Morgunblaðið - 28.01.1988, Page 31

Morgunblaðið - 28.01.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988 31 iðí giuium Forsetaefni og kjörmannaefni. Harri Holkeri forsetaefni finnskra hægri manna hefur eins og keppinautar hans orðið að kalla til liðs við sig fjölda af alþekktum mönnum úr þjóðlífinu. Meðal þeirra sem hyggjast verða kjörmenn Hol- keris er Lasse Virén hlaupari og margfaldur sigurvegari á Ólympíuleikunum fyrr á árum. menn Holkeris höfum ekki einu sinni íhugað hverjum við ættum að greiða atkvæði við þær aðstæður. Við teljum víst að það verði Koiv- isto og Holkeri sem standi eftir í lokasennunni. og þá er spuming um að safna kjörmönnum annarra flokka bak við þessa tvo," segir Kajaste og bætir við að allt geti geret á kjörmannafundi. Á árinu 1982 er Koivisto var kosinn fyrst gengu alþýðubanda- lagsmenn beint til stuðnings við Koivisto, en það nægði honum til þess að fá meirihluta. Að mati Kajaste eru línur ekki jafn skýrar í ár. Það em engir aðrir en kjör- menn Koivistos sem hafa lýst yfir stuðningi við hann hingað til. Mark- mið hægri manna nú er að koma Holkeri í annað sæti og reyna svo að sannfæra hina flokkana um að kjósa hann en'ekki Koivisto. En það eru ekki bara hægri menn sem hafa slíka áætlun. Stærsti stjórnarandstöðuflokkur- inn, Miðflokkurinn, býður fram formann sinn, Paavo Váyrynen, fyrrum utanríkisráðherra. Váyryn- en er næstum jafn vinsæll og Holkeri, og hann hefur reynt að sýna að í raun sé enginn munur á Koivisto og Holkeri. Aðalstjómar- flokkamir styðja annaðhvort Koi- visto eða Holkeri, jafnaðarmenn styðja forsetann og hægri menn forsætisráðherrann. Ef það yrði Váyrynen sem stæði á móti Koiv- isto þegar lokaslagurinn hefst, þá er viðkvæm spuming hvort hægri menn eigi frekar að styðja vinstri menn — Koivisto — sem mun tryggja áfram stjómarþátttöku Hægri flokksins eða V ayrynen sem vill beijast fyrir borgaralegum sjón- armiðum en hefur ekki gefið neinar yfirlýsingar um ömgga stjómar- þátttöku Hægri flokksins. Kimmo Kajaste getur ekki neitað því, að kjörmenn Hægri flokksins kynnu að styðja Koivisto ef til átaka kæmi milli hans og Váyrynens. En hann lýsir þó ekki stuðningi við Koivisto sem hefur margsinnis lýst því yfir að honum finnist ekki þörf á lausnarbeiðni ríkisstjómarinnar að kosningum loknum. Það þýðir hinsvegar að hægri menn halda í forsætisráðherraembættið ef þeir fá ekki forsetaembættið. Og saga Finnlands sýnir að mestar líkur séu á því að forsætisráðherrann verði kosinn forseti, þegar um forseta- skipti er að ræða. Sem dæmi má nefna þá Kekkonen fyrmrn forseta og Koivisto. Kimmo Kajaste bætir enn við, að ríkisstjómin sé ömgg í sessi hvort heldur Koivisto eða Holkeri verði kjörinn. Það sem getur ráðið úrslitum á kjörmannafundi er afstaða kjör- manna hinna tveggja vinstri for- setaefna. Moskvutrúir kommúnist- ar og alþýðubandalagsmenn bjóða fram hvor sinn mann. Engum finnst líklegt að um þá verði tekist á í lokasennunni, en þeirra kjörmenn geta veitt Koivisto eða ef tii vill Váyrynen nokkur atkvæði — þeirra stuðningur er innan við 20% sam- tals og getur ráðið úrslitum. Harrí Holkeri forsætisráðherra og frú Liisa Holkeri