Morgunblaðið - 28.01.1988, Page 40

Morgunblaðið - 28.01.1988, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988 Centaur Ljósmynd/BS Það ar að bera f bakkafullan lœklnn að fara að segja frá gengl Sykurmolanna ytra en enn skal kveðið. í sífiustu viku kom út ytra lag- ið Cold Sweat á tólftommu, sem tónleikagestir þekkja sem Heitt kjöt og hvert hefur verið fáanleg hérlendis frá því í haust. Cold Sweat seldist í 20.000 eintökum fyrstu dagana eftir að lagið kom út og líklegast á þaö eftir að fara beint í annað sætið á sjálfstæðu listunum á Bretlandi, en Birthday situr kyrfilega í því fyrsta. Undirtektir Cold Sweat ráðast liklega að hluta til af hve hljóm- MNUAtrtixi WrMUir M 5 LU l/ Y * i ■■ READERS POLL THE NATION DECIDES m SST THE HOME OF HARDCORE HOWARD DEVOTO ALEX CHILTON M % THESTUPIDS-INXS LEONARD COHEN BUTTHOLE SURFERS WIN GAYE BYKERS VIDEOS t LiVE! SIMPLE MINDS SiNEADO'CONNOR MARCAIMOND • NEW YEAR'S REVOLUTION • IMokkur orð um Sykurmola sveitin náði góðum árangri í vinsældakönnun Melody Maker og annarra tónlistarblaða. í Mel- ody Maker 2. janúar sl. er mynd af Björk á forsíðu og inni í blaö- inu er lögð opna undir Sykurmol- ana, enda var hljómsveitin kosin efnilegasta hljómsveit ársins, Birthday næstbesta lagiö og Björk þriðja besta söngkonan. í þessu sama blaði er einnig frá- sögn af tónleikum hljómsveitar- innar í Lundúnum í enduðum desember. Þar sem tvennum sögum hefur farið af því hve umsögnin er lofsamleg eða fjandsamleg er ekki úr vegi að reyna aö snara slitrum úr dómin- um. Sá sem umsögnina skrifar, Simon Reynolds, lýsir því að hann hafi oröið heillaður en ekki eins heillaður og hann hefði gert sér vonir um og því er hann von- svikinn. Helsta umkvörtunarefnið er að fögin séu ekki líkari Birth- day en raun ber vitni, þó ekki sé hann að falast eftir tólf eins lög- um. Það er rödd Bjarkar sem heillar hann hvað mest og að hans mati ber ekki nóg á henni í lögum sveitarinnar. Hraði lag- anna sé of mikill og hljómsveitin ætti að gefa sér hina hægu upp- byggingu Birthday til að ná að gera eitthvaö sem só fjarri því venjulega. Aö mati Simons fara Molarnir fram á brún hengiflugs- ins en hætta sér ekki framaf. Hápunktur tónleikanna hafi verið Birthday og Birthday er að mati greinarhöfundar svo gott að jafn- vel þó tilurð þess hefði verið tilviljun, án þess þó að hann sé að halda því fram eigi það skiliö að vera á níu forsíðum tónlistar- blaða í röð. Það lag hafi rn.a. leitt til þess að útgáfufyrirtæki hafi boðið allt að 900.000 pund fyrir samning við hljómsveitina þó hún sé í raun hópur óþekktra furðufugla frá íslandi. Blelku bastarnlrhéidu •Ina sfna bastu tónlalka f Lmkjartungll f sf Austu vlku, ands ar staAurlnn fyrlrtaks tónlalkastaAur; hljómur allur mjög góAur og svlAIA gott þó þröngt sé fyrlr flmm manna hljómsvalt. Á Innfalldu myndlnnl mé sjá BJAm basta stökkva fram af svlAlnu í 136. sinn þatta kvöld. RokkMúsjass Sfðasta fimmtudagskvöld héldu fimm sveitir tónleika á tveimur stöðum og gaf þar að heyra allt frá pönki f framsækinn jass. Á Hótel Borg héldu hljómsveit- irnar Centaur og Súld tónleika og í Lækjartungli voru fyrstu rokktón- leikar staðarins með sveitunum Daisy Hill Puppy Farm, Bláa bílskúrsbandinu og Bleiku böstun- um. Það virðist sem menn séu að gera sig klára fyrir nýtt tónleika- og útgáfuár, þvf nú eru margar rokksveitir að festa sér nýja menn eða taka til starfa eftir hvíld. Tvær sveitir, Frakkarnir og Sfðan skein sól, hafa tekið upp æfingar þar sem frá var horfið og hefja tónleikahald