Morgunblaðið - 28.01.1988, Page 58

Morgunblaðið - 28.01.1988, Page 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988 HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Júlíus Sigur- jónssontók handknattleiks- mynd ársins 1987 Fékk ferð með landsliðinu til Japan í verðlaun Júlíus Siguijónsson, ljósmyndari á Morgunblaðinu, tók hand- knattleiksmynd ársins 1987. 13 myndir frá fímm ljósmyndurum bárust í samkeppnina, sem HSÍ og Flugieiðir stóðu fyrir, og var mynd Júlíusar af Þorgils Óttari Mathies- en, fyrirliða landsliðsins, í leik gegn Spánveijum í Prilep á Júgóslavíu- mótinu í fyrrasumar valin sú besta. Þorgrímur Þráinsson, formaður dómnefndar, sagði á blaðamanna- fundi HSÍ og Flugleiða í gær er hann tilkynnti valið, að verðlauna- myndin væri táknræn fyrir hand- knattleikinn, dæmigerð baráttu- mynd, þar sem knötturinn væri sem verðlaunagripur í miðjum látunum. Auk Þorgríms voru Friðþjófur Helgason og Hannes Þ. Sigurðsson í dómnefndinni. Landsliðið f handknattleik fer í sína fyrstu keppnisferð til Japan í byijun maí og fékk Júlíus farseðil með lið- inu í verðlaun. Á myndinni hér að ofan afhendir Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, Júlíusi farseðil- inn, en ferðin verður 3. - 10. maí. Morgunblaoið/Einar Falur Ingölfsson Slgurður Halgoson, forstjón Flugleiða, og Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSI, undirrita samstarfssamninginn. Sveinn Bjömsson, forseti ÍSÍ, og Bogi Ágústsson, blaðafulltrúi Flugleiða, fylgjast með. I\lýr samstarfssamningur undirrítaður við Flugleiðir - Gildir til 31. maí 1989 og er metinn á 20 milljónir króna í GÆR var undirritaður nýr samstarfssamningur milli Handknattleikssambands ís- lands og Flugleiða, sem gildir til 31. maí 1989. Flugleiðir hafa um árabil verið aðal- stuðningsaðili HSÍ og er þessi nýi samningur, sem er sá mesti innan íþróttahreyf- ingarinnar, metinn á 20 millj- ónir króna. Sem kunnugt er hefur íslenska landsliðið í handknattleik verið á ferð og flugi undanfarin ár, öðlast mikla reynslu og er í hópi bestu landsliða heims. „Liðið væri ekki svo sterkt sem raun ber vitni án stuðnings Flugleiða. Sam- an fljúgum við hátt og höldum öruggrí stefnu áfram. Nú gildir ekki lengur að keyra yfír mótheij- ana í fyrri hálfíeik og bnakka yfír þá í seinni, heldur fljúgum við jrtfír þá,“ sagði Jón Hjaltalín Magnússon, við undirritun nýja samningsins. Sigurður Helgason, forstjóri Flug- leiða, sagði við sama tækifæri að meta mætti styrk félagsins til HSÍ síðan á Ólympíuleikunum 1984 á 50 milljónir króna, en árangur landsliðsins væri einnig góð kynn- ing fyrir Flugleiðir óg nefndi Sigurður í því sambandi auglýs- ingu fyrirtækisins á búningum liðsins. Samningurinn Samningurinn felur í sér að efla handknattleiksíþróttina á íslandi og kynna þjónustu og starfsemi Flugleiða. Meðal atriða má nefna að: ■Flugleiðir verða með samstarfs- samningi þessum aðalstuðnings- fyrirtæki HSÍ vegna undirbúnings og þátttöku í Ólympíuleikunum í Seoul 1988. ■Flugleiðir aðstoða HSÍ og taka þátt í kostnaði við umsókn HSÍ um heimsmeistarakeppnina 1994 og gerð kynningarefnis vegna umsóknarinnar til alþjóða hand- knattleikssambandsins. ■Flugleiðir aðstoða HSÍ vegna landsleikjasamskipta við erlendar þióðir. ■Flugleiðir aðstoða HSÍ við að kjmna og halda árlegt Flugleiða- mót í handknattleik með þátttöku tveggja eða fleiri erlendra liða auk íslenska landsliðsins. ■Flugleiðir styrkja sex landa keppnina, sem verður haldin í Reykjavík og á Akurejri 19. - 26. ágúst. ■Flugleiðir aðstoða við dreifíngu kynningarefnis um árlegan hand- knattleiksskóla. ■Flugleiðir veita verðlaun í ljós- myndasamkeppni HSÍ, norska handknattleikssambandsiris og World Handball Magazimim handknattleiksmynd ársins 1988. ■Flugleiðir gefa öllum landsliðs- mönnum sérstaka búninga til að vera í á ferðalögum. JXHR FOLK ■ JÓN Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ, ogKjartan Stein- bach, stjómarmaður, fara til Prag í Tékkoslóvakíu í dag, þar sem full- trúar handknattleikssambanda í Evrópu funda um stofnun Evrópu- sambands og Evrópukeppni lands- liða. Gunnar Kjartansson, gjaldkeri HSÍ, verður einnig á fund- inum, en hann kemur til Prag frá Finnlandi. Þetta er í fyrsta sinn, sem fulltrúar allra handknattleiks- sambanda í Vestur- og Austur- Evrópu hittast á sameiginlegum fundi. ■ STEINGRÍMUR Hermanns- son, utanríkisráðherra, sem er á ferð í Afríku, sendi skeyti á undan sér til ríkisstjómar Tansaníu, þar sem hann óskaði eftir fundi með formanni handknattleikssambands Tansaníu í sambandi við umsókn HSÍ um HM 1994 á íslandi. Ut- anríkisráðherra mun heimsækja sjö Afríkuþjóðir í ferðinni og nota tæki- færið til að ræða umsókn HSÍ um HM. ■ / tilefni Ólympíuleikanna í Seoul lét framkvæmdanefnd þeirra útbúa sérstaka mynd með merkjum allra íþróttagreina, sem keppt verð- ur í. 2000 eintök voru framleidd og tókst Jóni Hjaltalín að verða sér úti um eintak númer 74. Að lokinni undirritun samstarfssamn- ingsins við Flugleiðir í gær, færði Jón Flugleiðum myndina að gjöf og tók Sigurður Helgason, for- stjóri Flugleiða, við henni fyrir hönd fyrirtækisins og sagði að henni yrði komið fyrir á góðum stað í fyrirtækinu. : í, m .

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.