Morgunblaðið - 28.01.1988, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988
57
KORFUKNATTLEIKUR / STJÖRNULEIKUR KKÍ OG SÍ
^ - •
Morgunblaðið/Einar falur
Teitur treAur
TeHur Örlygsson sigraði í troðkeppninni. Hér innsiglar hann sigurinn með
glæsilegum tilþrifum.
Sannkallaður
„Stjömuleikur"
- Pálmar Sigurðsson valinn maður leiksins
að hafa áhyggjur af lítilli aðsókn.
Leikurinn var hraður, opinn og
mjög skemmtilegur. Greinilegt var
að leikmenn tóku leikinn hæfílega
alvarlega og rejmdu ýmislegt sem
ekki sést í venjulegum leikjum.
Pálmar Sigurðsson átti frábæran
leik. Hann skoraði 16 stig og stal
boltanum sex sinnum og átti þrjár
stoðsendingar. ívar Webster lék
einnig vel og hirti 17 fráköst. Jó-
hannes Kristbjömsson, Birgir
Mikaelsson, Leifur Gústafsson og
Tómas Holton stóðu sig einnig vel.
Valur Ingimundarson átti mjög
góðan leik og stóð upp úr liði Suður-
nesja. Hann skoraði 25 stig, þar af
5 þriggja stiga körfur. Guðmundur
Bragason, Jón Kr. Gíslason og Teit-
ur Örlygsson áttu einnig góðan leik.
Helgi Rafnsson stóð sig vel í vöm-
inni.
Leikinn dæmdu þeir Jón Otti Jóns-
son og Sigurður Valgeirsson og
stóðu sig ágætlega.
Stig Landsins: Jóhannes Kristbjömsson 17,
Pálmar Sigurðsson 16, Tómas Holton 12,
Léifur Gústafsson 10, ívar Webster 10,
Birgir Mikaelsson 9 og Torfi Magnússon 7.
Stig Suöumesja: Valur Ingimundarson 25,
Teitur örlygsson 12, Guðmundur Bragason
11, Hreinn Þorkelsson 9, Jón Kr. Gíslason
8, Helgi Rafnsson 8, ísak Tómasson 4 og
Guðjón Skúlason 2.
Teitur Örlygsson
og Hreinn Þorkels-
son sigruðu í
sýningargreinunum
MARGUR er knár þótt hann sé'
smár. Það sannaðist f gœr í
troðkeppninni sem fram fór f
leikhlói í Stjörnuleik KKÍ og SÍ.
Teitur Örlygsson skaut þar
öðru og stœrri mðnnum ref
fyrir rass og sigraði.
Það vom átta keppendur í troð-
keppninni og fjórir þeirra
komust í úrslit. Það voru Teitur,
Guðmundur Bragason, Jón Kr.
Gíslason og Ivar Webster. Teitur
náði svo bestum árangri i úrslita-
keppninni, hlaut 39 stig og vann
sér inn 16.000 kr. Guðmundur
Bragason hafnaði í 2. sæti með 36
stig og ívar Webster í 3. sæti með
28 stig. Jón Kr. Gíslason gerði ógilt.
Hreinn Þorkelsson sigraði í þriggja
stiga keppninni eftir einvígi við Val
Ingimundarson. Þar voru það fimm
sem komust í úrslit. Auk Hreins
og Vals voru það Teitur Örlygsson,
Jón kr. Gíslason og Guðjón Skúla-
son. Eftir fyrstu tilraun voru þeir
jafnir Hreinn og Valur, báðir hittu
úr 8 skotum af 15. í úrslitaviður-
eigninni sigraði Hreinn, hitti úr 5
skotum, en Valur úr aðeins þremur.
Hreinn fékk þvi sömu upphæð og
Teitur, 15.000 kr., en Pálmar Sig-
urðsson vann sér inn 20.000 kr.
fyrir að vera kjörinn maður leiksins.
LAUGAVEGI81 - SlMI 214 44
„LANDIÐ" með Pálmar Sig-
urðsson í fararbroddi sigraði
Suðurnes, 81:79, í Stjörnuleik
KKÍ og SÍ. Stórskemmtilegur
leikur þar sem allt það besta
í körfuknattleik fékk að njóta
sín. Bæði liðin léku mjög vel
og Pálmar Sigurðsson var kjör-
inn maður leiksins í leikslok.
Leikuimn byrjaði af krafti og
fyrstu mínútumar gekk boltinn
þvert jrfír völlinn með ótrúlegum
hraða. Leikurinn róaðist svo aðeins
en var engu að síður
LogiB. mjög skemmtilegur
Eiðsson á að horfa. Landið
skrifar. byijaði vel og skor-
aði fjögur fyrstu
stigin, en Suðumesjamenh náðu
yfírhöndinni fljótlega.
Leikurinn var síðan jafn allt þar til
um miðjan fyrri hálfleik, en þá
komst Landið yfír að nýju og leiddi
allt til leiksloka. í hálfleik var stað-
an 46:42, Landinu í vil.
Munurinn var svo heldur meiri í
sfðari hálfleik og varð mestur 14
stig, 74:60. Þegar þijár mínútur
voru til leiksloka var munurinn tíu
stig, 79:69. Suðumesjamenn náðu
þó að klóra í bakkann Valur Ingi-
mundarson og Hreinn Þorkelsson
minnkuðu muninn í tvö stig með
Morgunblaðiö/Einar Falur
Hrainn Þorkelsson lék vel með
Suðumesjaúrvalinu, en gerði betur í
þriggja stiga keppninni og sigraði.
tveimur þriggja stiga körfum á lok-
amínútunni.
Ef að allir leikir væru eins og þessi
þá þyrftu körfuknattleiksmenn ekki