Morgunblaðið - 28.01.1988, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 28.01.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988 59 HANDKNATTLEIKUR / VESTUR-ÞÝSKALAND Verður Kristján Arason að fara frá Gummersbach? yyÉg er með tilboð frá Atletico Madrid og Tecca í bakhöndinni“ Gummersbach fær ekki að fresta sex leikjum á meðan Kristján Arason leikur með íslenska landsliðinu á OL í Seoul „ÞÁTTTAKA íslenska lands- liðsins í Olympíuleikunum í Seoul er orðið stórt vandamál hér hjá Gummersbach. Félagið leikur sex leiki í 1. deildar- keppninni á meðan Ojympíu- leikarnir standa yfir. Osk Gummersbach að fá þessum leikjum frestað hefur verið hafnað. Ég ferfljótlega með æfingaplan íslenska landsliðs- ins á fund með stjóm Gummersbach og þá mun koma í Ijós hvernig stjórnar- menn ætla að leysa þetta vandamál," sagði Kristján Ara- son, landsliðsmaður íhand- knattleik íviðtal við Morgun- blaðið í gær. Stjómarmenn Gummersbaeh vita að ég met íslenska lands- liðið það mikið, að ég ætla mér að fara með þvf til Seoul. Spumingin er hvort þeir segja við mig, þegar ég tilkynni þeim að ég sé ákveðinn að fara til Seoul, að þeir verði að fá annan útlending í staðinn fyrir mig. Ég vona að þetta mál leysist farsæliega, því ég vona að ég verði áfram hér hjá Gummersbach. En ég er með tvö tilboð frá Spáni í bakhöndinni - frá Atletico Madrid og Tecca; tveimur af toppliðum Spánar. Ef ég verð ekki áfram hjá Gummersbach, þá fer ég til Spánar eða kem heirn," sagði Kristján. Vantar vinstrihandarskyttu Forráðamenn Gummersbach hafa sagt að þeir séu með ýmislegt á pijónunum í sambandi við að leysa vandamálin sem skapast við það að Kristján fari til Seoul. Þeir hafa bent á að að Gummersbach hafí staðið frammi fyrir sama vandamál- inu þegar Hameln vildi ekki láta hann lausan á sfnum tfma. Þá leysti danski landsliðsmaðurinn Erik-Vaje Rasmussen vandann, en hann var þá á förum frá félaginu til Dan- merkur. Framlengdi dvöl sína þá hjá Gummersbach á meðan Kristján var í fjötrum Hameln, sem vildi fá mikla peningaupphæð fyrir hann. Ef Kristján fer til Seoul, þá vantar Gummersbach illilega vinstrihand- arskyttu til að taka við hlutverki hans á meðan, í þeim sex leikjum sem félagið leikur í deildinni. „Það er vel skiljanlegt að þeir hjá Gumm- ersbach séu ekki yfír sig hrifnir. Ég get ekki leikið með félaginu 25% af 1. deildarkeppninni. Eini mögu- leikinn er, að Gummersbach fái lánaða vinstrihandarskyttu á meðan ég er í Seoul," sagði Kristján Vorft örugglega einmana Hvað segir Kristján um það að hann er að horfa á eftir flestum fslensku leikmönnum frá Þýska- landi heim á leið? „Það er mjög leiðinlegt að strákamir eru að fara heim. Ég hef reglulega samband við þá einu sinni í viku og verð örugglega einmana þegar þeir eru famir. Það var alltaf visst tilhlökk- unarefni þegar ég átti að leika með Gummersbach gegn þeirra Iiðum.“ Verður Gummersbach V-Þýska- landsmeistari? „Það kemur ekkert annað til greina hjá okkur. Gummersbach þekkir fátt annað en fyrsta sæti. Ef við náum að leggja Massenheim á úti- velli um næstu helgi og svo Essen heima, þá stöndum við með pálm- ann í höndunum," sagði Kristján. Kristjin Arason sést hér skora S landsleik gegn Dönum. ENGLAND Everton kafsigldi Sheffield Wednesday - Sharp með þrennu EVERTON lék snilldarlega gegn Sheffield Wednesday á Hillsborough í bikar- keppninni í gærkvöldi, vann 5:0 að viðstöddum 38.953 áhorfendum og voru öll mörkin skoruð í fyrri hálf- leik. FráBob Hennessy ÍEnglandi