Morgunblaðið - 28.01.1988, Side 43

Morgunblaðið - 28.01.1988, Side 43
43 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988 Minning: * Amý Sigurðardóttir Litlu-Hildisey Fædd 1. janúar 1889 Dáin 23. janúar 1988 í dag verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju Árný Sigurðardóttir fyrrum húsfreyja að Litlu-Hildisey í Austur-Landeyjum. Þar er gengin góð kona, langri og sómaríkri ævi er lokið. Árný var fædd í Hildisey 1. jan- úar 1889, dóttir hjónanna Sigurðar Guðmundssonar og Steinunnar ísleifsdóttur, sem þar bjuggu. Upp- vaxtarár hennar munu hafa verið svipuð því sem almennt var á þeim tíma. Skólaganga lítil, mikil vinna og auraráð af skomum skammti. Árið 1914, þann 9. maí, giftist Ámý Gissuri Gíslasyni frá Seljavöll- um, Austur-Eyjaijöllum, miklum mannkostamanni. Þau hófu búskap í Selshjáleigu í Austur-Landeyjum en fluttu að Litlu-Hildisey árið 1916 og bjuggu þar til ársins 1957 er þau fluttu til Reykjavíkur. Fyrst bjuggu þau á Nýlendugötu 21 í sambýli við Guðbjörgu systur Amýjar, sem þá var orðin ekkja og síðan í Bólstaðarhlíð 62 hjá Óskari syni sínum og konu hans, Hólm- finði, sem Ámý mat mjög mikils. Gissur lést 1964 en Ámý átti þar heimili þar til á síðasta ári, að hún, þrotin að kröftum, fékk sjúkrahús- vist í Sunnuhlíð í Kópavogi og lést þar sl. laugardag á hundraðasta aldursári. Þeim Ámýju og Gissuri búnaðist vel í Hildisey. Þau vom ekki lík, en góðvildin og greiðasemin var þeim sameiginleg dg þess nutu margir. Þau eignuðust fímm böm: Sigurð, Ástu. Svein, sem er látinn, Óskar og Magnús. Á heimili þeirra dvöldust mæður beggja og létust þar í hárri elli. Á sumrin dvöldust þar böm vina og skyldmenna bæði úr Reykjavík og Vestmannaeyjum og þar var oft gestkvæmt. Á heimil- inu var líka Fríða, sem vann því af alúð og trúmennsku. Heimili sínu stjómaði Ámý á þann veg að allt gerðist eins og af sjálfu sér og komst vel af við alla. Við systkinin ólumst upp í næsta nágrenni við Hildisey og mynd Amýjar er því samofín bemsku- minningum okkar. Virðuleg, glað- leg og hlý, en einörð og föst fyrir. Maður hafði það á tilfínningunni að hún gæti ekki brugðist. Milli heimila okkar var mikil samvinna og vinátta, sem aldrei bar skugga á. T.d. má nefna að faðir minn og Gissur keyptu saman fyrstu sláttu- vélina sína og fluttu mjólkina til skipti í veg fyrir mjólkurbílinn áður en farið var að sælqa hana heim á hvem bæ. Milli Ámýjar og móður minnar átti sér líka stað verkaskipt- ing ef svo stóð á og ég held að þar hafí hvor um sig fundið það á sér ef hina vanhagaði um eitthvað, sem hægt var úr að bæta. Við bömin lékum okkur líka saman og margan góðan bitann og sopann fengum við hjá Ámýju og vettlingana þurrk- aða umtölulaust. Fyrir allt þetta er nú ljúft og skylt að þakka svo og þessa órofa tryggð og umhyggju sem hún alla ævi sýndi okkur. Ríki- dæmi var ekki fyrir að fara í sveitinni okkar á þeim tíma og flest- ir höfðu nóg með sig, en á síðari ámm hefur það lokist upp fyrir mér hvað margt af þessu fólki var fé- lagslega