Morgunblaðið - 28.01.1988, Page 35

Morgunblaðið - 28.01.1988, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988 Könnun á lestri tímarita: Fundarmenn voru hvattir til þátttöku í nefndarstarfinu — segir Vilhjálmur Egilsson MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi athugasemd frá Vil- hjálmi Egilssyni framkvæmda- stjóra VÍ vegna ummæla Herdísar Þorgeirsdóttur i Morgunmblað- inu í gær um lesendakönnun Verzlunarráðsins: „Herdís fullyrðir að ekki hafi ver- ið óskað eftir þátttakendum í starfs- nefnd. í frásögn Morgunblaðsins, hinn 5. júní 1987, af fundi sem haldinn var 4. júní segir svo í inngangi: „Ákveðið hefur verið að kalla saman starfsnefnd til þess að und- irbúa lesendakannanir hjá blöðum og tímaritum, sem framkvæmdar verði samhliða upplagseftirliti Versl- unarráðs íslands. Vilhjálmur Egils- son, framkvæmdastjóri þess, kynnti þessa ákvörðun á morgunfundi Verslunarráðsins í gær þar sem rætt var um auglýsingar og dreif- ingu fjölmiðla." I niðurlagi frásagnarinnar segir svo: „í lok fundarins gat Vilhjálmur Egilsson þess að næsta skrefið hjá VI væri að væri að kalla saman starfsnefnd til þess að fara í þetta mál og kanna hvemig framkvæmd verði á lesendakönnun og væri við það miðað að nefndin skilaði niður- stöðum í sumar. Hvatti hann viðstadda til þess að taka þátt í þessu nefndarstarfi." (Leturbr. VE.) Nokkrir aðilar gáfu sig fram til þess að starfa í nefndinni og var orðið við flestum þeim óskum. Herdís Þorgeirsdóttir bar ekki fram neina ósk um að taka þátt í nefndarstarf- inu. Herdísi Þorgeirsdóttur var ekki sent sérstakt boðsbréf um þátttöku frekar en öðrum útgefendum. Starf nefndarinnar var aldrei leyndarmál og heldur ekki hveijir sátu í henni en við val á nefndar- mönnum var reynt að gæta jafnræð- is milli þriggja aðila, útgefenda, auglýsenda og auglýsendastofa. Lesendakönnun, sem er jafn viða- mikil og sú sem Verslunarráðið gekkst fýrir, kostar peninga. Þess vegna var ekki raunhæft fjárhags- lega að gera könnunina nema að góð samstaða væri um þau efnisat- riði sem kanna ætti milli allra hagsmunaaðila. Hönnun könnunar- innar og spumingamar sjálfar komu frá Félagsvísindastofnun og vom algjörlega byggðar á faglegum sjón- armiðum. Herdís Þorgeirsdóttir kom með nokkrar ábendingar um efnisatriði sem henni þóttu gagnleg og vom sjónarmið hennar kynnt og rædd. Herdís leitaðist því við að hafa áhrif á störf nefndarinnar þótt hún sæti ekki í henni. Sú ákvörðun var tekin í nefndinni eftir að búið var að setja upp spum- ingamar, að tímasetningin skyldi vera í höndum Félagsvísindastofn- unar Háskóla íslands í samráði við framkvæmdastjóra VÍ. Eftir að þessi ákvörðun var tekin sendi Verslunar- ráðið útgefendum, auglýsingastof- um og auglýsendum bréf þar sem þeim var boðin þátttaka eða áskrift að könnuninni. I bréfinu kom fram að könnunin væri fyrirhuguð „á næstunni" án frekari tímaskilgrein- inga. Allir aðilar höfðu því jafn litla vitneskju um tímasetningu. Félagsvísindastofnun tók síðan end- anlega ákvörðun um dagsetningu. Gagnrýni Herdísar er því byggð á rangfærslum og því vægast sagt léttvæg." Morgunblaðið/Sverrir Brot úr sýningu Nemendafélags Verslunarskólans á söngleiknum „Hot Night“ á Hótel íslandi. 35 V erslunarskólinn: „Heit nótt“ á nemenda- mótinu Nemendamót Verslunarskóla íslands verður haldið í dag, fimmtudag, kl. 14 á Hótel ís- landi. Sýndur verður söngleikur- inn „Hot Night“- Heit nótt, leikstjóri er Kolbrún Halldórs- dóttir. Onnur sýning verður laugardaginn 30. janúar, einnig kl. 14. „Hot Night" er byggður á söng- leiknum „Farne" - A framabraut, sem sýndur var í kvikmyndahúsum fyrir nokkrum árum og hefur einn- ig verið uppistaða framhaldsþátta í sjónvarpi með sama nafni. Nemendamótsnefnd hefur einnig látið gera myndband með lagi úr söngleiknum og verður það frum- sýnt í „íslenska listanum" á Stöð 2 á laugardag. Lagið heitir „Is It Okay If I Call You Mine?“ og er sungið af Hafsteini Hafsteinssyni. Höfundar myndbandsins eru Rafn Rafnsson frá Saga Film, Rúnar Hreinsson frá Hinu íslenska Kvik- myndafélagi og Júlíus Kemp frá Verslunarskólanum. ISLENSKA OPERAN Frumsýning 19. febrúar 1988 DON GIOVANNI eftir WOLFGANG AMADEUS MOZART Hljómsveitarstjóri ANTHONY HOSE Leikstjóri ÞÓRHILDUR ÞORLEIFSDÓTTIR Leikmynd og búningar UNA COLLINS Miðasala hefst 29. janúar. Opið frá kl. 1500 - 1900. Simi 11475 nim jiniJiíi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.