Þetta var fjórði leikur lið- anna, en hinum lauk öllum með 1:1 jafntefli. Graeme Sharp skoraði þrennu (5., 40. og 44. mín.), en Adrian Heath (19.) og Ian Snodin (45.) gerðu sitt mark- ið hvor. Lawrie Madden, miðvörður Sheffield Wed., lék ekki með vegna meiðsla og tókst Mark Cham- berlain ekki að fylla skarð hans. Everton leikur gegn Middles- borough í flórðu umferð á laugardaginn. HANDBOLTI Fram, Valur ogFylkirí - 8-liða úrslit Þrír leikir fóru fram í 16 liða úrslitum bikarkeppni HSÍ í jafærkvöldi. Fram vann IR 25:20 og skoruðu þrír Framarar 19 af mörk- um liðsins. Hannes Leifsson var markahæstur með átta mörk og þar af fjögur úr vítaköstum, Birgir Sig- urðsson skoraði sex mörk og Atli Hilmarsson fímm mörk. Hjá ÍR var Ólafur Gylfason atkvæðamestur með sjö mörk, öll úr vítaköstum, en Bjami Bessason skoraði sex mörk. Þá vann Valur Reyni 34:23 í Sand- gerði og Fylkir vann Þrótt 25:16. KNATTSPYRNA „Erum hérá „eyðieyju“ fyrir utan Ussabon“ - segir Lárus Guðmundsson. Stormur hefur hamlað æfingar Kaiserslautern í Portugal „VEÐURGUÐIRNIR eru ekki með okkur hér í Portugal. Stormur og rigning hef ur sett allt æfingaplan úr böndum. Hætt hefur verift við þrjá æf- ingaleiki sem vift áttum aft leika hór,“ sagði Lárus Guðmunds- son, landsliðsmaður í knatt- spyrnu, sem er nú í æfingabúð- um með Kaiserslautern í Portugal. Við erum hér á sumardvalarstað - eyju, sem er rétt fyrir utan’ Lissabon. Við komum hingað með feiju og tók siglingin 25 mín. Á þessum árstíma er eyjan hálfgerð „eyðieyja". Hótelið sem við búum á var opnað sérstaklega fyrir okkur. Það er ekki það skemmtilegasta sem atvinnuknattspymumenn gera - er að vera í tíu daga æfingabúð- Lárus Quftmundsson um, þar sem boðið er upp á hlaup og aftur hlaup, daginn út og inn. Við höfum ekkert getað æft með knött hér, þar sem knattspymuvöll- urinn sem við höfum til afnota, er á floti," sagði Láms. Láms er samningsbundinn Kaist- erslautem til 1989. Verður hann út þann tíma hjá félaginu? „Nei, ég er ákveðinn að fara frá Kaisters- lautem eftir þetta keppnistímabil. Ég hef leikið í Vestur-Þýskalandi í flögur ár og hefur það verið mikill skóli fyrir mig. Ég hef áhuga að reyna eitthvað nýtt - leika knatt- spymu í öðm landi," sagði Láms Guðmundsson, sem hefur verið at- vinnuknattspymumaður í sjö ár, með Waterschei í Belgíu og Uerd- ingen og Kaiserslautem í V-Þýska- landi. Hann ætlar sér að vera úti í eitt til tvö ár áður en hann kemur aftur heim. KNATTSPYRNA / 1.DEILD Antony Kari til liðs við KA Antony Karl Gregoiy, sóknar- leikmaðurinn efnilegi hjá íslandsmeistumm Vals f knatt- spymu, ákvað í gær að ganga til liðs við KA á Akureyri. Antony Karl mun þvf taka stöðu Tryggva Gunnarssonar, sem fór frá KA til Vals. Antony Karl er sjöundi leikmaður- inn sem yfírgefur herbúðir Valsmanna fá sl. keppnistímabili. Guðmundur Hreiðarsson hefur gengið til liðs við Víking, Njáll Éiðsson hefur tekið að sér þjálfun 3. deildarliðs Einheija á Vopna- fírði, Ólafur Jóhannsson er farinn til FH, þar sem hann verður leik- maður og þjálfari og Hafþór Sveinjónsson gekk til liðs við Víði í Garði. Þá hafa landsliðsmennimir Guðni Bergsson og Sævar Jónsson farið f viking til útlanda. Guðni til 1860 Munchen í V-Þýskalandi og Sæv- ar til Solothum f Sviss. Ovíst er hvort þeir koma aftur heim í sum- ar. Valsmenn hafa fengið tvo nýja Antony Karl Qregory leikmenn. Tryggva Gunnarsson og Jón .Gunnar Bergs, sem lék með Selfyssihgum sl. sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.