Morgunblaðið - 28.01.1988, Síða 45

Morgunblaðið - 28.01.1988, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988 45 spuminni erlendis og var fljótur að aðlaga reksturinn nýjum mörkuð- um. Hann vann náið með samstarfs- mönnum sínum og allir voru honum jafnir. Hann seldi sinn hlut í Fiskiðjunni og aðrar eignir sínar í Vestmanna- eyjum og fluttist til Reykjavíkur árið 1970. Síðar stofnaði hann lítið heildsölu- og smásölufyrirtæki í Hafnarfírði. Ágúst starfaði töluvert að félags- málum. Um skeið var hann formað- ur Félags kaupsýslumanna og Félags atvinnurekenda í Vest- mannaeyjum. Hann var í stjóm Lifrasamlagsins og Tónlistarfélags- ins á staðnum. Fyrir tíu árum kenndi hann þess sjúkdóms, sem lagði hann að velli. Hann barðist við þennan sjúkdóm af sama æðruleysi og einkenndi allt hans líf. Öll þessi ár heyrðist hann aldrei kvarta, hvorki heima né heiman. Og þó að tvö síðustu árin hafi sjúkdómurinn hetjað mis- kunnarlaust á hann, náði hann sér alltaf upp á milli og átti góðar stundir. Er það ekki síst að þakka lífsvilja hans og jákvæðni svo og frábærri umönnun Sigurbjargar og góðri læknishjálp og hjúkmn, sérs- taklega á deild 13D á Landspítalan- um. Ég kynntist tengdaföður mínum árið 1969, þegar hann fluttist til Reykjavíkur. Eg minnist þess hve vel þau hjón tóku mér frá fyrstu stundu. Það var eins með mig og aðra, sem tengst hafa ijölskyld- unni, að okkur var tekið eins og eigin bömum. Atlætið og umhyggj- an var sú sama. Þau reyndust einnig vinum bamanna vel. Sér- staklega æskuvini Egils, Henry Granz, sem missti ungur foreldra sfna. Ágúst var frekar dulur um per- sónu sína, en hann var félagslyndur, þó hann hafí dregið sig í hlé hin síðari ár. Þess meira sótti hann í samvistir við fjölskyldu sína. Heim- ilið í Stóragerðinu var og er miðpunktur fjölskyldunnar. Þar hittast böm, tengdaböm og bama- böm, bæði á tyllidögum og öðmm dögum. Þá fengu bömin að heyra sögur hjá afa sínum, oftast fmm- samdar um furðuskepnur jarðarinn- ar og líktist sögumaðurinn þá óneitanlega föður sínum. Hann reyndist ávallt málsvari lítilmagnans og tók aldrei þátt í illu umtali. Ein lítil saga lýsir þessu vel. Eitt sinn þegar gesti bar að garði varð einum að orði að hörm- ung væri að sjá hve ein dóttirin væri feit en hinar grannar og glæsi- legar. Sagði Ágúst þá að færi hann með þær allar þijár til Afríku fengj- ust tvær magrar beljur fyrir þær mjóslegnu en sex bústnar, mjólk- andi kýr fyrir þá þykku. — Já, það rifjast margt upp að leiðarlokum og af nógu er að taka. Ég kveð tengdaföður minn með söknuði og þakka honum samfylgdina og tengdamóður og öðmm aðstand- endum votta ég einlæga samúð. Hildur Einarsdóttir Ágúst Matthíasson frá Litluhól- um í Vestmannaeyjum lést miðviku- daginn 21. janúar sj. Hér verður ekki rakið lífshlaup Ágústar Matt- híassonar, heldur stiklað á nokkmm minningarbrotum, sem koma fram í hugann við fráfall góðs vinar. Gústi Matt, eins og hann var allt- af kallaður, var einn þeirra sem setti svip á bæinn, meðan hans naut við í Eyjum. Eftir stríð tóku þeir félagamir, Gústi, Gísli Þor- steinsson frá Laufási og Þorsteinn Sigurðsson á Blátindi, Hraðfrysti- stöð Vestmanneyja á leigu af Einari Sigurðssyni. Þeir höfðu allir starfað hjá Einari. Þeir þremenningamir ráku síðan Hraðfrystistöð Vest- mannaeyja til ársins 1952 að þeir stofnuðu Fiskiðjuna hf., sem fljót- lega varð eitt af stærstu frystihús- um landsins og er enn. Það var á vordögum fyrri þijátíu ámm sem undirritaður hóf störf á skrifstofu Fiskiðjunnar. Með okkur Gústa og allri fjölskyldunni tókst góð vinátta, sem haldist hefur allt fram á þenn- an dag. Gústi var góður húsbóndi, léttur í lund og spaugsamur, sem sjaldan skipti skapi. Hann hafði mikla og skemmtilega frásagnargáfu. Átti hann ekki langt að sækja hana, því faðir hans, Matthías á Litluhólum, var frægur á sínum tíma fyrir glettnar sögur og frásagnir. Ennþá lifa sögur eftir þá feðga í Eyjum og fljúga manna á milli á góðravina fundum. Árið 1969 flutti Gústi ásamt fjöl- skyldu sinni til Reykjavíkur, en hugurinn dvaldi oft á heimaslóð, því mikið þurfti hann að spyija um fískiríið, bátana og mannlífið heima, þegar fundum okkar bar saman. Skiljanlega koma margar minningar fram í hugann eftir jafn löng kynni. T.d. minnist ég þess hvað Gústi naut sín þegar hann sat við skrifborðið hlaðið seðlabúntum og taldi í launaumslögin, einnig þegar við nokkrir Eyjamenn fórum á trillu upp í Holtsós undir Eyjaíjöll- um. í öllum þeim gleðskap og því fjön sem þá var, undi Gústi sér vel. Árið 1937 giftist Gústi Sigur- björgu Benediktsdóttur frá Þverá í Öxarfirði. Þau eignuðust fimm böm sem öll eru á lífi. 