í byrjun næsta mánaðar. Síðan skein sól skartar reyndar nýjum trommuleikara, Þegar umsjónarmaður rokksíð- unnar kom á Borgina var þar þónokkur hópur kominn til að hlýða á rokkblús með Centaur og á bræðslujass með Súld. Centaur var á sínu róli ef marka má af þeim tveimur lögum sem umsjónarmað- ur náði að hlýða á. Áheyrendur voru vel með á nótunum, enda fáar sveitir betur til þess fallnar að ná upp stemmningu en Cent- aur. Á eftir Centaur hóf Súld að þeim er áður barði húðir með Rauðum flötum sem viröast til- heyra sögunni. Önnur sveit sem tekið hefur sér ótímabundiö hlé frá störfum er Greifarnir, en heyrst hefur að söngvari sveitarinnar hafi fengiö sér annan starfa. Söngvari Sogbletta hefur einnig sagt skilið við sveitina en þar kem- ur maður í manns stað og Blettirnir stefna á tónleikahald í næsta mán- uði með breyttri liðsskipan. leika sinn framsækna jass. Súldar- sveinar hafa ekki leikið opinber- lega hér á landi síðan sveitin hélt í frægðarför til Kanada síðasta sumar. Nú er sveitin að vinna plötu í hljóðveri og því var hún framúr- skarandi þétt, enda greinilega vel undir upptökur búin. Nýr maður hefur slegist í hópinn og annar helst úr lestinni; Tryggvi Hjbner hefur sagt skilið við sveitin i og í hans stað komið Lárus Gríi tsson sem margir þekkja sem einr aðal- mann Tjarnarbúðarsveitarinnar Eik. Hann féll vel inn í bræðhginn, en ekki var dvalið lengi við að hlusta á Súldina, enda þarf jthald til. í Lækjartungli var annarskonar tónlist á ferð. Daisy Hill Puppy Farm hafði nýlega lokið leik sínum og einn aðdáandi sveitarinnar réð- ist að umsjónarmanni og skýrði honum frá því að tónleikar sveitar- innar þetta kvöld hefðu verið bestu tónleikar á hennar ferli. Hvað sem því líður var Bláa bílskúrsbandi hljómsveit númer tvö á tónleikun- um. Bláa bílskúrsbandið hefði kannski frekar átt heima sem fyrsta númer kvöldsins, því enn sem komið er er tónlist sveitarinn- ar stefnulaus leit úr einu í annað og ekki til þess fallin að halda at- hygli áheyrenda lengi í einu. Gítarleikur Guðmundar Pétursson- ar er það sem menn koma til að sjá en hann er ekki skemmtilegur áheyrnar við eins gisinn rytma- grunn og raun bar vitni. Bassaleik- urinn var þó nokkuð þéttur en trommuleikarinn var æ ofan í æ að hlaupa útundan sér með þeim afleiðingum að lögin höktu áfram. Guðmundur er búinn að skipta úm gítar og bæta við sig bjögunar- tækjum, en hann á enn eftir að læra að nota gítarinn og tækin í því hófi sem einkennir snjalla gítar- leikara. Bleiku bastarnir voru aðalhljóm- sveit kvöldsins og þeir fóru af stað eins og vel smurö vél. Bjössi söngvari var meö hljóðnema með sendi innan klæða og var því óháð- ur því að vera á sviðinu þegar hann var að syngja. Þetta nýtti hann sér og einkar vel og var á hlaupum um allt hús, milli þess sem hann dansaði á sviöinu eða á dansgólfinu. Ótalin eru svo heljar- stökk hans fram af sviðinu sem er vel á aðra mannhæð að hæð. Bastarnir voru þéttari þetta kvöld en áður og greinilegt að sveitin er á leið með að verða ein skemmti- legasta tónleikasveit landsins. Fólk var og fljótt að drífa sig fram á dansgólf að dansa en það sést of sjaldan á tónleikum. Bastarnir voru klappaðir upp tvisvar og létu sig hafa það að leika alls ein sex aukalög, þar á meöal gamla Kinks slagarannn You Really Got Me og ívar gítarleikari lét sig ekki muna um að syngja Elvislagið It’s Now or Never þó á þreföldum hraöa væri. Sogblettir í dag. Ljósmynd/Þorsteinn Guðjónsson Hræringar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.