Morgunblaðið - 28.01.1988, Side 25

Morgunblaðið - 28.01.1988, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988 25 Friðrik Sophusson: Sala veiðileyfa er lífs- nauðsyn fyrir iðnaðinn FRIÐRIK Sophusson, iðnaðarráðherra, segir að það sé bráð nauðsyn fyrir íslenskan útflutningsiðnað að starfsskilyrði sjávarútvegs og iðnaðar verði jðfnuð, þar sem sjávarútveginum hafi verið hyglað á kostnað nýsköpunar í iðnaði. Friðrik segir að besta ieiðin til þess að jafna aðstöðu þessara útflutningsgreina sé að selja veiðileyfi á miðunum umhverfis landið, og mikilvægt sé að taka sem fyrst á þvi máli. Það sé hins vegar alveg Ijóst að meirihluti þingflokks sjálfstæð- ismanna sé á móti slíku, og að alltof margir þingmenn séu bundnir nni of af hagsmunum sjávarútvegsins. Þetta kom fram á fundi Heim- dallar, FUS, um iðnaðarmál, sem haldinn var á veitingahúsinu Lækjarbrekku á mánudagskvöld. Friðrik sagði að gengi krónunnar hefði ævinlega verið skráð eftir hagsmunum sjávarútvegsins. Ef illa fískaðist eða verðfall yrði á mörkuð- um, væri reynt að lagfæra það með gengistilfærslum, og þá ætti iðnað- urinn meiri möguleika. „En um leið og vel gengur í sjávarútvegi er iðn- aðurinn drepinn niður," sagði Friðrik. „Ég er sannfærður um að ef við tökum ekki á sveiflunum í sjávarút- vegi, þá eigum við enga möguleika í iðnaði," sagði iðnaðarráðherra. „Það er skylda allra hugsandi manna að reyna að jafna starfsskil- yrði sjávarútvegs og iðnaðar, og til þess að minnka sveiflumar í sjávar- útvegi er besta leiðin að selja veiðilejrfi. Sjávarútvegurinn þarf ekki að borga krónu fyrir hráefnið úr sjónum, en það er eign íslensku þjóðarinnar, sem hægt væri að selja. Við erum í raun að styrkja sterkustu útflutningsgreinina, en tökum gjald af hinni, þar sem ný- græðlingamir em, og þetta er ömggasta ráðið til þess að standa í stað. Sem dæmi má nefna að iðn- aðurinn þarf að standa undir helmingi af rekstrarkostnaði Iðn- tæknistofnunar, en Hafrannsókna- stofíiun fær nánast ekkert frá sjávarútveginum." Iðnaðarráðherra sagði að það yrði ljósara með hveijum deginum að það gæti ekki gengið. að gefa veiðileyfí með þeim hætti, sem gert hefði verið. „Þingmenn' Sjálfstæðis- flokksins mega hins vegar sumir hveijir ekki heyra á það minnst að selja fiskinn í sjónum," sagði Frið- rik, „en þetta em sömu menn og fara í laxveiði og kaupa þar veiði- leyfi eins og ekkert sé. Það em úrelt byggða- og afturhaldssjónar- mið að halda uppteknum hætti." Staðgreiðslukerfi skatta: Mikið spurt vegna fyr- irfram reiknaðra launa ÞEGAR staðgreiðslukerfi skatta var tekið upp um síðustu áramót voru settar reglur um að þeir sem hafa með höndum atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi áætli sér fyrirfram reiknað endurgjald, þ.e. reiknuð laun, af starfseminni og sendi skattstjóra. Áður var endurgjaldið ákvarðað eftir á. Ríkisskattstjóri sendi áðumefnd- um framteljendum skýringar og viðmiðunarreglur varðandi áætlað endurgjald ásamt eyðublaði. Á eyðublaðið var prentað nafn við- komandi og hvað hann var með í reiknuð laun árið 1987 vegna ársins 1986. Garðar Valdimarsson ríkisskatt- stjóri sagði í samtali við Morgun- blaðið að útfrá þessum gögnum væri einfalt að fylla út hver áætluð laun væm fyrir árið 1988. Síðan ætti að skila eyðublaðinu til skatt- stjóra, jafnvel þó framteljandinn hafi ekki verið með sjálfstæðan at- vinnurekstur á árinu. Ætti þá að gera grein fyrir að starfseminni væri hætt með því að merkja í við- komandi reit á eyðublaðinu. Skilafrestur á eyðublöðunum rann út á mánudag. Skattstjóri fer sfðan yfir þau og athugar hvort það er útfyllt í samræmi við viðmiðunar- reglumar. Ef svo er reiknar viðkom- andi skattinn út miðað við viðmiðunarlaunin og greiðir hann mánaðarlega. Garðar Valdimarsson sagði að þrátt fyrir að þessar reglur hefðu legið fyrir frá upphafí og verið rækilega kynntar hafi mikið verið spurst fyrir um þær. M/s Skaftafell. Skaftafell selt til Hong Kong SKAFTAFELL, frystiskip skipa- deildar Sambandsins, hefur verið selt til Hong Kong. Skipið hefur verið afhent nýjum eigendum og fer frá Reykjavík einhvem næstu daga. Það hefur hlotið nafnið Shun Sang no 8 og siglir undir Panama-fána. Verkefni þess verður að flytja freðfisk frá Suðaustur Asíu til Jap- an. Skaftafell, sem hefur 1.740 tonna burðargetu, var byggt í Vest- ur-Þýskalandi og afhent skipadeild SÍS í september 1971. Það var sér- hannað til þess tíma freðfískflutn- inga og annaðst lengst af þá flutninga til Bandaríkjanna. Sala fiskafurða SH jókst um 7% 94% aukning á sölu til Japan á síðasta ári Útflutningur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á síðasta ári nam 10,5 milljörðum króna, sem er 7% aukning frá fyrra ári. Sam- tals flutti SH um 92.000 tonn utan þá, en það er um 1% minna en árið áður. í dollurum talið varð verðmætið samtals 278 milljónir á móti 240 árið áður. Aukning í dollurum er því 16%. Framleiðsla í fyrra varð 95.497 tonn á móti 82.121 árið áður og er aukningin því 16,3%. Árið í fyrra varð því þriðja.mesta framíeiðsluár SH. Áðeins árin 1979 og 1980 var framleitt meira. Nokkur breyting varð á útflutningi milli markaðs- svæða, sem meðal annars réðst af gengisþróun. Sala til Bandaríkjanna dróst saman um 5.000 tonn eða 14%, á sölusvæði skrifstofu SH í Grimsby varð samdráttur 2.100 tonn eða 9,7%, á sölusvæði skrifstofunnar í Hamborg varð aukning um 550 tonn eða 5,5%, sala til Rússlands dróst saman um 4.800 tonn eða 38% og sala til Japan jókst um 11.000 tonn eða 94%. í fyrra fóru 31.100 tonn til Banda- ríkjanna, sem var 33,8% heildarinnar í magni talið en 47,2% í verðmætum. Tæplega flórðungur útflutningsins fór til Japan og var það um 15% af heildar verðmætum. Bretlandseyjar eru í þriðja sæti með 13,2% verðmæt- anna. Önnur helztu viðskiptalöndin voru Rússland, Frakkland, Vestur- Þýzkaland og Danmörk. & zjógúrt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.