'Sigurbjörg er mikil mannkostakona og dugnaðar- forkur, sem staðið hefur fyrir myndarlegu heimili þeirra og stutt mann sinn með ráðum og dáð alla tíð. Henni, bömum þeirra og öðmm ættingjum votta ég innilega samúð. Guðjón Olafsson í dag er til grafar borinn Ágúst Matthíasson, fæddur 30.júlí 1914 á Litluhólum í Vestmannaeyjum. Hann var sonur hjónanna Matthías- ar Finnbogasonar og Sigríðar Þorsteinsdóttur. Hann óx úr grasi á góðu heimili á meðal sjö systkina. Ágúst hlaut í vöggugjöf mikla og góða hæfíleika og skynsemi, dugnað, samviskusemi og fádæma andlegt jafnvægi. Þessa miklu eðlis- t Móðir okkar, GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR fró Vogi, Skólatröð 8, Kópavogi, lést í Landspítalanum 27. janúar. Rannveig Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir. t Móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, LOVISA HALLDÓRSDÓTTIR, Bergstaðastrœti 71, Reykjavfk, verður jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. janúar kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hjartavernd. Hrafnhildur Þórðardóttir, Lárus Hallbjörnsson, Hjördfs Þórðardóttir, Guðmundur Karlsson, Andrea Þórðardóttir, ísleifur Bergsteinsson, Hjörleifur Þóröarson, Jensfna Magnúsdóttir, Ásdfs Þórðardóttir, Valdimar Hrafnsson, barnabörn og barnabarnabörn. kosti ræktaði hann með sér alla tíð. Hann var um árabil einn af mestu athafnamönnum Vestmannaeyja. Forstjóri og einn af aðaleigendum Fiskiðjunnar hf. sem var þá eitt umsvifamesta frystihús landsins, ásamt því að eiga og reka fiskiskip. Þótt hann hefði mikið umleikis var hann alltaf samur og jafn. En hann stóð ekki einn. Ágúst gekk að eiga glæsilega stúlku, Sig- urbjörgu Benediktsdóttur frá Þverá í Öxarfírði árið 1937. Mikla mann- kosta og dugnaðarkonu. Var þar mikið gæfuspor stigið af beggja hálfu að einstaklega farsælu hjóna- bandi. Ég kynntist heimili þeirra í gegn um vin minn, Egil, son þeirra. Síðan hef ég notið umhyggju þeirra og vináttu hátt á þriðja áratug. Það er því ótalmargt, sem leitar nú á hugann úr ríkulegum sjóði minninganna og er það allt á einn veg. Fyrstu minningar mínar frá sam- veru okkar Gústa eru í samsvörun við það, sem alltaf var síðar. Ég minnist þess er við Egill, þá stráklingar, sátum hjá honum. Sem oftar var hann að fræða okkur um lífið og tilveruna á sinn einfalda og áhugaverða hátt. Mörg voru lífssannindin, sem okkur hlotnaðist í veganesti á þess- um stundum og hafa þau reynst mér dýrmæt í áranna rás. Þannighefur það verið allar göt- ur síðan. Ágúst hélt áfram að miðla fróðleik sínum, sem alltaf var já- kvæður og áhugaverður. Síðustu samverustundir okkar voru heimsóknir okkar hjóna að sjúkrabeði hans nú um jólin. Ennþá var það hann sem miðlaði heilræð- um og umhyggjan fyrir okkur hjónunum og bömum okkar var einlæg. Mér fínnst vel við hæfí að eigna honum orð Lao Tse um manngildið: „Sannanlegt mikilmenni reisir á traustum grundvelli, og fer ekki eftir yfirborðsgljáa. Hann hirðir ávöxtinn en ekki blómið, hann fleygir hisminu en hirðir Iqamann." Nú er Gústi genginn eftir langa, farsæla ævi, mikið starf og gott fordæmi alla tíð. Ekki síst síðustu tíu árin er hann háði baráttu við erfiðan sjúkdóm, án þess að æðrast eða kvarta. Lengst af virtist hann hafa yfírhöndina. En þegar hann að lokum varð undan að láta var hann enn andlega óbugaður en þó ferðbúinn. Við sem eftir stöndum, þökkum honum einstaka samfylgd. Megi góð minning styrkja Sigurbjörgu, bömin hans og aðra ástvini. Heyri ég góðs manns getið kemur hann mér í hug. Henry Þór og fjölskylda Pilsner malt í Vi lítra dósum stórlækkuðu verði Gerið verðsamanburð IKOHOUfyNIHALP ?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.