Morgunblaðið - 28.01.1988, Síða 50

Morgunblaðið - 28.01.1988, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988 fclk í fréttum HJART AKNÚ S ARAR Barnard giftist í þriðja sinn Suður-Afríska hjartaskurð- lækninum Cristian Bamard er ekki síður lagið að heilla hjörtu ungra kvenna, en að gera á þeim aðgerðir. Hann er orðinn 65 ára gamall og gifti sig sl. laugardag hinni 24 ára gömlu Karen Selzkom. Þau hittust fyrst árið 1969 þegar Bamard var í fríi með fyrstu eigin- konu sinni. Karen var þá eki nema sex ára gömul og hafa S-Afrískir fréttamiðlar mikið gaman af því að birta myndir af þeim sem þá vora teknar, þar sem Bamard situr með eiginkonuna í fanginu. Cristian Bamard lét af stöðu sinni sem prófessor við háskólann í Höfðaborg árið 1981 og keypti og rak veitingahús um skeið. Hann varð sem kunnugt er að hætta skurðlækningum vegna æðakölkun- ar. Hann starfar nú sem ráðgjafí við sjúkrahús í Oklahoma-borg, en hefur auk þess tekjur af fram- leiðslu og sölu yngingarmeðals og rekstri heilsuhælis. Nýgift. Cristian Barnard og Karen Selzkorn. OPIÐ I KVOLD frá kl. 22.00 - 03.00 Bandaríski djazzdansarinn Christian Polos dansar þætti úr frumsömdu verki "Moving Man" Hlynur og Daddi sjá um "Tónlist Tunglsins" iartungC ^lOBkJargötu 2 S. 621625 Snyrtilegur klæðnaður ásfoá JQ&enbvuj KJ Kvoiiwú GULLINN VEITINGASTAÐUR þar sem áhersla er lögð á gæði og þjónustu. Nú er opiö aila viika daga í hádeginu og á kvöldin. Á laugardögum og sunnudögum er opiðfrákl. 18.00. Borðpantanir í sfrnum 621625 og 11340. Snyrtilegur klæðnaður. TÖLVUPRENTARAR KVIKMYNDIR „Á hverf- anda hveli“ Kvikmyndaleikstjórinn Sergio Leone, sem helst er þekktur fyrir að hafa leikstýrt ótal spag- hettí-vestram (Clint Eastwood lék' í nokkram þeirra), hyggst nú gera nýja útgáfu af „Á hverfanda hveli“. Ætlar Leone að taka myndina upp í Leningrad, en hún verður fram- leidd af sovéskum og bandarískum aðilum, - í anda glasnost. Umgjörð myndarinnar verður þó talsvert frá- bragðin þeirri fyrri, en hún mun ijalla um samband bandarísks blaðamanns við sovéska konu sem hann fyrirhittir í Leningrad og verð- ur ástfanginn af. Fyrirhugað er að Robert De Niro fari með hlutverk blaðamannsins, en Leone leitar nú logandi ljósi af leikkonu í hlutverk konunnar. Sagan „Á hverfanda hveli“ var skrifuð af Margaret Mitchell og var kvikmynduð árið 1939. Leikstjóri myndarinnar var Victor Fleming, en með aðalhlutverk fóra þau Clark Gable og Vivien Leigh. Mick Jagger verður 45 ára seinna á þessu ári og segist hann vera orðinn hundleiður á að fólk tönnlist á aldri hans og spái honum fallandi gengi í náinni framtíð. „Fólk er að spá mér svip- ðuðum örlögum og Elvis Prestley, segir að ég sé að verða feitur og latur,“ segir Jagger. „Þetta er bull.“ Jagger er kominn í hlutverk hins ábyrga heimilisföður og segist una því vel, - það skemmtilegasta sem hann geri sé að lesa dætur sínar í svefn á kvöldin. Jagger hefur nú verið í tygjum við Jerry Hall í 10 ár og eiga þau tvö böm saman, en Jagger átti tvö börn fyrir og segist hann hafa talsverð- ar áhyggjur af þeim, þær séu komnar á hættulegan gelgjualdur og þá fari freistingamar að birt- ast á öllum götuhomum. Hann er þó ekki alveg sestur í heigan stein, því haft var eftir honum á mánudaginn að hann væri nýbúinn að ganga frá kvik- myndahandriti sem hann samdi ásamt David Bowie. Um framhald á samstarfí sínu við hina meðlima hljómsveitarinnar „The Rolling Stones“ vildi hann fátt segja, en lét þó þau orð falla að hann vonaðist til að þeim tæ- kist að leysa deilur sem upp komu á milli þeirra svo þeir gætu farið í a.m.k. eitt hljómleikaferðalag enn. „Ef ég væri ekki sannfærður um að ég hefði þrek til að standa í þessu þá mundi ég hætta,“ seg- ir Jagger og bætir við að hann hafí ekki í hyggju að enda feril sinn á sama hátt og Elvis Prestley. ROKK Jagger segist fær í flestan sjó KÓNGAFÓLK Afmæli konungs að era kóngar og drottningar víðar en í Evrópu. í Tailandi ríkir kóngur nokkur að nafni Bhumi- bol og hann hélt upp á 60 ára afmælið sitt á dögunum. Þetta vora góð tíðindi fyrir Tailendinga því kóngurinn fyrirskipaði allsheijarfrí í landinu í þijá daga vegna afmælis- ins. Slíkan munað hafa Tailendingar ekki upplifað í háa herrans tíð, eða síðan 1950, að hann fyrirskipaði frí í tilefni þess að þá hafði hann gegnt embætti í fjögur ár. Bhumibol fædd- ist í Bandaríkjunum, ólst upp f Sviss og komst til valda þegar bróðir hans lést. Ef frá er talinn pólitískur órói árið 1985, hefur veldi hans verið tiltölulega öraggt. Konungshjónin Bhumibol og Sirikit.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.