til móts við kollsteypu niður á við. En ef við ætluðum okkur að ná niður verðbólgunni þyrftu aðrir að sýna þolinmæði svo hinir lægst- launuðu gætu fengið einhvetjar hækkanir. Við núverandi aðstæður myndu laun ekki hækka að meðal- tali. Þorsteinn sagði að honum skyldist að veralegur áhugi væri á þvf að leysa mál á þeim grund- velli. Samningamir á Vestflörðum mættu ekki verða almennt for- dæmi. Þetta væru samningar fyrir fískvinnslufólk og það myndi blása á glæður verðbólgunnar ef þeir færu yfír alla lfnuna. Lág laun værU þó f fleiri stéttum en f físk- vinnslunni og þyrfti einnig að gæta hagsmuna þess fólks.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.