Morgunblaðið - 14.04.1988, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1988
Ýsuafli 50% meiri
en á síðasta ári
Þorskafli minni, en heildaraf linn
128.000 tonnum meiri
AFLI allra helztu nytjafiska okk-
ar nema þorsks í marz varð meiri
en í sama mánuði í fyrra. Heild-
araflinn i mánuðinum varð þvi
26.000 tonnum meiri en í fyrra.
Fyrstu þrjá mánuði ársins varð
aflinn samtals 793.069 tonn, en
var á sama tima í fyrra 665.016.
Aukningin liggur fyrst og fremst
í loðnu, en ýsuafli hefur einnig
aukizt verulega. Þorskaflinn er
hins vegar heidur minni.
í marzmánuði jókst þorskafli tog-
ara úr 14.504 tonnum árið áður í
20.031, Ufsaafli er svipaður en tals-
verð auking varð í karfa og ýsu.
Heildarafli togaranna jókst um tæp
10.000 tonn. Þorskafli báta féll úr
37.692 tonnum í 30.261, steinbfts-
afli jókst mikið en afli annarra botn-
fisktegunda var svipaður. Loðnuafli
varð nú 153.748 tonn á móti
134.708 í fyrra. Heildarafli bátanna
jókst því um 16.000 tonn. Heildar-
þorskafli í marz nú varð 52.920
tonn en 54.380 í fyrra. Ýsuafli er
nær tvöfalt meiri 4.998 á móti
2.673, af ufsa fengust nú 9.220 en
8.872 í fyrra, af karfa 9.814 á
móti 7.260 og af steinbít 2.750 á
móti 1.452. Rækjuafli nú er rúmum
500 tonnum meiri.
Fyrstu þijá mánuði ársins jókst
afli togara frá fyrra ári um 8.500
tonn fór úr 81.998 í 94.533. Þorsk-
afli jókst um rúm 3.000 tonn, ýsu-
afli um 3.400 tonn og karfaafli um
4.000 tonn. Bátaaflinn varð nú
693.001 tonn á móti 578.256 og
liggur munurinn nánast allur í
loðnu. Þorskafli varð 10.500 tonn-
um minni, ýsuafli jókst nokkuð,
ufsaafli var minni en steinbítsafli
jókst taisvert. Af loðnu öfluðust
þetta tímabíl nú 604.765 tonn á
móti 484.626 í fyrra.
Heildaraflinn þennan tíma varð
793.069 tonn, þar af 604.765 loðna
á móti 665.016 tonnum, þar af
loðnu 484.626 í fyrra. Þorskafli nú
varð 109.670 tonn á móti 116.669.
Ýsu afli varð 12.014 á móti 8.038
eða nær 50% meiri, ufsaafli er held-
ur minni, en meiri af karfa og
steinbít. Rækjuafli jókst um tæp
700 tonn.
VEÐURHORFUR í DAG, 14.4. 88
YFIRLIT f gær: Búist er við stormi á Vestfjörðum, norðvestur og
norðaustur um. Yfir Grænlandi er 1032 mb hæð en 1003 mb lægð
yfir Suðausturlandi þokast austnorðaustur. Hiti breytist lítiö.
SPÁ: Austan og norðaustan stinningskaldi eða allhvasst og allvíða
snjókoma á Norður- og Austurlandi, en norðan og norövestan
kaldi á Suður- og Vesturlandi. Rigning eða slydda verður á Aust-
fjörðum og Suöausturlandi, en þurrt að mestu á Vestur- og Suð-
vesturlandi. Hiti um eða rétt yfir frostmarki norðanlands en 2—4
stiga hiti syðra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG og LAUGARDAG: Austan og norðaustan
átt og hiti nálægt frostmarki. Él við norður- og austurströndina,
annars þurrt. Léttskýjað veröur víða á Vestur- og Suðvesturiandi.
TAKNi
Heiðskírt
'•■li Léttskýjað
A
•ö Hálfskýjað
m Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrírnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j o Hitastig:
10 gráður á Celsius
SJ Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
[~<^ Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Mti veöur
Akursyri 1 snjókoma
Reykjavík 3 lóttskýjað
Bsrgen 3 hálfskýjað
Helsinki 2 snjóél
Jan Mayen +10 léttskýjað
Kaupmannah. 8 léttskýjað
Narssansuaq +7 léttskýjað
Nuuk +6 akýjað
Osló 6 hálfskýjað
Stokkhólmur 6 léttskýjað
Þórshöfn 2 slydda
'Aigarva 20 hátfskýjað
Amstsrdam 8 skýjað
Aþena vantar
Barcelona 18 léttskýjað
Bertfn 7 skýjað
Chlcago 2 skýjað
Feneyjar 13 þokumóða
Frankfurt 8 skýjað
Glasgow 10 skýjað
Hamborg 7 úrkoma
grennd
Laa Palmas 2Hóttský{að
London 10 léttskýjað
Los Angeles 16 alskýjað
Lúxemborg 6 ekýjað
Madrfd 18 skýjað
Malaga 25 skýjað
MaHorca 22 léttskýjað
Montreal 1 léttskýjað
New York vantar
París 10 léttakýjað
Róm 17 hálfskýjað
Vín 12 rfgnlng
Washfngton Wlnnipeg 4 +8 léttskýjað skýjað
Nefnd sem fjallar um verðtryggingu:
Ahrif óbeinna
skatta á lánskjara-
vísitölu skoðuð
MEÐAL atriða, sem nýskipaðri
endurskoðunarnefnd um verð-
tryggingu er ætlað að kanna, er
hversu æskileg verðtrygging er
á skammtímalánum, áhrif
óbeinna skatta á lánskjaravísi-
tölu og samsetning lánskjaravísi-
töiunnar. Nefndin, sem við-
skiptaráðherra skipaði í gær, á
að Ijúka störfum 15. júní.
