Morgunblaðið - 28.01.1988, Qupperneq 48
OK o •
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988
t
Faöir minn,
EYJÓLFUR S. ÞORVALDSSON
fyrrverandi skipstjóri,
Fornhaga 23,
andaðist í Landspítalanum 27. janúar.
Guðmunda Eyjólfsdóttir.
t
Systir okkar,
GUÐRÚN ÞORBJÖRG BJARNADÓTTIR,
Stigahlfð 28, Reykjavfk,
andaðist á heimili sinu 17. janúar sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar iátnu.
Jóhanna, Guðrún Guðleifs,
Pétur, Elsa,
Friðrik, Lúisa
Jóhannes, Jón Aðalbjörn,
Eyjólfur, Trausti,
Kristfn
og fjölskyldur.
t
Ástkaer móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN STEFÁNSDÓTTIR,
Þelamörk 26, Hveragerði,
lést á Grensásdeild Borgarspítalans að morgni 27. janúar.
Þórhildur I. Gunnarsdóttir,
Björgvin S. Gunnarsson,
Sigurrós Gunnarsdóttir,
Guðný Gunnarsdóttir,
Guðrún Erla Gunnarsdóttir,
Ingibjörg D. Gunnarsdóttir,
og barnabörn.
Þorvarður I. Vilhjálmsson,
Helga Björk Björnsdóttir,
Sigvaldi Ingimundarson,
Friðrik H. Ólafsson,
Dagbjartur R. Sveinsson
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
LOVISA HALLDÓRSDÓTTIR,
Bergstaðastrœti 71,
Reykjavík,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. janúar kl.
10.30. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð. Þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Hjartavernd.
Hrafnhildur Þórðardóttir, Lárus Hallbjörnsson,
Hjördfs Þórðardóttir, Guðmundur Karlsson,
Andrea Þórðardóttir, ísleifur Bergsteinsson,
Hjörleifur Þórðarson, Jensfna Magnúsdóttir,
Ásdís Þórðardóttir, Valdimar Hrafnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Okkar ástkæri sonur, tengdasonur og bróðir,
SIGURÐUR STEINAR SIGURÐSSON,
og mín ástkæra dóttir, tengdadóttir og mágkona,
JÓNÍNA GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
lótust af slysförum 22. janúar.
Minningarathöfn verður í Fossvogskapellu 28. janúar kl. 16.30.
Útförin fer fram frá Ólafsvíkurkírkju laugardaginn 30. janúar kl.
14.00.
Rútuferð verður frá BSI’ kl. 7.30 á laugardagsmorgun.
Sigurður Valdimarsson,
Guðrún Sigurðardóttir,
Ragna Guðmundsdóttir,
Una Jóna Sigurðardóttir, Jón Sigurðsson,
Guðlaugur Kristján Sigurðsson, Anna Marfa Jónsdóttir,
Kristfn Guðbjörg Sigurðardóttir,Bjarni Arnarson,
Valdimar Gunnar Sigurðsson, Daði Rúnar Jónsson.
t
Eiginmaður minn, mágur og fósturfaöir,
HÁLFDÁN H. ÞORGEIRSSON
bifvélavirkjameistari,
Sléttahrauni 27,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Garðakirkju föstudaginn 29. janúar
kl. 13.30.
Jarðsett verður í Hafnarfjarðarkirkjugarði.
Einara G. Björnsdóttir,
Benedikt Björnsson,
Elfn Benediktsdóttir,
Björn Benediktsson,
Guðbjörg Benediktsdóttir,
Björn H. Jónsson.
t
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
GUDRÍÐUR SIGURBORG FINNSDÓTTIR,
áður Vesturgötu 22, Akranesi,
sfðar dvalarheimilinu Höfða,
sem lést í Sjúkrahúsi Akraness 17. janúar sl., verður jarðsungin
frá Akraneskirkju föstudaginn 29. janúar kl. 14.15.
Garðar Kjartansson, Sigrfður Svavarsdóttir,
Sigurborg Garðarsdóttir, Ragnheiður Garðarsdóttir.
Miiming
Sævaldur Konráðs-
son — aðalbókari
Fæddur 24. júní 1905
Dáinn 18. janúar 1988
Fallinn er frá Sævaldur Ó. Kon-
ráðsson, fyrrverandi aðalbókari hjá
Almennum tryggingum hf., og sam-
starfsmaður minn þar í meira en
tuttugu ár.
Sævaldur hafði á síðastliðnu
hausti skilað þessu fyrirtæki flöru-
tíu og einu starfsári, og ákvað að
hætta störfum um nýliðin áramót.