heilsa stuðnings- mönnum á framboðsfundi í Borgá. Aldrei fyrr hefur verið jafn fjölmennt á framboðsfundum og f ár. Frá aðalfundi Félags íslenskra stórkaupmanna á Holiday Inn. Morgunbiaðið/Svemr Aðalfundur FÍS: Stofnuð verði Bannsókn- arstofnun verslunarinnar AÐALFUNDUR Félags íslenskra stórkaupmanna var haldinn á Holiday Inn sfðastliðinn mánu- dag. Ekki urðu neinar breytingar á sljórn félagsins en Haraldur Haraldsson var á sfðasta aðal- fundi kosinn formaður til tveggja ára. Meðal ályktana sem samþykktar voru á fundinum má nefna ályktun um undirbún- ingskönnun á stofnun sérstakrar Rannsóknarstofnunar verslunar- innar. Rannsóknarstofnun þessi myndi sinna ýmsum rannsóknar- verkefnum en einnig sinna vísindalegum verðkönnunum bæði innanlands og utan. í ályktun aðalfundar FÍS er með- al annars vikið að peninga og verðlagsmálum. Þar segir m.a. að nauðsynlegt sé að festa í lög að verðmyndun verði undantekningar- laust ftjáls. Verðbólga og háir vextir hafi áhrif til hækkunar vöru- verðs. Vextir af rekstrarfé verslun- arinnar séu nú um 50% á ári og því stór kostnaðarliður í rekstri verslunarfyrirtækj a. Annað stórt hagsmunamál neyt- enda til lækkunar vöruverðs, sé að lög um afnám bankastimplunar nái fram að ganga og að vilji Alþingis í þeim efnum verði virtur. Lækkun fjármagnskostnaðar sem af þessu hlytist myndi lækka vöruverð til neytenda. Fundurinn bendir einnig á að stórhækkaðar gjaldskrár opinberra fyrirtækja, m.a. Pósts og síma, hafí áhrif til hækkunar rekstar- kostnaðar. Eru því opinber fyrir- tæki hvatt til hófs í hækkunum á þjónustu sinni. Í kaflanum um tollamál segir að útflutningstekna íslendinga sé að mestu aflað í dollurum en ráðstafað í innflutning á vörum og þjónustu frá löndum með mun dýrari gjald- miðil. Þessu mætti breyta og um leið minnka viðskiptahallann með lækkun tolltaxta á innflutning frá löndum utan EFTA og EB. Aðalfundurinn harmar að áætlun ijármálaráðuneytisins um afnám aðflutningsgjalda á fersku og frystu grænmeti hafi ekki náð fram að ganga við umfjöllun Alþingis um breytingar á tollalögum. Einnig mótmælir félagið harðlega túlkun yfirvalda og misnotkun valds við skilgreiningu á iðnaðarvöru og landbúnaðarvöru. Gott dæmi væri úrskurður landbúnaðarráðherra að fryst grænmeti teldist nýtt og ferskt, þrátt fyrir að geymsluþol frystra matvæla væri á bilinu 12-18 mánuðir. Augljóst væri að frosin og unnin matvæli væru iðnaðarvara og því ekki innan verksviðs land- búnaðarráðuneytisins. Aðalfundur FÍS samþykkti einn- ig áskorun til ú'ármálaráðherra um að leggja nú þegar fram á Alþingi breytingu á lögum um söluskatt þannig að gjalddagi söluskatts verði 20 dögum eftir uppgjör söluskatts- mánaðar og að eindagi verði 3. hvers mánaðar þar í frá. Lög þessi myndu væntanlega brúa bilið til þess tíma er virðis- aukaskattur yrði tekinn upp á íslandi og myndi auðvelda greið- endum skil á réttum tíma. Nægði að benda á að í sumum greinum verslunar væri um eða yfir 50% allrar vöru gTeidd með greiðslukort- um. Einnig voru samþykktar tillögur um að skipa þriggja menn nefnd til að skoða möguleikann á hugsan- legu útboði félagsmanna á flutn- ingsgjöldum á helstu hafnir Evrópu