Birgir Árnason hagfræðingur í
viðskiptaráðuneytinu sagði að lán-
skjaravfsitala hefði verið í gildi frá
1979, þegar verðtryggi ng var
heimiluð með Ólafslögum. A þessu
tímabili hefði verið mikið samdrátt-
arskeið og mikið uppgangsskeið og
ýmsar fullyrðignar væru í gangi
um hver þróun verðlags, gengis og
launa hefði verið á þessu tímabili.
Ifyrsta skrefíð væri að komast að
því hvað væri sannast í því.
Meðal atriða sem nefndinni er
ætlað að kanna eru samkvæmt er-
indisbréfí: þróun einstakra verðví-
sitalna og samsetning lánskjaraví-
sitölu, áhrif verðtryggingar á
spamað, verðtrygging fjárskuld-
bindinga til skamms tíma, þáttur
óbeinna skatta í lánskjaravísitölu,
heimildir til að semja um verðtrygg-
ingarviðmiðun í lánsviðskiptum og
réttarstaða gildandi lánssamninga
verði gerðar breytingar á láns-
kjaravísitölu.
Nefndarmenn eru Bjöm Bjöms-
son bankastjóri Alþýðubankans,
Birgir Ámason hagfræðingur í við-
skiptaráðuneyti, Gestur Jónsson
hæstaréttarlögmaður, Magnús
Jónsson veðurfræðingur, Ólafur
ísleifsson efnahagsráðunautur for-
sætisráðherra, Stefán Melsted lög-
fræðingur og Yngvi Öm Kristinsson
hagfræðingur.
Ríkísendurskoðun:
Rýmri aðgang-
urtil skoðun-
ar gagna
FRUMVARP, sem gerir ráð fyrir
rýmkuðum heimildum til Ríkis-
endurskoðunar tíl skoðunar
gagna sem snerta greiðslur ríkis-
sjóðs til einstaklinga, félaga og
stofnana, var flutt á Alþingi í
gær. Einnig gerir frumvarpið ráð
fyrir að Rfkisendurskoðun fái
heimild til að skjóta ágreinings-
efnum um skoðunarheimild til
sakadóms.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
forseti Sameinaðs þings er einn
flutningsmanna frumvarpsins og
sagði hann í framsöguræðu að frum-
varpið væri lagt fram eftir ábending-
ar Ríkisendurskoðunar í kjölfar
deilna um hvort stofnunin gæti rann-
sakað sjúkrabókhald Heilsugæslu-
stöðvarinnar í Árbæ.
Nýr eigandi að
Víði Seljabraut
Engin verslun rekin í nafni Víðis
VERSLUNIN Víðir við Setfa-
braut í Breiðholti hefur skipt um
eigendur og verður nafni hennar
breytt einhvem næstu daga. Þar
með hafa bræðurnir Eirikur og
Matthías Sigurðssynir, sem á
undanförnum árum hafa einnig
rekið matvöurverslanir í Austur-
stræti, Starmýri og Mjódd, hætt
verslanarekstri undir nafni
Víðis.
Nýr eigandi, Ásgeir Þór Davíðs-
son, tók við versluninni við Selja-
braut á þriðjudag. Ásgeir rak áður
næturgrillið í Reykjavík. Verslunar-
stjóri er eftir sem áður Sigurður
Teitsson.
Fj ölsky lduhátí ð
til styrktar hjarta-
og lungiiaþeganum
Líðan hans nú með
ágætum að sögn
systur hans
Fjölskylduhátíð verður hald-
in f Laugardalshöll á sunnudag,
17. aprO, til styrktar Halldóri
Halldórssyni hjarta- og lungna-
þega. Umsjón með hátfðinni
hafa íþróttafélögin Breiðablik,
Augnablik og Aðall. Á hátfðinni
koma fram ýmsir þekktir tón-
listar- og fþróttamenn auk þess
sem menn frá Reykjavíkurborg
og bæjarstjóm Kópavogs
keppa í knattspymu.
Gróa Halldórsdóttir, sem er hjá
Halldóri bróður sfnum í Lundún-
um, sagði j samtali við Morgun-
blaðið að líðan Halldórs væri ágæt
nú eftir bakslag á miðvikudag
fyrir páska. Hann stundaði sfnar
æfíngar og færi auk þess tvisvar
í viku í skoðun. Auk foreldra
Halldórs dvelst yfirleitt eitt systk-
ina hans hjá þeim. Gróa sagði að
fjölskyldan gerði sér vonir um að
koma heim í maí en of snemmt
væri að segja nokkuð ákveðið um
það.
Meðal þeirra tónlistarmanna
sem koma fram á hátfðinni f Laug-
ardalshöll eru Valgeir Guðjónsson
og Bjartmar Guðlaugsson. Þá
keppir Breiðablik við úrval 1.
deildar leikmanna f handknattleik
í sfðasta stórleik vetrarins. Meðal
þeirra sem keppa eru Einar Þor-
varðarson, Júlíus Jónasson, Héð-
inn Gilsson, Þorgiis Óttar Mathi-
esen, Sigurður Gunnarsson og
Kristján Sigmundsson, sem mun
leika sinn sfðasta leik. Leikmenn
munu síðan keppa í vítakeppni
um titilinn vítaskytta 1. deildar
1988.
íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur hefur gefíð eftir leigu
á Laugardalshöllinni og allir þeir
sem koma ffarn gefa vinnu sfna.
Hátfðin hefat kl. 15.