Hann hafði alla tíð notið góðrar
heilsu og starfsáhuginn verið mikill
og því held ég, að þessum áttatíu
og tveggja ára heiðursmanni hafi
þótt næsta ótrúlegt að starfsævip
væri á enda.
Það fannst okkur samstarfsfólki
hans einnig, því að fæstir sem sáu
hann trúðu, að þar færi svo aldrað-
ur maður, jafn léttur á fæti og
ungur í anda og hann var.
En ákvörðunin um að hætta var
tekin og við óskuðum honum
ánægjulegra stunda um ókomna
daga. Að þeir dagar yrðu ekki nema
tæpar þrjár vikur óraði okkur ekki
fyrir.
Sævaldur var miklum mannkost-
um búinn. Hann var einn þessara
traustu, samviskusömu og duglegu
manna sem gjaman eru homsteinar
stórra fyrirtækja. Starf hans hjá
Almennum tryggingum einkenndist
af trúmennsku við félagið, þekk-
ingfu á starfseminni og hæfni á sínu
sérsviði. Hann var ákaflega alúðleg-
ur í allri umgengni við samstarfs-
fólk sitt og jafnlyndur og réttsýnn
sem yfírmaður.
Lengst af var hann aðalbókari
félagsins, en fyrir nokkmm áram
lét hann að eigin ósk af þeirri stöðu,
því að honum fannst þá kominn
tími til að yngri maður axlaði þá
ábyrgð.
En hann starfaði áfram og miðl-
aði okkur af reynslu sinni, jafnframt
því sem hann tókst á við ný verk-
efni.
Sævaldur var einn þessarar kyn-
slóðar, sem lifað hefur hvað mestar
breytingar og framfarir allra kyn-
slóða sögunnar.
Það sem hann lærði ungur í versl-
unarskóla í Edinborg á Skotlandi,
og hvemig hann færði höfuðbækur
sínar sem kaupmaður á Norðfirði á
ijórða áratug aldarinnar hefur verið
verulega frábragðið því sem hann
átti að venjast í lok ársins 1987 á
tölvuvæddri nútíma-skrifstofu. Að-
lögunarhæfni Sævalds var einstök.
Hann barðist ekki gegn nýjungum
og breytingum, hann gekk fús til
liðs við þær og náði á þeim góðum
tökum. Hann var raunveralegur
nútímamaður.
En framar öðra hefur Sævaldur
verið fjölskyldumaður. Það fór ekki
framhjá okkur vinnufélögunum,
umhyggja hans fyrir sínum nán-
ustu. Samband hans og konu hans,
Friðriku Júlíusdóttur, var mjög
kært og það var Sævaldi þungt
áfall, er hún féll frá fyrir fáum
áram.
En hann leit alvarlegum augum
á skyldur sínar við lífið og hélt
ótrauður áfram. Áttatíu ára byggði
hann sér íbúð í sambýlishúsi aldr-
aðra verslunarmanna við Hvassa-
leiti, þar sem honum virtist búin
hin ákjósanlegasta aðstaða um
ókomin ár.
En allt er í heiminum hverfult,
og enginn veit hvenær komið er á
leiðarenda.
Ég vil fyrir hönd Almennra
trygginga og starfsfólks þeirra
þakka Sævaldi fyrir sérstaklega
gott samstarf og vináttu gegn um
árin, og flyt samúðarkveðjur sonum
hans og fjölskyldum þeirra.
G. Jónatansson
Sævaldur Konráðsson lést á átt-
ugasta og þriðja aldursári. Hann
fæddist i Hafnarfírði á Jónsmessu-
árið 1905, sonur Borghildar Þor-
steinsdóttur, verkakonu í Hafnar-
firði, og Konráðs Hjálmarssonar,
útgerðarmanns á Norðfírði. Sæ-
valdur ólst upp fram undir fermingu
hjá móður sinni og hálfsystkinum
í Hafnarfirði, en móðir hans var
orðin eklcja þegar hún eignaðist
Sævald.
Oft mun hafa verið þröngt í búi
hjá fjölskyldunni í Hafnarfirði, og
vöndust bömin snemma á að vinna
og bjarga sér.
Þegar Sævaldur var tólf ára tók
Konráð faðir hans hann austur á
Norðflörð tii sín og seinni konu
sinnar, ólafar Þorkelsdóttur. Kon-
ráð Hjálmarsson var þá einn mesti
afhafnamaður landsins, rak um-
fangsmikla útgerð og verslun á
Norðfírði.
Sævaldur vann fyrst um sinn
innanbúðar í verslun föður síns.