í ljósi síhækkandi flutningskostnað- ar og góðs árangur ÁTVR af slíku útboði, og um að í samstarfi og samráði við öll hagsmunasamtök í verslun svo og hið opinbera verði hafín undirbúningskönnun á stofn- un sérstakrar rannsóknarstofnunar verslunarinnar. Rannsóknarstofnun þessi skyldi sinna ýmsum rannsókn- arverkefnum s.s. um myndun verðs á vöru og þjónustu. Rannsaka áhrif gengisbreytinga, flutningskostnað- ar, vaxta, verðs opinberrar þjón- ustu, stjómvaldsaðgerða o.fl. á kostnað og verð verslunarfyrir-> tækja. Samhliða þess háttar rannsóknarverkefnum myndi stofn- unin sinna vísindalegum verðkönn- unum bæði innanlands og utan. Reykjavík: Um 208 milljónir til um- hverfis- og útivistarmála í FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykja- víkurborgar fyrir árið 1988 er gert ráð fyrir um 113 miiyónum króna til umhverfis- og útivistar- mála sem er þriðjungs hækkun frá áætlun siðasta árs. Auk þess er veitt 95 milþ’ónum króna til garðyrkjudeildar borgarinnar. „Við emm að reyna að taka á í útivistarmálum á þessu kjörtímabili og hyggjumst setja þau á oddinn," sagði Davíð Oddsson borgarstjóri. Gert er ráð fyrir að 25,3 millj. verði varið til nýrra leikvalla og endur- bóta á eldri völlum. Til leikvallarins við Hringbraut er veitt 1,4 millj., sem verður varið til að ljúka við endumýjun á vellinum. Til hverfis- vallar við Geithamra í Grafarvogi er veitt 3 millj., til leikvallar við Hamraberg í Grafarvogi verður veitt um 850.000 krónum og til leiksvæðis við Reykjafold verður varið 1,4 millj. Til leikvallar við Þingás í Árbæj- arhverfi verður varið 1,5 millj. og 1 millj. til leiksvæðisins við Klappar- ás. Til endurbyggingar á leiksvæði við Ásenda verður varið 2 millj. og til leikvallar við Birtingakvísl 1 millj. „Þá má nefna sérstak átak sem efnt var til í tilefni 200 ára af- mælis borgarinnar árið 1986, að endumýja leiktæki á leikvöllunum. í fyrra var varið 6 milljónum tii þessa liðar en nú er veitt 7,5 milljón- um til nýrra leiktækja," sagði Davíð. Hafist verður handa við nýj- an leikvöll við Skeljagranda og veitt til þess 2 millj. og við Sílakvísl verð- ur einnig gerður leikvöllur og til hans veitt 1,8 millj. „Gert er ráð fyrir um 37 milljón- um til ýmissa ræktunarverkefna og má nefna að 2 milljónum verður varið,til ræktunar miðsvæðis í Sel- ásnum þar sem hafíst var handa á síðasta sumri," sagði Davíð. Til gróðrarstöðvarinnar í Laugardal verður varið 1,5 millj., til endurbóta á Amarhól 4 millj. og til frágangs á tjamarbakkanum við Fríkirkjuveg 2,5 millj. „Unnið verður áfram að áætlun um að fullgera útivistarsvæðið í Laugardal en það er eitt af kosn- ingaloforðunum og verður varið 30 milljónum til þess á árinu," sagði Davíð. Til tjaldsvæðisins í Laugar- dal verður veitt 20 millj. Þar verður— komið upp nýrri bækistöð með þvottaaðstöðu, sem væntanlega verður tilbúin í sumar. Til garðyrkjudeildar borgarinnar verður varið 95 millj. og er áætlað að 50 millj. þar af fari í rekstur deildaririnar. Til skrúðgarða verður veitt 36 millj., 7 millj. til Grasa- garðsins í Laugardal og 2 millj. til almenningsgaðsins í Laugardal.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.