þroskað. Ámý naut þess að háfa góða heilsu, andlega og líkamlega fram á síðustu ár. 95 ára skrifaði hún mér síðasta bréfíð. Hugurinn var þá enn skýr og höndin styrk. Marg- ur,~ sem notið hefur lengri skóla- göngu, mætti vera stoltur af þeim stíl og frágangi. Gegnum það skín sú mikla trúarvissa, sem hún átti alltaf og glögg yfírsýn. Þar þakkar hún almættinu fyrir að gefa sér þrek til að geta aðstoðað veikan son sinn svo kona hans getið stundað vinnu. Það fór ekki hjá því á þessum langa æviferli að hún þyrfti að reyna ýmislegt mótdrægt, en ein- mitt þá kom hinn mikli styrkur hennar og hæfíleikinn til að sjá björtu hliðamar skýrast í ljós. Aldr- ei heyrði ég hana kvarta né heldur hallmæla nokkurri manneskju. Ég votta ættingjum hennar sam- úð mína og kveð hana með þökk og virðingu. Guð blessi minningu hennar. Ásta Jónsdóttir Svava Hjálmars- dóttir - Kveðjuorð Fædd 16. ágúst 1929 Dáín 16. janúar 1988 Miðvikudaginn 27. janúar var til moldar borin Svava Hjálmars- dóttir, Unufelli 25 í Reykjavík. Svava fæddist í Vestmannaeyjum 16. ágúst 1929 og ólst þar upp hjá foreldrum sínum Guðbjörgu Helgadóttur og Hjálmari Jónssyni. Svava giftist Alfons Björgvinssyni, einnig frá Vestmannaeyjum, hin- um besta dreng og 'eignaðist með honum þrjú mannvænleg böm, Ágúst, Sigurbjörgu og Unnstein. Árið 1979 missti hún mann sinn, langt fyrir aldur fram af afleiðing- um kransæðastíflu. Þau hjónin leigðu hjá okkur á Boðaslóð 25 í Vestmannaeyjum í nokkur ár á 6. áratugnum og höfðum við hjónin aldrei haft betra sambýlisfólk um ævina, enda héldust náin tengsl og vinátta milli fjölskyldnanna alla tíð síðan, þrátt fyrir margbreytta dvalarstaði. Við fluttum upp í Reykholt í Biskupstungum og Svava og Alli á Hellu og nágrenni Hellu þar sem hann starfaði við vélsmíði. Síðan fluttu þau Svava og Alli til Reykjavíkur, en við aftur til Vest- mannaeyja, en aldrei rofnaði okkar nána samband, fyrr en dauðinn skar á sambandið. Okkur er mikill vinamissir að þeim hjónum, fyrst Alla og svo núna líka Svövu, en hinn illræmdi sjúkdómur, krabba- meinið, þreif hana frá okkur, aðeins 58 ára gamla. Það er óhætt að fullyrða, að allir sem Svövu þekktu sakna hennar, glaðlyndis hennar og frískleika, en því meir sem fólk þekkti hana því sárari er söknuður- inn. Sárast allra sakna bömin henn- ar að sjálfsögðu, því hun var þeim ekki aðeins góð móðir heldur vinur og félagi. Við vottum þeim innilega samúð okkar og biðjum forsjónina að greiða götu þeirra áfram til gæfu og göfugs mannlífs. Gunnlaug og Þórarinn Magnússon Klúbbur matreiðslumeistara kynnir Þorramat í Hagkaup Kringlunni í dag Kofareykt hangikjöt og hrútspunga. Sviðasultu ,blóðmör og bringukolla. Lundabagga, lifrarpylsu og svínasultu. Harðfisk, hákarl, hval og svið. k Að ógleymdum okkar vinsælu Þorrabökkum bæði súrum og ósúrum Seljum núna sérlega ódýrt dilkakjöt í heilum og hálfum skrokkum Dilkakjöt II 298 -kr/kg Reykjavík Akureyri Njarðvík Dilkakjöt I 321-kr/kg HAGKAUP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.