Vinnufélagi hans var þá um tíma
ungur maður að nafni Kristmann
Guðmundsson, síðar rithöfundur.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGRÍÐUR SIGURBJÖRG INGIBERGSDÓTTIR,
Flókagötu 67,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 29. janúar kl.
13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Gigtarfélag ís-
lands Ármúla 5, Reykjavík eða minningarsjóð Landspítalans.
Skúli Sveinsson,
Sigurdi's Skúladóttir,
Sveinn Skúlason, Erna Valsdóttir,
Sigríður Ágústa Skúladóttir, Ari Kristján Sæmundsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÁGÚST MATTHÍASSON
frá Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 28. janúar
kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Ferðasjóð fatlaðra
í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12.
Sigurbjörg Benediktsdóttir,
Sigríður R. Haugland, Kurt Haugland,
Guðrún Ágústsdóttir, Sigurður Njálsson,
Kristbjörg Ágústsdóttir,
Egill Ágústsson, Hildur Einarsdóttir,
Matthildur Ágústsdóttir, Björn Stefánsson
og barnabörn.
Segir Kristmann frá Norðfjarðar-
dvöl sinni í bókinni ísold hinni
svörtu.
Sævaldur fór nítján ára gamall
til Skotlands og nam vetrarlangt
verslunarfræði í skóla í Edinborg.
í beinu framhaldi fór hann til Kaup-
mannahafnar og var þar við frekara
verslunamám einn vetur. Með þessu
aflaði hann sér staðgóðrar mennt-
unar í verslunarfræðum sem átti
eftir að reynast honúm dýrmætt
veganesti í lífinu.
Fljótlega stofnaði Sævaldur sína
eigin verslun á Norðfirði.
Hinn 24. júní 1930 kvæntist hann
Friðrikku Júlíusdóttur, Daníelsson-
ar, frá Syðra-Garðshomi í Svarfað-
ardal. Varð hjónaband þeirra
farsælt og með afbrigðum ástríkt.
Þeim hjónum varð þriggja sona
auðið. Þeir era Haukur, vélaverk-
fræðingur, Hörður, tannlæknir, og
Hjörvar, bryti. Fyrir hjónaband
hafði Sævaldur eignast son, Kon-
ráð, með Karólínu Stefánsdóttur,
Stefánssonar, kaupmanns á Norð-
firði.
Sævaldur og Friðrikka ráku
verslun á Norðfirði til ársins 1946.
Á þessum áram var Sævaldur
ræðismaður Breta og fylgdu því
nokkur umsvif, einkum á stríðsár-
unum. Þegar hér var komið sögu
seldu þau hjónin verslun sína á
Norðfirði, og fluttu til Reykjavíkur
á Leifsgötu 8, þar sem þau höfðu
keypt sér íbúð. Heimili þeirra var
fagurt og hlýlegt.
Sævaldur réðst bókari til Al-
mennra trygginga hf. og varð
fljótlega aðalbókarí fyrirtækisins.
Ifyrir sjö til átta áram sagði hann
þeim titli lausum en vann annars
fullt starf hjá Almennum trygging-
um hf. til 1986, en hálft starf til
síðustu áramóta er hann hætti
vinnu hjá fyrirtækinu eftir fjöratíu
og eins árs þjónustu, þá áttatíu og
tveggja ára gamall. Sýnir þetta
glöggt fæmi Sævaldar og vinnu-
þrek.
Friðrikku konu sína missti Sæ-
valdur árið 1982 og tregaði hana
mjög.
Sævaldur var vandaður maður
og traustur, hlýr og trygglyndur,
glaður á góðri stund og snjall brids-
spilari. Hann var skarpgreindur,
hreinskiptinn og tæpitungulaus.
Hann var ungur í anda þrátt fyrir
háan aldur.
Þegar Sævaldur giftist inn í fjöl-
skyldu okkar þar sem flestir höfðu
verið bændur og sjómenn mann
fram af manni, kom hann með nýj-
an tón þangað. Keim af heims-
manni, blæ frá framandlegri
menningu. Venslafólki sínu tengd-
ist hann sterkum fjölskyldu- og
vináttuböndum.
Oft var gestkvæmt á Leifsgöt-
unni hjá þeim Sævaldi og Friðrikku
frænku minni. Gott var þau heim
að sækja, enda var þar oft fullt
hús. Má mikið vera ef ekki hefur
stundum þurft að halda vel á til
þess að endar næðu saman. En
gestrisni húsbændanna var ómæld
og guð iauni þeim elskulegu hjónum
fyrir það allt. Að leiðarlokum vil
ég þakka Sævaldi fyrir vináttu og
ótal góðar samverastundir.
Júlíus J. Daníelsson .